Þjóðviljinn - 19.07.1990, Page 9
__________________________FRETTIR______________
Fyrirtœki
3 miljarðar töpuöust
Mestur hagnaður hjá bönkum og tryggingafyrirtœkjum. Hagnaður
jókst mest íframleiðslugreinum á síðasta ári. Samdráttur íþjónustu
Fyrirtæki í lánastarfsemi og
tryggingastarfsemi skiluðu
7,21% hagnaði í hlutfalli af eigin
fé eftir skatta í fyrra. Þetta kemur
fram í könnun á afkomu 97 fyrir-
tækja, sem Verslunarráð Islands
hefur gert. Þá kemur fram, að
þessi fyrirtæki töpuðu 370 milj-
ónum króna í viðskiptakröfum,
sem er meira en hagnaður fyrir-
tækjanna eftir skatta, en hann
var 257 miljónir króna. Sé litið á
tapaðar kröfur í hlutfalli af veltu,
má reikna með að alls hafi tapast
um 3 miljarðar króna af við-
skiptakröfum í viðskiptalífinu í
heild.
Hagnaður eftir skatta í hlutfalli
af eigin fé fyrirtækja jókst í öllum
greinum atvinnulífsins nema í
þjónustugreinum á milli áranna
1988 og 1989. Hagnaður í verslun
var 0,51% árið 1988 en í fyrra var
hann 2%. Hagnaður í fram-
leiðslugreinum var neikvæður
um tæp 10% árið 1988 en var hag-
stæður um tæp 3% í fyrra. í þjón-
ustugreinum dregst hagnaður á
millli áranna saman úr rúmum
18% árið 1988 í 0,75% í fyrra. í
lánastarfsemi og tryggingum
eykst hann úr 5,94% árið 1988 í
7,21% í fyrra.
Eiginfjárhlutfall fyrirtækjanna
var mjög svipað milli áranna.
Hæst er eiginfjárhlutfallið í versl-
uninni 41,40%. Næst koma fyrir-
tæki í þjónustunni 34,22% í fyrra
en hafði þá lækkað töluvert frá
1988, en þá var það 40,46%. í
framleiðslugreinum er eiginfjár-
hlutfallið tæp 20% bæði árin.
Afskrifaðar viðskiptakröfur
sem hlutfall af veltu eru mestar
hjá verslunarfyrirtækjum, eða
0,75%, en árið 1988 voru þær
0,79%. í framleiðslugreinum
höfðu afskrifaðar viðskiptakröf-
Hagnaður
atvinnugreina
ur aukist um 0,22% árið 1988 í
0,42% árið 1989 og í þjónustu-
greinum úr 0,36% árið 1988 í
0,65% árið 1989. _cáf
FLÓAMARKAÐURINN
SMÁAUGLÝSINGAR
Til sölu
Skodi LS 120, árgerð 86, toppeintak
til sölu. Allir möguleikar á greiðslum,
skuldabréf og fleira. Uppl. í síma
612578.
Eldavél gefins
Notuð Rafha eldavél fæst gefins.
Uppl. I síma 15995 á morgnana og
eftir kl.18.
Til sölu
Eldhúsvaskur með blöndunartækjum
og borðplata á innréttingu til sölu.
Einnig klósett. Selst ódýrt. Uppl. í
síma 672283.
Gefins
Svefnbekkur með rúmfatageymslu,
kommóöa og spegill fást gefins.
Uppl. í síma 24998 eftir kl. 17.
Ferðabarnarúm
Óska eftir ferðabarnarúmi. Uppl. í
síma 671217.
Sumarbústaðir
Tveir fjögurra manna sumarbústaðir
til leigu fram til 27.júlí. Rafmagnshit-
un, sturta, ísskápur og gaseldavél.
Gisting og fæði í heimahúsi á sama
stað. Uppl. í síma 93-51198.
