Þjóðviljinn - 07.04.1990, Page 5
Frakkland
Pólland
Gallímard
borgið?
Franskur stórbanki keypti í
gær hluta eins hinna stríðandi
systkina í bókaútgáfu Gallímard
fjöiskyldunnar og þóttist þar með
hafa borgið sjálfstæði hennar og
skotið hlutabréfabröskurum ref
fyrir rass.
Einsog kunnugt er hefur ósam-
lyndi Gallímard systkinanna
valdið því að þekktasta forlag
Frakklands var orðið fýsileg bráð
í augum allskyns spekúlanta í
Frakklandi og erlendis. Þetta
þótti rithöfundum og rétthöfum
ekki efnileg þróun og hétu á
eigendurna að rifa seglin, að öðr-
um kosti myndu þeir róa á önnur
mið með ritverk sín. í hópi þess-
um voru erfingjar Alberts Cam-
usar, Jeans-Pauls Sartre og And-
résar Gide auk rithöfundanna
Margrétar Duras og Mflans
Kundera.
Bankinn sem hér á hlut að máli
er Þjóðbankinn í París, einn
þriggja stærstu banka í Frakk-
landi. Málsvari hans fullyrti í gær
að ekki kæmi til greina að Gallí-
mard lenti í höndum erlendra að-
ilja né afsalaði sér sjálfstæði. For-
lagið yrði hér eftir sem hingað til
óaðskiljanlegur hluti af menning-
arheimi frönsku þjóðarinnar.
Reuter/ks
Þriðji maí á ný
Pólska þingið ákvað í gœr að afnema þjóðhátíðardag kommúnista,
22. júlí, en hefja gamla þjóðhátíðardaginn, 3. maí, til vegs og virðingar
á ný
Pólska þingið ákvað í gær að
leggja niður þjóðhátíð 22. júlí
og endurvekja þjóðhátíðardag-
inn 3. maí. Var þetta gert í trássi
við Wojciech Jarúzelskí forseta
og þrátt fyrir ötula baráttu hans
fyrir 22. júlí.
Vestur-Þjóðverjar eru áfram
um að Berlín verði höfuðborg
þýska ríkisins á ný, ef marka má
niðurstöðu viðhorfskönnunar.
Dagblaðið „Frankfurter
Allgemeine Zeitung" lét inna
1.000 Vestur-Þjóðverja eftir því
hverja þeir kysu höfuðborg sam-
einaðs Þýskalands. 52 af hundr-
aði sögðu Berlín en 26 af hundr-
22. júlí hefur verið þjóðhátíð-
ardagur pólska ríkisins, ef svo má
að orði komast, frá valdatöku
kommúnista í kjölfar þess að
Rauði herinn hrakti heri nasista
úr Póllandi árið 1944. Dagurinn
hefur aldrei notið virðingar sem
aði héldu tryggð við Bonn. Rest-
in nefndi aðrar borgir.
Þar er sláandi að allt „úrtakið"
hafði skoðun á þessu máli sem er
óvenjulegt. Þorri Bonnvina er af
yngri kynslóð en eldra fólk kýs
Berlín sem forðum var höfuð-
staður Þýska ríkisins og Þriðja
ríkisins einsog alkunna er.
Reuter/ks
þjóðhátíðardagur í Póllandi þótt
ætíð hafi verið mikið um glens og
gaman þann dag, einkum meðal
félaga valdaflokksins. Alþýða
manna hefur hinsvegar ávallt
haldið tryggð við 3. maí, gamla
þjóðhátíðardaginn og nýja.
Og þar sem Samstaða ræður
langflestum sæta á pólska þing-
inu, Sejm, þarf engum að koma á
óvart þótt niðurstaðan hafi orðið
þessi. 182 þingmenn greiddu at-
kvæði gegn 22. júlf, 39 með en 56
létu sér fátt um finnast og skróp-
uðu.
Jarúzelskí hafði kostað kapps
um sannfæra þingmenn um ágæti
22. júlí og fá þá ofan af þeim
áformum sínum að láta daginn
fyrir róða. í því augnamiði hafði
hann ritað þeim bréf og tíundað
það sem dagurinn hefur til síns
ágætis.
Hann kvað ekki hægt að láta
sem 22. júlí hefði ekki táknrænt
gildi fyrir sögu Póllands. Dagur-
inn væri minnisvarði um ósigur
nasista, skiptingu jarðnæðis með-
al smábænda og nýja skipan vest-
urlandamæra ríkisins.
Jarúzelskí þungt hugsi. Barðist
fyrir 22. júlí en fagnaði engu að
síður 3. maí.
