Þjóðviljinn - 20.03.1990, Page 2
________________________FRETTIR__________________________
Seyðisfjörður
Taka höndum saman
Almenningshlutafélagið Flanni hf. stofnað umfiskvinnslu og útgerð.
Rúmlega 37 miljóna króna hlutafé. Um 70 -100 á atvinnuleysisskrá
Ifyrradag var stofnað almenn-
ingshlutafélagið Flanni hf. á
Seyðisfirði um fiskvinnslu og út-
gerð. Frá áramótum hefur cngin
fískvinnsla verið í bænum og hafa
þvi að jafnaði verið þar um 70 -
100 manns á atvinnuleysisskrá.
Tveir togarar eru gerðir þaðan út
og hafa þeir siglt með aflann frá
áramótum og smábátar sett í
gáma.
Að sögn Jónasar Hallgríms-
sonar forseta bæjarstjórnar er
Afli
Munar mest
um loðnuna
Heildaraflinn í ár orðinn
um 150 þúsund tonnum
meiri en á sama tíma í
fyrra
Fyrstu tvo mánuði ársins er
heildarafli landsmanna orðinn
rúmlega 150 þúsund tonnum
meiri en hann var á sama tíma í
fyrra. Því veldur meiri loðnuafli
nú en þá en aftur á móti er
þorskaflinn töluvert minni.
Þetta kemur fram í bráða-
birgðatölum frá Fiskifélagi ís-
lands. Þar kemur fram að
heildaraflinn frá áramótum er
orðinn tæp 600 þúsund tonn á
móti tæpum 450 þúsund tonnum
fyrirári. Af heildaraflanum mun-
ar mest um þá mokveiði sem ver-
ið hefur á loðnumiðunum frá ára-
mótum en í febrúarlok nam loðn-
uaflinn rúmum 500 þúsund tonn-
um á móti rétt rúmum 360 þús-
und tonnum á sama tíma í fyrra.
Aftur á móti var þorskaflinn á
tímabilinu tæp 50 þúsund tonn á
móti tæpum 57 þúsund tonnum
fyrir ári. í síðasta mánuði var þor-
skafli togara rúm 12 þúsund tonn
en var rúm 16 þúsund tonn 1989.
Hins vegar er þorskafli báta svip-
aður nú og þá. Þorskafli smábáta
er aftur á móti tvöfalt meiri en
hann var á sama tíma í fyrra eða 2
þúsund tonn á móti rétt um eitt
þúsund tonnum í febrúar 1989.
-grh
I
atvinnulífið í bænum búið að vera
hreinasta hörmung frá áramótum
eða frá þvf að allri fiskvinnslu var
hætt. I haustbyrjun var Fisk-
vinnslan hf. lýst gjaldþrota og tók
þá útgerðarfélagið Gullberg
þrotabúið á leigu fram að ára-
mótum. Síðan þá hefur ekkert
verið að gera hjá fiskvinnslufólki
Náttúruverndarráð, Slysa-
varnafélagið, Vegagerðin og
fleiri aðilar hafa tekið höndum
saman gegn akstri utan vega til
verndar náttúru landsins. Sér-
staklega á það við akstur utan
vega á friðlýstum svæðum, en
eins og kunnugt er hafa ferðalög
um hálendi landsins farið vaxandi
með ári hverju.
f því augnamiði hefur verið
gefinn út sérstakur bæklingur
sem verður dreift til allra þeirra
sem hlut eiga að máli. Þetta er
og það dregið fram lífið á at-
vinnuleysisbótum.
Á stofnfundinum voru tæplega
100 manns og voru gefin loforð
fyrir hlutafé sem nemur rúmlega
37 miljónum króna. Aðstand-
endur nýja félagsins eru bæjar-
sjóður, fyrirtæki og einstaklingar
gert til að vekja fólk til umhug-
sunar um gildi ósnortinnar nátt-
úru og hversu mikilvægt það er að
vernda þessa auölind landsins
gegn átroðningi og skemmdum af
völdum aksturs utan vega sem og
akstri utan merktra slóða.
