Þjóðviljinn - 20.03.1990, Qupperneq 7
Lýðrœðisþróun
Fjölflokkakerfi
í Eþíópíu
Stjórnvöld í Eþíópíu hafa
ákveðið að hverfa frá marxisma,
taka upp fjölflokkakerfi og gefa
einkframtakinu lausan tauminn í
efnahagsiífinu.
Erlendir sendifulltrúar í Eþí-
ópíu skýrðu frá þessu í gær. Þeir
segja að Mengistu Haile Mariam
hafi skýrt kanadískum ráðherra,
sem var í opinberri heimsókn, frá
þessu á laugardag.
Eþíópísk stjórnvöld hafa enn
ekki sagt opinberlega frá þessum
fyrirhuguðu breytingum á
stjórnkerfinu. En ENA frétta-
stofa ríkisins benti í gær á að í
miðstjórnarályktun Verka-
mannaflokks Eþíópíu frá því fyrr
í þessum mánuði væri ekkert sem
útilokaði starf annarra stjórn-
málasamtaka.
Vinnuhópar ríkisins hafa að
undanförnu unnið í kyrrþey að
því að afmá sósíalísk vígorð,
hamar og sigð og önnur komm-
únísk merki sem víða hafa verið
máluð á veggi í höfuðborginni
Addis Ababa. Orðrómur er um
að stytta af Lenín fyrir utan höf-
uðstöðvar Einingarsamtaka Afr-
íkuríkja verði bráðum fjarlægð.
Gárungar kalla hana “Johnny
Walker“ eftir vinsælli viskíteg-
und og segja að hún sé tilbúin til
brottfarar því að hún snúi nú þeg-
ar út að flugvellinum.
Tilkynnt var í gær að samn-
ingaviðræður milli eþíópískra
stjórnvalda og uppreisnarmanna
í norðurhluta landsins hæfust aft-
ur í Róm í dag. Mikill þrýstingur
er á stríðsaðila að ná samkomu-
lagi til að koma í veg fyrir nýja
hungursneyð á uppreisnarsvæð-
unum.
Fimmtán ár eru síðan innan-
landstríðið í Norður-Eþíópíu
hófst. Þar hafa verið miklir
þurrkar að undanförnu. Alþjóð-
ahjálparstofnanir óttast að hung-
ursneyð breiðist út til 4,5 miljóna
manna ef ekki semst um flutning
á matvælum til uppreisnarsvæð-
anna.
Reuter/rb
Sovétríkin
Gorbatsjov refsar Litháum
Gorbatsjov forseti Sovétríkj-
anna gaf í gær fyrirmæli um
aðgerðir gegn Litháum eftir að
þeir neituðu að verða við fyrir-
mælum um að draga sjálfstæðis-
yfirlýsingu sína til baka.
Tilkynning þessa efnis var lesin
upp í sovéska sjónvarpinu í gær-
kvöldi. Ekki var ljóst í hverju að-
gerðirnar yrðu fólgnar.
Tass-fréttastofan segir að
ákvörðun um aðgerðir hafi verið
tekin eftir að Vytautas Lands-
bergis nýkjörinn forseti Litháa
hafnaði bréflega kröfu Gorbat-
sjovs um að Litháar hlýddu
niðurstöðu fulltrúaþings Sovét-
nkjanna um að sjálfstæðisyfirlýs-
ingin væri ógild.
í tilkynningu Tass segir að nú-
verandi forysta lýðveldisins hafi á
svívirðilegan hátt brotið gegn
stjórnarskrá og tekið gerræðis-
lega ákvörðun um málefni sem
snerti hagsmuni Sovétríkjanna.
Því hafi forseti Sovétríkjanna fyr-
irskipað sovésku stjórninni að
bregðast tafarlaust við með við-
eigandi ráðstöfunum eftir því
sem aðstæður krefjist.
