Þjóðviljinn - 19.07.1990, Page 3
FRÉTTIR
Vísitölur
Verðbólgan
enn á niðurleið
Symkvæmt útreikningum Hag-
stofu Islands og Seðlabankans
á hinum ýmsu vísitölum, eru eng-
in merki um að verðbólgan sé að
sækja í sig veðrið á nýjan leik.
Seðlabankinn hefur reiknað út
lánskjaravísitölu fyrir ág-
ústmánuð og er hún 2,925 stig, og
hefur hækkað um 8,6% síðasta
mánuðinn.
Á þriggja mánaða tímabili hef-
ur lánskjaravísitalan hækkað um
7,4% og á sex mánaða tímabili
um 8,7%. Síðustu tólf mánuðina
hefur hún aftur á móti hækkað
um 14,8%. Þessar viðmiðanir
segja einnig til um verðbólgustig
á sömu tímabilum.
Hagstofa íslands hefur reiknað
byggingarvísitölu eftir verðlagi
um miðjan júlí. Reyndist vísital-
an vera 171,9 stig, eða 0,1%
hærri en í júní, en nýr grunnur
byggingarvísitölu var settur á 100
í júní 1987. Gildir þessi bygging-
arvísitala fyrir ágústmánuð. Mið-
að við eldri grunn sem settur var á
lOOárið 1982, er samavísitala 550
stig. í tilkynningu frá Hagstof-
unni segir að byggingarvísitalan
hafi hækkað um 18,3% síðustu
tólf mánuði en um 1,5% síðustu
þrjá mánuði. Samsvarar hækkun-
in síðustu þrjá mánuðina 6,3%
verðbólgu á árs grundvelli.
Hagstofan hefur einnig
reiknað launavísitölu fyrir júlí-
mánuð miðað við meðallaun í
júní. Launavísitalan reyndist
vera 116,6 stig eða 1,4% hærri en
í fyrra mánuði. í tilkynningu
Hagstofunnar segir að samsvar-
andi launavísitala, sem gildir við
útreikninga greiðslumarks fast-
eignaveðlána, taki sömu hækkun
og sé því 2,552 stig í ágúst.
Bæði lánskjaravísitala og
launavísitala byggja að hluta á
byggingarvísitölu.
-hmp
Umferðin
Alvariegum
slysum fækkar
Alvarlega slösuðum í umferð-
arslysum hér á landi hefur
fækkað um 34% fyrstu sex mán-
uði þessa árs, miðað við sama
tíma í fyrra, segir í tilkynningu
Leiðrétting
í frétt í blaðinu í gær af slæmri
stöðu Arnarflugs stendur að eigið
fé félagsins hafi í árslok verið um
678 miljónir króna. Þetta er að
sjálfsögðu ekki rétt, því eigið fé
var neikvætt um 678 miijónir.
Lesendur eru beðnir velvirðingar
á þessum augljósu mistökum.
frá Umferðarráði. í ár hafa átta-
tíu og tveir orðið fyrir alvarlegum
meiðslum en fyrstu sex mánuðina
í fyrra voru þeir hundrað tuttugu
og fimm. Lítilsháttar fækkun er á
heildarfjölda slasaðra, eða úr
þrjúhundruð sextíu og tveimur í
þrjúhundruð fimmtíu og sex.
Frá áramótum hafa níu bana-
slys orðið í umferðinni en í þeim
létust þrettán manns. Á sama
tíma í fyrra urðu tíu banaslys þar
sem tólf manns létust. Flestir lát-
inna í umferðinni hafa látist í
Árnessýslu, sex manns, en fjórir
hafa látist í Húnavatnssýslu.
-hmp
Landbúnaður
Tillögur Banda-
ríkjanna óraunhæfar
Kiechle landbúnaðarráðherra V-Þýskalands
vill gœta hagsmuna íslendinga í EB-EFTA
viðrœðum oggefur trjáfrœfrá Ölpunum
Landbúnaðarráðherra Vest-
ur-Þýskalands, Ignaz Kiechle,
afhenti í gær gestgjafa sínum
Steingrími J. Sigfússyni landbún-
aðarráðherra mikið magn trjá-
fræja, af lerki og tveim furuteg-
undum, sem valin hafa verið úr
Alpahéruðum V-Þýskalands í
samráði við íslenska skógræktar-
menn.
