Þjóðviljinn - 20.03.1990, Síða 6
MINNING
FÉLAG EINSTÆÐRA FORELDRA
HRINGBRAUT 116, 107 R.
SÍMI 91-11822
Meðlag
Helmingur eða hungurlús?
Almennur fundur í Skeljahelli, Skeljanesi 6,
fimmtudagskvöldið 22. mars kl. 20.30
1. Framsöguerindi: Geir H. Haarde alþingis-
maður, Finnur Ingólfsson, aðstoðarmaður
tryggingamálaráðherra, Ingibjörg Magnús-
dóttir, varaformaður Félags einstæðra for-
eldra.
2. Umræður og fyrirspurnir.
Kaffi og kleinur í fundarhléi. Mætum öll!
Með baráttukveðju!!
Stjórn Félags einstæðra foreldra
Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboðum í
eftirfarandi:
RARIK-90003: Dreifispennar 31,5 - 2000 kVA
Opnunardagur: Fimmtudagur26. apríl 1990 kl.
14.00.
Tilboðum skal skila á skrifstofu Rafmagns-
veitna ríkisins, Laugavegi 118, 105 Reykjavík,
fyrir opnunartíma og verða þau opnuð á sama
stað að viðstöddum þeim bjóðendum er þess
óska.
Útboðsgögn verða seld á skrifstofu Rafmagns-
veitna ríkisins, Laugavegi 118, 105 Reykjavík,
frá og með miðvikudegi 21. mars 1990 og kosta
kr.500,- hvert eintak.
Rafmagnsveitur rikisins
Laugavegi 118
105 Reykjavík
Jafet Egill Ottósson
Fœddur 4. september 1906 - Dáinn 13. mars 1990
Nú er svo komið að sífellt
fækkar þeim hinum elstu baráttu-
mönnum jafnaðarstefnunnar á
íslandi, mönnunum sem stofn-
uðu fyrstu samtök íslenskrar al-
þýðu. Jafet Egill Ottósson var
einn þeirra sem aiveg frá barn-
æsku tók þátt í baráttu fyrir betri
kjörum hinna verr settu í þjóðfé-
laginu. Hann tók virkan þátt í
hvíta stríðinu 1921, og var í stjórn
Félags ungra kommúnista sem
stofnað var um líkt leyti sem deild
innan Alþýðuflokksins. Alla tíð
síðan var Jafet í hópi þeirra sem
tóku einarðasta afstöðu til þjóð-
félagsbaráttunnar og lét sig aldrei
vanta þegar á reyndi. Nú eru til
þeir menn sem ekki geta skilið
eðli slíkrar baráttu og telja það
jafnvel slys að hún skuli hafa átt
sér stað. En menn eins og Jafet
láta sig ekki muna um það að
greiða tvöfalt meira fyrir blaðið
sitt en af þeim er krafist, og að
sjálfsögðu myndi þeim aldrei
hafa dottið í hug að nota þjóð-
félagslega baráttu í þágu eigin-
hagsmuna.
Jafet var sonur Ottós N. Þor-
lákssonar og Karólínu Siemsen.
Hann fæddist 4. september 1906,
og var einn 5 systkina, en þau
voru Hendrik, Kristinn, Jafet og
Steinunn. Af þeim er nú aðeins
Steinunn systir hans eftirlifandi.
Jafet var tvíkvæntur. Fyrri
kona hans var Guðrún Rútsdóttir
og áttu þau eina dóttur Önnu
Margréti. Þau skildu. Síðari kona
Jafets var Fjóla Gísladóttir og
áttu þau þrjú börn, Elínu, Hend-
rik og Gísla. Ennfremur ólu þau
upp son Fjólu af fyrra hjónabandi
Hilmar Bergsteinsson. Jafet á nú
mjög marga afkomendur, barna-
börn og barnabarnabörn. Jafet
var alla sína tíð mjög mikill
fjölskyldumaður. Tel ég að ekki
verði á neinn hallað þótt þess
verði getið, að hann sýndi for-
eldrum sínum óvenju mikla rækt-
arsemi á efri árum þeirra. Um
atvinnu Jafets má geta þess, að á
styrjaldarárunum vann hann á
vegum breska hersins og komu
hæfileikar hans þar í ljós á þann
hátt, að hann var fljótlega gerður
að verkstjóra. Síðar vann hann
við rekstur Reykjavíkurflug-
vallar sem starfsmaður flugmála-
stjórnar en þar vann hann sem
bifreiðarstjóri til þess tíma að
hann hætti störfum.
Jafet var einn af þeim vestur-
bæingum í Reykjavík sem mundu
bæinn sinn sem smáþorp, en
þeim fer nú ört fækkandi og er
skammt að minnast Ársæls Jón-
assonar kafara, er lést nú fyrir
stuttu.