Græðandi lína-Banana Boat
Banana Boat E-el,græðir exem, sóri-
asis. Græðandi og nærandi Body
Lotion, sólkrem, svitaeyðir, hárvörur
og næturkrem úr töfrajurtinni Aloe
Vera. (sl. bæklingur. Heilsuval Bar-
ónsstíg 20, póstkr. s. 626275,
Baulan, Borgarf., Apótek ísafj., Fers-
ka, Sauðárkr., Hlíðarsól Sigr. H.,
Ólafsf. Heilsuhornið, Akureyri, Hilma,
Húsavík, Sólskin, Vestm.eyjum.,
Heilsuhornið, Selfossi, Sólarlam-
pinn, Margr. Helgad., Vogum, Bláa
lónið, Heilsubúðin, Hafnarf., Bergval,
Kópav., Árbæjarapótek, Samt. sóri-
asis & exemsjúkl. Einnig i Heilsuvali:
Hárrækt m. leisi, rafn., „akupunktur",
svæðanudd, megrun, orkumæling,
vítamingreining. s. 11275.
Kerlingarfjöll
Eitt pláss í unglingahópnum 12. ág-
úst í Kerlingarfjöllum, til sölu vegna
sérstakra ástæðna. Búið að greiða
staðfestingargjald. Uppl. í síma
674263.
íbúð óskast
Ungt par með 3 ára barn hefur áhuga
á að taka á leigu 3-4 herbergja íbúð í
Reykjavík frá 1. september 1990.
Uppl. í síma 10333. Þór Túliníus.
Einstaklingsíbúð óskast
Helst 1 herbergi, eldhús og bað, eða
lítil 2ja herbergja íbúð. Uppl. í síma
678028.
fbúð óskast
Óska eftir einstaklings eða vinnustof-
uíbúð. Er laghentur bindindismaður
og snyrtilegur í umgengni. Flest kem-
ur til greina. Uppl. í heimasíma
626203 og vinnusíma 16484.
Óskast ódýrt
Mig bráðvantar Ijóst sófasett eða
hornsofa, tvískiptan ísskáp eða litla
frystikistu, hjónarúm með dýnum og
náttborðum og litasjónvarp, helst 18
til 20 tommu, og þvottavél. Til sölu á
sama stað afruglari, Tuddi 14, nýja
gerðin. Uppl. ísíma 45916 fyrirkl. 16.
Tll sölu
Til sölu velmeðfarið hvítt Whinter
stúlknahjól, 3 gíra með stillanlegu
stýri og sæti. Hentar 11 til 16 ára.
Skipti á fullorðinshjóli koma vel til
greina. Uppl. í síma 18959.
Amsterdam eða Hamborg
Hæ, hæ. Langarykkurtil Amsterdam
eða Hamborgar, þá á ég miða á góðu
verði. Uppl. í síma 22903.
Vél og gírkassa vantar
Óska eftir vél og girkassa í Fiat UNO
45884, eða heilan bíl af þessarri gerð
til niðurrifs. Uppl. í síma 12007.
Til sölu
Til sölu Combi-Camp 2000 tjaldvagn.
Uppl. í síma 672317 eftir kl. 18.
Tll sölu:
Blá barnakerra með svuntu, skermi
og hallanlegu baki. Nýlegur Römer
barnabílstóll fyrir 7 mán. til 5 ára börn.
Hvítt rimlarúm, tvær hæðarstillingar á
botninum. Hvít dúkkuvagga, tvö pör
af hvitum skautum nr. 38 og 40. Cas-
io hljómborð, 5 áttundir. Gamall
svefnsófi sem stækkaður er með því
að draga út aðra hliðina og leggja 2
púða í millibilið og er með rúmfata-
skúffu. Uppl. gefnar í síma 73042 eftir
kl. 14.00.
Tll sölu:
Rafmagnsþilofn, stór baðvaskur á
fæti, 16" tvíhjól, tveir tréstólar, tvær
bastgardínur, 6 metra gluggaþvotta-
stöng, tveir málningarhristarar,
barnaskrifborð og stóll, strauvél og
innihurð. Uppl. í síma 17482.
Kattavinir athugið
Vegna breyttra heimilisaðstæðna
óskast nýtt, gott heimili fyrir 4 ára
gamla síamslæðu. Uppl. í síma
675862.
Til sölu
ísskápur á kr. 1000 þarfnast straum-
breytis, skrifborð á kr. 1000,
skrifborðsstóll á kr.700, Sanyo tvöfalt
kassettutæki á kr 10.000,stofuskápur
með bar á kr 1000, þykk dýna á kr.
