Þjóðviljinn - 20.03.1990, Qupperneq 11
I DAG
SKÁK
Snjöll hróksfóm Helga
14. Reykjavíkurskákmótið ferfram ínýjum og glæsilegumhúsakynn-
um skákhreyfingarinnar
Fjórtánda Reykjavíkurskák-
mótið, sem jafnframt er 60
ára afmælismót Búnaðarbank-
ans, hófst á laugardaginn í húsa-
kynnum Skáksambands íslands
og Taflfélags Reykjavíkur við
Faxafen. Keppendur eru 72, ná-
lægt 2/3 útlendingar og titilhafar
af ýmsum gráðum í meiri hluta.
Taflið hefst klukkan 5 virka daga
en klukkan 2 laugardaga og
sunnudaga. Tefldir eru 40 leikir á
tveimur tímum en síðan fá kepp-
endur klukkustund til að tefla 20
leiki í viðbót þannig að umferð-
irnar geta tekið sex stundir.
Verður þetta fyrirkomulag til að
fækka biðskákum. Verða tefldar
11 umferðir en mótinu lýkur með
hraðskákmóti föstudaginn 30.
mars. Fjórða umferð verður tefld
í kvöld, á miðvikudag er frí en
síðan verður teflt hvern dag fram
á sunnudag.
Húsakynnin eru hin ágætustu
og aðstaða áhorfenda sem best
má vera, stór áhorfendasalur og
unnt að fylgjast með tíu skákum á
sjónvarpsskjáum í hliðarsölum.
Einnig er sérstakur salur ætlaður
skákskýringum. Er vissulega
óhætt að hvetja fólk til að koma
og fylgjast með skáksnillingunum
og ef dæma má eftir fyrstu um-
ferðunum er margra skemmti-
legra augnablika að vænta.
Sumar skákir teflast þannig að
á vissu augnabliki þarf að breyta
eðli stöðunnar gjörsamlega.
Þannig kann þung sókn að enda
með því að skipt er upp í enda-
tafl, sem kann að vera örlítið hag-
stæðara þeim sem sækir, eða
hægfara stöðubarátta getur um-
myndast í leikfléttufárviðri. Einn
mesti vandinn við að tefla er að
skynja hvenær staðan breytist á
þennan veg og að geta þá lagað
hugsunina eftir því. Lærdómsríkt
dæmi um þetta mátti sjá í annarri
umferðinni.
Hvftt: Helgi Ólafsson
Svart: J. Levitt (Englandi)
1. c4 Rf6
2. Rc3 e6
3. Rf3 c5
4. g3 b6
5. Bg2 Bb7
6. 0-0 Be7
7. d4 Re4
8. Rxe4 Bxe4
9. Bf4 0-0
10. dxcS bxc5
Staðan er að mótast. Hvítur
ætlar að sækja að d-peði svarts en
svartur hefur á móti færi á b-
línunni og einhvern þrýsting á
skálínunni hl-a8. Útliter fyrirró-
lega stöðubaráttu.
11. Dd2 Db6
12. Hf-dl Hd8
13. De3 Db7
14. Bd6 ...
Hvítur treystir tökin á d-
línunni með uppskiptum á bisk-
upunum. Hann býður svarti peð
sem hann þiggur en hefði betur
látið ógert.
14. ... Bxd6
15. Hxd6 Dxb2
16. Ha-dl Db7
Hér skyldi maður ætla að hvít-
ur einbeitti sér að d-línunni og
reyndi að binda svart við d-peðið.
Hann á líka kost á að jafna peðin
með því að drepa á c5. Helgi finn-
ur betri leið og má í því sambandi
hafa í huga að bæði kóngsriddari
svarts og biskup eru fallnir og fáir
menn til varnar svarta kónginum.
Komandi flétta byggist einnig á
slæmri stöðu Ha8 og að ekki er
samband milli hrókanna.
