Þjóðviljinn - 27.10.1990, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 27.10.1990, Blaðsíða 3
FRETTIR AB Austurlandi Vilja breytta forystu Einar Már Sigurðarson: Hjörleifur ekki rétti maðurinn til að sameina flokkinn á Austurlandi. Hjörleifur Guttormsson: Munnheggst ekki á opinberum vettvangi - ekki í bráð Bjðrn Grétar Sveinsson mun taka þátt í forvali Alþýðu- bandalagsins á Austurlandi. Hann býður sig fram í annað sætið og styður Einar Má Sig- urðarson í fyrsta sætið. Einar Már hefur enn ekki ákveðið hvort hann taki þátt í forvalinu og ætlar að íhuga máiið í nokkra daga. Á fundi kjördæmisráðs íyrir viku var ákveðið að efna til for- vals i tveim umferðum með til- nefningum i fyrri umferð og kosningu í seinni. Við það tæki- Ihaldið Fjögur prófkjör Prófkjör Sjáifstæðisflokksins eru haldin í fjórum kjördæmum í dag. Reyndar byrjaði prófkjör- ið í Reykjavík í gær, en þar verð- ur byrjað að teija atkvæðin upp- úr hádeginu í dag. Hin kjördæmin þijú þar sem haldin eru prófkjör í dag eru Suð- urland, Austurland og Vestfirðir. í Reykjavík eru Davíð Odds- son, Friðrik Sophusson og Birgir ísleifur Gunnarsson taldir tryggir í efstu sætin sem og Bjöm Bjama- son. Hinsvegar em sumir núver- andi þingmenn flokksins alls ekki öryggir með góða kosningu, þ.e. þeir Guðmundur H. Garðarsson, Geir H. Haarde, Eyjólfur Konráð Jónsson og líka Ingi Bjöm Alberts- son sem kom inn fýTÍr Borgara- flokkinn í síðustu kosningum. Aðrir sem stefna hátt, en eiga óvíst um útkomuna, em Sólveig Péturs- dóttir, Þuríður Pálsdóttir, Guð- mundur Magnússon, Guðmundur Hallvarðsson og Lára Margrét Ragnarsdóttir. Á Suðurlandi stefhir Þorsteinn Pálsson á efsta sætið og sem fyrr em það Eggert Haukdal og Ami Johnsen sem bítast um annað og þriðja sætið. Siðast hafði Eggert betur, en Ámi hefur gerst víðfömll í kjördæminu siðustu ár og gæti það haft áhrif. Á Austurlandi er liklegt að Eg- ill Jónsson verði efstur, en Kristinn Pétursson þingmaður sem kom inn þegar Sverrir Hermannsson fór í Landsbankann á í miklum slag við verkalýðsforkólfinn Hrafnkel A. Jónsson. Á Vestfjörðum er Matthí- as Bjamason talinn nokkuð ömgg- ur með fyrsta sætið, og einsog víð- ar er barist um tvö næstu sæti og það gera þingmaðurinn Þorvaldur Garðar Kiistjánsson og varaþing- maðurinn Einar K. Guðfmnsson. -gpm Novaia Zemlia Sprengingu mótmælt íslensk stjórnvöld mótmæla harðlega kjarnorkusprengingu Sovétmanna á Novaja Zemlja s.l. miðvikudag. Kjamorkusprenging þessi er íslendingum sérstakt áhyggjuefni vegna hins viðkvæma vistkerfis á norðurslóðum, sem er forsenda þeirra auðlinda hafsins sem við byggjum afkomu okkar á, segir i fréttatilkynningu frá utanríkisráðu- neytinu. -gpm færi gaf Hjörleifur Guttormsson, þingmaður kjördæmisins, kost á sér til áffamhaldandi þing- mennsku. Einar Már, sem er formaður Sambands sveitarfélaga á Austur- landi og bæjarfulltrúi í Neskaup- stað, sagði að því væri ekki að neita að á sig hefði verið þrýst um að fara ffam þar sem mönnnum þætti ekki sterkt að bjóða ffam óbreytt fyrsta sæti listans á Aust- urlandi, þ.e. Hjörleif Guttorms- son. Undir þetta tók Bjöm Grétar Sveinsson formaður Verkalýðsfé- lagsins Jökuls á Höfn í Homa- firði. Bjöm sagðist telja að Al- þýðubandalagsmenn gætu náð ár- angri með breyttri forystu og að um það snemst stjómmál. Hjörleifur sagði það væri ekki nema gott um það að segja að margir byðu sig ffam á lista, til þess væri forvalið. Hann sagðist ekki myndu draga af sér, hvorki á þingi né í heimahéraði. Einar Már sagði að Hjörleifur hefði stillt sér upp á ysta væng flokksins og væri ekki líklegur til að sameina Alþýðubandalags- menn á Austurlandi. Hann sagði að margir