Þjóðviljinn - 12.10.1990, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 12.10.1990, Blaðsíða 9
„Það sem skilgreint er sem skattsvik annars staðar á Norður- löndunum er trúlega talið til kjarabóta hér á landi. í því Ijósi má ef til vill segja að valdhafar hafi haldið nokkuð vel á málum, og þá eru skattsvik væntanlega ekkert annað en þjóðarsátt!" segir Hansína B. Einarsdóttir meðal annars í grein sinni. í tímans rás hefur farið mismikið fyrir umræðunni um skattsvik. Fjölmiðlar, og þá sérstaklega blöðin, hafa velt upp þessu málefni stöku sinnum og þá oftast í tengsl- um við einstök skattsvikamál sem verið hafa í rannsókn. Eða þá að svokallaðir „rannsóknar- blaðamenn“ hafa komið af stað umræðu um ákveðin mál og þá hefur krafan um skattarannsókn legið að baki. Skatlsvikaumræðan í fjölmiölum Þegar skoðað er safn greina um skatta- mál í dagblöðunum síðustu tvo áratugi læt- ur nærri að 10 % greinanna fjalli um skatt- svik og tengd málefni, hitt er umíjöllun um beina eða óbeina skattheimtu. Þeir sem íjalla um skattsvik eru fyrst og fremst fjöl- miðlamir sjálfir eða blaðamenn af viðkom- andi blöðum. Nú er það svo í okkar litla samfélagi að blaðamenn hafa góða aðstöðu til þess að sé ef til vill fremur lítil, nú og ef upp kom- ist þá séu refsingamar þess eðlis að þær breyti í litlu högum manna. Hér er átt við samanburð á refsingum við þessum brotum og t.d refsingum við hefðbundnum afbrotum eins og þjófnaði, ofbeldi eða skjalafalsi. Sagt með öðmm orðum, þá hefur þessi málsmeðferð fremur iítil almenn vamaðar- áhrif. 1 íjórða lagi er alltaf fjallað um að- gerða- og áhugaleysi stjómvalda í þessum málum. Það er stjómvalda að skilgreina hvað séu skattsvik, og með hvaða hætti standa skuli að eftirliti á þessum málum. Séu stjómvöld næsta hlutlaus í þessum málum þá sé ekki að vænta mikilla aðgerða af hálfu hins opinbera eftirlits, hvað þá frá hinu óopinbera, ffá almenningi. Aögeröír stjómvalda Ekki hafa stjómvöld setið undir þess- um ádrepum aðgerðalaus. Auðvitað hafa menn geyst fram á sjónarsviðið og tekið Skattsvik- þjófnaöur eöa þjóðarsátt? fylgjast með því sem hinn almenni borgari er upptekinn af í það og það skiptið og þess vegna er vel mögulegt að áhuginn eða um- ræðan komi upphaflega úr umhverfinu eða frá almenningi en blaðamenn sjái um að koma málefninu á framfæri. í öðm lagi kemur umQöllunin frá þeim sem á einn eða annan hátt tengjast rann- sóknum eða eftirliti á þessum málum s.s. frá starfsmönnum ríkisskattstjóraembættis- ins eða einstaklingum sem starfa innan dómskerfisins. Sá hópur sem hvað minnst íjallar um málaflokkinn skattsvik í fjölmiðlum em stjómmálamenn og aðrir valdhafar, en þeir sem það hafa gert koma frá vinstri eða miðjuflokkum í íslenskri pólilik. Innihald skattsvika- umrssðurmar Það er áhugavert að skoða innihald greinanna og reyna þannig að afla upplýs- inga um skattsvikaumræðuna. Þá kemur í Ijós að í flestum greinum er fjallað um áhuga- og sinnuleysi stjómvalda gagnvart því vandamáli sem skattsvik em. Ef draga ætti saman innihald greinanna yrði fyrst að nefna gagnrýni á sjálft skatt- kerfið. Það er offsinnis bent á þá staðreynd að skattkerfið mismuni fólki eftir aðstæðum. T.d hafa þeir