Þjóðviljinn - 19.07.1990, Qupperneq 1
Fimmtudagur 19. júlf 1990 132. tölublað 55. árgangur
Keflavík
Hraðfiystihúsið til sölu
Hátt ítvöþúsund tonna kvóti íhœttu. Reynt aðfá nýttfjármagn ífyrirtœkið
ÁTVR
Minni
sala
Heildarsala áfengis, og er bjór
þá meðtalinn, dróst saman um
4,19 prósent í lítrum talið en 6,53
prósent í alkóhóllítrum, fyrstu
sex mánuði ársins miðað við
sama tíma í fyrra.
Alls nam áfengissalan á fyrri
helmingi ársins 4.257.039 lítrum
eða 465.845 alkóhóllítrum.
Sambærilegar tölur frá fyrra ári
eru 4.443.226 lítrar eða 498.410
alkóhóllítrar.
Sömu sögu er að segja af sölu
tóbaks fyrstu sex mánuði ársins.
Sala á því dróst saman á öllum
tegundum nema með einni und-
antekningu. Sala á neftóbaki
jókst um 1,46 prósent. -grh
Hraðfrystihús Keflavíkur hf.
hefur verið auglýst til sölu en
það á og rekur frystiskipið Aðal-
vík KE 95 sem er með hátt í tvö
þúsund tonna kvóta. Vegna fjár-
hagserfíðleika hefur fyrirtækið
verið með greiðslustöðvun síð-
ustu þrjá mánuði og er núna á
fjórða mánuðinum. Talið er að
fyrirtækið fái samþykktan einn
mánuð til viðbótar í þeirri von að
hægt verði að afstýra gjaldþroti.
Irúmt ár hefur Hraðfrystihúsið
ekki rekið eigin fiskvinnslu í
húsakynnum sínum heldur leigt
öðrum afnot af þeim sem og fryst-
iklefum þess. Það sem af er hefur
rekstur útgerðar Aðalvíkur KE
nokkurn veginn staðið sig en eng-
an veginn undir þeim skuldum
sem hvfla á Hraðfrystihúsinu,
sem eru umtalsverðar.
Samkvæmt heimildum Þjóð-
viljans hafa margir sýnt áhuga að
kaupa en þó sýnu mest togarann
og kvótann. Stjórn fyrirtæksins
mun þó ekki vera ginnkeypt fyrir
því að selja nema því aðeins að
hraðfrystihúsið fylgi einnig með í
kaupunum í þeirri von að það
verði þá starfrækt á ný. Á meðan
er reynt eftir megni að fá fjár-
magn inní fyrirtækið til að hægt
verði að afstýra þeirri nauðlend-
ingu að þurfa að selja.
Helstu eigendur Hraðfrysti-
húss Keflavíkur er Sambandið
sem á ríflega 60%, bæjarsjóður
Keflavíkur á um 20% og þá á
Kaupfélag Suðurnesja um 13%.
Frystitogarinn Aðalvík KE hét
áður Drangey SK frá Sauðár-
króki og var fenginn suður í
skiptum fyrir tvo ísfisktogara,
Aðalvík og Bergvík. í tengslum
við þau býtti fékk Fiskiðja
Sauðárkróks og Hraðfrystihús
Hofsóss um 60-70 miljón króna
fyrirgreiðslu frá Byggðastofnun
til að endurskipuleggja starfsemi
sína.
Hinsvegar hafa Suðurnesja-
menn fengið litla sem enga fyrir-
greiðslu frá hinu opinbera til
jafns við aðra landshluta þegar
sjávarútvegur er annarsvegar.
Það mun vera vegna þess að kerf-
ið á í stökustu vandræðum með
að gera það upp við sig hvort
Suðurnes teljist til landsbyggðar
eða ekki. Ástæða þess mun vera
nálægðin við höfuðborgarsvæðið
og vera bandaríska hersins á
Miðnesheiði. -grh
miöað vel atram og er jafnvel búist við að báðar akreinarnar verði opnaðar fyrir
lok júlí, en Hagvirki á að skila af sór verkinu ( september. Mynd: Jim Smart.
Á þriðjudag var önnur akreinin undir brúnna á Arnarnesi opnuð fyrir bifreiðar
sem eru á leið frá Hafnarfirði til Reykjavíkur. Framkvæmdum við brúna hefur
*
Islenskt hugvit
Stór markaður í Austurvegi
Svavarjónatansson: Gengiðfrá lánum nœstu daga ogþágeta framkvœmdir hafist
í Ungverjalandi. Sennilegafarið af stað í Tékkóslóvakíu líka, og Sovétríkin lofagóðu
Anæstu dögum skrifar Þjóð-
banki Ungverjalands undir
lánasamning við Norræna fjár-
festingabankann og þá geta hita-
veituframkvæmdir Geotherm
hafíst, en fyrirtækið er sam-
cignarfyrirtæki íslenskra og ung-
verskra aðila. Svavar Jónatans-
son stjórnarformaður
Virknis-Orkint, íslenska sam-
starfsaðilans, segir lánið til fram-
kvæmdanna vera 7 milljónir doll-
ara. íslensk jarðhitafræði eiga
mikla möguleika í Austur Evr-
ópu.
