Þjóðviljinn - 12.10.1990, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 12.10.1990, Blaðsíða 5
C' ' TTl A CTTTDTTTTIU C3 X XJ XX^rTLVjrCjX1 rv ITfl i i XIV Stiórn Landsvirkiunar Jón þrengdi samningsstöðuna Davíð Oddsson: Landsvirkjun hefði átt að koma fyrr að orkusamningum. Ljóst að mikil áhœtta felst í fyrirliggjandi drög- um. Samningar komnir skemur á veg en fullyrt hefur verið Stjórn Landsvirkjunar telur að iðnaðarráðherra hafi þrengt samningsstöðu Lands- virkjunar í samningum um orkuverð við Atiantsál. Davíð Oddsson borgarstjóri og stjórnarmaður í Landsvirkjun telur að stjórnin hefði átt að koma mun fyrr aö samningum um orkuverð. Á stjórnarfundi Landsvirkjunar í gær var sam- þykkt ályktun með öllum at- kvæðum nema stjórnarfor- mannsins Jóhannesar Nordals. Þar segir að í Ijós hafi komið að meginatriði samningsgerðar við Atlantsál, orkusölusamn- ingurinn, sé miklu skemur á veg kominn en haldið hafi verið að almenningi, þó gefið hafi verið til kynna að ráðgjafar- nefnd iðnaðarráðherra hafi þegar lokið samningum um öll meginatriði samninga. „Ljóst er að slikur málatilbún- aður og opinber umræða af því tagi sem í kjölfarið hefur fylgt, hefur veikt samningsstöðu Landsvirkjunar gagnvart hinum erlendu viðsemjendum, nú þegar málið er loks komið í hendur þess aðila sem með orkusamninginn á að fara, þe. stjómar Landsvirkj- unar,“ segir orðrétt í ályktuninni. Stjóm Landsvirkjunar hafi íyrst á fundi sínum í gær verið formlega kynnt drög að orkusamningi, þó ljóst sé að margvísleg slík gögn hafi þegar gengið á milli aðila. Þá segir í ályktun stjómarinn- Miðstiórn AB Álmálið á dagskrá Miðstjórn Alþýðubandalagsins hefur verið köliuð til fundar vegna álmálsins og hefst hann kl. 10:00 laugardaginn 13. október í Þinghóli í Kópavogi. Dagskrárefni fundarins er, auk annarra mála ef tími leyfir, bygg- ing álvers á Islandi, kostir og gall- ar. Reynt verður að kynna efhi málsins eins og kostur er með 10- 12 mínútna framsöguerindum um eftirtalda málaflokka: 1) Álver, byggðaþróun, hagvöxtur og þjóð- arhagur, 2) Raforkuverð og þróun raforkumála með eða án álvers, 3) Álver og umhverfi, 4) Álver, Al- þýðubandalagið og stjómmálavið- horfið. Gert er ráð fyrir umræðum um málið, en af hálfú forystumanna flokksins er ekki reiknað með end- anlegri afgreiðslu þess af hálfú miðstjómar á þessum fúndi, enda „veigamikil atriði málsins enn óljós og eins víst að nokkur tími geti liðið þar til unnt verður að taka endanlega afstöðu til málsins", eins og segir í fúndarboði. Reynt verður að ljúka störfúm á laugardagskvöldi, en miðstjóm- armenn beðnir að vera við því bún- ir að funda fram eftir sunnudegi, en fundi verður þó slitið i síðasta lagi kl. 15:00 á sunnudaginn. Stefht er að því að halda haust- fund eða aðalfúnd miðstjómar á Akureyri 26.-28.október, en ákveðið á næstu dögum hvort hon- um verður frestað um 1-2 vikur. ÓHT ar, að óhjákvæmilegt sé að hún kynni sér rækilega þessar upplýs- ingar og álitsgerðir sem stjómin hafi falið starfsmönnum Lands- virkjunar að vinna í sínar hendur. „í framhaldi af því mun stjóm Landsvirkjunar ákveða næstu skref af sinni hálfu í þágu máls- ins, í þeirri þröngu stöðu sem henni hefur verið komið í af hálfú ráðuneytisins,“ segir orðrétt. Davíð Oddsson sagði í sam- tali við Þjóðviljann að ljóst væri að mikil áhætta væri tekin með þeim drögum að orkusamningi sem lægju fyrir, þó