sem reka eigið fyrirtæki ætíð haft góða möguleika á því að setja stóran hluta af sínum einkarekstri á fyrirtækið. I öðm lagi er meðferð þessa málaflokks innan réttarkerfisins gagnrýnd kröftuglega. Hér er þá átt við að þegar og ef farið er með skattsvikamál fyrir dómstóla taki máls- meðferð óratíma. Að auki séu refsingamar fremur vægar og undantekningarlaust er aðeins um fjársektir að ræða. Athygli vek- ur, að í þessum málum em fjárhæðir ekki verðtryggðar og hafa aldrei verið. I þriðja lagi er fjallað um skattsvikin sem bein afbrot og bent á þær afleiðingar sem málsmeðferð og vægar refsingar hafa fyrir viðhorfamyndun hjá almenningi. Þetta getur ýtt undir þá skoðun almenn- ings að skattsvik séu ekkert tiltökumál og það sé sjálfsagt að reyna þá leið. Ahættan undir þessa umfjöllun og sagt að tími sé til kominn að gera eitthvað í hripleku skatt- kerfí okkar og í ffamhaldi af þessu hafa verið samþykktar breytingar á skattalögun- um. Allar breytingar á skattalöggjöfmni hafa haft það að markmiði að gera skatta- kerfið réttlátara og koma í veg fyrir eða draga úr skattsvikum. (Reyndar er það aldrei svo að hugtakið skattsvik sé skil- greint þegar fjallað er um það í sölum Al- þingis.) Slíkar breytingar em hvað þægi- legastar fyrir stjómvöld, bæði vegna þess að valdhafar þurfa ekki sjálfir að fram- kvæma breytingamar (það kemur í hlut skattayfirvalda) og síðan vegna þess að lagabreytingar sem þessar em tiltölulega ódýr kostur. í stöku tilfellum í okkar sögu hefur þetta ekki þótt nægjanlegt og þá hafa menn gripið til þess ráðs að setja á laggimar nefndir sem eiga að gera úttekt á málunum og koma með tillögur til úrbóta. Þessar nefndir hafa undantekningar- laust unnið umfangsmikið og gott starf, skilað ályktunum og tillögum. Stjómvöld hafa hinsvegar haft tilhneigingu til að legga mikið af þessari vinnu á hilluna (þótt einstök atriði hafa komist í framkvæmd) og talið að kostnaðurinn t.d við eflt og hert skatteftirlit væri of mikill. Þetta er í sjálfu sér merkilegt þar sem embætti ríkisskatt- stjóra er meðal fárra embætta sem sjá um það að afla ríkinu tekna en ekki eyða þeim. Ekki er hægt að fjalla um þessa hluti án þess að minnast á hinn mikla óvissuþátt - umfang skattsvikanna. Stjómvöld gátu lengi vel skýlt sér á bak við þetta atriði því það var að sjálfsögðu glómlasut fyrirtæki að kasta fjármunum í einhveijar aðgerðir gegn skattsvikum þar sem umfang vandamálsins var óþekkt stærð. Þessa afstöðu er vel hægt að skilja í ljósi sögunnar og stöðunnar í íslensku efnahagslífi. En það var með þetta skjól eins og svo mörg önnur, í það fauk og það rækilega. Umræðan um skattsvik komst á nokk- uð alvarlegt stig 1984 vegna ummæla manna um hrossakaup (í merkingunni sala á hestum). Opinberlega var því haldið fram fullum fetum að við sölu á hestum væri oft eitt verð uppgefið og annað sem greitt væri undir borðið. Ummælin vom tekin fyrir á Alþingi og þótti sumum sem hér væri nóg komið. Kvað svo rammt að þessu að þáverandi fjármálaráðherra sá sér ekki annað fært en að skipa nefnd og skyldi sú hin sama reyna að kanna umfang skattsvikanna. Þegar vitneskja um umfang skattsvika lægi fyrir væri hægt að skipuleggja aðgerðir í þessum