Ég vænti þess, að minning Jaf-
ets og sú hugsjón hans að bæta
hag þeirra sem minna mega sín
megi lifa og dafna. Ég sendi svo
mínar bestu kveðjur til allra nán-
ustu aðstandenda og óska þeim
alls hins besta.
Reykjavík, 18. mars 1990
Már Arsælsson
Eiginmaður minn, faöir okkar, tengdafaðir, afi og langafi
Jafet Egill Ottósson
Álftamýri 22
verður jarðsunginn frá Háteigskirkju í dag þriðjudag 20.
mars kl. 15.00.
Fjóla Gísladóttir
Anna Margrét Jafetsdóttir Hálfdán Guðmundsson
Hilmar Bergsteinsson Þorbjörg Ingólfsdóttir
Elín J. Proppé Karl H. Proppé
Hendrik Jafetsson Sigríður Stefánsdóttir
Gísli Jafetsson Anna Antonsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Fulltrúaráð Alþýðuflokksfélaganna
í Reykjavík
Samtök um Nýjan vettvang
Lyðræði ctecrn flokksræði!
OPIÐ PRÓFKJÖR
Samtök um Nýjan vettvang og fulltrúaráð Alþýðuflokksfélaganna í Reykjavík hafa gert með sér samkomulag um
að efna til opins prófkjörs vegna borgarstjórnarkosninganna 26. maí n.k. Prófkjörið mun fara fram
dagana 7.—8. apríl n.k. og verður nánar auglýst síðar.
Athygli skal vakin á því að önnur samtök, stjórnmálaflokkar og einstaklingar
sem samþykkja fyrirliggjandi málefnagrundvöll og prófkjörsreglur
geta gerst aðilar að framboðinu.
Prófkjörsreglur
Þau samtök, sem að framboði þessu standa skulu skipa sjö manns i kjörstjórn og
velur hún sér formann.
Kjörstjóm ákveður framboðsfrest og kjördag og annast útvegun kjörgagna og fram-
kvæmd prófkjörsins samkvæmt prófkjörsreglum þessum og almennum kosninga-
lögum.
Kjörgengir til prófkjörs eru allirsem kosningarétt hafa til borgarstjórnarkosninganna
1990 og undirrita yfirlýsingu um að þeir styðji málefnagrundvöll framboðsins.
Kosningarétt í prófkjörinu hafa allirsem kosningarétt hafa til borgarstjórnar 1990 og
styðja framboðið.
Hverju framboði skulu fylgja meðmæli minnst 30 og mest 60 þeirra, sem kosninga-
rétt hafa til borgarstjórnarkosninga 1990.
Kjörstjórn skal útbúa meðmælendalista og afhenda þá frambjóðendum, eftir að þeir
hafa undirritað yfirlýsingu um stuðning við verkefnaskrá og ákvæði um ákvarðana-
töku og pólitískt sjálfstæði framboðsins. Á meðmælendalistum skal vera nafn fram-
bjóðandans og viljayfirlýsing meðmælenda um að þeir séu reiðubúnir að styðja
framboðið.
Á prófkjörsseðli skal frambjóðanda heimilt að nota titil.
Kjósa á með númerum í átta sæti (1.—8). Atkvæðaseðill er ógildur sé kosið í færri
en fimm sæti.
Frambjóðendur hafa heimild til að ákveða hvað ofarlega þeir vilja taka sæti á fram-
boðslistanum, t.d. 1.—8. sæti, 2., 3., 4.-8. sæti o.s.frv. Telja skal atkvæði greidd í efri
sæti með atkvæðum frambjóðenda í neðri sæti. Sé frambjóðanda greitt atkvæði í
sæti ofar en það, sem hann hefur boðið sig fram til, þá skal telja það með atkvæðum
í efsta sæti hans.
Einfaldur meiríhluti atkvæða ræður röðun í átta efstu sæti listans.
Átta efstu frambjóðendur, sem kjörnirerusamkvæmt ofansögðu, mynda síðan upp-
stillingamefnd fyrir listann ásamt þremur fulltrúum frá þeim samtökum sem að
framboðinu munu standa.
Framboðsfrestur vegna prófkjörs rennur út 31. mars 1990. Gögn og nánari upp lýsingar um prófkjörið fást á skrif-
stofu Samtaka um Nýjan vettvang, Hafnarstræti 5, 3. hæð, 101 Reykjavík. Sími 625237, 625239. Pósthólf 444, 121
Reykjavík, og á skrifstofu fulltrúaráðs Alþýðuflokksfélaganna, Hverfisgötu 8—10, sími 15020.
Samtök um Nýjan vettvang
Kjörstiórn
Fulltrúaráð Alþýðuflokksféiaganna
í Reykjavík