Á síðustu árum hefur umferð
innlendra sem erlendra ferða-
manna um hálendið aukist til
muna og þá einkum eftir tilkomu
fjórhjóla, kraftmeiri faratækja og
síðast en ekki síst belgdekkjanna.
í bænum. Jónas sagði að meðal
fyrstu verka félagsins yrði að
kaupa skip til hráefnisöflunar þar
sem tæki og tól til vinnslunnar
væru fyrir hendi og vart ástæða til
að ætla að þau yrðu seld úr bæn-
um þegar fram færi nauðungar-
uppboð á eignum Fiskvinnslunn-
ar. -grh
Með hækkandi sól getur akstur á
frost- og snjólausu landi yfirleitt
valdið meiri skaða en þegar land
er frosið. Land er þá sérstaklega
viðkvæmt þegar klaki er að fara
úrjörðu. Gildirþá einu hvort far-
artækin eru bifreiðar, mótorhjól,
fjórhjól, dráttarvélar eða önnur
vélknúin ökutæki, sárin verða oft
ljót. Þá er mosi sérstaklega við-
kvæmur og til marks um það má
sjá för í honum allt að hálfri öld
eftir að ekið var síðast yfir hann.
-grh
Baldur
Enn við
biyggju
á Skaga
Stefnt að því aðflóabát-
urinn Baldur verði af-
hentur um næstu mán-
aðamót. Baldursmenn
útiloka ekki skaðabóta-
kröfur. Kostnaðurfer vel
yfir 240 miljónir króna
Flóabáturinn Baldur er enn
bundinn við bryggju í skipa-
smíðastöð Þorgeirs og Ellerts á
Akranesi, en stefnt er að því að
afhenda skipið um næstu mán-
aðamót. Skipasmíðastöðin og út-
gerð Baldurs eru að reyna að ná
samkomulagi um kostnað við
smíði skipsins, en að sögn Guð-
mundar Lárussonar, fram-
kvæmdastjóra Baldurs, er enn
ekki ljóst hvort útgerðin höfðar
skaðabótamál á hendur Þ&E
vegna seinkunar á afhendingu.
Upphaflega var gert ráð fyrir
að nýi Baldur gæti hafið siglingar
síðast liðið sumar. Þá var upphaf-
lega áætlað að skipið myndi kosta
157 miljónir króna á verðlagi í
mars 1987, en verðið er komið í
240 miljónir og Baldursmenn
hafa verið ósáttir við ýmsa kostn-
aðarliði. Enn má búast við að
nokkrar miljónir bætist við
kostnaðinn.
„Deila okkar við Þorgeir og
Ellert vegna kostnaðar við smíði
skipsins er ekki endanlega leyst,
en við höfum komist nær
samkomulagi. Við erum búnir að
borga 240 miljónir og vonum að
það verði ekki meira. Dráttur á
afhendingu skipsins hefur komið
okkur mjög illa, en ég hef von um
að við fáum skipið um næstu
mánaðamót," sagði Guðmundur
Lárusson, framkvæmdastj óri
Baldurs hf. í Stykkishólmi, í sam-
tali við Þjóðviljann.
Jósef Þorgeirsson, fram-
kvæmdastjóri Þ&E, sagði að
stefnt væri að því að afhenda
skipið í lok mánaðarins.
„Við áttum mjög ánægjulegan
fund með forráðamönnum Bald-
urs í vikunni og deilur okkar eru
nú leystar að mestu,“ sagði Jósef.
Hann sagðist ekki kannast við
að skipið hefði hækkað í verði frá
upphaflegum áætlunum. Þvert á
móti segir hann verðið hafa lækk-
að miðað við gengi dollars síðan
1987. Gerðir hafa verið 75 við-
aukasamningar síðan smíði Bald-
urs hófst.
-gg
Með tilkomu fjórhjólsins hafa nokkur sveitarfélög séð sig knúin til að banna allan akstur vélknúinna
ökutækja utan vega í sínum lögsagnarumdæmum til verndar gróðri og landi.
b Mar Náttúruvernd
Átak gegn akstrí utan vega
Til verndar náttúru landsins gegn átroðningi og umferð
Aukaspilakvöld
Aukaspilakvöld verður hjá
Verkakvennafélögunum Fram-
sókn og Sókn miðvikudagsvöldið
21. mars kl. 20.30 í Sóknarsaln-
um, Skipholti 50A.
