Þjóðviljinn - 12.10.1990, Blaðsíða 18

Þjóðviljinn - 12.10.1990, Blaðsíða 18
Snilldarverk Kasparovs Garrij Kasparov hefur svo sannarlega ekki eytt síðustu mán- uðum til einskis ef marka má byrjun einvígisins við Karpov í New York. Hann var.n 2. einvíg- isskákina, sem tefld ^ar sl. mið- vikudagskvöld, í 44 leikjum og með slíkum tilþrifum að áhorf- endur í Hudson-leikhúsinu, þar sem New York-hluti einvígisins fer fram, risu úr sætum og gáfu meistaranum dynjandi lófa- klappi. Krafturinn í taflmennsku Kasparovs var feiknarlegur. Hann virðist staðráðinn í að standa við stóru orðin og ganga frá erkifjanda sínum í eitt skipti fyrir öll. í tveim fyrstu skákum einvígis- ins virtist koma í ljós, sem svo oft áður, að undirbúningur Kaspar- ovs er langtum betri. Hann fékk upp sömu stöðu og komið hefur upp í nokkrum skákum Karpovs þ.á m. úr einvígjunum við Jó- hann Hjartarson í Seattle og Jan Timman í Kuala Lumpur. Eins og ávallt hafði hann nýtt til mál- anna að leggja og fann spánnýja áætlun í margþvældu afbrigði spænska leiksins. í fréttaskeytum er þess getið að á meðan á skákinni stóð hafi Kasparov iðað í sætinu en Karp- ov setið sallarólegur og með hönd undir kinn. Pegar staðan hrundi og allt viðnám Karpovs gjörsam- lega vonlaust lét heimsmeistarinn furðu sína á þrákelkni Karpovs í ljós með margvíslegum fettum og brettum. Karpov setti þó ekki skákina í bið, eins og stundum undir svipuðum kringumstæðum, heldur gafst upp á staðnum. Pessi skák minnti marga á svipaða viðureign í einvígi þeirra 1986 en þar varð spænski leikurinn einnig uppá teningnum. 2. einvígisskák: Garrij Kasparov - Anatoly Karp- ov Spænskur leikur 1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4. Ba4 Rf6 5. 0-0 Be7 6. Hel b5 7. Bb3 d6 8. c3 0-0 9. h3 Bb7 (Zaitzev-afbrigðið er kennt við helsta aðstoðarmann Karpovs. Það kom fyrir í tveimur skákum Jóhanns Hjartarsonar og Karp- ovs í Seattle í fyrra og í fjórum skáka Timmans og Karpovs í Ku- ala Lumpur í apríl sl. Ekki þurfti Karpov að kvarta undan árangr- inum: þrír sigrar og tvö jafntefli.) 10. d4 He8 11. Rbd2 Bf8 12. a4 h6 13. Bc2 exd4 14. cxd4 Rb4 15. Bbl bxa4 (í 14. og 16. skák þriðja einvígis- ins 1986 lék Karpov 15. .. c5 en tapaði báðum skákunum. Síðan hefur þessi peðsleikur átt hug hans allan.) 16. Hxa4 a5 17. Ha3 Ha6 18. Rh2 g6 (Fyrstu 17 leikirnir flugu fram á borðið á örfáum mínútum. Þeir hafa allir komið fyrir í skákum Karpovs áður. í 5. einvígisskák Jóhanns og Karpovs í Seattle lék Jóhann hér 19. Rg4 og eftir 19. .. Rxg4 20. Dxg4 c5! mátti hvítur ekki leika 21. d5 vegna 21. .. Bxd5. Jóhann lék 21. dxc5 og eftir 21... dxc5 lét hrókurinn á a6 brátt til sín taka. Nokkru síðar fékk nýjasta stjarna Sovétmanna Vasily Ivantsjúk þessa stöðu upp gegn Karpov og lék 19. f4. Eftir 19. .. d5! 20. e5 Re4 21. Rg4 c5 upphófst snörp barátta þar sem svartur stóð af sér allar atlögur. í undirbúningi sínum fyrir einvígið gat Kasparov næstum gengið að stöðunni, sem kemur upp eftir 18 leiki, vísri og árangurinn af rann- sóknum hans er...) 19. f3! (Ósköp er þetta einfalt og snjallt, sannkallað kólumbusaregg. Hvftur treystir peðið á e4 í sessi og heldur hróknum á a6 frá aðal- átakasvæðinu.) 19. .. Dd7 (Fjölmargir aðrir leikir koma til greina. Nærtækasti leikurinn, 19. .. d5, strandar á 20 e5 og peða- massi hvíts á kóngsvæng er ekki árennilegur.) 20. Rc4 Db5 21. Hc3 Bc8 (Karpov er iðinn við að stilla mönnunum upp í borð. Hér strandaði 21. .. d5 á 22. Ra3 ásamt 22. e5! með yfirburða- stöðu. Það kemur æ betur í ljós í þessari skák að ein aðalhugmynd Kasparovs með 19. leiknum er að halda hróknum á a6 frá kóngs- vængnum.) 