málum. Skattsvikanefndin vann hratt og vel og skilaði niðurstöðum í all umfangsmikilli skýrslu tæpum tveim ámm síðar. Þá brá svo við að stjómvöld sem og ljölmiðlar túlkuðu niðurstöður, og þar með umfang skattsvika, á mismunandi hátl. Þannig vom sumir á þeirri skoðun að niðurstöður nefndarinnar væm aðeins toppurinn á ísjakanum, skattsvikin væm miklu meiri. A meðan aðrir undu vel við sitt og töldu að við gætum bara verið ánægð með okkar hlut, því samkvæmt þessum niðurstöðum væm skattsvikin hér- iendis trúlega ekki umfangsmeiri en á hin- um Norðurlöndunum. Að þessum orðum sögðum féll umræð- an um skattsvik í gleymskunnar dá enn á ný. Skattsvik-þjófnaður eða þjóðarsátt? Hvar stöndum við svo í dag? Er það svo að skattsvikaskýrslan umtalaða gefi til- efni til að halda því fram að skattsvik séu svipuð eða minni hér á landi en annars staðar á Norðurlöndunum og þessvegna sé ekki ástæða til að æðrast? Eg er ekki þeirrar skoðunar og vil að- eins drepa hér á nokkur atriði rétt til um- hugsunar í upphafi þingstarfa. I fyrsta lagi kemur það skýrt fram í skattsvikaskýrslunni að það sé erfitt að áætla umfang skattsvika hérlendis. Litlar sem engar upplýsingar séu til, hugtakið skattsvik sé illa skilgreint og í ákveðnum starfsgreinum eigi sér stað veruleg skatt- svik sem Iengi hafi verið vitað um. I öðm lagi er fúll ástæða til að vekja at- hygli á könnun sem gerð var á vegum nefndarinnar um viðhorf okkar til skatt- svika. Þar koma fram atriði sem benda til þess að fólk myndi svíkja undan skatti ef það ætti þess nokkum kost, hinsvegar segjast fáir hafa stundað þá iðju á undangegnum mánuðum, og enn færri höfðu stundað nótulaus viðskipti, hvað þá unnið svart! Eg tel að þessar upplýsingar geti verið varasamar og varla haldbærar sem rök til þess að halda því fram að skattsvik hér- lendis séu trúlega svipuð að umfangi og á Norðurlöndunum, eins og reyndar var gert af stjómvöldum í kjölfar skýrslunnar. Rannsóknir um umfang skattsvika á Norðurlöndum em framkvæmdar með allt öðmm hætti en þessi sem hér um ræðir og gefa því ekkert tilefni til samanburðar í þeim málum. Athugun á umfjöllun um skattsvik, hvort heldur sem það er gert með því að skoða innihald greina sem birst hafa í dag- blöðum landsins eða með því að fara i gegnum þá umræðu sem átt hefur sér stað á Alþingi um sama málaflokk, leiðir í ljós að skattsvikaumræðan hefur varla verið tekin alvarlega af stjómvöldum. Ahuga- og aðgerðaleysi stjómvalda hefur trúlega haft áhrif á viðhorf okkar til skattsvika, þannig að það em litlar líkur til þess að skattsvik séu talin til afbrota eða þjófnaðar á meðal almennings. Sennilega er það rangt hjá mér að ætla að skoða við- horf íslendinga til skattsvika og skattaeftir- lits og bera það saman við Norðurlöndin, því það sem skilgreinist sem skattsvik ann- arsstaðar á Norðurlöndum, og þar með þjófnaður, skilgreinist trúlega hér sem hluti af kjarabótum. I því ljósi má ef til viil segja að valdhafar hafi haldið nokkuð vel á mál- unum og þá em skattsvik trúlega ekkert annað en þjóðarsátt I Hansína B. Einarsdóttir er afbrota- fræðingur Föstudagur 12. október 1990 NÝTT HELGARBLAÐ — SÍÐA 9

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.