Kiechle er hér í boði landbún-
aðarráðherra, sem endurgeldur
þar með heimsókn sína til V-
Þýskalands. Viðræður þeirra
hafa snúist um landbúnaðar- og
hvalveiðimál, sem heyra undir
Kiechle. Hann taldi umræðurnar
um hvalveiðar hafa mótast of
mikið af tilfinningasjónarmiðum.
Á blaðamannafundi í gær ítrek-
aði hann þær yfirlýsingar sínar
sem Reuter-fréttastofan hafði
eftir honum í gær, um að starfs-
mönnum á 4500 samyrkjubúum í
A-þýskum landbúnaði þyrfti að
fækka um helming, úr 800 í 400
þúsundir manna, og að fjárfram-
lög dygðu lítt til að bjarga hon-
um. Á-þýskur landbúnaður er nú
á heljarþröm og ríkisstjórnin
veitti honum í gær neyðaraðstoð
að jafnvirði 60 miljarða ísl.
króna. Kiechle segir að opna
þurfi algerlega fyrir viðskipti yfir
landamæri þýsku ríkjanna. Áð-
spurður taldi hann ekki á sama
hátt hægt að fullyrða að fækka
þyrfti vestur-þýskum bændum,
þeir væru að miklu leyti í hluta-
starfi við landbúnað, en ekki
launamenn hjá stórfyrirtækjum,
eins og a-þýskir kollegar þeirra.
Ignaz Kiechle sagðist vonast til
einhvers árangurs af GATT-
viðræðunum um alþjóðaviðskipti
með landbúnaðarvörur, en til-
lögur Bandaríkjamanna væru
með öllu óaðgengilegar. Af-
leiðing þeirra yrði sú, að helm-
ingur evrópskra bænda mundi
flosna upp, byggðir eyðast og
landgæðum hraka. Evrópu-
bandalagið samþykki að hætta
offramleiðslu, hún sé reyndar
fyrir bí í mjólkurgeiranum og að
leggjaniðurútflutningsbætur. En
mörg fleiri sjónarmið en viðskipt-
asjónarmiðin þyrfti að taka inn í
dæmið, td. byggðaþróun og ör-
yggisþætti. ÓHT
Flmmtudagur 19. júlí 1990 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3
Ólafur Ragnar Grímsson fjármálaráðherra telur gagnrýni Arnarflugs á ráðuneyti sitt ekki á rökum reista. Mynd: Kristinn.
Ásakanir á báða bóga
Aaðalfundi Arnarflugs á
þriðjudag kom fram hörð
gagnrýni fyrrverandi stjórnar-
formanns félagsins, Harðar Ein-
arssonar og framkvæmdastjór-
ans Kristins Sigtryggssonar, á
bæði aðgerðir og aðgerðaleysi
ríkisstjórnarinnar í málefnum
Arnarflugs. Staða Arnarflugs er
mjög slæm og á síðasta ári var tap
á rekstrinum rúmar 173 mi|jónir
króna og eigið fé þess neikvætt
um rúmar 678 miljónir króna.
Sérstaklega beindist gagnrýni
forsvarsmanna félagsins að fjár-
málaráðherra, Ólafi Ragnari
Grímssyni og var hann ásakaður
um að hafa sest á málið og valdið
félaginu miklu og óbætanlegu
tjóni, beint og óbeint.
Vegna þessara ásakana efndi
fjármálaráðherra til blaða-
mannafundar og vildi að fram
kæmi hin rétta staða Amarflugs,
eins og hann orðaði það, sem
væri mun verri en talið hefði ver-
ið, þar sem félagið skuldaði ríkis-
sjóði og ríkisábyrgðarsjóði 321
miljón króna.