500, barnaföt á kr. 25 stk, Zyldgan
Hi-hats cymbals og ýmislegt fleira.
Framnesvegur 21, Ósk.
Til sölu
Britax ungbarnastóll til sölu, lítið not-
aður, selst ódýrt. Uppl. í síma
657137.
Tll sölu
Til sölu 2 rúm með tvöföldu gorma-
lagi, 0.90x2, hægt að nota sem hjón-
arúm eða stök. Svo til ónotuð, seljast
á kr. 15.000 stk. kosta ný kr. 25.000
stk. Uppl. í síma 17087.
Til sölu
Lada sport árg. 88 til sölu og sýnis á
Laufásvegi 22. Ljósblár. Verð kr.
510.000. Uppl. ísíma 25198.
fsskópur óskast
Óska eftir ódýrum ísskáp. Uppl. í
síma 615534 á kvöldin.
Okkur vantar fbúð
Vill þannig til að einhver góður les-
andi Þjóðviljans eigi íbúð á lausu í
Reykjavík til leigu í ár eða svo? Pott-
þéttar greiðslur. Uppl. í símum
628905 og 652633.
Óska eftir
Emmaljunga kerruvagni og Ikea
skiptiborði. Uppl. í síma 22117, helst
á kvöldin.
Til sölu:
Emmaljunga barnavagn, ryðrauður
að lit. Ikea felliborð, 75 lítra suðupott-
ur, þriggja gíra reiðhjól, hjónarúm
með dýnum, hvítt skatthol, þriggja
sæta sófasett plús 2 stólar, 2 stakir
stólar, fjögurra sæta trésófi með
renndum rimlum, 68x25 cm strauvél,
bob-borð og smíðataska. Uppl. í síma
22117 á kvöldin.
Sumarbústaður óskast
Við erum námsmenn með 1 árs gam-
alt barn, sem búum í höfuðborginni
og eigum frí dagana 27. júlí til 1. ág-
úst. Er ekki einhver sem vill leyfa okk-
ur að vera í sumarbústaðnum sínum
eða öðru húsi úti á landsbyggðinni
yfir þessa daga. Lofum að ganga
mjög vel um. Við erum yfirleitt heima
á kvöldin og síminn er 13888.
Til sölu
Tvö reiðhjól, Kalkof og BMX, til sölu.
Bæði í mjög góðu lagi. Uppl. í síma
79033.
Lífgjafar óskast!
Tveir mannelskir og gullfallegir kett-
lingar, annar steingrár, hinn dökk-
bröndóttur og silkimjúkur óska eftir
lífgjöfum. Uppl. í síma 41219.
Til sölu
Til sölu innbundnir árgangar af Tím-
anum og Þjóðviljanum. Þjóðviljinn frá
1976 til dagsins I dag. Tíminn frá
1976 til 1984. Einnig er til sölu Mazda
323 station árgerð 1980. Uppl. í síma
42831.
Óskast keypt
Óska eftir gömlu sófasetti, helst eldra
en 30 ára. Má þarfnast lagfæringar.
Skipti á nýrra möguleg. Uppl. í síma
666670 eftir kl. 17.
Til sölu
Til sölu er blá Simo skermkerra / kerr-
uvagn. Hægt er að leggja bakið alveg
niður. Kerran er mjög vel með farin.
Uppl. í síma 51195.
Reiðbuxur óskast
Unglinga-athvörfin í Reykjavík eru að
fara í hestaferð yfir hálendið og okkur
vantar reiðbuxur í öllum stærðum og
gerðum. Uppl í síma 20606 og 75995
eftir kl 14.
Kettlingar gefins
Tveir kettlingar óska eftir nýju heimili.
Blíðir og kassavanir. Uppl. í síma
642218.
Tll sölu vegna flutninga
Hjónarúm úr lútaðri furu, bamarimla-
rúm, hvít kommóða, tveir rekkar af
Lundia furuhillum (14 hillur), sófa-
borð og hornborð úr furu, Silvercross
barnakerra með plasti og þriggja gíra
Monthana karlmannsreiðhjól, 2 ára
gamalt. Uppl. í síma 17468.
ísskápur óskast
(sskápur óskast keyptur, stærð
60x60x146. Uppl. í síma 16485.