En allt kom fyrir ekki og 22.
júlí var felldur úr sessi. Skömmu
síðar samþykkti þorri þingheims
að hefja 3. maí til vegs og virðing-
ar á ný. Og þótt ýmsir hafi spáð
því að Jarúzelskí beiti neitunar-
valdi forsetaembættisins til að
hnekkja niðurstöðu þingsins
tímabundið þá verður að telja
það ólíklegt í ljósi þess að hann
fagnaði endurreisn 3. maí.
Reuter/ks
Vestur-Pýskaland
Berlín fremur en
Bonn
England
Thatcher slær met
Enginn forsætisráðherra hefur
notið jafn lítillar hylli á Bret-
landi og Margrét Thatcher frá því
vinsældamælingar hófust fyrir
hálfri öld. Fyrsta könnun á
stjórnmálaskoðunum Breta fór
fram árið 1940.
Niðurstaða nýrrar Gallup-
könnunar er sú að aðeins 24 af
hundraði eru ánægðir með
frammistöðu forsætisráðherrans.
10.000 einstaklingar víðsvegar
um Bretland létu álit sitt í ljósi.
Þetta er óvinsældamet forsætis-
ráðherra í könnun sem þessari en
árið 1968 hreppti þáverandi þjóð-
höfðingi Breta, Harold Wilson,
27 af hundraði og þótti skítt. I
síðustu Gallup-könnun naut
Thatcher ívið meiri vinsælda en
þá töldu 30 af hundraði frammi-
stöðu hennar fullnægjandi.
Samkvæmt þessari sömu könn-
un breikkar enn bilið milli íhalds-
flokks Thatchers og Verka-
mannaflokksins. Nú hyggjast
52,5 af hundraði kjósa Verka-
mannaflokkinn í næstu þingkosn-
ingum en aðeins 28 af hundraði
íhaldið. Þetta er þó
skammgóður vermir fyrir Neil
Kinnock og félaga hans í Verka-
mannaflokknum því kjörtímabil-
ið rennur ekki sitt skeið fyrr en
um miðbik ársins 1992. Hinsveg-
ar þykir líklegt að íhaldsflokkur-
inn gjaldi afhroð í byggðastjórn-
akosningum sem fram fara í önd-
verðum maímánuði.
Reuter/ks
Sannkallað
PÁSKATILBOÐ
fyrir alla íslenska ostavini
15-20%
afsláttur!
Nepal
Blóðbað í
Kathmandú
Hermenn og öryggislögregla
felldu að minnsta kosti 50
manns og særðu 200 nærri höll
Birendras konungs í Kathmandú,
höfuðborg Nepals, í gær. Til
mikilla mótmæla kom í landinu
öllu og krafðist fólk þess að teknir
yrðu upp lýðræðislegir stjórnar-
hættir, makt kóngsins yrði
minnkuð og völd hinna svonefndu
panchajats-ráða afnumin.
Heimildir úr Bir-sjúkrahúsinu
í höfuðborginni hermdu að 50
manns hið minnsta hefðu látist
þegar hermenn og öryggissveitir
konungs hófu skothríð að
mótmælendum sem hugðust
halda inná hallarlóðina. Sam-
kvæmt sömu heimild voru 200
særðir mótmælendur færðir inná
tvö sjúkrahús og er verið að gera
að sárum þeirra.
Fréttastofa Indlands, PTI,
hafði hinsvegar eftir óstaðfestum
heimildum að 150 manns hefðu
fallið í valinn í Kathmandú í gær.
Hermdi hún að öryggissveitir,
sem þjálfaðar væru af ísraelskum
málaliðum, væru hvarvetna á
varðbergi í höfuðborginni, eink-
um þó í grennd við konungshöll-
ina.
Haft er eftir sjónarvottum að 5
manns, þar af tveir erlendir gest-
ir, hefðu verið særðir skotsárum í
atviki sem ekki tengist blóðbað-
inu sem að ofan greinir. Einnig
var haft eftir sjónarvottum í hinni
vestlægu borg Butwal að þar
hefðu 7 manns fallið fyrir hendi
hermanna og ennfremur 3 í Pok-
hra.
Reutcr/ks
PJ<>ÐVIUINN - SÍÐA 5
DALABRIE
INNBAKAÐUR
DALABRIE
DALAYRJA
CAMEMBERT
DJÚPSTEIKTUR
CAMEMBERT
PORTSALUT
GRÁÐAOSTUR
Birgðu
þig upp fyrir páskana
í næstu búð
AUK/SlA k9d21-514