17. Hxe6 fxe6
18. Rg5 h6
Ekki gengur 18. ... Bxg2 vegna
19. Dxe6+ og svartur verður mát
því d-peðið er leppur. Hér var
e.t.v. skárra að leika 18. ... Rc6
strax en eftir 19. Dxe4 g6 20. h4
hefur hvítur myljandi sókn.
19. Rxe4 Rc6
20. Rxc5 Dc7
Eftir20.... Db6 21. Rxd7 Dxe3
22. fxe3 Hc8 23. Bxc6 Hxc6 24.
Rf6+ gxf6 25. Hxd8+ Kg7 26.
Hd7+ Kg6 27. Hxa7 vinnur hvít-
ur. Annar möguleiki er 20. ...
Dc8 21. Rxd7 Hxd7 22. Dxe6+
Hf7 23. Dxc6 Dxc6 24. Bxc6 Hc8
25. Bd5 og leppar hrókinn á f7.
Afbrigðin eru fleiri en þessi
nægja til að sýna möguleika hvíts.
21. Rxd7 Ha-c8
Eftir 21. ... He8 eða 21. ... e5
nær hvítur kóngssókn á hvítu
reitunum með líkum hætti og í
skákinni.
22. Dxe6+ Kh8
23. Be4 ...
Þetta er vinningsleikurinn.
Biskupinn kemur með afgerandi
hætti í kóngssóknina. Hótunin er
De6-g6-h7 mát. Svartur grípur nú
til örþrifaráða.
23. ... Re7 26. Kg2 He8
24. Hd6 Dxc4 27. Df7 Hxe4
25. Dxe7 Dcl+ 28. Hg6
Lokin eru snyrtileg. Eftir Hg8
eða Dal kemur 29. Rf6 og ailar
varnir eru þrotnar. T.d. 28. ...
Dal 29. Rf6 Dxf6 30. Hxf6 gxf6
31. Dxf6+ og skákar síðan annan
hvorn hrókinn af. Með hinni
snjöllu hróksfórn í 17. leik breytti
Helgi eðli stöðunnar á réttu
augnabliki svo að máthótanir,
leppanir, gafflar og önnur fléttu-
stef urðu svarti ofviða.
Allir skákmenn þekkja nafn
Davíðs Bronsteins enda er hann
ekki eingöngu skákmeistari held-
ur einnig stór kafli í skáksögu ald-
arinnar. Hann mætti einum efni-
legasta skákmanni Akureyringa
um þessar mundir í annarri um-
ferð. Við skulum nú sjá hvernig
Bronstein nýtti sér reynsluna í
viðureigninni við Akureyringinn
unga.
Hvítt: Davíð Bronstein
Svart: Arnar Þorsteinsson
1. d4 Rf6
2. Rf3 e6
3. Bf4 ...
Bronstein veit sem er að ungu
mennirnir eru vel að sér í byrjan-
ateoríunni og kunna endalausar
leikjaraðir með nýjustu gildrum.
Hann beinir því taflinu þegar út
af alfaraleiðum og gætir þess að
festa ekki stöðuna á neinn hátt í
fyrstu. Fyrstu leikirnir mótast því
mjög af sveigjanleika. Arnar
byggir sína stöðu upp í anda
drottningarindverskrar varnar.
3. ... - b6
4. h3 - ...
Bronstein vill eiga reit handa
biskupnum ef svarti kóngsriddar-
inn ætlar að angra hann með t.d.
Rh5.
4. ... Bb7
5. e3 h6
Þetta er óþörf tímaeyðsla.
E.t.v. hefur Arnar haft í huga að
oft er það gott sem gamlir kveða
og þess vegna hermt eftir Bron-
stein. Þótt þessi peðsleikur sé
sakleysislegur verður hann með
nokkrum hætti banabiti svarts.
6. Bd3 c5
7. Rb-d2 Be7
8. c3 0-0
9. e4 ...
