Þjóðviljinn - 12.10.1990, Blaðsíða 14

Þjóðviljinn - 12.10.1990, Blaðsíða 14
Sömdæmi- sagaum vegalausan dreng Hann er tíu ára gamall. Foreldrar hans eru skildir að skiptum og faðirinn hefur ekki skipt sér af honum lengi. Móðirin er ófær um að ala önn fyrir honum. Undan- farin þrjú ár hafa sex forsjár- aðilar gert tilraun til að taka hann í fóstur um lengri eða skemmri tíma. Þá eru ótald- ar nokkrar skammtímavistir. Skólaganga hans hefur verið mjög ósamfelld og hann hef- ur oft skipt um skóla. Neyð- arúrræðið hefur verið að vista hann á geðdeild þar sem ekki hefur tekist að út- vega honum heimili til fram- búðar. Ljósmynd: Krfstlnn UM Allnokkur fjöldi barna hér á landi býr við alls ófullnægj- andi uppeldisaðstæður, sem setja mark sitt á frammistöðu þeirra í leik sem starfi. Þessi börn eiga það sammerkt að eiga við mikil tilfinningaleg og félagsleg vandamál að stríða, sem oftar en ekki end- urspeglast ( miklum náms- og hegðunarörðugleikum. Af þessum hópi eru ein 20 böm á aldrinum frá sjö til 12 ára sem eru það illa á vegi stödd að þau eiga vart í nein hús að venda; heimili þeirra eru í upplausn eða fjölskylduað- stæður eru þannig að ekki eru barni bjóðandi. Þau eiga því enga vísa forsjáraðila og tilfinninga- og hegðunar- vandkvæði þeirra eru það mikil að fósturheimili megna ekki að taka við þeim. Opinberar stofnanir, sem mál- ið er skylt, hafa ekki upp á neinar lausnir að bjóða fyrir þennan hóp skjólstæðinga sinna. Þegar í nauðimar rekur hefur þrautalend- ingin verið sú að vista þau á bamageðdeild, eftir að hafa yfir- leitt áður komið við sögu hjá fé- lagsmálastofnunum og/eða Sál- fræðideild skóla. Bama- og ung- lingageðdeildin er oftar en ekki eins konar endastöð fyrir þessi böm, þar sem þau verða innlyksa án þess að læknisfræðileg rök séu beinlínis fyrir langtímavistun þeirra á slíkri stofnun. Þótt kaldhæðnislegt megi virðast, er ckki að ófyrirsynju að hópur þessara ólánsömu bama hefur innan mennta-, félagsmála- og heilbrigðiskerfisins verið skil- greindur sem „vegalausu bömin“. - Það er engu bami til góðs 'að alast upp á spítölum. Þeir em hvorki heimili né uppeldisstofn- anir, segir Páll Ásgeirsson, yfir- læknir á Bama- og unglingageð- deild Landspítalans, í samtali við Nýtt Helgarblað. Á Bama- og unglingageðdeildinni dveljast að jafnaði um 20 böm, á göngu-, legu- og unglingadeild, og ávallt er talsverður hluti rúma á deild- inni skipaður bömum sem heyra til hópi vegalausra bama. - Fyrir um það bil tveimur ár- um var ástandið hjá okkur orðið slíkt að 17 vegalaus böm vom í tenglsum við deildina og legu- deildin, sem er ætluð sex sjúk- lingum, var full af bömum sem ekki áttu í nein hús að venda að lokinni greiningu og meðferð hjá okkur. Deildin var í reyndinni ónothæf til annars en að sinna þessum bömum eftir fongum. Þetta varð m.a. til þess að við sannfærðumst um að það yrði að grípa til einhverra ráða og það sem fyrst í málefnum þessara bama, segir Páli. Um líkt leyti var settur á fót starfshópur að fmmkvæði þeirra aðila sem málið er skylt innan mennta-, heilbrigðis- og félags- málakerfisins. Að hópnum stóðu fúlltrúar Félagsmálastofhunar Reykjavíkurborgar, Fæðsluskrif- stofú Reykjavíkurumdæmis, Svæðisstjómar Reykjavikur um málefni fatlaðra, meðferðarheim- ili á ónefhdum stað í borginni og Sálffæðideildar skóla, auk Bama- og unglingageðdeiidar Landspít- alans. Hlutverk hópsins var að kanna fjölda og aðstæður þeirra bama sem fallið geta undir skil- greininguna vegalaus og gera til- lögur til stjómvalda um leiðir til úrbóta. Bömmeð vafasama förtíð! En hvaða böm er hér um að ræða? Halla Þorbjömsdóttir bama- geðlæknir, sem átti sæti í starfs- hópnum, svarar því, en hún skrif- ar einmitt um málefhi