Þjóðviljinn - 11.09.1990, Qupperneq 3

Þjóðviljinn - 11.09.1990, Qupperneq 3
FRETTIR Blaðburður Málþing um listþðrf og sköpunarþörf bama, sem haldið var f Háskólabíói slðastliðinn sunnudag, hófu þessar glaðlegu söngkonurffá leikskólanum Mar- bakka I Kópavogi. Sungu þær nokkur fjörug og frumsamin lög þar til Svavar Gestsson menntamálaráðherra sté ( pontu og setti þingið, sem stóð fram undir kvöld. Þórunn Siguröardóttir, formaður nefndar um bamamenningu, flutti inngangserindi, en auk þess héldu kennarar og listamenn tölur um böm og listir. Mál- þinginu lauk sfðan með pallborðsumræðum. Mynd: Kristinn. Aflamiðlun Spáir minni þorskútf lutningi Helmings aukning frá í fyrra á útflutningi ferskra flaka og á flöttum fiski Sigurbjörn Svavarsson stjórnarformaður Afla- miðlunar metur þróunina í út- flutningi þorsks þannig, að meðtal útflutningsins í ár verði ekki nema 95% af því sem flutt var út á síðasta ári. Samkvæmt upplýsingum frá Fiskifélagi íslands og Aflamiðlun um útflutning á ferskum fiski nam hann 50.714 tonnum fyrstu sjö mánuði ársins. Þar af hafa ver- ið flutt út tæp 20 þúsund tonn af þorski, rúm 11 þúsund tonn af ýsu, tæp 5 þúsund tonn af ufsa og rúm 15 þúsund tonn af karfa. I viku hverri hafa þvi verið flutt út að meðaltali um 1.668 tonn. Hinsvegar hefur orðið aukn- ing á útflutningi ferskra flaka og ferskum flöttum fiski. Þannig voru flutt út á sfðasta ári 8.200 tonn, eða 158 tonn að meðtali í hverri viku. Á starfstima Afla- miðlunar, sem tók til starfa á fyrsta ársfjórðungi þessa árs, hafa verið flutt út 5.086 tonn af þess- um afurðum, eða 310 tonn að meðaltali á viku sem er um helm- ings aukning. Allt árið í fyrra nam ferskfisk- útflutningurinn alls 92.868 tonn- um, eða að meðaltali um 1.786 tonn í viku hverri. Þar af voru flutt út 36.649 tonn af þorski, 19.006 tonn af ýsu, 9.455 tonn af ufsa og 27.758 tonn af karfa. Sigurbjöm segist búast við að aukning verði í ferskfiskútflutn- ingi á Bretland, en minnkun til Þýskalands, Belgíu, Hollands og þá sérstaklega til Danmerkur. Á- stæðan er að íslenskur fiskur hef- ur farið þar í auknum mæli til vinnslu. Að undanfomu hefur fiskverð verið hátt á fiskmörkuðum ytra og er það aðallega vegna þess að framboð úr Norðursjónum hefur minnkað. Það hefur kallað á meiri fisk. Sigurbjöm segir að útilokað sé að Islendingar geti fyllt það gat, enda ekki vilji til þess. Hins- vegar sé þeirri stefnu fýlgt í fersk- fiskútflutningnum að fá sem hæst verð fyrir fiskinn hveiju sinni. -grh MK Stuðningur við fatlaða Nemendur fylgja fötluðum í félags- og skemmtanalíf og fá einingar fyrir Fötluð ungmenni geta sótt um að fá nemendur í Mennta- skólanum í Kópavogi sem hjálparfólk og fengið fylgd þeirra í félags- og skemmtana- líf. Stuðningur þessi er sérstak- ur áfangi í skólanum og er op- inn öllum nemendum, en áhersla er lögð á að nemendur á félagsfræðibraut skrái sig í hann. „Eftirspum fatlaðra eftir hjálparfólki hefur verið meiri en við höfum getað annað, því við viljum að tveir nemendur séu með hveijum fotluðum,“ sagði Margrét Friðriksdóttir aðstoðar- skólameistari MK í samtali við Þjóðviljann. Skólinn hefur boðið upp á þennan áfanga undanfarin ár og er líklega sá eini á landinu sem hef- ur tekið þessa aðferð upp til að kynna ófötluðum líf fatlaðra og aðlaga unglingana á þennan hátt. „Nemendumir færa dagbók um það sem þeir gera með fötluðu unglingunum og þeir fara einnig í bóklegt nám um fötlun. Kennari fylgist með dagbókinni og gefur ábendingar," sagði Margrét. „Þetta er mjög þroskandi og gefur nemendunum góða innsýn i hvemig líf fatlaðs einstaklings gengur fyrir sig.