Taflmennska hvíts sýnist ekki
tilþrifamikil en hún er sveigjan-
leg. Nú hefur svartur ákveðið
hvar hann ætlar að hafa kónginn.
Bronstein sér að hann hefur veikt
kóngsstöðuna með h7-h6 og ef
Rf6 væri hrakinn brott gæfust
vænleg sóknarfæri. Hann ýtir því
e-peðinu fram og þótt það fari
þannig í tveimur leikjum það sem
það kemst í einum er ástæðan sú
að ekki var tímabært að leika því
lengra fyrr.
9. ... d5
10. e5 Re4
11. a3 ...
Enn einn peðsleikurinn. Til-
gangurinn er að taka b4-reitinn af
svarti því hann hótaði, eftir cxd4
cxd4, að leika Bb4, leppa Rd2 og
knýja fram uppskipti til að draga
úr sóknarþunga hvíts.
11. ... Rd7
Þetta er afleikur því riddarinn
kemur að litlu gagni þarna og ætti
betur heima á c6 en þangað
kemst hann ekki í augnablikinu.
Betra var því t.d. He8 og Bf8 til
12. De2 cxd4
13. cxd4 Rxd2
Eftir 13. ... f5 14. exfófh Rexf6
á hvítur einnig vænleg sóknar-
færi.
14. Dxd2 f5
15. Bxh6 ...
Skemmtileg fórn sem svartur
má ekki þiggja. Eftir 15. ... gxhó
16. Dxh6 Kf7 17. Dh7+ Ke8 18.
Dg6+ Hf7 19. Dxe6 hefur hvítur
þrjú peð fyrir manninn og vinnur
auðveldlega. Eða 15. ... De8 16.
g4 Df7 17. gxf5 og vinnur.
15. ... De8 19. Hxc8 Bxc8
16. Bg5 Hf7 20. Rg5 Hf8
17. Bxe7 Dxe7 21. f4 Hd8
18. Hcl Hc8 22. Db4 Dxb4+
Bronstein hefur algerlega skipt
um stíl. Nú fer hann í hver
mannakaupin á fætur öðrum því í
endatafli er auðveldast að nýta
sér peðið sem hann á yfir. Svartur
getur merkilega lítið aðhafst.
23. axb4 Rf8
24. Kd2 Hd7
25. Hcl Bb7
26. Bb5 He7
27. Bc6 Ba6
28. b5 Bb7
29. Bxb7 Hxb7
30. Hc8 He7
31. g4 g6
32. Ke3 Kg7
33. Hc6 Kh6
34. Kf2 Kg7
35. Kg3 Kh6
36. Kh4 Kg7
37. Hc8 Rh7
Hér leikur svartur af sér en
staðan er vonlaus. Hvítur hlýtur
fyrr eða síðar að brjóta kóngnum
leið innfyrir, hugsanlega með því
að fórna h-peðinu. Nú lýkur
Bronstein skákinni með einni
tveggjaleikja fléttu.
38. Hc7 Hxc7
Um annað er ekki að ræða.
39. Rxe6+ Kf7
40. Rxc7 Rf8
41. gxf5 gxf5
42. Kg5
og svartur gafst upp.
Jón Torfason
þlÓÐVIUINN
FYRIR50ÁRUM
Góð ráð: Ef þið þurfið að geyma
hráan kjötbita, er ágætt að nudda
um hann með sundurskorinni
sítrónu, því þá skemmist bitinn
síður. Til þess að ná nikótíngulu
af fingrunum, þarf ekki annað en
að fá svolítið af ammoníaki í apó-
teki og setja nokkra dropa í bolla
af vatni, vefjabómull áeldspýtu,
dýfa í vatnið og nudda um góm-
ana.
20. mars
þriðjudagur. Heitdagur. Vorjafn-
dægur. 79. dagur ársins. Sólar-
upprás í Reykjavík kl. 7.29-
sólarlagkl. 19.43.
