Þjóðviljinn - 23.02.1990, Blaðsíða 26
Ásmundarsalurv/Freyjugötu, Harri
(Höskuldur Harri Gylfason), málverk,
opn lau kl. 14. Til 3.3.14-18 daglega.
FÍM-salurinn, Garðastræti 6, kynn-
ing á verkum Arnars Herbertssonar.
Til 6.3.14-18 daglega.
Gallerí Borg, Ingiberg Magnússon,
teikningar og akríl-myndir. Til 6.3.10-
18virkadaga, 14-18helgar.
Gallerí einn einn, Skólavörðustig
4a, Svala Sigurleifsdóttir, málverk. Til
1.3.14-18daglega.
Gallerí Graf, Logafold 28, verk Ástu
Guðrúnar Eyvindardóttur. Lau 14-18
e/ eftir samkomulagi.
Galleri RV (Rekstrarvörur) Réttar-
hálsi 2, Daði Guðbjörnsson, olíu-
myndir og grafík, lýkur í dag, opið 8-
17.
Gallerí Sævars Karls, Bankastræti
9, Guðjón Ketilsson, blýantsteikning-
ar. Til 16.3. verslunartími.
Hafnarborg, Hf, hluti af listaverka-
gjöf Eiríks Smith. Til 25.2.14-19 alla
daganemaþri.
Kjarvalsstaðir, 11-18 daglega,
austursalur: Kjarval og landið, verk e/
Kjarval í eigu Rvíkurborgar. Vestur-
salur, formleysismálverk úr safni Riis
verke/Asger Jorn, Alechinsky, Po-
liakoffo.fi. opn lau kl. 16.
Listasafn íslands, verk í eigu
safnsins (1945-1989). Verk nem-
enda úr Barnadeild Myndl. og hand-
íðask. ísl. Mynd mánaðarins, Vor-
koma eftir Trygg va Ólafsson, leið-
sögn er fi 13:30-13:45. Safnið er opið
12-18 alla daga nema mán. kaffistofa
opin á sama tíma. Aðgangur og leið-
sögn ókeypis.
Listasafn Einars Jónssonar opið
helgar 13.30-16, höggmyndagarður-
innalladaga11-17.
Listasafn Sigurjóns, járnmyndir
Sigurjóns og gjafir sem safninu hafa
borist undanfarin ár. Lau og su 14-17,
þri 20-22.
Norræna húsið, kjallari, Aurora 3,
samsýn. ungra norrænna lista-
manna. Til 11.3.14-19 daglega.
Ólafur Kvaran veitir leiðsögn um sýn-
ingunasu kl. 16:30.
Nýhöfn, Hafnarstræti 18, Gunnar
Örn, einþrykk og skúlptúrar. Til 7.3.
10-18 virka daga, 14-18 helgar.
Safn Ásgríms Jónssonar, Berg-
staðastræti, ÞingvallamyndirÁs-
gríms. Helgar, þri og fi 13:30-16, lýkur
í feb.
Sjóminjasafn íslands, Vesturgötu 8
Hf. Opið helgar 14-18, e/eftir
samkomulagi.
SPRON, Álfabakka 14, Gunnsteinn
Gíslason, múrristur. Til 27.4.9:15-16
mán-fö.
Þjóðminjasafnið, opið þri, fi, lau og
su 11-16.
íslandsbanki, Skipagötu, Akureyri,
myndir eftir Jón Eiríksson. Til 2.4.
Kaupvangsstræti 16, Akureyri,
Guðm. Ármann sýnir í vinnustofu
sinni, 16-20 ídag, 14-20lauogsu.
TÓNLISTIN
Kammermúsíkklúbburinn heldur
tónleika í Bústaðakirkju su kl. 20:30.
Kvartett fyrir flautu, lágfiðlu, selló og
gítar e/ Schubert, Kvartett í D-dúr e/
Mozart, Tríó í G-dúr e/ Beethoven og
Sónata fyrir flautu, fiðlu og píanó e/
Martinu. Flytjendur: Björn Árnason
(fagott), Halldór Haraldsson (píanó)
Helga Þórarinsdóttir (lágfiðla), Marti-
al Nardeau (flauta) Ólöf S. Óskars-
dóttir (selló), Snorri Örn Snorrason
(gítar) og ÞórhallurBirgisson (fiðla).
