Þjóðviljinn - 20.03.1990, Page 12
—SPURNINGIN—
Hver er leiðinlegasti dag-
ur vikunnar?
Kristján Sigurjónsson
múrarameistari
Ætli þaö sé ekki mánudagur ef til
er einhver leiðinlegur dagur. Þaö
er vegna þess aö þá er byrja ný
vinnuvika eftir öll þægindin um
helgina.
Ásdís Arnbjörnsdóttir
verslunarmaður
Tvímælalaust mánudagurinn.
Þaö er svo erfitt að byrja að vinna
á ný eftir góða helgi.
Guömundur L. Loftsson
nemi í VI
Það er mánudagurinn út af því
hvað það er erfitt að byrja nýja
vinnuviku.
Ari Guðmundsson
verkamaður
Ætli það sé ekki bara sunnudag-
urinn. Það er út af því hvað sá
dagur er leiðinlegur og þá sér-
staklega að það er vinna daginn
eftir.
Hermann M. Þórisson
nemi í VÍ
Auðvitað mánudagurinn. Það er
svo erfitt að koma sér í vinnuskap
eftir afslappaða helgi.
blÓÐVILIINN
Þriðjudagur 20. mars 1990. 39. tölublað 55. örgangur.
SIMI 681333
SÍMFAX
681935
Leiktœkjasalir
Skrópað og stolið
Þrettán ára krakkar í leiktœkjasal: Komum hingað næstum daglega og
eyðumþvísem við eigum. Krakkar skrópa ískólanum ogstela í
búðum vegna leiktœkjanna. Helgi Viborg: Raunverulegt og vaxandi
vandamál
Ungur drengur er f greinilegri
geðshræringu fyrir framan
leiktæki í einum af fjölmörgum
þar til gerðum sölum í Reykjavík.
Hið vonda hefur náð að sigra
hans menn á litaskjánum og
fímmtíukallinn er búinn. Aurarn-
ir eru líklega á þrotum því dreng-
urinn stendur upp að þessari orr-
ustu lokinni. Kannski er hann þó
bara þreyttur og ætlar að ná sér
niður eftir spennuna.
„Við komum hingað næstum
daglega og eyðum því sem við
eigum í kassana," segir þrettán
ára gamall nemandi í Breiðholts-
skóla við Þjóðviljann.
Strákurinn er staddur í
leiktækjasal ásamt jafngamalli
vinkonu sinni. Báðum er þó ó-
heimill aðgangur að Ieiktækja-
salnum eins og stendur skýrum
stöfum uppi á vegg í tilkynningu
frá lögreglunni. Maður verður að
vera orðinn fjórtán til þess að
mega vera í leiktækjasal og mörg-
um finnst reyndar að hækka
þyrfti aldurstaícmarkið.
Skrópað og stolið
Krakkarnir tveir staðfesta allt
sem fræðingarnir segja um leik-
tækjasali. Það er nokkuð algengt
að krakkar skrópi í skólanum til
þess að geta setið við kassana og
það sem verra er, sumir fjár-
magna gamanið með þjófnaði.
„Þessir leiktækjasalir eru raun-
verulegt og sívaxandi vandamál
og þeir eru mjög óaðlaðandi upp-
eldisstaðir að mínu mati,“ segir
Helgi Viborg, skólasálfræðingur
hjá fræðsluskrifstofu Reykjavík-
ur.
„Það er algengt að krakkar
skrópi í skólanum til þess að fara í
leiktækjasali og svo hanga þeir
þarna frá því skóla lýkur og langt
fram á kvöld. Skólamenn kvarta
mjög yfir þessu.
Við fáum kvartanir frá búðar-
eigendum, sem halda því fram að
krakkar stundi þjófnað til þess að
fjármagna leikina. Við fáum
einnig kvartanir frá foreldrum
um að krakkarnir steli peningum
heima hjá sér. Þetta er dýrt dæmi
og það getur verið erfitt að fjár-
magna það,“ segir Helgi.
I leiktækjasalnum sem Þjóð-
viljinn heimsótti voru sautján
leiktæki og leikurinn kostaði 30
til 50 krónur. Blaðamaður borg-
aði 40 krónur fyrir æsilega öku-
ferð í einu tækjanna og týndi líf-
inu og bílnum eftir um það bil
tvær mínútur. Hefði hann farið
jafn klaufalega að ráði sínu í
hvert sinn, hefði blaðamaðurinn
getað eytt ríflega þúsund krónum
á klukkutíma í þessu tæki.
Við komum hingað næstum daglega og eyðum því sem við eigum í leiktækin, segja þrettán ára krakkar við
Þjóðviljann. Mynd Kristinn.
Aldurstakmarkiö
hækkað?
Leiktækjasalir hafa löngum
verið uppeldisfræðingum og
borgaryfirvöldum þyrnir í
augum. Sú var tíðin að leitað var
umsagnar barnaverndarnefndar
þegar til stóð að opna nýja leik-
tækjasali og nefndin lýsti sig
ávallt andvíga sölunum. Nú er
ekki lengur leitað umsagnar
nefndarinnar.
Eins og Þjóðviljinn skýrði frá
fyrir helgi gerði Áslaug Brynj-
ólfsdóttir fræðslustjóri sérstaka
bókun um þessa sali í fræðsluráði
fyrir skömmu. Þar segist Áslaug
telja vafasamt að reglur um þessa
starfsemi séu hafðar í heiðri hvað
varðar börn og ungmenni.
í framhaldi af bókun Áslaugar
flutti minnihlutinn í borgarstjórn
tillögu um aðgerðir yfirvalda
vegna leiktækjasala og var hún
samþykkt í borgarstjórn í síðustu
viku. Borgaryfirvöld ætla því að
gera átak í að láta framfylgja regl-
um um leiktækjasali, sem m.a.
kveða á um að börn yngri en
fjórtán ára megi ekki koma þar
inn nema í fylgd með fullorðnum.
Borgarstjórn beindi því til
fræðsluráðs og félagsmálaráðs að
leita eftir samstarfi við lögreglu
og eigendur leiktækjasala um að
sjá til þess að reglum verði fram-
fylgt. Jafnframt er í bígerð að
hækka aldurstakmarkið.
„Ef þessir salir þurfa að vera
til, finnst mér að það ætti að
minnsta kosti að hækka aldurs-
takmarkið,“ sagði Áslaug
Brynjólfsdóttir fræðslustjóri við
Þjóðviljann.
-gg