vegalausra bama í rétt óútkomið tölublað tímaritsins Geðhjálpar. - Þessi böm eiga sér enga trausta forsjáraðila. Foreldrar em annaðhvort dánir eða geta ekki séð um þau á tilhlýðilegan hátt. Bömin em sköðuð úr uppeldinu, þau hafa ekki fengið þörfum sín- um fyrir ástúð, öryggi og reglu- festu fúllnægt. Oft á tíðum ein- kennir það sögu þessara bama að þau hafa lent á flækingi, fjöl- skyldan hefur ekki átt fastan samastað, eða þá að þau hafa ver- ið óvelkomin og jafhvel orðið fyr- ir misþyrmingum allt frá vöggu- aldri. Það ber ekki svo að skilja að mál allra þessara bama komi inn á borð Bama- og unglingageðdeild- ar. Sum þeirra em enn heima þótt það sé þeim síður en svo til góðs og stefni uppeldi þeirra í vísan voða. Öðmm hefúr verið komið fyrir á fósturheimilum að tilhlut- an félagsmálastofnana. Oftar en ekki er þó stutt í slíku fóstri - vandamál þessara bama em slík að það þarf ansi sterk bein til að geta þolað þau til lengdar. Ein- hveijum gæti virst kaldranalegt að segja þetta, en það er engu að síður satt, segir Halla. Undir þetta tekur Gunnar Sandholt hjá fjölskyldudeild Fé- Iagsmálastofnunar Reykjavíkur- borgar. - Flest þessara bama eiga mjög ósamfellda fjölskyldusögu. Skilnaður, stöðug skipti á sam- búðaraðilum og hrakningar em dæmigerðir fyrir fjölskyldur þess- ara bama. Það er til dæmis al- gengt að þegar þessi böm em spurð að því hver eigi þau, geti þau ekki svarað því, segir Gunn- ar. Hann bendir jafnframt á að heimilisaðstæður margra bam- anna einkennist af óreglu, þroska- skorti eða geðveiki annars eða beggja foreldra og eða langvar- andi heilsubresti forsjáraðila. GHALA KERFISINS I bráöurn vanda I rauninni er ekki vitað með neinni vissu um fjölda þeirra bama sem þannig er ástatt um. Halla fúllyrðir þó fúllum fetum að þessum bömum fari fjölgandi. - Því miður h;fur þeim ijölgað. Það dæmi ég best af því að þegar ég byrjaði fyrst að starfa við Bama- og unglingageðdeildina fyrir um tíu áium, vom ekki að staðaldri hjá okkur nema eitt og eitt bam á ári. En síðustu árin höf- um við aldrei verið laus við þau. Þetta kann að nokkm leyti að stafa af því að augu okkar hafa opnast fyrir yandamálinu. Hitt kemur þó einnig til að íslenskt samfélag er bömum ekki hollur skóli og kjör og aðbúnaður þeirra hafa frekar versnað en hitt á síð- ustu ámm - því miður, segir Halla., - Ég vil ekkert fúllyrða um það hvort þessum bömum sem þannig er ástatt fyrir hafi fjölgað eða ekki, segir Gunnar. - Það em allavega ekki jmiklar sveiflur frá ári til árs á fjölda þeirra bama sem Félagsmálastofhun hefur komið í vist. Samkvæmt mati starfshópsins er það til marks um umfang vandamálsins að í Reykjavík einni þurftu 400 nemendur í al- mennum bekkjum gmnnskóla á sérkennslu að halda skólaárið 1988-1989 sökum félagslegra og tilfinningalegra erfiðleika. Að auki áttu 250 böm á gmnnskóla- aldri, sem vom í sérdeildum og athvörfum, við félagslega og til- finningalega érfiðleika að striða að viðbættum námserfiðleikun- um. Af þessum 650 bömum áttu 50 þeirra við það alvarlega erfið- leika að etja að telja mátti þau vegalaus. Þá kemur fram f skýrslu starfshópsins að fjölskyldudeild Félagsmálasto hunar Reykjavík- urborgar vann árið 1988 með 1152 foreldra ríflega 2000 bama innan 17 ára aldurs. Þar af bjuggu ríflega 60% öarnanna hjá ein- stæðu foreldri. Til stofnunarinnar var vísað sérstaklega um 320 málum vegna aðbúnaðar og að- stæðna bama. Algengustu tilvís- unarástæðumar vom bágbomar heimilisaðstæður, eða í 115 mál- um. Fram kemur að kært var í 36 málum vegna aðbúnaðar bama, en að mati star 'smanna stofnunar- innar var ástæ 5a til kæm í marg- falt fleiri tilvika. Félagsmálastofnun rekur tvö vistheimili. Á hvom heimili er hægt að