Þjóðviljinn - 19.07.1990, Qupperneq 2
FRETTIR
Þjóðminjasafnið
Deildarstjórastaða veldur deilum
Þjóðminjaráð óskar eftirþví við menntamálaráðherra að hann auglýsi stöðu deildarstjóraþjóðminjadeildar.
GunnlaugurHaraldsson: Viljumfá úrþvískorið hvortvið lesum lögin rétt. Guðmundur Ólafsson: Fráleithugmynd
Þjóðminjaráð samþykkti á
fundi sínum nýlega að beina
því til menntamálaráðherra að
hann auglýsi stöðu deildarstjóra
við fornminjadeild Þjóðminja-
safnsins lausa til umsóknar. Guð-
mundur Oiafsson fornleifafræð-
ingur hefur gegnt þessari stöðu
frá því 1985, en hann var þá skip-
aður í hana af þáverandi
menntamálaráðherra.
- Mér finnst þessi samþykkt
Þjóðminjaráðs fráleit, hún byggir
á nýjum lögum um Þjóðminja-
safnið og þau lög eru ekki aftur-
virk, frekar en önnur lög, sagði
Guðmundur Ólafsson um sam-
þykkt Þjóðminjaráðs.
í lögunum sem tóku gild um sl.
áramót segir að fornleifanefnd
skuli tilnefna deildarstjóra forn-
Skipverjar yfirheyrðir. i fyrrinótt kom Bakkafoss skip Eimskipsfélagsins til Reykjavíkur og þá hófust yfirheyrslur yfir
skipverjunum fimm sem grunaðir eru um aðild að smyglmálinu fræga sem upp komst í Eyjum fyrir viku. Skipverjarnir voru
yfirheyrðir af rannsóknarmönnum tollgæslunnar í stað lögreglumanna frá RLR vegna misskilnings sem upp kom á milli
bæjarfógetans í Eyjum og tollgæslustjóra. Mynd: Kristinn.
minjadeildar og skuli hann verða
ráðinn til fimm ára í senn.
- Við viljum með þessari sam-
þykkt fá úr því skorið hvort við
lesum lögin rétt. Við viljum vita
hvort núverandi deildarstjóri sé
ráðinn æviráðningu eða hvort
auglýsa eigi stöðuna nú eða eftir
fimm ár. Það er ein ástæða þess
að við óskum eftir þessu, sagði
Gunnlaugur Haraldsson formað-
ur Þjóðminjaráðs, en hann bar
fram tillöguna á fundinum.
- í öðru lagi teljum við að með
gildistöku nýju laganna hafi orð-
ið það mikil breyting á þessari
stöðu að rétt sé að auglýsa hana.
Samkvæmt lögunum heyra allar
fomminjar hér á landi beint undir
deildarstjórana í stað þess að þær
heyrðu undir Þjóðminjavörð
áður, sagði Gunnlaugur og bætti
við að Þjóðminjaráð liti svo á að
ekki hafi verið rétt staðið að
ráðningu deildarstjóra við
Þjóðminjasafnið þegar því var
deildaskipt árið 1985.
- Þessari samþykkt Þjóðminj-
aráðs er á engan hátt beint gegn
núverandi deildarstjóra, honum
er eins og öðrum heimilt að sækja
um þessa stöðu, við viljum bara
fá úr því skorið hvað átt er við í
lögunum um að fornleifnefnd til-
nefni yfirmann fornleifadeildar,
sagði Gunnlaugur.
Hann vildi taka fram að ein-
ungis væri óskað eftir að þessi til-
tekna staða væri auglýst, því safn-
kvæmt lögunum væri aðeins gert
ráð fyrir að ráðið sé til fimm ára í
tvær stöður sem nú em til við
Þjóðminjasafnið. Hin staðan er
■ staða þjóðminjavarðar.
- Við sjáum í raun ekki ástæðu
til þess að óska eftir því að staða
þjóðminjavarðar verði auglýst
þar sem eðli þeirrar stöðu hefur
ekkert breyst með tilkomu nýju
laganna, sagði Gunnlaugur.
Guðmundur Ólafsson sagði að
færi svo að ráðherra samþykkti
ósk Þjóðminjaráðs um að auglýsa
stöðuna yrði því máli vísað til
BHMR.