Viðburðir
Einmánuður byrjar. Jón Ólafsson
skáld og ritstjóri fæddur árið
1850. Alþýðusamband Vest-
fjarða stofnað árið 1927. Sam-
tökin Friðlýst land stofnuð árið
1958.
DAGBÓK
APÓTEK
Reykjavík: Helgar- og kvöldvarsla
lyfjabúöa vikuna 16. til 22. mars
er í Ingólfs Apóteki og Lyfjabergi.
Fyrmef nda apótekiö er opið um helgar
og annast næturvörslu alla daga 22 til 9
(til 10 f rídaga). Síöarnef nda apóteklö er
opiö á kvöldin 18 til 22 virk daga og á
laugardögum 9 til 22 samhliða hinu fyrr-
nefnda.
LÖGGAN
Reykjavík...........sími 1 11 66
Kópavogur...........simi 4 12 00
Seltjarnarnes.......sími 1 84 55
Hafnarfjörður.......sími 5 11 66
Garðabær............sími 5 11 66
Slökkvilið og sjúkrabílar:
Reykjavík...........sími 1 11 00
Kópavogur...........simi 1 11 00
Seltjamarnes........sími 1 11 00
Hafnarfjörður.......simi 5 11 00
Garðabær............sími 5 11 00
LÆKNAR
Læknavakt fyrir Reykjavfk, Seltjarn-
arnes, og Kópavog er i Heilsuverndar-
stöð Reykjavíkur alla virka daga frá kl. 17
til kl. 08, á laugardögum og helgidögum
allansólarhringinn. Vitjanabeiðnir, síma-
ráðleggingar og tímapantanir í síma
21230. Upplýsingar um lækna- og lyfja-
þjónustu eru gefnar í símsvara 18888.
Borgarspítalinn: Vakt virka daga frá kl.
8 til 17 og fyrir þá sem ekki hafa heimilis-
lækni eða ná ekki tii hans. Landspftal-
Inn: Göngudeildin er opin kl. 20 til 21.
Slysadeild Borgarspítalans er opin all-
an sólarhringinn sími 696600.
Hafnarfjörður: Dagvakt, Heilsugæslan
sími 53722. Næturvakt lækna sími
51100.
Garðabær: Heilsugæslan Garðaflöt
Sími65666, upplýsingar um vaktlækna
sími51100.
Akureyri: Dagvakt kl 8 til 17áLækna-
miðstöðinni sími: 23222, hjá slökkvilið-
inu sími 22222. hjá Akureyrar Apóteki
sími 22445. Farsími vaktlæknis 985-
23221.
Keflavík: Dagvakt. Uppjýsingars. 3360.
Vestmannaeyjar: Neyðarvakt lækna
sími 1966.
SJÚKRAHÚS
Heimsóknartimar. Landspítalinn: Alla
daga 15 til 16 og 19 til 20. Borgarspítal-
inn: Virka daga 18:30 til 19:30, um helg-
ar 15 til 18 og eftir samkomulagi. Fæð-
Ingardeild Landspitalans: 15 til 16.
Feðratími 19.30 til 20.30. Öldrunar-
lækningadeild Landspítalans Hátúni 10
B. Alla daga 14 til 20 og eftirsamkomu
lagi. Grensásdeild Borgarspítala: Virka
daga 16 til 19, helgar 14 til 19.30.
Heilsuverndarstöðin við Barónsstig
opin alla daga 15 til 16 og 18.30 til 19.30.
Landakotsspítali: Alla daga 15 til 16 og
18.30 til 19. Barndeild: Heimsóknirann-
arraenforeldrakl. 16til 17daglega.
St.Jósefsspítali Hafnarfirði: Alladaga
15 til 16 og 19 til 19.30. Kleppsspítal-
inn: Alla daga 15 til 16 og 18.30 til 19.
Vestmannaeyjum: Alla virka daga 15 til
16 og 19 til 19.30. Sjúkrahús Akra-
ness: Alladaga 15.30 til 16 og 19til
19.30. Sjúkrahúsið Húsavík: Alladaga
15 til 16 og 19.30 til 20.
