Þjóðviljinn - 19.07.1990, Page 12
Ármann Gunnarsson,
verkamaður:
íslendingar eiga að ákveða það
sjálfir. En hvar það verður reist
hef ég enga skoðun á.
Sigurður Hafsteinsson,
tæknifræðingur:
Það verður að taka tillit til beggja
aðila þega staðsetningin verður
ákveðin. En ég tel að íslendingar
eigi að hafa síðasta orðið.
—SPURNINGIN—i
Hvorir eiga að ráða stað-
setningu fyrirhugaðs ál-
vers, íslendingar eða
þeir sem ætla að reisa
það?
Jón Gunnarsson,
byggingariðnfræðingur:
Mér finnst að það ætti að vera
samvinna um staðsetninguna.
!
Guðmundur Júlíusson,
dúklagningarmaður:
íslendingar að sjálfsögðu, en
hvar hægstæðst væri að reisa
það hef ég ekki hugleitt.
Elísabet Arietta,
hjúkrunarfræðingur:
Ég tel að Islendingar eigi að ráða
því. Trúlega er best að reisa ál-
verið á Suðurnesjum með tillit til
umhverfismála.
DIOÐVILIINN
Flmmtudagur 19. júnf 1990 132. tölublað 55. órgangur
SÍMI 681333
SÍMFAX
681935
Tónlist
Hamingju-
bandið
leikur
íkvöld
Breska hljómsveitin
The Band OfHoly
Joy með tónleika á
Listahátíð
nœturlífsins í kvöld.
Nýjasta plata hljóm-
sveitarinnar hefur
fengið frábœrar
viðtökur
gagnrýnenda
Listahátíð næturlífsins verður
hleypt af stokkunum í kvöld með
tónleikum bresku rokkhljóm-
sveitarinnar The Band Of Holy
Joy. Tónleikarnir verða haldnir í
Tunglinu og verða aðrir tónleikar
hljómsveitarinnar á þeim stað, en
Hamingjubandið kom hingað til
lands í febrúar í fyrra og fékk
mjög góðar viðtökur.
Nýjustu plötu hljómsveitarinn-
ar, „Posetively Spooked", hefur
verið tekið mjög vel af
gagnrýnendum í Bretlandi og
hljómsveitinni lýst sem einu af
því merkilegasta sem er að gerast
í rokkinu í dag. Það er því mikill
fengur að komu hljómsveitarinn-
ar hingað til lands.
Listahátíð næturlífsins, sem
Pakkhús Postulanna gengst fyrir,
hefur vakið töluverða athygli í
Bretlandi og hennar verið getið í
Þó viðburðir hafi verið miklir í rokktónlistinni í Reykjavík að undanfömu, ætti The Band Of Holy Joy ekki að falla í
skuggann fyrir þeim.
öllum helstu tónlistartímaritum.
Vegna hátíðarinnar, sem stendur
fram á sunnudag, kemur leigu-
þota til landsins með 150 farþega.
Það er Lundúnanæturklúbburinn
The Brain Club sem stendur fyrir
ferðinni í samstarfi við Pakkhús
Postulanna og í hópnum verða
jafnt breskir rokkunnendur sem
og blaðamenn. Þá mun sjón-
varpsstöðin BBC 2 senda hingað
tökulið til að kvikmynda tón-
leikana og hátíðina og verður sér-
stökum menningarþætti um hana
sjónvarpað til um 30 milljón
áhorfenda í Evrópu.
Johny Brown söngvari Ham-
ingjubandsins segir hljóm-
sveitina ætla að leika fyrir tón-
leikagesti efni af fyrstu plötu
hljómsveitarinnar og af þeirri
nýju og lofar því einnig að þeir fái
að heyra splunkunýtt efni í
nokkrum mæli. -hmp
Þróunarsamvinnustofnun íslands
Aðstoð við namibíaska fiskimenn
Þróunarsamvinnustofnun er að undirbúa verkefni íþróunarsamvinnu við Namibíu
Undanfarna mánuði hefur
staðið yfir undirbúningur hjá
ÞróunarsamvinnustofnunIslands
við verkefni í Namibíu. í frétta-
bréfi stofnunarinnar kemur fram
að þær upplýsingar sem hún hef-
ur í höndunum um Namibíu,
bendi til þess að Namibía sé land
sem íslendingar geti aðstoðað
verulega.
í fréttabréfinu kemur fram að
það var rétt fyrir síðustu áramót
að tekin var ákvörðun um þetta
verkefni. Þá var Namibía um það
bil að öðlast sjórnmálalegt sjálf-
stæði eftir áratuga ólögleg yfirráð
Suður-Afríku. Menn þóttust sjá
að án aðstoðar gæti það dregist
að landið fengi einnig efnahags-
legt sjálfstæði.
Fyrsta skrefið í þróunarsam-
vinnunni var að Dóra Stefáns-
dóttir fór til Namibíu til að undir-
búa verkefni. Síðar fóru Stefán
Þórarinsson ráðgjafi og Viðar
Helgason fiskifræðingur einnig
út. I drögum að verkefnislýsingu
er gert ráð fyrir fiskirannsóknum
við strendur Namibíu, en heima-
menn munu sjálfir standa fyrir
rannsóknunum og niðurstöðurn-
ar verða þeirra eign. Hins vegar
ætlar Þróunarsamvinnustofnunin
að aðstoða Namibíumenn við að
manna rannsóknaskipið Bengu-
ela, sem væntanlega verður not-
að til rannsóknanna. Það er hins
vegar ekki víst, þar sem deilur
eru milli Namibíu og Suður-
Afríku um hver eigi skipið.
Hlutverk íslendinganna er því
fyrst og fremst yfirfærsla þekk-
ingar. Benguela er ætlað að
stunda rannsóknir á fiski, hvort
sem er á miklu eða litlu dýpi, svo
og á krabbadýrum. Einnig verða
stundaðar rannsóknir á lífríki
hafsins í heild og þeim breyting-
um sem hafa orðið á því. Heima-
menn hafa ekki miklar upplýsing-
ar um þessi mál, en vita það eitt
að umhverfið hefur orðið illa úti
undanfarna áratugi vegna stöð-
ugrar ofveiði.
Þá er þjálfun skipverja á Beng-
uela mjög mikilvægur þáttur í
verkefninu, því ætlunin er að
Namibíumenn taki smátt og
smátt við rekstri skipsins. Talið
er að íslensku skipverjarnir geti
yfirgefið Namibíu eftir tvö ár og
ættu þeir allir að vera farnir eftir
fjögur ár. Þróunarsamvinnu-
stofnunin mun greiða allan
kostnað af íslendingunum, hvort
heldur er laun, kostur um borð
eða ferðir til og frá Namibíu.
Ekki er heldur gert ráð fyrir því
að verkefnið skili neinum tekj-
Neítoaróu^agnaðu^nm^^S^I
og til þess að snúa honum upp í
jákvæðan gróða, þarf dö b'ayta
neikvæðum ráðherra í jákvæðan
og stórum keppinaut í lítinn.
Einfalt mál!
j&HíÉxk