- Ég er ekki hræddur um mína
stöðu, þó svona sé vegið að
starfsheiðri mínum. Mér finnst
þetta ófyrirgefanleg framkoma
hjá þessu fólki, og mér finnst að
það ætti að biðjast afsökunar á
henni, sagði Guðmundur Ólafs-
SOn' -«g
Kvikmyndafélagið UMBI
Kristnihaldið hlýtur Silfurhöfmnginn
Kvikmyndin Kristnihald undirJökli hlaut verðlaun á kvikmyndahátíð í Portúgal
Kvikmynd kvikmyndafélagsins
UMBA Kristnihald undir
Jökli hlaut nýlega verðlaun fyrir
besta kvikmyndahandritið á al-
þjóðiegri kvikmyndahátíð í Por-
túgal.
Handritið að kvikmyndinni
skrifaði Kanadamaðurinn Ger-
ald Wilson. Þetta er í annað sinn
sem myndin er verðlaunuð, hún
var valin besta myndin á nor-
rænni kvikmyndahátíð í Lubeck
eigi alls fyrir löngu.
f viðtali við Þjóviljann sagði
Guðný Halldórsdóttir leikstjóri
að hún hefði ekki séð sér fært að
vera viðstödd kvikmyndahátíð-
ina, og öll samskipti UMBA við
hátíðina verið á skeytaformi.
Þannig fréttu þau af verðlaunun-
um í skeyti þaraðlútandi, og að
verðlaunagripurinn í formi
höfrungs úr silfri væri á leiðinni til
landsins. Hátíð þessi í Portúgal er
að sögn Guðnýjar stærsta kvik-
myndahátíðin í sumar, en hún
segir að þau hafi ekki gert sér
grein fyrir því þegar í stað hversu
mikilvæg þessi hátíð er.
Verðlaun sem þessi breyta að
sögn Guðýjar miklu í sambandi
við dreifingu myndarinnar. Hún
segir það oft henda að dreifingar-
aðilar skoði ekki einu sinni
myndirnar sem þeir fá sendar
áður en þeir endursendi þær með
kurteislegum þökkum. Fái kvik-
myndin verðlaun eins og í Lu-
beck og nú í Portúgal bæti það
stöðu og sölumöguleika myndar-
innar til muna.
Kristnihaldið verður sýnt á rás
1 í Þýskalandi þann 20. ágúst nk.
En fjölmiðlar þar í landi hafa sýnt
myndinni mikinn áhuga. SDR-
sjónvarpsstöðin í Stuttgart reiddi
fram þriðjung af kostnaðinum
við gerð myndarinnar, og verður
hún framlag stöðvarinnar til
þýskra sjónvarpsverðlauna, þar
sem keppt verður um bestu
mynd, leikstjórn og handrit. BE
Eðlisfrœði
Ólympíu-
leikar á
íslandi
Ríkisstjörn íslands hefur sam-
þykkt að Ólympíuleikar í eðlis-
fræði verði haldnir hér á landi og
ef af verður yrði það lfldega árið
1998.
Um árabil hafa íslendingar
tekið þátt í Ólympíuleikunum í
eðlisfræði, en þjóðir sem eiga
þátttakendur í leikunum í 10 ár
verða að bjóðast til að halda
leikana í sínu landi. Þess vegna
verður því lýst yfir á næstunni að
íslendingar vilji gjarnan hafa
leikana hér á landi. Þessi sam-
þykkt ríkisstjórnarinnar hefur
það í för með sér að á næstu vik-
um verður leitað stuðnings ann-
arra aðila við þessar fyrirætlanir.
ns.
Námsmenn frá
Eystrasaltslöndunum
Við fjárlagagerð vegna næsta árs
verður gert ráð fyrir þremur
námsstyrkjum handa náms-
mönnum frá Eystrasaltslöndun-
um, sem geti hafið nám hér
haustið 1991. Til að svo geti orðið
þarf að hækka fjárlagalið vegna
erlendra námsmanna. Ríkis-
stjórnin fjallaði um þetta á fundi
á þriðjudag að tillögu
menntamálaráðherra, en honum
höfðu borist sérstök tilmæli frá
Æskulýðssambandi íslands um
þetta nýlega.
Skálholtshátíð
um helgina
Skálholtshátíð verður haldin nk.
sunnudag, 22. júlí, en þetta er í
27. sinn sem hátíðin er haldin.
Hátíðin hefst með messu kl. 14 og
mun séra Jón Einarsson prófast-
ur predika. Skálholtskórinn
syngur undir stjórn Helga Braga-
sonar. Organisti er Hilmar Órn
Agnarsson en Lárus Sveinsson og
Ásgeir H. Steingnmsson leika á
trompet við messuna. Eftir
messu býður Kirkjuráð gestum
kaffveitingar í Skálholtsskóla.