Kettlingar gefins
Þrír fallegir, skemmtilegir og kassa-
vanir kettlingar fást gefins. Uppl.í
síma 43452.
Æfingarhúsnæði óskast
Hljómsveit óskar eftir æfingarhús-
næði í Reykjavík eða Kópavogi. Uppl.
í síma 43452, Jón eða María.
Ertu að drukkna í drasli?
Okkur vantar allt í húsið, sófa, stóla
borð og margt fleira. Hafið endilega
samband í síma 612114 eftir kl. 19.
fris, Skátafélagið Selsingar.
Upptökutækl
Óska eftir að kaupa Tascam Porta
One upptökutæki á kr. 20.000. Uppl. í
síma 11287 eða 15487.
Hljómborð
Óska eftir að kaupa gömul hljóm-
borð, til dæmis Prophet, Oberheim,
Minimoog, Arp. PPG Wave, Farifisa,
Elka og fleiri. Ástand og aldur skipta
ekki máli. Uppl. í síma 11287 eða
636432. Indriði.
Til sölu
(slenskt eingirni í sauðalitunum til
sölu. Uppl. í síma 25010.
fsskápur óskast
Vantar lítinn ódýran ísskáp. Uppl. í
síma 34523.
Úr fjölskyldualbúmlnu
Ljósmyndir sem tengjast sögu rokks-
ins á fslandi 1956 til 1990 óskast sem
myndefni í bók sem kemur út í haust.
Myndir frá böllum, útihátíðum, sjopp-
um o.s. frv. Tíðarandinn er mikilvæ-
gari en myndgæðin. Gestur Guð-
mundsson, sími 621161.
Ferðatöskur
Ferðatöskur, með og án hjóla seljast
ódýrt. Uppl. í síma 41289.
Luxemburg
Þrír farmiðar til Lux til sölu á mjög
góðu verði. Uppl. í síma 29348. Anna.
íbúð óskast
Tilvonandi námsmaður í K. H. (. maki
hans og tvö börn, óska eftir íbúð til
leigu frá ca. 25. ágúst. Uppl. í síma
97-29973. Óðinn og Ólöf.
Barnaleikgrind, barnavagn
Til sölu er lítið notuð barnaleikgrind
og Silver Cross barnavagn. Uppl. í
síma 678024 eftir kl. 19.
C ^
LANDSVIRKJUN
Útboð
Vinnuvegir á Fljótsdalsheiði
Landsvirkjun óskar eftir tilboðum í vegagerð á
Fljótsdalsheiði og í Norðurdal.
Heildarlengd vega er um 30 km og magn fyll-
inga er áætlað um 140.000 m3.
Verkinu skal að fullu lokið 24. október 1990.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Lands-
virkjunar í Reykjavík frá og með fimmtudeginum
19. júlí 1990 gegn óafturkræfu gjaldi að upp-
hæð 5.000 krónur fyrir fyrsta eintak, en 3.000
krónur fyrir hvert eintak þar til viðbótar.
Tilboðum skal skila á skrifstofu Landsvirkjunar,
Háaleitisbraut 68, 103 Reykjavík, fyrir klukkan
14.00 mánudaginn 30. júlí 1990, en þau verða
opnuð þar sama dag klukkan 14.15 að við-
stöddum þeim bjóðendum, sem þess óska.
Reykjavík, 19. júlí 1990
LANDSVIRKJUN
Fjármálaráðuneytið
Auglýsing
um verklegt próf í endurskoðun
Samkvæmt reglugerð nr. 403/1989 verður
haldið verklegt próf til löggildingar til endur-
skoðunarstarfa. Áætlað er að halda prófið í nóv-
ember 1990.
Þeir sem hafa hug á að þreyta prófraun þessa
sendi prófnefnd löggiltra endurskoðenda, c/o
fjármálaráðuneytið, tilkynningu þar að lútandi
fyrir 15. ágúst nk. Tilkynningunni skulu fylgja
skilríki um að fullnægt sé skilyrðum til að þreyta
prófraunina, sbr. lög nr. 67/1976 um löggilta
endurskoðendur.
Prófnefndin mun boða til fundar með próf-
mönnum í september n.k.
Reykjavík, 17. júlí 1990
Prófnefnd löggiltra endurskoðenda
Flmmtudagur 19. júlí 1990 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 9