Gagnrýni Harðar
í ræðu sinni á aðalfundinum
sagði Hörður m.a. að á síðasta
aðalfundi félagsins hafi hann vik-
ið að því, að þann 17. marz 1989
hefði ríkisstjómin samþykkt að
fella niður eða breyta í víkjandi
lán, 150 miljónum af skuldum fé-
lagsins við ríkissjóð. Þá hafi eng-
um dottið annað í hug en að full
einlægni hefði búið að baki sam-
hljóða samþykkt ríkisstjórnar-
innar og formlegum frágangi
málsins yrði lokið með skjótum
og eðlilegum hætti.
Þessi trú Arnarflugsmanna
virtist hins vegar byggja á nokkr-
um misskilningi, að sögn Harðar,
því að nú nákvæmlega 16 mánuð-
um eftir samþykkt ríkisstjórnar-
innar sé málinu enn ólokið þrátt
fyrir margítrekaðar óskir Amar-
flugs um frágang þess. „Fjár-
málaráðherrann hefur sest á mál-
ið og nákvæmlega hið sama gildir
um uppgjör milli Arnarflugs og
ríkissjóðs vegna sölu á TF-VLT,
„þjóðarþotunni" svonefndu, sem
fjármálaráðherrann seldi með
miklum lúðrablæstri „gegn stað-
greiðslu“ á fyrstu dögum þessa
árs, á sömu dögum og hann lét
starfsmenn sína standa í samning-
aviðræðum við aðila, er vildu
kaupa vélina til notkunar fyrir
Arnarflug og á mun betra verði
en fjármálaráðherranum þókn-
aðist að selja hana öðmm,“ sagði
Hörður. Hins vegar hafi vélin
lengst af þeim tíma sem síðan er
liðinn, staðið aðgerðarlaus á
Keflavíkurflugvelli fjármálaráð-
herra og öðrum til augnayndis.
Sagðist Hörður telja að lítið hafi
komið inn af tekjum af stað-
greiðslunni allan þennan tíma.
Að mati Harðar hefur þetta
háttalag fjármálaráðherra gagn-
vart Arnarflugi valdið félaginu
miklu og óbætanlegu bæði beinu
og óbeinu tjóni. Það alvarlegasta
í málinu í dag væri að efnahagur
félagsins samkvæmt formlegu
endurskoðendauppgjöri sé um
300 miljónum lakari en hann ætti
að vera í reynd, vegna þess að
mál séu ekki komin á hreint milli
ríkisins og Arnarflugs. „Þetta
skiptir miklu máli, sérstaklega
fyrir þá aðila, er vilja ganga til
liðs við félagið með hlutafjárf-
ramlögum, en hika við með svo
háa upphæð ófrágengna,“ sagði
Hörður.
Sit ekki undir
fölskum ásökunum
„Á aðalfundi Arnarflugs í
fyrradag sögðu fráfarandi stjóm-
arformaður og framkvæmda-
í BRENNIDEPLI
stjóri félagsins að fjárhagsvandi
Arnarflugs væri ríkissjóði og sér-
staklega núverandi fjármálaráð-
herra að kenna. Það er nú satt að
segja mjög merkileg kenning í
ljósi þeirra samskipta sem við
höfum átt við fyrirtækið í um það
bil tvö ár, eða frá því ég kom í
ráðuneytið,“ sagði Ölafur Ragn-
ar Grímsson á blaðamannafundi í
gær, sem hann boðaði í tilefni
þessarar gagnrýni.
Ólafur Ragnar taldi þess vegna
nauðsynlegt að leggja fram opin-
berlega yfirlit yfir skuldastöðu
Amarflugs við ríkið, þótt hann
teldi ekki æskilegt að fjármála-
ráðuneytið væri knúið til þess að
leggja fram opinberlega, vinnu-
gögn sem em til meðferðar í
ráðuneytinu. „En ég tel að for-
ráðamenn Amarflugs hafi með
ummælum sínum á aðalfundinum
og þeirri fölsun sem þar birtist
knúið mig til þess að leggja þessi
gögn fram. Mér þykir það leitt
vegna þess að ég hefði kosið að
vinna að þessum málum með við-
ræðum við forystumenn Arnar-
flugs, en það hefur því miður
gengið nokkuð erfiðlega að koma
þeim viðræðum á þannig að þær
væru samfelldar á þessu ári. Ég
vil hins vegar ekki sitja undir föl-
skum ásökunum stjórnenda fyrir-
tækisins í fjölmiðlum eða á aðal-
fundi þess gagnvart hluthöfum
þess þar sem stjórnendur fyrir-
tækisins draga upp mynd sem er í
engu samræmi við þann veruleika
sem við teljum vera réttan,“
sagði Ólafur Ragnar.