“ -vd. Þriðjudagur 11. september 1990 ÞJÓÐVIUINN — SÍÐA 3 Unglingur rændur Fimmtán árá unglingur sem var aö rukka fyrir Þjóðviljann, var barinn svo að á sá, og rændur tólf þúsund krónum. Atburður- inn átti sér stað á bak við ísbúð við Hjarðarhaga um hálf ellefu Ieytið á sunnudagskvöld. Samkvæmt Iýsingu blaðburð- ardrengsins er talið að hér hafi verið á ferðinni tveir 16-17 ára unglingar, um 180-185 sentimétr- ar á hæð og klæddir svörtum mitt- isjökkum. Lögreglan leitaði strax um svæðið að árásarmönnunum en varð einskis vör. Þegar síðast fféttist hafði lögreglunni ekki tek- ist að hafa hendur í hári ódæðis- mannanna. -grh Tónlistamenn Virðisauka af tónlist r Menntamálaráðherra vill finna farsæla lausn á vanda íslenskrar tónlistar. Island mjög aftarlega á merinni hvað varðar opinberan stuðning við tónlist Tónlistarmenn afhentu menntamálaráðherra und- irskriftalista sl. laugardag þar sem þess er krafist að íslensk tónlist sitji við sama borð og aðrar listgreinar I landinu. ís- lenskar bækur, kvikmyndir, leiksýningar, listdans og aðrar tegundir lista á Islandi eru und- anþegnar virðisaukaskatti, en íslensk tónlist er skilin eftir úti í kuldanum. Svavar Gestsson mennta- málaráðherra veitti skjalinu mót- töku með þeim orðum að sam- stundis mundi verða sett á lagg- imar nefnd til þess að finna far- sæla lausn á þessum vanda is- lenskrar tónlistar. Á ráðstefnu um stöðu og markaðsmál norrænnar tónlistar, sem haldin var í Kaupmannahöfh um síðustu mánaðamót, kom fram að ísland er mjög aflarlega á merinni hvað varðar opinberan stuðning við tónlist og kynningu á henni utan landsteinanna. Ráðstefhan var haldin að ffumkvæði menningarmálastjóra Kaupmannahafnar, rokkmála- stofnunar Danmerkur og nokk- urra danskra tónlistarmanna. Sex fulltrúar mættu ffá Is- landi og flutti Einar Öm Bene- diktsson úr Sykurmolunum opn- unarræðu ráðstefnunnar. Auk hans mættu þeir Valgeir Guðjóns- son, Aðalsteinn Ásberg Sigurðs- son, Jakob Frimann Magnússon, Steinar Berg ísleifsson og Ás- mundur Jónsson á ráðstefnuna. Auk fulltrúa frá Norðurlönd- unum mættu m.a. fulltrúar ffá Ir- landi, V-Þýskalandi, Hollandi og Frakklandi. Af þeim löndum sem áttu fulltrúa á ráðstefhunni er ís- land eina landið sem enga fyrir- greiðslu veitir né rækir skipu- lagða starfsemi til að kynna tón- list sína erlendis. Töldu ráð- stefnugestir með ólíkindum sá ár- angur sem hljómsveitimar Sykur- molamir og Mezzoforte hafa náð, en samanlagt hafa þessar hljóm- sveitir selt um 3 miljónir hljóm- platna án nokkurs opinbers stuðn- ings. Það kom ffam hjá Steinari að honum hefði verið synjað um lán úr Iðnþróunarsjóði á viðkvæmu augnabliki á ferli Mezzoforte. -Sáf Hörpudeildin Topp- liðin unnu Urslitin ráðast í loka- umferðinni. Skaga- menn fallnir í aðra deild Toppliðin í Hörpudeildinni, Fram, KR, ÍBV og Valur unnu öll andstæðinga sína með yfir- burðum í næstsíðustu umferð 1. deildar á laugardaginn. Úrslit mótsins munu því ekki ráðast fyrr en í lokaumferðinni á laug- ardaginn, en þó er Ijóst að Skagamenn og Þórsarar munu spila í annarri deild næsta sum- ar. Staða efstu liða er því þannig að Fram og KR em með 35 stig en markahlutfall Framara er þó mikl- um mun betra. Eyjamenn em í þriðja sæti með 34 stig og í fjórða sæti em Valsmenn með 33 stig. Framarar rúlluðu Stjömunni upp í Garðabæ þegar þeir skomðu sex sinnum en heimamenn aðeins einu sinni. Jafnræði var með lið- unum í fyrri hluta leiksins og þeg- ar blásið var til hálfleiks hafði hvort lið skorað eitt mark. Eftir að Framarar náðu að komast yfir 2:1 í upphafi seinni hálfleiks, með marki Baldurs Bjamasonar, hmndi leikur Stjömunnar og Safa- mýrarstrákamir bættu við fjómm mörkum áður en leikurinn var úti. Eyjamenn gerðu góða ferð í Fossvoginn þegar þeir unnu Vík- inga með fjórum mörkum gegn engu. Sigurlás Þorleifsson kom Eyjamönnum á bragðið strax á 17. mínútu og í seinni hálfleik bættu þeir við þremur mörkum. Þó svo að KA tapaði 1:2 fyrir Þór norður á Akureyri, kom það Skagamönnum að engu gagni í fallbaráttunni, því þeir töpuðu 1:3 fyrir liði KR. Sem fyrr óðu heima- menn í fæmm sem ekki nýttust á meðan andstæðingurinn skoraði úr sínum. Skagamenn em því fallnir niður i aðra deild, ásamt liði Þórs frá Akureyri. Valsmenn unnu ömggan sigur á FH, 2:0 á Hlíðarenda og em því enn með í baráttunni um Islands- meistaratitilinn. -grh

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.