Þjóðviljinn - 20.03.1990, Qupperneq 4
Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis og verkalýðshreyfingar
Óskir fólksins
Kosningaúrslitin í Austur-Þýskalandi hafa komið mörgum
á óvart. í stað þess að jafnaðarmenn ynnu sigur, eins og
víða hafði verið spáð, kom í Ijós að Kristilegir demókratar og
hægri öflin höfðuðu sterkar til fólksins. Þar að auki fékk
arftaki gamla kommúnistaflokksins um 16% stuðning kjós-
enda.
Ragnar Baldursson rökstuddi það í fréttaskýringu í Nýju
helgarblaði Þjóðviljans á föstudaginn, að kosningar Austur-
Þjóðverja væri einhverjar mikilvægustu kosningar í Evrópu
frá stríðslokum og gætu haft áhrif á stjórnmálaþróunina,
bæði í Austur- og Vestur-Evrópu. Fleiri aðhyllast þetta við-
horf, og ekki síður hitt, að með þessum kosningum mundu
fást skýrari línur í það með hvaða hætti og hve hratt
Þýskaland yrði sameinað að nýju. Þetta hefur gengið eftir.
Austur-Þjóðverjar sögðu það síðan skýrt og greinilega á
sunnudaginn, með því að veita Kristilegum demókrötum
brautargengi, að þeir vildu hraða endursameiningu Þýska-
lands, eins og sá flokkur hefur barist fyrir. Að þessu leyti er
augljóst, að Helmut Kohl, kanslari Vestur-Þýskalands og
flokksformaður Kristilegra demókrata, hefur þegar haft um-
talsverð áhrif í Austur-Þýskalandi. Staða hans í evrópskum
stjórnmálum hefur líka styrkst.
Á það var bent í leiðara hér fyrr í vetur, að margir Þjóðverj-
ar hefðu annað og meira í huga, þegar rætt er um samein-
ingu Þjóðverja, en þau svæði sem takmarkast innan landa-
mæra þýsku ríkjanna núna. Sterk tilfinning fyrir samstöðu
með þeim hópum þýskumælandi fólks í öðrum ríkjum Evr-
ópu er enn lifandi. Helmut Kohl höfðaði eflaust til þeirrar
kenndar með orðum sínum varðandi þann hluta gamla
Þýskalands sem nú tilheyrir Póllandi og hugmyndum um að
endurskoða því landamærin við endursameininguna. Sumir
álitu það frumhlaup hjá honum, ekki síst í Ijósi þess hve fljótt
hann lét undan í málinu. Nú hefur ef til vill komið á daginn, að
hann var með þessari afstöðu aðeins klókindalega að leggja
vísvitandi enn eitt lóðið á vogarskálar Kristilegra demókrata í
Austur-Þýskalandi.
Allt þetta er nauðsynlegt að hafa í huga þegar reynt er að
meta hvaða andrúmsloft mun leika um endursameinað
Þýskaland. Ljóst er að ákveðin íhaldssemi í viðhorfum og
afstöðu á þar djúpar rætur. Og hið sama á raunar við um
evrópsk stjórnmál í heild. Þótt rætt sé um nýja og ferska
strauma, uppgjör og endurreisn, opin landamæri og aukið
frelsi, ná þessar lýsingar til ákveðinna þátta, en vel má til
sanns vegar færa að ýmis gamalkunnug hugmyndafræði sé
þar líka á ferð.
Þeir sem fást við íslensk stjórnmál taka eftir því, að bæði í
skoðanakönnunum og í kosningum af ýmsu tagi, til dæmis
innan Háskóla íslands, ná hægrimenn betri árangri en um
langt árabil. Til lítils er að reyna að útskýra þetta einvörð-
ungu með sundurþykkju andstæðinganna. Það er líka ein-
földun að segja sem svo, að markaðsbúskapur og frjáls-
hyggja hafi fest sig svo í sessi og sannað ágæti sitt, að
boðberar hennar nái eyrum fjöldans best.
Hugsanlegt er að minnsta kosti, að í þessum íslensku
niðurstöðum og hinu þýsku séum við að kynnast ákveðinni
þrá eftir stöðugleika, þörfinni á öryggi sem styðst við íhalds-
semi. Óstöðugleiki efnahagslífs, aukning glæpa og fleiri
veikleikamerki hafa verið tíunduð rækilega í vestrænum
samfélögum undanfarin ár. Reynslan sýnir, að þung undir-
alda í þjóðfélaginu vill andæfa með því að fylgja þeim sterk-
asta, þegar svo horfir.