vistí sjö böm í senn vegna félags legra örðugleika. Vistun á þessi m heimilum er þó aðeins hugsuc sem skammtíma- úrræði og þar 1 á bömin ekki neina meðferð. Arið 1988 vom á þess- um heimilum vistuð 118 böm. Sama ár vom einnig vistuð 116 böm á einkaheimilum á vegum stofhunarinnar, 52 stúlkur og 64 drengir. Þar af var þess freistað að vista á einkaheimilum fimm til sjö böm sem falla undir skilgrein- inguna vegalaus. Að sögn Gunnars Sandholts hefúr stofnunin þurft síðustu ár að koma að jafhaði 15-20 bömum á ári á varanlegt fósturheimili. - Núna em um 120 böm á okkar vegum, 16 ára og yngri, í varanlegu fóstri, segir Gunnar. Á Meðferðarheimilinu á Kleifarvegi dveljast að jafnaði átta böm er hafa átt við langvar- andi félagslega og tilfinningalega örðugleika að stríða. Eini tilvís- unaraðilinn að heimilinu er Sál- fræðideild skóla í Reykjavík. Heimilið er eina neyðarúrræðið með sólarhringsvistun fyrir skóla- böm í Reykjavík. Þau böm sem á heimilinu dvelja eiga oftast at- hvarf á heimili einstæðs foreldris. Oftar en ekki em aðstæður og geðrænt ástand foreldranna þann- ig að þeir ganga einnig í meðferð á heimilinu. Til skamms tíma gat heimilið aðeins boðið upp á skammtímameðferð, en nýlega hefúr mögulegur meðferðartími veri lengdur í tvö ár. Niðurstaða starfshópsins var sú að milli 80 og 90 böm á aldrin- um 7-12 ára búi við mjög ófull- nægjandi heimilis- og uppeldis- aðstæður. Þar af þurfi ein 20 böm þegar nauðsynlega á að halda sér- stökum úrræðum. Óalandi og ófétjandi - Þessi böm em ekki húsum hæf, svo maður noti almennt orðalag. Þau em það mikið sködduð að þau þuifa sérstaka umönnun og meðferð. Önnur böm og fúilorðnir eiga í erfiðleik- um með að þola þau, segir Páil Ásgeirsson. Hann segir að hegð- un þessara bama einkennist oft af miklu öryggis- og eirðarleysi. - Þau em gjaman mjög sljó fyrir umhverfi sínu, skeytingarlaus i samskiptum við aðra og andfé- lagsleg í sínu atferli. Gunnar Sandholt segir það jafnframt vera áberandi hjá þess- um bömum að þau reyni ávallt að ganga eins langt og þau komist. - Það er engu líkara en þau verði alltaf að vera að prófa hvar mörkin liggja í mannlegum sam- skiptum, hvort þeim verði hafnað, og það endar að lokum með því að þau ganga of langt og menn missa þolinmæðina. Annað sem er mjög ríkt í fari þeirra er árásar- hneigð og þau vinna stundum öðrum bömum og dýmm skaða. - Bömin em veik og þau þurfa meðferð, segir Páll og tekur fram að þar með sé hann ekki að segja að þau þurfi að vistast á sjúkrahúsi til langdvalar. - Aðrir kostir em mun vænlegri til árang- urs, en því miður höfúm við úr harla litlu að velja eins og í pott- inn er búið í dag. Hvar eiga voncfir aövera? - Ástæða þess að við tölum hér aðeins um böm á aldrinum sjö til 12 ára sem vegalaus er sú að það er ekki jafn aigert úrræða- leysi fyrir yngri böm og unglinga sem em álíka illa félagslega og tilfinningalega á vegi stödd. Það er miklum mun auðveldara að koma yngri bömum í fóstur. Inn í vandamál þeirra unglinga sem eiga við sömu aðstæður að búa blandast oft ávana- og fíkniefn- amisnotkun, þannig að vandamál- ið er af dálítið öðmm toga en hjá þeim aldurshópi sem hér um ræð- ir, segir Páll Ásgeirsson þegar hann er inntur eftir því hvort skil- greiningin vegalaus geti ekki allt eins átt við yngri böm og ung- linga. - Gagnvart þessum bömum duga oftast ekki þær lausnir sem félagsmálastofnanir hafa gjaman gripið tii eins og fóstmn á sveita- heimilum. Þau em það erfið í um- gengni að flest heimili gefast eðlilega upp á þeim. Gunnar Sandholt tekur undir þetta og segir það vera staðreynd að það hafi ekki gengið sem skyldi að útvega þessum bömum trygga forsjá. - Félagsmálastofnun hefur í reynd ekki nein önnur