Kl. 16.30 hefst samkoma í
Skálholtskirkju. Sr. Tómas Guð-
Gunnar M. Hansson forstjóri IBM og Þröstur Ólafsson framkvæmda-
stjóri Miklagarðs innsigla samninginn með handabandi.
Nýir kassar í Miklagarði
í síðustu viku undirrituðu Þröstur Ólafsson framkvæmdastjóri Mikla-
garðs, og Gunnar M. Hansson forstjóri IBM samninga um kaup á
búðakassakerfinu IBM 4684. Mikligarður er þar með fyrsta stórversl-
unin að taka slíkt kerfi í notkun, en í því felst að settir verða upp kassar
sem lesa strigamerkingar í öllum verslunum Miklagarðs, alls 53 kassar.
Þetta kerfi byggist á alíslenskum hugbúnaði frá Hugbúnaði í Kópa-
vogi. ÖIl afgreiðsla verður hraðari og þægilegri fyrir viðskiptavini auk
þess sem hámarksöryggi í viðskiptum næst. Þá getur kassinn lesið
greiðslukort. Það er Sameins sem sér um uppsetningu kassanna og
verða þeir fyrstu teknir í notkun 1. september í Miklagarði vestur í bæ
og lokið verður við uppsetningu um miðjan nóvember.
mundsson setur hátíðina. stjórn Þorgerðar Ingólfsdóttur
Hamrahlíðakórinn syngur undir Verk eftir Þorkel Sigurbjömsson
og Misti Þorkelsdóttur. Sr. Guð-
mundur Óli Ólafsson flytur
minningu dr. Roberts A. Ottós-
sonar og frú Guðríðar Magnús-
dóttur. Kl. 18.15 flytja félagar úr
ísleifsreglunni aftansöng úr Þor-
lákstíðum.
Prýstum á apartheid
Suður-Afríkusamtökin gegn ap-
artheid halda umræðufund í
kvöld kl. 20 í húsakynnum Iðn-
nemasambands íslands Skóla-
vörðustíg 19 (gengið inn frá
Klapparstíg). Sunna Snædal for-
maður samtakanna og Judit Hall
stjórnarmeðlimur, sem hefur
heyrt og séð Mandela eigin
augum, segja frá og hefja um-
ræður. Te og kökur. Allir vel-
komnir.
Reykjavíkur-maraþon
Sjöunda Reykjavíkurmaraþon
verður haldið 19. ágúst nk.
Leiðin er sú sama og áður og
keppnisvegalengdir þær sömu.
Keppt verður í Skemmtiskokki, 7
km, hálfu maraþoni 21,1 km og í
maraþoni 42,2 km. Væntanlegir
keppendur eru beðnir að skrá sig
í tíma til að auðvelda alla úr-
vinnslu, en í fyrra varð metþátt-
taka með um 1250 þáttakendum.
Þátttökugjald er 700 kr. fyrir
skemmtiskokkið en 500 kr. fyrir
12 ára og yngri, 900 kr fyrir hálft
maraþon og 1100 kr. fyrir heilt
maraþon. Skráning fer fram hjá
Úrval-Útsýn, Álfabakka 16 og
Pósthússtræti 13, skrifstofu
Frjálsíþróttasambands íslands
íþróttamiðstöðinni Laugardal og
verslunum Sportvals í Kringlunni
og á Hlemmi.
íslensk myndlist
í Opnu húsi
í kvöld kl. 20.30 heldur Hrafn-
hildur Schram listfræðingur fyrir-
lestur um íslenska myndlist í
Opnu húsi í Norræna húsinu.
Fyrirlesturinn verður fluttur á
sænsku og nefnist „Islandsk bild-
konst 1900-1945.“ Sýnd verður
kvikmyndin „Mývatn“ (á ensku).
Aðgangur er ókeypis og allir
velkomnir.
Neðanjarðartónleikar
í Duus
Neðanjarðartónleikar verða í
Duus-húsi í kvöld. Fram koma
hljómsveitirnar Sjálfsfróun, Sor-
oricide og Páll ísakari ásamt smá-
sveit Trelle Raksó. Húsið opnað
kl. 22. Aðgöngumiðar kosta 400
krónur.
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 19. júlí 1990