Símon ívarsson og Torvald Nilsson
gítarleikarar halda tónleika í Krists-
skirkju lau kl. 16. Á efnisskránni eru
einleiksverk og dúettar e/ m.a. Sjunn-
esson, Bach, Dowland og Scheidler.
i Örnólfur Kristjánsson sellóleikari
' og Nigel Lillecrap píanóleikari halda
tónleika í Listasafni Sigurjóns Ólafs-
sonar lau kl. 17. Verk e/ Bach,
Brahms, Vivaldi og Fauré.
Hótel ísland, jasskvöld í Café ísland
lau kl. 23:30. Tómas R. Einarsson
o.fél.
Hallgrímskirkja su kl. 17, dagskrá
með Olav Anton Thommessen, tón-
skáldi.
Heiti potturinn, Duus-húsi, jasstón-
leikar su kl. 21:30, Gammarnir endur-
vaktir.
Norræna húsið, dagskrá vegna
þings Norðurlandaráðs í Rvík su kl.
20:30. Sigmund Groven munnhörpu-
leikari, Ivar Anton Waagar pianó-
leikari, Lars Hauge vísnasöngvari,
Garðar Cortes óperusöngvari.
I
Gerður Gunnarsdóttir fiðluleikari
og Anna Guðný Guðmundsdóttirpí-
anóleikari halda tónleika á vegurn
styrktarfél. Tónskóla Sigursveins að
Hraunbergi 2 lau kl. 16. Sónötur e/
Beethoven, Schubertog Cesar
Franck.
LEIKLISTIN
Leikfélag Akureyrar, Eyrnalangirog
annað fólk, aukasýning su kl. 15.
Heill sé þér þorskur, í kvöld og lau kl.
20:30.
Leikfélag Hafnarfjarðar, Hrói
Höttur, frums. lau kl. 20. -
Þjóðleikhúsið, Endurbygging, í
kvöld og su kl. 20. Lítið fjölskyldufyrir-
tæki lau kl. 20, síðasta sýning.
Hvað á að gera um helgina?
Helgi Jóhannsson
framkvæmdastjóri Samvinnuferða-
Landsýnar
Fyrirtækið ætlar að safna saman krökkunum og foreldrunum á
furðufataball á laugardag, þar sem krakkarnir fá jafnframt að sjá
vinnustaðinn. Við ætlum að reyna að skemmta okkur svolítið með
fjölskyldunni. Á sunnudagsmorguninn er ég í hörkuknattspyrnu og
klukkan eitt fer allt á annan endann því þá verður farið að selja í fyrstu
orlofsferðir stéttarfélaganna.
Leikfélag Reykjavíkur, Ljós
heimsins, litla sviðinu í kvöld og lau kl.
20. Höll sumarlandsins, stórasviðinu
lau kl. 20. Töfrasprotinn lau og su kl.
14. Kjöt, í kvöld og su kl. 20.
ÍÞRÓTTIR
íslandsmót íþróttasambands Fatl-
aðra í frjálsum íþróttum innanhúss.
Hefst í Baldurshaga lau kl. 10, mótið
helduráfram í Laugardalshöll su kl.
13:30.
HITT OG ÞETTA
MÍR, kvikmyndasýn. í bíósalnum v/
Vatnsstíg 10 su kl. 16: Hamlet e/ Koz-
intsév sýnd í tilefni að aldarafmæli
Pasternaks. Aðgangur ókeypis og
öllum heimill.
Aldarafmæli Pasternaks, dagskrá í
félagsheimili MÍR, Vatnsstíg 10 lau kl.
15, Rússar og íslendingar segja frá
skáldferli Pasternaks og lesa upp
nokkur Ijóða hans á rússnesku og ís-
lensku. Uve Eschner leikur á gítar á
milli atriða. Sýning á Ijósmyndum
sem tengjast ævi og starfi Pastern-
aks opnuð við sama tækifæri.
