Þjóðviljinn - 27.04.1990, Side 22
Guðrún
Gísladóttir
7 2 3 3 3 H- ií (o ; V- 7 w 2 T~ Z
9 V 10 77“ IZ S? 13 II 12 S? N~- /5' )Z V
sa J0 II 10 ) s? 9 u H N / SP ii
's5 )l )2 J£ S? w~ 20 V )S~ 21 J7- / T~ íT
o )8 S? 2Z n> w 12 IS 0> S? ie 2 f
% it 1 )2 S' V IS 21 9 N 7 S? \U s? 2
<¥> 7- H? V 10 )S ) )2 f V: tí> 7 12 2T~
2Y V 2/ i^ 11 v- s /7 /B V
2£T // S2 i? V * )tp 3 12 I/ S? 10
U 2? J li V U H /£» b /2 3 12 lií 1
JZ X<? JZ Jíí / J2 21 // J2 s? 3 «/ S J
«/- V K )2 V W 9 /7 S? 29 21 J3 y
20 l \i 2 l / 2X Ko íT s? 7- 9
AÁBDÐEÉFGHIÍJKLMNOÓPRSTUÚVXYÝÞÆÖ
Krossgáta nr. 93
Setjið rétta stafi á reitina hér fyrir neðan. Þeir mynda þá kvenmannsnafn.
Sendið þetta nafn sem lausn á krossgátunni til Þjóðviljans, Síðumúla 37,
Reykjavík, merkt: „Krossgáta nr. 93“. Skilafrestur er þrjár vikur. Verðlaunin
verða send til vinningshafa.
2Y 1í // 2! 23 ? /9 ZV 7 7
• - . —
Lausn á krossgátu nr. 90 var Sundaborg. Dregið var úr réttum lausnum, og upp
kom nafn Berglindar Steinsdóttur, Goðheimum 19 í Reykjavík. Hún fær senda
skáldsöguna Óbærilegur léttleiki tilverunnar eftir Milan Kundera í þýðingu
Friðriks Rafnssonar. Mál og menning gaf út.
Verðlaun fyrir krossgátu nr. 93 er
bókin Brimöldur, frásögn Haralds Ól-
afssonar sjómanns af sjómennsku
og atvinnulífi á fyrri hluta aldarinnar,
skráð af Jóni Guðnasyni sagnfræð-
ingi. Mál og menning gaf út 1987.
Sæla í koti
Hér á öldum áður hefur það
varla verið erfitt að skilgreina
hvað væri kotbúskapur og hvað
ekki, en nú á seinni helmingi
þessarar aldar er kotbúskapur
líklega ekki eins auðskilgreindur
og sem betur fer ekki eins al-
gengur og þá. Hitt er svo annað
mál að hagur láglaunafólks fer
óðum versnandi og eflaust
þrengra í búi hjá mörgum en bara
fyrir nokkrum árum. En þrátt
fyrir blankheit er ekki frá því að
maður geti upplifað sælu í kotinu
öðru hverju.
Sól fer ört hækkandi á lofti, en
snjórinn er þrjóskur í ár eins og
svo oft áður. Þó má sjá að hiti
hefur aukist til muna í jörðu,
snjórinn á erfitt með að festa sig í
sessi. En meðan við gleymum
ekki hvaða land við byggjum,
ætti það ekki að koma okkur ýkja
mikið á óvart að það skuli snjóa í
apríllok, meira að segja hérna
suður í Reykjavík. Sæla vikunnar
hlýtur að vera fögnuður yfir
hækkandi sól og hlýjum vindum.
Mataræði margra breytist yfir
sumarmánuðina. Kjötmeti og
annað sem er þungt í maga heyrir
vetrinum til og á sumrin borðum
við léttari mat. Kotasæla er
osttegund sem sífellt fleiri leggja
sér til munns hér á landi sem ann-
ars staðar. Fyrir utan hreina
kotasælu var nýlega farið að selja
hana með ananas annars vegar og
lauk hins vegar. Þetta er
skemmtileg tilbreyting, en kaup-
maðurinn minn á horninu segir
mér þó, að þessar nýju tegundir
hafi selst illa miðað við gæði.
Góðir hálsar, prófið endilega
þessar gómsætu nýjungar.
Kotasælu má nota í sósur, grat-
ín, kökur, eftirrétti og salatsósur.
Hún er ekki eins feit og ostar eru
yfirleitt og fyrir ykkur sem viljið
takmarka fitu í matartilbúningi er
tilvalið að nota kotasælu í staðinn
fyrir feitari osta.
Mér dettur í hug afbragðsgóð
uppskrift að pastasósu sem inni-
heldur fjórar tegundir osta.
Bræðið (við lágan hita) 200 gr
kotasælu, 100 gr af bragðsterkum
osti, 50 gr parmesan og 50 gr
mozzarella í potti með þykkum
botni. Kryddið með pipar og
jafnvel múskati. Blandið saman
við pasta fyrir 4-6 persónur og
klippið steinselju yfir réttinn.
I eftirfarandi salatsósu eru
færri hitaeiningar: 150 gr kota-
sæla, V/2 dl hrein jógúrt, 1 msk
majones, 2 tsk sítrónusafi, 2 tsk
ólífuolía og síðan salt og nýmal-
aður svartur pipar eftir smekk.
Þessi finnst mér heppnast best ef
notaður er „mixer“ í svona hálfa
mínútu eða svo. Skreytt með ný-
klipptum graslauk er sósan falleg
að auki.
Kotasæla er góð ofan á brauð,
ristuð brauðsneið með smjöri,
kotasælu og góðu kryddi að auki
er góð undirstaða fyrir daginn.
Tómatsneið, gúrkubiti eða papr-
ikuflís er heldur ekki galið með,
þó ekki sé nema til þess eins að
gefa brauðsneiðinni fallegan lit.