Hins vegar er það í þessu sambandi áleitið umhugsunar-
efni, hvort samþjöppun valds og auðs í geiranum, hérlendis
og erlendis, ásamt síaukinni persónudýrkun á frægðar- og
áhrifafólki, er að færa okkur inn í miklu stéttskiptara þjóðlíf
fámennisvalds en áður. Þegar höfð er hliðsjón af þeim
straumi íhaldssemi sem vitnast nú í þýsku ríkjunum, er hægt
að velta því fyrir sér, hvort siðbót hinnar félagslegu vakning-
ar og verkalýðshreyfingar sem markað hefur þessa öld, sé
nú að mæta andstæðingi sínum á nýjum grundvelli.
KLIPPT OG SKORIÐ
Konur, klám og DV
Samtökin „Konur gegn klámi“
hafa vakið athygli á myndbönd-
um sem eru í umferð og sýna
klám af óhrjálegasta tagi. Af
þeim dæmum hefur verið rifjað
sitthvað upp úr gamalli og nýrri
umræðu um klám og erótík - og
skal ekki farið nánar út í þá sálma
hér. Nema hvað tækifærið skal
notað til að árétta stuðning við
það sjónarmið, að klám sé eink-
um skaðlegt sem áróðursmaskína
fyrir tilfinningaleysi. Allri
mennsku er burt kippt úr þeim
samskiptum sem gamall skóla-
maður kallaði eitt sinn „hið fín-
asta í lífinu".
En nú er frá því að segja að DV
var í nokkurri Ídemmu út af þess-
um málum. f því blaði höfðu birst
auglýsingar þær, sem samtökin
„Konur gegn klámi“ fóru eftir
þegar þau prufukeyptu spóluna
herfilegu sem borin var undir
fjölmiðla og alþingismenn. Ellert
B. Schram ritstjóri skrifaði á dög-
unum leiðara um þetta mál, þar
sem hann reynir að firra blaðið
ámæli, en tekst í rauninni ekki
betur til en svo að hann gerir illt
verra. Lítum á hans málsmeð-
ferð:
Peir öfuguggar!
„DV hefur ekki áhuga á því að
vera vettvangur fyrir auglýsingar
og þjónustu, þar sem myndbönd
ofbeldis og andstyggðar eru á
boðstólum. Þegar samtökin
„Konur gegn klámi" upplýstu
hvers eðlis ýmis þau myndbönd
eru sem kölluð hafa verið „full-
orðinsmyndbönd, tók ritstjórn
DV þá ákvörðun að slíkar auglýs-
ingar ættu ekki erindi inn á síður
blaðsins. Með þessari ákvörðun
er ritstjórn DV ekki að setja sig í
dómarasæti og kveða upp úr með
það hvað sé siðlegt eða siðlaust.
Hér er hinsvegar verið að undir-
strika þá skoðun og þá afstöðu
blaðsins að það styður þá baráttu
kvenna og annarra þess efnis að
ofbeldisverk gegn konum, af-
brigðileg kynhneigð og öfugugg-
aháttur í samlífi eigi ekki erindi til
eins eða neins. Með sama hætti
hefur DV neitað að birta auglýs-
ingar frá samtökum samkyn-
hneigðra. Þeir sem slíkar hvatir
hafa verða að eiga þær fyrir sig
sjálfa og ekki leitað fulltings DV
til að koma þeim á framfæri".
Ljóta þulan atarna!
Siðlaus samanburður
í fyrsta lagi: það er mikill mis-
skilningur hjá ritstjóra DV að
hann sé ekki að „setja sig í dóm-
arasæti". Það er hann einmitt að
gera með leiðara þessum og mun-
ar um minna. Hann er ekki bara
að segja að það sé siðlaust að
velta sér upp úr ofbeldisverkum
gegn konum í klámmyndum -
eins og menn eru vafalaust sam-
mála um. Hann þarf endilega að
nota tækifærið og líkja fram-
leiðendum slíkra mynda við þá
sem hafa „afbrigðilega kyn-
hneigð“ eins og það heitir. Með
öðrum orðum: hann setur í raun-
inni jafnaðarmerki milli þeirra
sem hafa kvalalosta sér að féþúfu
og svo alls fólks í þeim minnihlut-
ahópum sem ekki hafa annað til
saka unnið en hneigjast að sama
kyni. Ef að slíkt fólk á sér samtök
og vill auglýsa fundi í þeim, þá vill
ritstjóri DV leggja það að jöfnu
og að auglýst sé eitthvert gróða-
brall með herfilegt kynsvall. Til
að bæta gráu ofan á svart skrifar
hann rétt eins og hann haldi að
„Konur gegn klárni" séu honum
sammála í þessum ruglanda.
Þessi samanburður er að lík-
indum sprottinn af þeim vand-
ræðum, að DV hafði bannað
huglýsingar frá samtökum sam-
kynhneigðra meðan blaðið enn
birti auglýsingar frá sölumönnum
klámmyndbanda. En sama er:
ritstjóri DV hefur hér fellt dóma
um einkalíf fólks sem eru ekki
barasta ósmekklegir svo dæma-
laust er, heldur siðlausir í sjálfu
sér.