22. Be3 Kh7 23. Dcl c6 24. Rg4 Rg8 a b c d e f g h 25. Bxh6!! (Þrumuleikur sem byggir á hár- fínu stöðumati. Atburðarásin fram að 30. leik er nú þvinguð.) 25. .. Bxh6 (Vitaskuld ekki 25. .. Exh6 26. Rf6t og 27. Rxe8.) 26. Rxh6 Rxh6 27. Rxd6 Db6 28. Rxe8 Dxd4t 29. Khl Dd8 30. Hdl Dxe8 31. Dg5! (Þessa stöðu sá Kasparov fyrir er hann fórnaði riddaranum. Hann hefur góð færi á kóngsvængnum auk þess sem svartur á afar erfitt með að virkja menn sína.) 31. .. Ha7 32. Hd8 De6 33. f4! (Hver einasti leikur Kasparovs er geysilega kraftmikill.) 33. .. Ba6 34. F5 De7 (En ekki 34. .. gxf5 35. exf5 Delt 36. Kh2 Dxbl 37. Hh8+ Kxh8 38. Dxh6t Kg8 39. Hg3 mát.) 35. Dd2 De5 36. Df2! De7 (36. .. Hb7 kom einnig til greina en framhaldið verður svipað: 37. Hc5 De7 37. Dd4 f6 38. e5! gxf5 39. exfóDel t 40. Kh2Dxbl41. Hh81 !! Kg6 (41. .. Kxh8 42. f71 0g 43. f8(D) 42. Dh4 Hh7 (42. .. Rf7 43. Hg8 mát!) 43. Hxh7 Kxh7 44. Dg5 og mátar. í þessu afbrigði eins og svo mörg- um horfa menn svarts á drottn- ingarvæng aðgerðalausir á fram- vindu mála.) 37. Dd4! 37. .. Rg8(?) (Þótt staða svarts sé að öllum lík- indum töpuð var meira viðnám fólgið í 37. .. f6 því hvítur verður að tefla nákvæmt til að knýja fram sigur t.d. 38 fxg61 Kg7 o.s.frv. eða 38. e5 fxe5 o.s.frv. Besti leikurinn er 38. Hd6! með hugmyndinni 38. .. Kg7 39. Hxf6!! Dxf6 40. e5! og vinnur. Reyna má 38... gxf5 en þá kemur 39. e5!! fxe5 40. Dd2! Dg7 41. Hxhót ! Dxh6 42. Bxf51 Kg7 43. Hg3t og vinnur. Skásta úrr- æði svarts er 38. .. Rg8 þótt ekki sé staðan fögur eftir 39. fxgót Kg7 40. Hc5.) 38. e5! (Leggur svörtu stöðuna endan- lega í rúst.) 38. .. Rd5 39. fxg6 t fxg6 40. Hxc6! Dxd8 41. Dxa7 t Rde7 42. HxaöDdlt 43.DglDd244.DH Karpov gafst upp. Langbesta skák sem tefld hefur verið á þessu ári og ein af allra bestu skákum Kasparovs. Staðan í einvíginu: Kasparov IVi - Karpov Vi. Þriðja skákin er á dagskrá í dag en eftir þessa útreið þarf ekki að koma á óvart að Karpov taki sér frí. Helgi Ólafsson Naumur sigur Sveit Landsbréfa sigraði sveit S. Ármanns Magnússonar í úr- slitum Bikarkeppni Bikar- sambandsins. Lokatölur leiksins, eftir 64 spil, urðu 182 stig gegn 176 stigum. Samtals 358 stig skoruð eða 5,6 stig að meðaltali í hverju spili. Nokkuð mikið fjör það... Sigursveitina skipa þeir: Magnús Ólafsson, Jón Þorvarð- arson, Jón Baldursson, Aðal- steinn Jörgensen, Valur Sigurðs- son og Sigurður Vilhjálmsson. Ef við rekjum gang leiksins lítillega, þá var staðan eftir fyrstu 16 spilin: 39 gegn 35. Eftir 32 spil: 99-84. Og eftir 48 spil: 159-127. Héldu nú flestir að síðasta lotan væri formsatriði, en annað kom í ljós. S. Ármann tók þá lotu 49 gegn 23 og munurinn því aðeins 6 stig, er upp var staðið. í reynd gat sigurinn lent hvorum megin sem var, enda fjörið jafnmikið og í leiknum öllum. Vel var staðið að undirbúningi leiksins af hálfu BSÍ en mikið fer það í taugarnar á fólki þegar ver- ið er að hringla með tímasetningu leiksins. Svo virðist sem Lands- bréfin vissu allt um nýju tíma- setninguna þótt liðsmenn S. Ár- manns kæmu af fjöllum, er þeir mættu til leiks á sunnu- dagsmorgni. Lágmark að láta báða aðila vita um breytt fyrir- komulag. Frekar fátt var um áhorfendur. Búast má við að það fyrirkomu- lag sem verið hefur á Bikar- keppni BSÍ frá upphafi, hafi runnið sitt skeið á enda og á næsta ári verði um að ræða veru- legar breytingar á formi. Helst hefur verið rætt um að draga sveitir í riðla og tryggja þannig að hver sveit spili 2-4 leiki áður en þær falla úr keppni eða halda áfram. Væntanlega