FJÖLSKYLDAN
ELÍSABET BERTA
BJARNADÓTTIR
Bömin og dauðinn
Hvernig skilja börn dauðann á
hverju aldursskeiði? Allir kann-
ast við það, hvernig smábörn
verða oft hrædd um að mamma
eða pabbi séu endanlega „týnd“,
um leið og þau eru úr augsýn. Að
vera „farinn“, „týndur“ eða „dá-
inn“ eru fyrir smábarninu ná-
skyld fyrirbæri, því þroski þess er
ekki lengra kominn, skilningur-
inn nær ekki lengra og það hefur
svo stutta reynslu til viðmiðunar.
Hæfni til að aðgreina fyrirbærin
og grisja þau í sundur, vex svo
smám saman. Barnið fer að átta
sig betur á, við hverju það getur
búist, hvað í heiminum er traust
og hvað brigðult.
Barn sem á heilbrigt foreldri
sem það hefur getað reitt sig á, er
farið að treysta því sem nýju neti
þriggja ára gamalt, að mamma og
pabbi komi aftur. Á aldrinum
u.þ.b. 3-5 ára er því oft mjög erf-
itt fyrir börn að trúa því að þau fái
ekki aftur sína nánustu, ef þeir
falla frá. Þörfin er svo mikil fyrir
að hafa það í kringum sig, sem er
gott og tryggt og þekkt. Það verð-
ur barninu nauðsynleg vörn gegn
of sárum skilningi að hugsa sér að
hinn látni komi alveg eins aftur.
Á svokölluðu ödipalskeiði og
byrjun barnaskólaaldurs, u.þ.b.
frá 4 eða 5 ára aldri til 9-10 ára
aldurs hefur enn nýtt sjónarhorn
bæst við, barnið skynjar eitthvert
sterkt afl og stundum líka dulrænt
sem getur komið utanfrá og vald-
ið dauða. Þessi skilningur er í
rökréttu framhaldi af reynslu
ödipalskeiðsins, þegar barnið vill
svo gjarnan eiga foreldri sitt af
gagnstæðu kyni alveg útaf fyrir
sig, en verður svo að gefast upp,
af því það er bara lítið og háð en
foreldrarnir stórir og sterkir,
sambærilegt við hið utanað-
komandi. Um 10 ára aldur fara
börnin að gera sér ljóst, þegar
dauða ber að höndum í fjölskyld-
unni, að lífið er hverfult og hinn
látni kemur ekki aftur. Heimur-
inn er líka orðinn miklu stærri á
þessum aldri, vinir og kennarar
og ef til vill enn fleiri hafa bæst við
sem ómissandi á leiksviði barns-
ins, svo það hefur úr fleiru að
spila til að umbera hið óbærilega,
dauðann. Ef til vill hefur „al-
mættið“ gætt þess að gefa okkur
skilning og þroska í takt við
6
Börn halda stundum að þau séu
völd að veikindum eða dauða.
Teikning: S.Þ.
möguleika okkar til að standa
undir vísdómnum.
„Mér að kenna“
Sem fullorðin óskum við þess í
hálfkæringi eða reiði að hinir og
þessir fari norður og niður þegar
þeir fara í taugarnar á okkur og
vitum jafnframt að sem betur fer
verður okkur ekki að ósk okkar,
því þá væru nú margir farnir
norður, og við þyrftum að burð-
ast með óbærilega sektarkennd
yfir því að hafa svona mikil áhrif.
En barnssálin á ekki eins auðvelt
með að átta sig á því hve hugsanir
hafa mikil áhrif.
Öll börn ganga gegnum ein-
hverjar óskir um að einhverjir
nákomnir, foreldri eða systkini
gætu komið sér af sjónarsviðinu
og stundum dáið og halda í þess-
um útreikningum að það mundi
tryggja þeim meiri ást og um-
hyggju frá þeim sem yrðu eftir og
það yrði nú meiri sælan, ef til vill
gæti það þá fengið „allt“. Því
meira sem barninu finnst sér ógn-
að af keppinautum um ást og hylli
og því hræddara sem það er um
að vera ekki mikils virði, því
sterkari geta þessar óskir orðið.
Stundum fær fullorðna fólkið
„panikk", og skammast sín fyrir
barnið, þegar það heyrir það bera
fram þessar óskir hástöfum og
ávítar það ef til vill sterklega. En
ávítur við svona óskum geta
magnað upp mikla sektarkennd
hjá krökkum og þeim finnst að
eitthvað mikið ljótt sé að sér.
Gott getur verið að gera ekki
mikið úr svona tali barna, en at-
huga sem foreldri hvort hægt sé
að gefa sér meiri tíma til að vera
meira einstaklingsbundið með
börnunum svo þau þurfi ekki að
vera í stöðugri systkinasam-
keppni og upplifa sig sem hóp-
veru allan tímann. Það getur
styrkt barn mjög mikið að finna
að mamma og pabbi skynja það
sem alveg einstaka mannvéru
þegar annað hvort þeirra gérir
eitthvað með því einu.
Við dauðsfall getur barhið
haldið (og stundum fullorðnir
líka) að allt sé því að kenna, því
það sé búið að hugsa svo oft ljótt
og það sé ef til vill svo vont að guð
eða eitthvað utanaðkomandi sé
að hefna sín á sér. Við áfallið mis-
sa bæði börnin og hinir fullorðnu
hluta af sjálfsstyrknum, svo það
þarf að sefa og sannfæra börnin
um að þau séu góð, þegar svona
hugsanir koma upp og þau eigi
enga sök á veikindunum eða slys-
inu.
22 SÍÐA — NYTT HELGARBLAÐ Föstudagur 27. apríl