Þjóðviljinn - 20.03.1990, Síða 1
Þriðjudagur 20. mars 1990. 54. tölublað 55. árgangur.
Borgarstjórnarkosningar
Kristín í báðum herbúðum
KristínÁ., Ólína ogHrafn íprófkjörNýs vettvangs. Kristín áfram ÍAB. Stefanía Traustadóttir: Segðimig úrflokknum.
Steingrímur J.:Hver rœðursínum nœturstað. Tveirhœtta viðforvalABR. Nýr vettvangur biðlar til minnihlutaflokkanna
Kristín Á. Ólafsdóttir, Óiína
Þorvarðardóttir og Hrafn
Jökulsson ætla að taka þátt í próf-
kjöri Nýs vettvangs og Alþýðu-
flokksins sem haldið verður sjö-
unda og áttunda aprfl. Kristín
segist ekki ætla að segja sig úr
Alþýðubandalaginu á næstu
dögum, en Stefanía Traustadótt-
ir, formaður ABR, segist myndu
gera það ef hún væri í sporum
Kristínar.
„Ég ætla ekki að segja mig úr
Alþýðubandalaginu á næstu
dögum. Ég get heldur ekki séð að
þátttaka mín í þessu prófkjöri
breyti neinu um störf mín í borg-
armálaráði Alþýðubandalagsins.
Mér hefur gengið ágætlega að
starfa með því. Það verður hins
vegar að koma í ljós ef flokks-
stofnanir eru á öðru máli en ég í
þessu,“ segir Kristín Á. Ólafs-
dóttir, borgarfulltrúi Alþýðu-
bandalagsins, við Þjóðviljann.
„Ef ég væri óánægð með mín
stjórnmálasamtök og treysti
þeim ekki til þess að vinna að
pólitískum markmiðum mínum,
myndi ég segja mig úr þeim áður
en ég tæki sæti á lista annarra
stjórnmálasamtaka," segir Stef-
anía.
Ólafur Ragnar Grímsson, for-
maður Alþýðubandalagsins, vildi
ekki tjá sig um framboðsmálin í
Reykjavík í gær, en Steingrímur
J. Sigfússon, varaformaður
flokksins, vill ekki taka þannig til
orða að þátttaka Alþýðubanda-
lagsmanna í starfi og prófkjöri
Nýs vettvangs sé klofningur úr
Alþýðubandalaginu.
„Það er of snemmt að segja um
hvort þarna er um klofning í Al-
þýðubandalaginu að ræða. Leiðir
ákveðinna einstaklinga og
flokksins hefur skilið í þessari
lotu og það snýr meira að þessum
einstaklingum hvort þeir vilja
vera flokksmenn áfram. Hver
ræður sínum næturstað í þessum
efnum. Málið væri miklu alvar-
legra ef Birting sem félag hefði
gengið til liðs við Nýjan vettvang.
Auðvitað hefði verið best ef
tekist hefði samstaða um sam-
eiginlegt framboð. En svo varð
ekki og þá hefði mér fundist eðli-
legt að menn hefðu staðið saman
um G-listann. Það var tekin lýð-
ræðisleg ákvörðun um að bjóða
fram G-lista og það hefði verið
eðlilegt að fólk hefði lotið vilja
meirihlutans.
Ég vil ekki tjá mig um hvort
halda á framboði G-lista í
Reykjavík til streitu. Því ráða
Reykvíkingar,“ segir Steingrím-
ur.
Hann vill ekkert um það segja
hvort forysta flokksins eigi að
blanda sér í framboðsmálin í
Reykjavík og segist ekki vita til
þess að þessi mál verði rædd á
fundi framkvæmdastjórnar í dag.
Nýr vettvangur hefur boðið
Alþýðubandalaginu og öðrum
minnihlutaflokkum í Reykjavík
aðild að prófkjörinu í apríl. Kjör-
nefnd ÁBR heldur þó áfram
störfum og að sögn Ólafs Darra
Andrasonar, formanns nefndar-
innar, er búist við að nefndin skili
af sér öðru hvoru megin við næstu
helgi.