verður þetta rætt á ársþingi Bridgesambands- ins, sem haldið verður sunnudag- inn 21. október. Elín Bjarnadóttir mun taka við sem starfsmaður Bridge- sambands fslands, 1. nóvember, er ísak Örn Sigurðsson lætur af störfum, að eigin ósk. Elín er gift Jóni Baldurssyni, fv. starfsmanni Bridgesambandsins og margföld- um Islandsmeistara. Má vænta góðs af starfi Elínar hjá samband- inu. Um þessa helgi mun BSÍ gang- ast fyrir keppni yngri spilara í húsnæði BSÍ. Spilamennska er öllum opin og hefst kl. 13 á morg- un. Fullbókað mun vera í minn- ingarmótið á Selfossi, sem spilað verður laugardaginn 20. október. 36 pör munu taka þátt í mótinu. Og Kópavogsmenn halda opið stórmót helgina 3.-4. nóvember. Verðlaunin munu nema 300 þús. kr. fyrir 5 efstu sætin. Mjög góð þátttaka er hjá Skag- fírðingum í haustbarometer, sem hófst sl. þriðjudag. 24 pör taka þátt í keppninni. Eftir 6 umferðir eru Helgi Víborg og Oddur Jak- obsson í forystu. Og íslandsmót kvenna og yngri spilara verður síðustu helgina í október. Á sama tíma halda Ak- ureyringar sitt árlega stórmót. Mjög vegleg verðlaun eru í boði. Mótið er haldið í samráði við Flugleiðir, sem bjóða mjög hag- stæðan „pakka“ í mótið. Og Einar Jónsson (úr Kefla- vík) hefur gert Bridgesam- bandinu tilboð um að taka að sér sérstök kennsluverkefni á vegum sambandsins. Skipuð var nefnd í málið (til að kanna hvaða lesefni Einar hefur undir höndum, annað en Þjóð- viljann...). Ármann J. Lárusson og Ragn- ar Björnsson sigruðu haust-tví- menning Bridgefélags Kópavogs. Sl. fimmtudag hófst svo 3ja kvölda hraðsveit. Og Guðlaugur Sveinsson og Magnús Sverrisson leiða baró- meterkeppni Hafnfirðinga, er þremur kvöldum er lokið af fjór- um. Jón Sverrisson og Reynir Helgason sigruðu á meistakeppni Norðurlands (bæði svæðin) í tví- menning, um síðustu helgi. Ant- on Haraldsson og Pétur Guð- jónsson urðuí 2. sæti. Aðeins 15 pör tóku þátt í mótinu, sem spilað vará Akureyri. Það verður að teljast vafasamt í meira lagi, að fyrirfram gefa spil í úrslitum leikja á borð við úr- slitaleikinn í Bikarkeppni BSÍ, ef tölvugjöfin sem sambandið not- ast við er ekki rétt endurspeglun á því sem 64 spila leikur (hand- gefinn) býðuruppá. Af þessum 64 spilum voru yfir 40 spil í meira lagi upp í loft og mátti ganga að því sem vísu undir lokin að einhver höndin (af 4 við borðið) ætti eitthvað ósagt, þegar allt virtist stefna í „eðlileg“ við- skipti. Lítum á eitt skrautlegt dæmi: S: 953 H: 85 T: K9643 L: D94 S: KG76 S: ÁD H: 62 H: ÁKD4 T: ÁDG875 T: 102 L: Á L: K10876 S: 10842 H: G10973 T: - - L: G532 I opna salnum gengu sagnir hjá Sigurði og Val í A/V á þessa leið: Norður Austur Suður Vestur 1 lauf 2 tíglar 3 tíglar pass 3 hjörtu pass 3spaðar pass 61auf? pass 6grönd pass pass pass 2 tíglar sögðu frá hálitum Suðurs og 6 lauf voru lokasögn hjá Sigurði (?). Valur er eldri en svo að láta „plata" sig á sjötta sagnstigi, j afnvel frá félaga, þannig að hann venti yfír í 6 grönd (sem höfðu þann ótví- ræðan kost, að hann átti að spila þau...). Eins og sést eru alltaf 12 slagir í húsi, nema Norður „finni" laufaútspilið frá dömunni (úti- lokað, eftir sagnir). Slétt staðið gaf 1440 til Landsbréfa. í lokaða salnum enduðu liðsmenn S. Ár- manns í eðlilegum lokasamning, eða 6 tíglum. Eina legan sem ban- ar því? Jamm, kóngurinn fimmti í Norður (af fimm spilum úti í litn- um). Eðlilegt? Spilið gaf heila 17 impa til Landsbréfa sem unnu leikinn meðóimpum (stigum). 18 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Fðstudagur 12. október

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.