YMISLEGT
Hjálparstöð RK(: Neyöarathvarf fyrir
unglinga, Tjarnargötu 35. Sími:622266,
opið allan sólarhringinn.
Sálfræðistöðin. Ráögjöf i sálfræði-
legumefnum. Sími:687075.
MS-f ólagið, Alandi 13. Opið virka daga
frá kl. 8 til 17. Síminn er 688620.
Kvennaráðgföfin Hlaðvarpanum Vest-
urgötu 3. Opið þriðjudaga kl. 20 til 22,
fimmtudaga 13.30 til 15.30 og kl. 20til
22, sími 21500, simsvari.
Sjálf shjálparhópar þeirra, sem orðið
hafafyrirsifjaspellum, sími 21500, sím-
svari.
Upplýsingar um eyðni. Simi 622280,
beint samband við lækni/hjúlrunarfræð-
ing á miðvikudögum kl. 18 til 19, annars
símsvari.
Samtök um kvennaathvarf, simi
21205. Húsaskjól og aðstoö fyrir konur
sem beittar hafa verið ofbeldi eða
orðiðfyrirnauðgun.
Samtökin 78.Svaraðeríupplýsinga-
og ráðgjafarsima félags lesbia og
homma á mánudags- og fimmtudags-
kvöldum kl. 21 til 23. Símsvari á öðrum
tímum. Síminn er 91 -28539.
Bilanavakt rafmagns- og hita'.eitu.sími:
27311. Rafmagnsveita bilanavaktsími:
686230.
Rafveita Hafnarf jarðar: Bilanavakt,
sími: 652936.
Vlnnuhópur um slfjaspellamál. Simi
21260 allavirkadagakl. 138117.
Lögfræðlaðstoð Orators, félags laga-
nema, er veitt í síma 11012 milli kl. 19.30
og 22.00 áfimmtudagskvöldum.
„Opið hús“ krabbameinssj jklinga
Skógarhlið 8 er „Opið hús“ fýrir alla
krabbameinssjúklinga og aðstandendur
jieirra á fimmtudögum kl. 17 til 19.
Samtök áhugafólks um alnæmis-
vandann sem vilja styöja smitaða og
sjúka og aðstandendur þeirra. Hringið í
síma 91 -2240 alla virka daga.
GENGIÐ
16. mars 1990
Bandarikjadollar.............. 61,2700
Sterlingspund................ 99,34000
Kanadadollar................. 51,82500
Dönsk króna................... 9,40810
Norsk króna................ 9,31160.
Sænsk króna................... 9,95290 ’
Finnskt mark................. 15,26030
Franskur franki.............. 10,67140
Belgískur franki.............. 1,73560
Svissneskur franki........... 40,41020
Hollenskt gyllini............ 32,02400
Vesturþýskt mark............. 36,06770
ítölsk líra................... 0,04884
Austurrískur sch.............. 5,12400
Portúg. escudo................ 0,40810
Spánskur peseti............... 0,56120
Japanskt jen.................. 0,40252
Irskt pund................... 95,97000
KROSSGATA
l
Lárétt: 1 Óreiða4hjálp
6 eðli 7 kippkorn 9 ugg
12hnupla14gisin15
hrúga 16 hlaupa 19 for
20æsa21 rómur
Löðrétt:2neðan3
svalt4sæti5tíðum7
deyja8hljóðar10
heppnastH vestur13
aftur18skagi >
Lausn á síðustu
krossgátu
Lárétt: 1 spóa 4 sefi 6
fín 7 gafl 9 ábót 12
laska 14 góa 15 nón 16
urtan19dáti 20maur
21 amtar
Lóðrétt:2púa3afla4
snák5fró7gegndi8
flauta10bannar11
tindra13set17rim18
ama
Þriðjudagur 20. mars 1990 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11