Dýr mundi Trout
allur
DV sagði þau tíðindi á föstu-
daginn að von væri á bandarísk-
um fyrirlesara til Stjórnunarfé-
lagsins og heitir sá Jack Trout og
kvað vita mikið um sölu-
mennsku. Þessi maður er sagður
svo merkur fyrirlesari að Stjórn-
unarfélagið er reiðubúið til að
punga út 615 þúsund krónum
fyrir fyrirlesturinn og borga
meira en hundrað þúsund krónur
í kostnað við hingaðkomu
mannsins að auki.
Þeir sem vilja láta herra Trout
leiða sig í sjálfan sannleikann um
markaðsmál þurfa að borga 23
þúsund krónur röskar í aðgangs-
eyri. Talsmaður Stjórnunarfé-
lagsins lætur þess getið í spjalli
sínu við DV að reyndar séu til
enn frægari og dýrari fyrirlesarar
í Bandaríkjunum, t.d. Henry
Kissinger fyrrum utanríkisráð-
herra, hann opnar sinn munn
fyrir ekki minna en tvær miljónir
króna „en Stjórnunarfélagið hef-
ur haft hug á að fá hann hingað“,
stendur þar
Eftirsokn eftir vindi
Nú er skemmst frá því að segja
að þessi fjáraustur er della. Eng-
inn fyrirlesari býr yfir svo sjald-
gæfri þekkingu að þetta sé henn-
ar markaðsverð: það eru engin
skynsamleg hlutföll sem réttlæta
þetta verðlag milli þess fróðleiks
sem menn geta fengið um mark-
aðsmál eða þá utanríkismál í
bókum og sértímaritum og þess
sem fyrirlesari þjappar saman í
stuttu máli.
Rándýru fyrirlesararnir eru
partur af snobbkerfi og persónu-
legri „markaðssetningu" um leið.
Þeir sem sækja svo dýra fyrir-
lestra eru að sanna fyrir sjálfum
sér og öðrum (peningar sanna
hvað sem er) að þeir séu mark-
aðsmenn með mönnum, og að
það sé hægt að taka mark á þeim,
fyrst þeir hafi hlustað á Trout
sjálfan. í annan stað er svona
fyrirlestur hér á landi partur af
íslenskri vanmetakennd: Við
verðum að fá að hlusta á Trout og
Kissinger eins og aðrir, annars
missum við kannski af framfar-
astrætó. í þriðja lagi leynist kann-
ski í eftirsókn eftir slíkum fyrir-
lesurum einhver angi af opinber-
unartrú, trú áþað, að kraftbirting
markaðsguðsdómsins muni þá
aðeins komast til skila, að menn
sjái og heyri spámennina sjálfa
augliti til auglitis í stað þess að
lesa visku þeirra úr næsta tíma-
nti. ÁB.
þlÓDVILIINN
Síðumúla 37-108 Reykjavík
Sími:68 13 33
Símfax:68 19 35
Útgefandi: Útgáfufélag Þjóöviljans.
Framkvœmdastjóri: HallurPáll Jónsson.
Ritstjórar: Árni Bergmann, Ólafur H.Torfason.
Fróttastjóri: SiguröurÁ. Friöþjófsson.
Aðrir blaöamenn: DagurÞorleifsson, ElíasMar(pr.),Garðar
Guðjónsson, Guðmundur Rúnar Heiðarsson, Heimir Már Pétursson,
Hildur Finnsdóttir (pr.), Jim Smart (Ijósm.), Kristinn Ingvarsson
(Ijósm.), Lilja Gunnarsdóttir, ÓlafurGíslason, ÞrösturHaraldsson.
Skrifstofustjóri: Sigrún Gunnarsdóttir.
Skrifstofa: Guðrún Geirsdóttir, Kristín Pétursdóttir.
Auglýsingastjóri: Olga Clausen.
Auglýsingar: Guðmunda Kristinsdóttir, Svanheiður Ingi-
mundardóttir, UnnurÁgústsdóttir.
Símavarsla: SigríðurKristjánsdóttir, ÞorgerðurSigurðardóttir.
Bílstjóri: Jóna Sigurdórsdóttir.
Útbreiðslu-ogafgreiðslustjóri:GuðrúnGísladóttir.
Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Halla Pálsdóttir, Hrefna
Magnúsdóttir.
Innheimtumaður: Katrín Bárðardóttir.
Útkeyrsla, afgreiðsla, ritstjórn:
Síðumúla37, Reykjavík,sími:68 13 33.
Símfax:68 19 35.
Auglýsingar:Síðumúla37,sími68 13 33.
Umbrotog setning: Prentsmiðja Þjóðviljans hf.
Prentun: Blaðaprent hf.
Verð í lausasölu: 100kr. Nýtt Heigarblað: 150kr.
Áskriftarverðámánuði: 1100kr.
4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 20. mars 1990