í samtali við Þjóðviljann sagði
Svavar verkefni Geotherm felast
í upphafsáfanga að lagningu jarð-
hitaveitu í sex bæjum í Ungverja-
landi. Þessir bæjir væru mismun-
andi stórir, eða allt frá um
EB-EFTA
Engan tvíhliða samning
EFTA-ríkin eiga að halda hópinn
Iviðræðum sínum í fyrradag
voru þeir Halldór Asgrímsson
sjávarútvegsráðherra og Sven
Munkejord sjávarútvegsráð-
herra Norðmanna sammála um
að tvíhliða samningar við Efna-
hagsbandalagið væri engum til
gagns.
Þess í stað eiga EFTA-ríkin að
halda hópinn í viðræðum við EB
sem væri besti farvegurinn til aö
ná einhverjum árangri. Ráðhen-
arnir lögðu áherslu á að í þeim
viðræðum yrðu fiskveiðar og
fiskiðnaður almennt að hafa for-
gang til jafns við aðrar atvinnu-
greinar.
Jafnframt ákváðu ráðherrarnir
að hefja samningaviðræður um
samnýtingu á norsk-íslenska sfld-
arstofninum. En eins og kunnugt
er fann sovéskt rannsóknaskip
nýlega sfldartorfur úr þessum
stofni um 250 sjómflur frá ís-
landi.
Auk þessara mála ræddu ráð-
herrar sín í milli um niðurstöður
ársfundar Alþjóðahvalveiðiráðs-
ins, gagnkvæm veiðiréttindi,
landanir erlendra skipa og síðast
en ekki síst miðlaði Halldór
starfsbróður sínum fróðleik um
ágæti íslenska kvótakerfisins.
-grh.
fimmtán þúsund íbúum til hundr-
að þúsund íbúa.
Lagning hitaveitnanna byggir
algerlega á íslensku hugviti og
munu fimm til tíu íslendingar
vinna að verkinu ytra, að sögn
Svavars. Stjórn verksins verður
hins vegar jafnt í höndum ís-
lenskra og ungverskra verkfræð-
inga.
Þá er hagkvæmniathugun í
gangi um lagningu hitaveitu í
tveimur bæjum í Tékkóslóvakíu.
Svavar sagði ekki ósennilegt að
samningar tækjust um verkefni
þar á næstunni. Hann sagði eng-
an vafa leika á að geysilega stór
markaður væri fyrir íslenska jarð-
hitaþekkingu í Áustur Evrópu og
þá sérstaklega í Sovétríkjunum.
„Undirtektir í Sovétríkjunum
hafa verið mjög jákvæðar og þar
gæti eitthvað gerst á þessu ári,“
sagði Svavar. En vegna þess á-
stands sem ríkti í þjóðmálum í
Sovétríkjunum um þessar mund-
ir væri erfitt að fá fast land undir
fæturna. -hmp
Heimsleikar
fatlaðra
Ólafur og
Sigrún
með gull
Haukur Gunnarsson
annarí400m. hlaupi
íslensku keppendurnir átta á
Heimsleikum fatlaðra, sem hóf-
ust í Assen í Hollandi á sunnudag,
hafa staðið sig mjög vel. Ólafur
Eiríksson er búinn að vinna tvenn
gullverðlaun. Hann varð fyrstur í
400 metra skriðsundi, synti þá á
4:43,08 mín. og einnig í 800 metra
skriðsundi á tímanum 9:41,98.
Hann varð fjórði í 100 m flug-
sundi. Sigrún Pétursdóttir vann
einnig gullverðlaun í 100 m
skriðsundi og synti hún á tíman-
um 2:34,41.
Kristín Rós Hákonardóttir
varð önnur í 100 metra baksundi
og þriðja í 100 m skriðsundi.
Haukur Gunnarsson varð annar í
400 metra hlaupi á mánudag.
íslensku keppendurnir á
leikunum eru átta, þar af keppa
sjö í sundi og einn í hlaupi.
Kristín Rós Hákonardóttir
varð þriðja í 50 m og 100 m skrið-
sundi. Rut Sverrisdóttir varð
þriðja í 200 m bringusundi, fjórða
í 100 m bringusundi og áttunda í
100 m skriðsundi. Sigrún Péturs-
dóttir varð áttunda í 100 m bak-
sundi. Halldór Guðbergsson
varð sjötti í 100 m bringusundi og
sjöundi í 100 m skriðsundi. Lilja
Snorradóttir varð áttunda í 100 m
flugsundi. -vd.
Fiskifélagið
Minni
heildarafli
Heildaraafli landsmanna
fyrstu sex mánuði ársins er um
ellefu þúsund tonnum minni en
hann var á sama tíma í lyrra en þá
var hann rúmlega ein miljón
tonn. Á sama tíma hefur útflutn-
ingur á óunnum þorski í skipum
og gámum um þrjú þúsund tonn-
um minni en hann var fyrir ári,
samkvæmt bráðabirgðatölum
Fiskifélags íslands. _grh