að út af fyrir sig gæti verið rétt að taka þá áhættu. „Meginatriðið er að samningurinn er miklu skemmra á veg kominn heldur en menn hafa verið að halda fram,“ sagði Davíð. Það væri varhugavert að tala of mikið um orkuverðið og festa það í umræðunni eins og gert hefði verið, á meðan þættir sem gætu skipt sköpum um hvort af samningi verði eða ekki, væm ófrágengnir. Stjóm Landsvirkjunar tekur málið aftur fyrir á fúndi 22. októ- ber, að sögn Davíðs. Þá liggi væntanlega fyrir þau viðbótar- gögn sem stjómin hefði óskað arfirði Guðmundi Árna Stefánssyni bæjarstjóra undirskriftalista með nöfnum 454 einstaklinga. Þar er skorað á bæjaryfirvöld að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að koma I veg fyrir að togarinn Víðir ásamt aflakvóta verði seldur úr bænum, þvf slíkt myndi hafa hinar alvarlegustu afleiðingar fyrir atvinnuástandið f Firðinum. Mynd: Kristinn ABR Knúið á betri samninga Tvær tillögur um álsamningana samþykktar á félagsfundi ABR A~ félagsfundi Alþýðubanda- lagsins í Reykjavík á mið- vikudagskvöld voru samþykkt- ar tvær tillögur um álmálið. Fyrri tillagan var borin fram af Áma Þór Sigurðssyni, Sigur- björgu Gísladóttur, Guðrúnu Kr. Oladóttur og Sjöfn Ingólfsdóttur. I þeirri tillögu segir að ABR úti- loki ekki stóriðju sem valkost í at- vinnumálum íslendinga, hinsveg- ar verði að uppfylla tvö skilyrði til þess að mögulegt sé fyrir ÁBR að telja álver á Keilisnesi til raun- veralegs kosts við atvinnuupp- byggingu þjóðarinnar. I fyrsta lagi að mengun sé í algjöra lág- marki og í öðra lagi að það orku- verð sem samið verður um sé ekki lægra en það verð sem greitt er fyrir raforku til álvera í hinum vestræna heimi. „Alþýðubandalagið í Reykja- vík telur að þær hugmyndir að orkuverði sem samninganefnd iðnaðarráðuneytisins hefur lagt til að samið verði um séu með öllu óaðgengilegar og því andstæðar íslenskum hagsmunum þar sem það verð sem þar er lagt til grand- vallar mun þýða hátt orkuverð til almennings og fyrirtækja á öllum samningstímanum." Þá segir að að frátöldum ákvæðum um skattamál séu samningsdrögin að flestu leyti óhagstæðari en sambærilegir aðr- ir samningar, án þess að hægt sé að sjá ástæðu fyrir því að íslend- ingar geri verri orkusölusamninga en aðrir aðilar. Þetta er útlistað nánar og bent á að afsláttartíminn sé lengri en í öðram samningum, að hlutfall af álverði sé mun lægra en í öðrum þekktum samningum, ffá 10% upp í 16% þegar oft er miðað við 20%. í þriðja lagi er meðalverðið einungis 18,3 mills á öllum samn- ingstímanum, eða í 35 ár, þegar meðalverð í hinum vestræna heimi er 20,4 mills. Þá er bent á að ef litið er til þeirra samninga sem þekktir era í hinum vestræna heimi og hafa verið gerðir frá ár- inu 1985 er það orkuverð sem verið er að ræða við Altlantsál hópinn það lægsta sem þekkist ef undan er skilinn samningurinn um orkusöluna til Isal, en meðal- orkuverð í samningum síðustu 5 ára er 23 mills. „Alþýðubandalagið i Reykja- vík tekur undir samþykkt þing- flokks Alþýðubandalagsins frá 4. október sl. og styður þingmenn flokksins í viðleitni þeirra til að knýja fram betri samninga en iðn- aðarráðherra hefur kynnt, einkum með tilliti til umhverfisþátta og orkuverðs. Samningur með þessu orkuverði mundi að öllum líkind- um valda hærra orkuverði til al- mennings og fyrirtækja um ára- tuga skeið og hindra eðlilega og nauðsynlega atvinnuuppbygg- ingu,“ segir í lok tillögunnar. Fundurinn samþykkti einnig aðra tillögu sem flutt var af þeim Ragnari Stefánssyni, Bimu Þórð- ardóttur og Páli Halldórssyni. I þeirri tillögu kveður við harðari tón og er sagt að samningsdrögin um nýtt álver séu óaðgengileg og því beri að hafha þeim. „Jafnvel þótt áætlaðar for- sendur standist, uppfýllir samn- ingurinn ekki kröfur um þjóð- hagslega hagkvæmni og hefur slæm áhrif á byggðaþróun. For- sendur samningsins era hinsvegar ótraustar og hlaðnar óvissuþátt- um. Standist þessar kröfúr ekki gæti það leitt til stórfellt lakari lífskjara í landinu öllu. Kröfur um mengunarvamir era ekki nægi- legar, langt undir því sem krefjast ber,“ segir svo orðrétt í tillögunni. -Sáf Föstudagur 12. október 1990 NÝTT HELGARBLAÐ — S(ÐA 5 eftir. Á þeim fúndi verði væntan- lega ákveðið hvemig stjóm Landsvirkjunar hagaði þeim samningaviðræðum sem eftir væra, miðað við þau kaflaskil sem nú hefðu orðið. Davíð sagðist telja Lands- virkjun koma allt of seint inn í samningaviðræðumar. En það hefði verið ákvörðun iðnaðar- ráðuneytisins að skipa sérstaka ráðgjafamefnd, sem áður hefði verið samninganefnd. „Þannig að það hefúr í raun enginn aðili haft umboð til að semja um eitt eða neitt og ekki var farið þess á leit við Landsvirkjun að hún semdi um orkuverðið og það hefúr því ekki verið gert af hennar hálfu,“ sagði Davíð. „Þó samningurinn verði út af fyrir sig tengdur álverði, þyrftu að koma til tryggingar sem ekki era fyrir hendi núna og ekki hefúr náðst samstaða um,“ sagði borg- arstjóri. Þama væri um að ræða tryggingar gagnvart orkukaupum, þannig að Landsvirkjun verði ekki stödd í voða ef Atlantsál gæti ekki uppfyllt skilyrði um kaup- skyldu. Þetta sagði Davíð mjög mikilvægt atriði. Landsvirkjun þyrfli sinn tíma til að fara í gegn- um gögn í málinu, sem væra mik- il að vöxtum. „Á hinn bóginn, eins og við segjum í þessari ályktun, þá er það deginum ljósara að okkar að- staða til að ná ffarn atriðum sem við teljum mikilvæg, er miklu þrengri en ella, vegna þess hvað málið er langt komið að hluta, þegar Landsvirkjun kemur að þvi,“ sagði Davíð Oddsson. -hmp Alþingi Forsetar kosnir Alþingi kom saman í gær og kaus sér forseta og í nefndir. Guðrún Helgadóttir, Abl., var kosin forseti Sameinaðs þings. Varaforsetar era Salóme Þorkels- dóttir, Sjfl, og Valgerður Sverris- dóttir, Frfl. Jón Helgason, Frfl, er forseti efri deildar og hans varafor- setar era Danfriður Skarphéðins- dóttir, Kvl, pg Karl Steinar Guðna- son, Aþfl. I neðri deild var Ámi Gunnarsson, Aþfl, kosinn forseti, varaforsetar era Geir H. Haarde, Sjfl, og Hjörleifur Guttormsson, Abl. -gpm Leiðrétting í frétt á forsíðu Þjóðviljans í íyrradag skoluðust til upplýsingar frá Má Guðmundssyni, efhahags- ráðgjafa fjármálaráðherra. Inni- hald orða hans komst ekki rétt til skila en átti að vera eftirfarandi: Raunvextir á dollaralánum á milli- bankamarkaði í London, gjaman nefhdir Libor-vextir, hafa verið undir 4% á undanfomum misser- um. Már fullyrðir ekkert um breyt- ingar á þeim vöxtum sem Lands- virkjun greiðir, en segir erfitt að sjá að þeir geti vikið veralega frá raunvöxtum á alþjóðlegum lána- markaði þegar til lengri tíma er lit- ið. Ef það gerist sé eitthvað bogið við lántökustefnu fyrirtækisins. Þjóðviljinn biður Má og les- endur velvirðingar á ónákvæmn- inni. ÓHT

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.