Aðalfundur Fugla-
verndunarfélagsins
Aðalfundur Fuglaverndunarfé-
lags íslands verður haldinn í
hliðarstofu Norræna hússins á
morgun.
Fjaran mín
f dag verður farin kynnisferð í
fjörur Kópavogs á vegum Nátt-
úruverndarfélags Suðvestur-
lands. Tilgangur ferðarinnar er
að kynna „Fjöruna mína“ en svo
nefnist nýtt verkefni sem áhuga-
mannafélög um náttúruvernd
standa að. Strandlengju landsins
hefur verið skipt í fjörueiningar
sem er hver um 500 metrar að
lengd og geta allír fengið úthlutað
fjörueiningu og gerst vaktmenn.
Vaktmaður skilar útfylltu eyðu-
Lionsklúbburinn Ægir afhenti nýlega Grensásdeild Borgarspítalans
að gjöf blóðþrýstingsmæla og lyftur fyrir sjúklinga og var þessi mynd
tekin við það tækifæri.
blaði um sína einingu á þriggja
mánaða fresti og úr þeim verður
svo unnin skýrsla um ástand
strandlengjunnar hér við land. f
kynnisferðinni um fjörur Kópa-
vogs verður þetta verkefni kynnt.
Ferðin hefst við Náttúrufræði-
stofu Kópavogs kl. 17 í dag.
Kvennarannsóknir
Áhugahópur um íslenskar
kvennarannsóknir heldur fund í
Skólabæ, Suðurgötu 26, annað-
kvöld kl. 20.30. Marta Jensdóttir
segir frá rannsókn sinni á at-
vinnuþátttöku kvenna í dreifbýli.
Eignarhald og rekstr-
arform raforkuveitna
Samband íslenskra rafveitna
heldur á morgun námstefnu um
eignarhald og rekstrarform raf-
orkuveitna að Hótel Loftleiðum.
Námstefnan er fyrir eigendur og
starfsmenn raforkufyrirtækja og
hefst kl. 9.30.
Don Kíkóti
Dr. Karl-Ludwig Selig fyrrum
prófessor í spænskum bók-
menntum við Columbiaháskóla í
Bandaríkjunum flytur opinberan
fyrirlestur í boði Heimspeki-
deildar Háskóla íslands
fimmtudaginn 22. mars kl. 17.30 í
stofu 101 í Odda. Fyrirlesturinn
nefnist „Don Quixote and the
Art of the Novel" og verður hann
fluttur á ensku. Dr. Selig lét af
starfi í fyrra vegna aldurs. Hann
hefur verið útgáfustjóri fjöl-
margra bókmenntatímarita í
Bandaríkjunum og er einkum
kunnur fyrir fræðistörf og greina-
skrif um Cervantes og García
Lorca. Fyrirlesturinn er öllum
opinn.
Upphafsmaöur
íslendingasagna
„Er Snorri Sturluson upphafs-
maður íslendingasagna?“ nefnist
fyrirlestur sem dr. Jónas Krist-
jánsson, forstöðumaður Stofnun-
ar Árna Magnússonar flytur á
vegum Stofnunar Sigurðar Nor-
dals í dag, í stofu 101 í Odda,
hugvísindahúsi Háskóla íslands.
f fyrirlestrinum fjallar Jónas um
hugmyndir sínar um ritunartíma
íslendingasagna, en um það efni
hefur hann skrifað mikið, m.a. í
doktorsriti sínu Um Fóstbræðra-
sögu. Fyrirlesturinn er öllum op-
inn og hefst kl. 17.15.
Aríur á Háskóla-
tonleikum
í hádeginu á miðvikudag munu
Sigurður Bragason barítón og
Elín Guðmundsdóttir sembal-
leikari flytja aríur, á Háskólatón-
leikum, frá þeim tíma er óperan
var að stíga sín fyrstu skref. Tón-
leikarnir verða í Norræna húsinu
og hefjast kl. 12.30.
2 SÍÐA - ÞJÖÐVILJINN Þriðjudagur 20. mars 1990