úrræði en þau að reyna að koma þessum bömum fyrir á fósturheimilum til langtíma þótt reynslan sé ekki beinlínis uppörvandi. Vitanlega em til mjög hæfir og góðir fóstur- foreldrar sem hafa gert kraftaverk á böldnum og erfiðum bömum. I þessu tilviki dugar slik snilligáfa ekki til og það sem vantar er að það fólk sem tekur slík böm að sér fái ómældan stuðning sér- fræðinga sem ekki er fyrir hendi í dag, segir Gunnar. Páll segir misheppnaðar fóstr- anir oft gera illt verra. -Með þessu er ég ekki að kasta rýrð á það fólk sem tekur böm í fóstur. En vegna eðlis vandamálsins er ekki hægt að gera kröfur til að slíkt fóstur heppnist þegar um er að ræða böm sem eiga við jafn al- varleg vandamál að etja, segir Páll. í þeim tillögum sem starfs- hópurinn um málefni vegalausra bama gerði, er lagt til að komið verði á fót meðferðarheimili fyrir vistun í allt að tvö ár fyrir sex til sjö böm. Þá er einnig lagt til að stofnað verði fjölskylduheimili með langtímavistun i huga. Það heimili yrði ætlað fyrir fimm til sjö böm sem fýrirsjáanlegt er að eigi við svo alvarlega örðugleika að stríða að ekki er forsvaranlegt að vista þau hjá fósturforeldrum. I framhaldi af starfi hópsins var skipuð nefnd á vegum þriggja ráðuneyta, heilbrigðismála, menntamála og félagsmála, til að útfæra ffekar tillögumar. Þessi nefnd hefur nú skilað áliti sínu og rikisstjómin tók málið til umfjöll- unar í sumar. í álitsgerð starfshóps ráðu- neytanna er lagt til að á næsta fjárlagaári verið útvegað fé til þess að koma á fót litlu heimili fyrir ein sjö böm þar sem þeim sé veittur sá stuðningur og sú um- önnun sem þau þurfa á að halda. Að lokinni tveggja ára dvöl á heimilinu er gert ráð fyrir að bömunum verði komið fyrir á fósturheimili eða ef aðstæður leyfi að þau flytjist aftur á fyrra heimili sitt. Nefnd ráðuneytanna gerir ráð fyrir að stofn- og rekstarkostnað- ur slíks heimilis kunni að nema allt að 40 miljónum króna. Þrátt fyrir ítrekaðar eflirgrennslanir tókst ekki að fá það staðfest hjá fagráðuneytunúm hvort gert væri ráð fyrir fjárveitingu í fjárlaga- frumvarpi fyrir fjárlög næsta árs til stofúunar og reksturs slíks heimilis. - Það er mjög aðkallandi að það verði komið á fót a.m.k. einu meðferðarheimili fyrirþessi böm. Tillaga starfshópsins gekk út á það að sem algjört forgangsverk- eíni yrði sett á fót eitt slíkt heim- ili fyrir sex til sjö böm. Menn skulu þó ekki halda að þar með væri nóg að gert. Við getum alla- vega fyllt þijú önnur heimili af sömu stærð og hér er verið að tala um, segir Halla Þorbjömsdóttir. - Nú þegar höfúm við hér hjá okkur á bamagcðdeildinni nokkur böm sem em ekki í stakk búin til að fóstrast á einkaheimili. Þau þurfa langtímameðferð, en það em engin úrræði til í íslensku samfélagi eins og stendur fyrir þessi böm. Stofnun meðferðar- heimila myndi gjörbreyta stöðu þessara skjólstæðinga okkar. Rannsóknir sýna að þeim bömum sem falla undir þá skil- greiningu að vera vegalaus hættir mjög til að lenda í langtímavanda, vímuefnaneyslu og afbrotum. I fangelsum er iðulega mikið af einstaklingum sem eiga sér sömu fortíð og þau böm sem em vega- laus í dag. Samfélagið má ekki láta það líðast að böm sem em í þessum vanda stödd séu dæmd að ósekju til að feta sömu slóð. Það er í hæsta máta óréttlátur dómur, segir Páll Ásgeirsson. -rk Um tuttugu böm á aldrinum 7-12 ára em á vergangi um kerfið. Þau hafa ekki vísa forsjá og eiga við að stríða mjög alvarleg tilfinninga- og hegðun- arvandamál. Þau em ekki nefnd „vegalausu bömin“ að ófyrirsynju 14 SÍÐA — NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 12. október 1990 Föstudagur 12. október 1990 NÝTT HELGARBLAÐ — SÍÐA 15

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.