Kvikmyndaklúbbur íslands, Byss-
uóð (Gun Crazy) e/Joseph H. Lewis
sýnd í Regnboganum lau kl. 15.
Norræna húsið, prófessor Olav Bö
heldur fyrirlestur su kl. 15: St. Olavs
historiske rolle.
Dagskrá í tilefni að þingi Norðurland-
aráðs í Norræna húsinu mán: Hádeg-
isfyrirlesturkl. 13, BorgþórS. Kjærn-
ested talar um fsland dagsins í dag á
sænsku og finnsku. Kvikmynd um ís-
land. 19:30 Þorbjörn Broddason dós-
ent, dagskrá fyrir blaðamenn frá
Norðurlöndum. 20:30 dagskrá með
Tomas T ranströmer verðlaunahafa
bókmenntaverðlauna Norðurlanda-
ráðs.
Félag eldri borgara I Rvík og nágr.
Göngu-Hrólfar hittast að Nóatúni 17
lau kl. 11. Aðalfundurfélagsins verð-
ur haldinn í Súlnasal Hótel sögu su kl.
13:30. Opið hús í Goðheimum su,
dansaðfrákl.20.
Félag eldri borgara Kópavogi, aðal-
fundurfélverðurhaldinn lau kl. 14Í
Félagsheimili Kópavogs. Skoraðá
fél.mennaðfjölmenna.
Félagsvist og gömlu dansarnir á
hverju föstudagskvöldi ÍTemplara-
höllinni, Tíglarnir leika fyrir dansi, allir
velkomnir.
Hana nú, lagt upp í laugardags-
gönguna frá Digranesvegi 12 kl. 10 í
fyrramálið.
Útivist, helgarferðir 23-25.2: Tind-
fjöll, Þórsmörk, brottför í báðar ferð-
irnar í kvöld kl. 20, upplýs. og miðar á
skrst. Dagsferðirsu: Þórsmerkur-
gangan 4 ferð kl. 10:30 Kolviðarhóll-
Reykir í Ölfusi, kl. 13 Hellur- Reykir í
Ölfusi. Brottför í báðar ferðir frá Um-
f.miðst. bensínsölu, stoppað við Ár-
bæjarsafn. Létt skíðaganga, brottför
kl. 13fráUmf.m.
Fjölmiðlar í samningahasar
í nýjasta tölublaði Vinnunnar
sem Alþýðusamband íslands gef-
ur út er að finna j>rein eftir Guð-
mund Rúnar Arnason stjórn-
málafræðing um samskipti fjöl-
miðla og verkalýðshreyfingar.
Guðmundur þessi hefur í námi
sínu rýnt gaumgæfilega í íslensku
dagblöðin og skoðað fréttir ljós-
vakamiðla frá því snemma árs
1987.
Áður hefur birst frásögn af nið-
urstöðum Guðmundar Rúnars
um hlutleysi íslenskra dagblaða,
eða kannski fremur skortinn á
því, en þær voru dregnar af
greiningu hans á pólitískum
fréttaskrifum blaðanna fyrir
kosningarnar. Þar kom Þjóðvilj-
inn ekkert sérstaklega vel út,
blaðið virtist fjári hallt undir ák-
veðinn flokk og andvígt öðrum.
Sem kemur kannski engum á
óvart. Það er þó trúa mín að um
þau flokkstengsl hafi losnað síð-
an, amk. í fréttaskrifum.
Nú hefur Guðmundur Rúnar
birt niðurstöður af greiningu
sinni á fréttaflutningi fjölmiðla
um verkfall opinberra starfs-
manna sem háð var á þeim tveim
mánuðum sem hann rýndi í blöð-
in vorið 1987. Sú greining leiðir f
Ijós að Þjóðviljinn kennir sig
réttilega við verkalýðshreyfing-
una eins og sjá má í haus blaðsins.