Nikolai Ryzhkov forsætisráð-
herra Sovétríkjanna hafnaði enn-
fremur í gær alfarið tilkalli lit-
háenskra stjórnvalda til sovéskra
eigna í lýðveldinu. Sovéska
stjórnin væri ekki reiðubúin að
hefja neinar viðræður um af-
hendingu iðnfyrirtækja í eigu So-
vétríkjanna.
Litháenskir blaðamenn sögðu,
eftir að tilkynningin um ákvörð-
un Gorbatsjovs hafði verið birt,
að þeir byggjust við að sovésk
stjórnvöld myndu flytja öflugt
herlið til hernaðarlega mikilvæg-
ra staða.
Sovéski herinn hélt umfangs-
miklar heræfingar í Litháen í gær.
Herþotur flugu yfir Vilnu og
Kaunas tvær stærstu borgir ríkis-
ins og fréttir bárust af miklum
liðssafnaði í suðurhluta þess.
Reuter/rb
A ustur-Þýskaland
Hógvær siguivegarí
Kristilegir demókratar voru í
sjöunda himni vegna sigurs
síns í kosningunum í Austur-
Þýskalandi í gær, allir nema leið-
togi þeirra Lothar de Maiziére.
Hann sagði á blaðamannafundi
að sér liði alls ekki of vel. Hann
væri þreyttur og fótasár.
Langlíklegast er að Lothar de
Maiziére verði forsætisráðherra í
fyrstu og síðustu lýðræðislega
kjörinni stjórn Austur-Þjóð-
verja. Þegar hann var spurður í
gær hvernig honum litist á að
verða forsætisráðherra sagðist
hann aldrei hafa verið í
jafnmiklum vafa um hvort hann
ætti að taka að sér embættið.
Hann sagði að sér þætti
óneitanlega notalegra að hlusta á
Bach en að fást við stjórnmál.
Sjálfur er hann fyrrverandi fiðlu-
leikari.
Lothar de Maiziére er fimm-
tugur að aldri. Hann var fiðlu-
leikari í ýmsum hljómsveitum í
fimmtán ár þar til hann varð að
hætta 1975 vegna meiðsla á
Lothar de Maiziére verður líklega fyrsti og sfðasti lýðræðislega kjörni forseti Austur-Þjóðverja þótt honum
sé þvert um geð að trana sér fram í stjórnmálum.
hendi. Þá hafði hann lokið lög-
fræðinámi og einbeitti sér að því
að verja
neituðu að
andófsmenn sem
gegna herþjónustu
Vestur-Þýskaland
Lafontaine kanslaraefni krata
ramkvæmdastjórn Sósíal-
demókrataflokks Vestur-
Sovétríkin
Umbótasinnar
ná Moskvu
Samtök róttækra umbóta-
sinna, sem kalla sig Lýðræðislegt
Rússland, náðu meirihluta í borg-
arstjórnarkosningum í Moskvu
um hclgina.
Umbótasinnar virðast líka hafa
sigrað í fjölda annarra bæjar- og
sveitarfélaga í Rússlandi, Úkra-
ínu og Hvíta Rússlandi. Þá bend-
ir allt til þess að þjóðernissinnar
hafi unnið yfirburðasigur í kosn-
ingum til fylkisþinga Eystrasalts-
ríkjanna Eistlands og Lettlands.
Samkvæmt upplýsingum Tass-
fréttastofunnar vann Lettlenska
alþýðufylkingin 109 af 201 sæti á
þingi. Úrslit eru ekki komin frá
Eistlandi en fulltrúi Eistlensku
alþýðufylkingarinnar segir að
frambjóðendur hennar hafi náð
góðum árangri.
Búist er við að lettlenskir og
eistlenskir þjóðernissinnar noti
meirihluta sinn til að feta í fót-
spor Litháa og lýsi innlimun Eist-
lands og Lettlands í Sovétríkin ól-
öglega.
Fulltrúar Litháa komu til
Moskvu í gær til að ræða við so-
vésk stjórnvöld og ítreka einhliða
sjálfstæðisyfirlýsingu sína sem
sovéska fulltrúaþingið lýsti óg-
ilda fyrir skömmu.