Þeir Gunnar H. Gunnarsson
og Arnór Pétursson tilkynntu í
gær að þeir væru hættir við þátt-
töku í forvali Alþýðubandalags-
ins. Gunnar segist vera óánægður
með vinnubrögð kjörnefndar,
sem ekki hafi séð ástæðu til að
ræða við hann að fyrra bragði frá
því að framboðsfrestur til forvals
rann út 1. mars.
Kristín Á. Ólafsdóttir segist
A ustur-Þýskaland
Afdráttarlaus
andkommúnismi
If osningabandalag kristilcgra
IV demókrata fékk 48,14 prósent
atkvæða í kosningunum í Áustur-
Þýskalandi á sunnudag. Sósíal-
demókratar komu næstir með að-
eins 21,84 prósent atkvæða en
ýmsir höfðu áður spáð þeim sigri.
Fljótlega eftir að úrslitin urðu
Ijós buðu kristilegir demókratar
sósíaldemókrötum og frjálsum
demókrötum, sem fengu 5,28
prósent atkvæða, til samstarfs um
myndun samsteypustjórnar. Slík
stjórn hefði nægjanlegan þing-
styrk til að koma stjórnarskrár-
breytingum í gegnum þingið en til
þess þarf tvo þriðju hluta þing-
manna.
Sósíaldemókratar höfnuðu
hins vegar samstarfsboðinu á
þeirri forsendu að þeir hefðu gef-
ið kosningarloforð um að mynda
hvorki stjórn með kommúnistum
né kristilegum demókrötum.
Dyggur stuðningur Kohls
kanslara Vestur-Þýskalands við
kosningabandalag kristilegra
demókrata og bein þátttaka hans
í kosningabaráttunni er talin hafa
haft veruleg áhrif á brautargengi
þeirra. Loforð Kohls rétt fyrir
kosningarnar um að austur-
þýskir sparifjáreigendur fengju
eitt vestur-þýskt mark fyrir hvert
austur-þýskt hafði líka sitt að
segja.
Kristilegir demókratar leggja
áherslu á hraða sameiningu
þýsku ríkjanna og afgerandi
uppgjör við það þjóðfélagskerfi
sem kommúnistar komu á í
Austur-Þýskalandi. Eitt höfuðví-
gorð flokksins í kosningunum
var: “Aldrei aftur sósíalisma!"
Þrátt fyrir hægrisveifluna fékk
Lýðræðislegi sósíalistaflokkur-
inn, sem stofnaður var á rústum
kommúnistaflokksins, ein 16,33
prósent. Það er jafnvel meira
fylgi en margir forystumenn
flokksins höfðu þorað að vona.
Reuter/rb
Sjá nánar bls. 7
stefna að sæti ofarlega á lista nýja
aflsins. Hrafn Jökulsson segist
ekki hafa augastað á tveimur
efstu sætunum, en Ólína stefnir
ákveðið í efsta sætið.
„Ég stefni að sjálfsögðu í efsta
sætið, en auðvitað verður lýðræð-
isleg kosning að ráða,“ segir
Ólína.
Hún segist telja raunhæft að
halda að Nýr vettvangur og Al-
þýðuflokkurinn geti náð að
minnsta kosti þremur borgarfull-
trúum.
Nýr vettvangur og Alþýðufl-
okkurinn hafa komið sér saman
um prófkjörsreglur og samkvæmt
þeim á að kjósa um átta efstu sæt-
in. Þeir sem hreppa þau eiga svo
að mynda uppstillingarnefnd
ásamt þremur fulltrúum frá
hverjum þeim samtökum sem að-
ild eiga að prófkjörinu.
Hátt í tvö hundruð manns hafa
gerst félagar í Samtökum um nýj-
an vettvang, sem stofnuð voru á
laugardaginn. Ragnheiður Da-
víðsdóttir var kjörin formaður
samtakanna.
-gg
Ragnar Stefánsson sýnir blaðamanni hvernig fyrsti skjálftinn á laugardagsmorgni birtist á jarðskjálftamæl-
um Veðurstofu íslands. Mynd: Jim Smart.