Hlutfall frétta af málefnum
vinnumarkaðarins reyndist vera
19,7% í Þjóðviljanum, 18% á
Stöð 2, 15,3% í Alþýðublaðinu,
15% í Sjónvarpinu, 14,2% í Tím-
anum, 11,4% í DV og 7,8% í
Morgunblaðinu. Hlutfallstölur
segja þó ekki alla söguna því
flestar fréttir af vinnumarkaði
reyndust vera í Morgunblaðinu,
205, en næstflestar í Þjóðviljan-
um, 153. Það gerir svona 7-8
fréttir á dag að jafnaði í hvoru
blaði.
Áherslur fjölmiðlanna voru
talsvert ólíkar. Alþýðublaðið
ræddi jafnoft við Guðlaug Þor-
valdsson ríkissáttasemjara,
Kristján Thorlacius formann
BSRB, Láru Júlíusdóttur lög-
fræðing ASÍ og Björn Björnsson
hagfræðing ASÍ. Hins vegar
ræddi DV 10 sinnum við Guð-
laug, 7 sinnum við Kristján og
sjaldnar við aðra. Þjóðviljinn
ræddi 7 sinnum við Ásmund Stef-
ánsson forseta ASÍ, 6 sinnum við
Kristján Thorlacius, 5 sinnum við
Margréti P. Ólafsdóttur úr samn-
inganefnd fóstra og fjórum sinn-
um við forystumann hjúkrunar-
fræðinga og tvo forystumenn
kennara. Morgunblaðið ræddi
níu sinnum við Kristján og sjö
sinnum við Guðlaug, Indriða H.
Þorláksson formann samninga-
nefndar ríkisins og Harald Hann-
esson formann Starfsmannafé-
lags Reykjavíkurborgar.
Guðmundur reiknar út hvernig
viðmælendur fjölmiðlanna skipt-
ast hlutfallslega. Þar kemur í ljós
að forystumenn launafólks eru
25,1% viðmælenda Þjóðviljans,
19% viðmælenda Tímans, 8%
viðmælenda Morgunblaðsins og
7,3% viðmælenda DV. Hins veg-
ar voru 18% viðmælenda Morg-
unblaðsins úr röðum atvinnurek-
enda og 28% yfirmenn opinberra
fyrirtækja og stofnana. 5,9% við-
mælenda Þjóðviljans voru úr
hópi atvinnurekenda og 17% yf-
irmenn ríkisstofnana.
Athyglisvert er einnig hvernig
Þjóðviljinn sker sig úr hvað varð-
ar kynferði viðmælenda. Hlutfall
karla hjá hinum fjölmiðlunum er
á bilinu 84,8-87,6% og var hæst f
Morgunblaðinu. Hlutfall karla í
Þjóðviljanum er hins vegar
73,5%.
í grein Guðmundar er einnig
að finna athyglisverðar hugleið-
ingar um efnistök fjölmiðla á tím-
um verkfallsátaka. Þar bendir
hann á það hvernig leitin að has-
arnum getur leitt blaðamenn inn
á hálar brautir. Dæmi:
„Þegar starfsemi skóla og
sjúkrahúsa raskaðist, voru ráða-
menn þjóðarinnar spurðir hvort
það væri ekki óábyrgt að semja
ekki strax. Þegar búið var að
semja, voru þeir spurðir hvort
þeir hefðu ekki gefið allt of mikið
eftir.“
Sagt er að gleymska kjósenda
sé helsti bandamaður ófyrir-
leitinna stjórnmálamanna.
Blaðamenn mega vara sig á að
falla ekki í sömu gryfjuna.
Grein Guðmundar Rúnars er
ágæt lesning fyrir þá sem að fjöl-
miðlun starfa og velta því fyrir sér
(sem vonandi allir gera) hvernig
hægt sé að nálgast það að vera
hlutlaus eða hlutlægur. Best væri
þó að fá allar niðurstöður könn-
unarinnar á þrykk. Er ekki von til
þess að einhver fáist til að gefa
þær út?
FJÖLMIÐLAR
ÞRÖSTUR
HARALDSSON
26 SÍÐA — NYTT HELGARBLAÐ Föstudagur 23. febrúar 1990