Reuter/rb
Þýskalands ákvað f gær að Oskar
Lafontaine skyldi vera kanslara-
efni flokksins þegar kosningar
verða haldnar í desember.
Tilnefning Lafontains kom
ekki á óvart. Almennt hefur ver-
ið búist við að hann yrði kanslara-
efni flokksins eftir yfirburðasigur
sósíaldemókrata undir stjórn
hans í kosningum í Saar-fylki í
janúar.
Lafontaine hefur varað við of-
forsi við sameiningu þýsku ríkj-
anna. Nauðsynlegt sé að fara að
öllu með gát til að sameiningin
hafi ekki í för með sér glundroða
og stóraukna skattabyrði al-
mennings.
Lafontaine sagði í gær, eftir að
skýrt var frá tilnefningu hans, að
hann teldi óvarlegt að skrá gengi
austur-þýska marksins til jafns
við það vestur-þýska eins og Kohl
kanslari vill. Lafontaine bendir á
að þá verði austur-þýskur iðnað-
ur berskjaldaður fyrir samkeppni
við vestrænan iðnað. Reuter/rb
þar sem það stríddi gegn sam-
visku þeirra.
De Maiziére tók við forystu í
Kristilega demókrataflokknum
2. nóvember þegar leiðtogar
flokksins sögðu af sér eftir ára-
tuga samvinnu við kommúnista.
Hann var aðstoðarforsætisráð-
herra í samsteypustjórn Mo-
drows sem undirbjó kosningarn-
ar. Á þeim tíma hefur samstarf
flokksins við kristilega demó-
krata í Vestur-Þýskalandi orðið æ
nánara. Reuter/rb
Japan
Vinnuvikan stytt
Vinnuvika japanskra ríkis-
starfsmanna var stytt í fimm
daga í tilraunaskyni frá og með
síðustu viku. Hingað til hefur
vinnuvika flestra þeirra verið
tæpir sex dagar.
Ákvörðunin um að stytta vinn-
uvikuna er ekki nema að litlu
leyti til komin vegna þrýstings frá
fagfélögum. Japanska stjórnin
ákvað styttinguna að eigin frum-
kvæði í von um að fyrirtæki í
einkageiranum fylgi fordæmi
ríkisins og meiri frítími auki
einkaneyslu.
Vaktavinna ríkisstarfsmanna
eins og lögreglumanna, fanga-
varða og starfsfólks ríkisspítala
hefur líka verið stytt í 40 stundir á
viku. Vinnuvika skrifstofufólks
hjá ríkinu var stytt í fimm daga 1.
janúar í fyrra.
Japanska stjórnin ætlar að
meta reynsluna af þessari stytt-
ingu vinnuvikunnar eftir sex
mánuði og taka þá ákvörðun um
framhaldið.
Japönsk stjórnvöld hafa að
undanförnu reynt að auka innan-
landsneyslu til að draga úr mikil-
vægi útflutnings fyrir japanskt
efnahagslíf. Mikill vöruskipta-
hagnaður Japana hefur valdið
spennu í samskiptum þeirra við
Bandaríkin og Evrópubanda-
lagið.
Forystumenn í Bandaríkjun-
um hafa gagnrýnt þá fyrir vinnu-
fíkn. Þeir krefjast þess að jap-
önsk stjórnvöld beiti sér fyrir því
að almenningur taki lífinu með
ró, vinni minna og eyða meira.
Japanska stjórnin segist skilja
þetta viðhorf og hefur lofað að
gera eitthvað í málinu.
Reuter/rb
Vinningstölur laugardaginn
17. mars ‘90
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA
1. 5af 5 2 1.158.402
2.4,7I(® 3 134.253
3. 4af 5 101 6.878
4. 3af 5 3427 473
Heildarvinningsupphæð þessa viku:
5.035.212 kr.
UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI 681511 - LUKKULÍNA 991002
PÍtflSfSS*