Fjármálaráðherra taldi stað-
reyndina vera þá, að vandi Arn-
arflugs stafaði ekki af því að
niðurstaða hefði ekki fengist í
þessum fundamálum við ríkið.
Hann sagði að ef samskipti ríkis-
ins og Arnarflugs væru rakin, þá
hefði ríkisstjórnin í fyrsta lagi
gert samþykkt þann 17. mars
1989, í kjölfar ýtarlegra viðræðna
við forsvarsmenn Arnarflugs.
Þar hefði meginefnið verið með
hvaða hætti væri hægt að endur-
skipuleggja fjárhag félagsins til
frambúðar. Stjórnendur fyrir-
tækisins hefðu glímt við að fá inn
nýja hluthafa og leitað til ríkisins
um að leggja fram ákveðinn þátt í
því máli, sem gæti auðveldað
þeim að fá inn nýtt hlutafé og
þannig endurfjármagnað rekst-
urinn. Fyrirtækið gæti þannig
haldið áfram að starfa. Þessar 150
miljónir sem ríkið samþykkti að
gefa eftir eða breyta í víkjandi
lán, voru þess vegna liður í fjár-
hagslegri endurskipulagningu
Arnarflugs sem átti að fara fram,
að sögn Ölafs Ragnars.
í janúarmánuði sl. fóru fram
viðræður milli fulltrúa fjármála-
ráðuneytis og stjórnarformanns
og framkvæmdastjóra Arnar-
flugs, að sögn fjármálaráðherra.
Að hálfu fjármálaráðuneytisins
hefði verið óskað eftir því að fá
gögn frá Arnarflugi um hug-
myndir félagsins um fjárhagslega
endurskipulagningu þess, svo
ráðherra gæti flutt frumvarp á Al-
þingi um þessar 150 miljónir.
„Því miður komu ekki nægilega
skýrar greinargerðir frá Herði
eða öðrum í framhaldi af þessum
viðræðufundum. Engu að síður
var það ljóst af hálfu fjármála-
ráðuneytisins að fyrirheit ríkis-
stjórnarinnar um að leggja fyrir
Alþingi samþykkt á eftirgjöf 150
miljóna króna, stæði,“ sagði
Ólafur Ragnar. Það hefði alltaf
verið meiningin að standa við það
fyrirheit.
Ólafur Ragnar sagði að í fram-
haldi af þessum fundum hafi það
verið ætlun ráðuneytisins og vilji,
að setjast yfir heildarskuldadæmi
Amarflugs við ríkið. „Við höfum
talið nauðsynlegt að um leið og
væri gengið frá þessum 150 milj-
ónum yrðu heildarskuldir Arnar-
flugs gerðar upp, eða að minnsta
kosti komið á hreint. Vandi máls-
ins er hins vegar sá, og mér þykir
leitt að vera knúinn til að segja,
að forsvarsmenn Arnarflugs hafa
krafist þess að það væri í reynd
gefið miklu meira eftir en 150
miljónir. Kröfur þeirra á fjármál-
aráðuneytið hafa falið í sér að
þeir hafi í reynd viljað fá gefnar
eftir í kringum 300 miljónir í stað
þessara 150 miljóna sem ríkis-
stjórnin samþykkti. Þeir hafa
óskað eftir því að fjármálaráðu-
neytið fari að endurtúlka ákvarð-
anir um vexti og ýmis önnur gjöld
og skuldir Arnarflugs á þann veg
að í reynd yrði Arnarflugi, miðað
við skuldastöðu þess gagnvart
ríkissjóði og ríkisábyrgðarsj óði,
gefnar eftir rúmar 300 miljónir,“
sagði Ólafur Ragnar.