Höfuðborgarsvœðið
Allt lék á reiðiskjálfi
Uggur greip um sig ígœrmorgun þegarjarðskjálfti sem mœldist4,7 stig
skók Suðurnes og hófuðborgarsvœðið. Sennilega stœrsti skjálftinn í
arna er á ferðinni venjulegt
landrek sem er stöðugt í gangi
og leiðir til svona jarðskjálfta-
hrina með ákveðnu millibili,“
sagði Ragnar Stefánsson jarð-
skjálftafræðingur um skjálftana
sem skóku Suðurnes og höfuð-
borgarsvæðið í gær en stærsti
skjálftinn mældist 4,7 stig á Ric-
hterkvarða.
Stóri skjálftinn átti upptök sín
vestanvert við Kleifarvatn í
Sveifluhálsi. Þarna hófst jarð-
skjálftahrina snemma á laugar-
dagsmorgni þegar þar mældist
skjálfti sem var 3,4 stig. Síðan
hafa mælst margir skjálftar, stórir
og smáir, en sá stærsti varð
skömmu fyrir klukkan 11 í gær-
morgun og mældist tæplega 5
stig. Á eftir honum komu tveir
skjálftar um og yfir 3 stig og um
miðjan dag komu tveir í viðbót og
mældist annar þeirra 3,7 stig.
Stærsta skjálftans varð vart allt
frá Austur-Landeyjum vestur á
Snæfellsnes og í Búðardal. Hins
vegar hafði húsfreyjan í ísólfs-
skála sem er rúmlega 15 km suð-
þessari hrinu
vestur af upptökum skjálftans
ekki orðið vör við neitt og kvaðst
hún þó hafa setið við sauma í eld-
húsinu. „Ég heyrði bara um
skjálftann í útvarpinu,“ sagði
Hertha Guðmundsson í spjalli
við Þjóðviljann.
Nokkur uggur greip um sig
meðal fólks og voru brögð að því
að fólk yfirgæfi hús sín þegar
skjálftinn reið yfir en hann stóð í
nokkrar sekúndur og lék allt á
reiðiskjálfi innanhúss.
Hvergi hefur frést af teljandi
skemmdum af völdum skjálftans
en í amk. einu húsi í Reykjavík
kom sprunga í vegg. Ungur
drengur í Hafnarfirði féll á milli
hæða í húsi þegar gólfhleri sem
hann stóð á lét undan í skjálftan-
um. Drengurinn marðist nokkuð
en slasaðist ekki alvarlega.
Ragnar Stefánsson flaug ásamt
Guðjóni Pedersen forstöðu-
manni Almannavarna yfir
Kleifarvatn síðdegis í gær til að
kanna hvort eitthvert rask hefði
orðið af skjálftanum. Sáu þeir lít-
ilsháttar grjóthrun úr Sveifluháls-
inum og á stöku stað hafði snjór
hreyfst en meira hafði ekki gerst.
Enginn var í Krýsuvík í gærmorg-
un en Snorri Welding fór þangað
síðdegis. Kvaðst hann hafa kann-
að ástand skólahússins og ann-
arra mannvirkja og ekið um
svæðið en ekki séð nein verksum-
merki skjálftans. „Það er eins og
þetta hafí allt leitt í aðrar áttir,“
sagði hann.
Að sögn Ragnars varð svipuð
hrina síðast á þessum slóðum árið
1973 en þá mældist stærsti skjálft-
inn rúmlega 5 stig. Átti hann
upptök sín heldur vestar en þessi
hrina. Ragnar sagði að búast
mætti við einhverjum skjálftum
áfram í nágrenni Kleifarvatns, þó
ekki á alveg sama stað og stóri
skjálftinn í gær. Líkur væru á
skjálftum annað hvort í Vestur-
hálsi sem er fyrir vestan Sveiflu-
háls eða Brennisteinsfjöllum
austan við Kleifarvatn. Hann
taldi þó sennilegt að skjálftinn í
gærmorgun væri sá stærsti í þess-
ari hrinu.
-ÞH