hefðu áhyggjur af fylg- ishmni flokksins og að í kosning- unum 1978 hafi Alþýðubandalag- ið verið stærsti flokkurinn á Aust- urlandi, en þá fékk flokkurinn þijá menn kjöma, Lúðvík Jóseps- son, Helga Seljan og Hjörleif. „Menn vilja snúa þessari þró- un við og auka fylgið,“ sagði Ein- ar Már. Við þessari gagnrýni Ein- ars Más sagði Hjörleifur að hann vildi ekki munnhöggvast við þessa menn á opinberum vett- vangi, ekki í bráð a.m.k. „Menn geta haldið sínar ffamboðsræður mín vegna,“ sagði Hjörleifur. -gpm Kjartan Öm Ólafsson, Kjartan Jónsson og Ármann Jakobsson úr ræðu- liði MS segja MORFfS afskræma mælsku- og ræðulist en ýta undir fífl- skap f keppnum. Mynd: Kristinn. Menntaskólinn við Sund MORFÍS afskræmir mælskulist r Menntaskólinn við Sund segir sig úr MORFIS. Segja keppnina óviðkomandi mælsku- eru nu Miklar deilur sprottnar upp vegna MORFÍS, mælsku- og rök- ræðukeppni framhaldsskól- anna á íslandi og hefur Menntaskólinn við Sund sagt sig úr MORFÍS. Forsvarsmenn ræðuliðs MS segja að sígild mælsku- og rökræðulist eigi ekki lengur heima innan MOR- FÍS, og keppnin sé gróf móðgun við alla sanna mælsku- og rök- ræðulist. Þessi deila spratt upp eftir keppni milli MS og Fjölbrauta- skólans í Garðabæ, þar sem MS tapaði. Kjartan Öm Ólafsson og Kjartan Jónsson, sem em í liði MS, og Ármann Jakobsson, sem er þjálfari liðsins, segja að þeir séu mjög ósáttir við þá stefnu sem keppnin hefur tekið. Þeir telja að þróunin hafi verið sú að keppnin byggi meira á leiklist og stælum heldur en mælskulist. „Þetta er orðið eins konar brandarakeppni og það lið sem getur mest snúið út úr og verið með mesta stælana á upp á pallborðið hjá dómurum,“ segja þeir. Þótt lög séu til um hvemig dæma eigi í svona keppni, segja þeir að dómarar fari ekki eftir þeim, heldur noti þeir Athugasemd Þjóðviljanum hefur borist eftir- farandi athugasemd vegna frétt- ar Þjóðviljans á fimmtudag, „Viðvörun ekki sinnt". „í tilefhi af grein í blaði yðar þann 25.10 sl. sem ber yfírskriftina „Viðvörun ekki sinnt“ og í strendur meðal annars „Ljóst er að starfs- menn Olís annars vegar og starfs- menn hafnarinnar og Siglinga- málastofnunar hins vegar vom alls ekki sammála um hvemig bregðast átti við þama um kvöldið", óskum við undirritaðir sem hlut áttum að málinu að taka fram að enginn ágreiningur var á millum okkar á meðan við unnum saman við þetta olíuóhapp." Undir þessa athugasemd rita Eyjólfur Magnússon ffá Siglinga- málastofnun ríkisins, Gísli Þor- kelsson ffá Olís og Hallur Ámason frá Reykjavíkurhöfn. Athugasemd fréttastjóra Þjóðviljinn vill taka það ffam að umrædd ffétt var byggð á upp- lýsingum ffá lögreglunni. Að sögn lögreglunnar kom ffam ágreiningur milli starfsmanna Olís annars veg- ar og starfsmanna hafnarinnar og Siglingamálastofhunar hins vegar um hvort tæma ætti leiðsluna með því að skjóta sjó í hana. -Sáf A Iþvðubandalagið Kosningalínurnar lagöar Aðalfundur miðstjórnar Al- þýðubandalagsins hófst í Alþýðuhúsinu á Akureyri seinnipartinn í gær með al- mennum stjórnmálaumræðum. Steingrímur J. Sigfússon, for- maður miðstjórnar, segist ekki eiga von á öðru en góðum fundi. í samtali við Þjóðviljann sagði Steingrimur menn almennt sammála um að miðstjómarfund- ir, sem haldnir hefðu verið á landsbyggðinni, tækjust yfirleitt vel og skiluðu góðri vinnu. Þá væri mönnum ekki í kot vísað á Akueyri í eins góðu veðri og spáð væri. „Ég held að það verði fyrst og ffemst tvennt sem taki mestan tíma fundarins,“ sagði Steingrím- ur. „Annars vegar stjómmálavið- horfið, stærstu málin í stjómmál- unum og stjómarsamstarflð. Hins vegar flokksstarfið og undirbún- ingurinn fyrir komandi kosning- ar.“ Steingrímur sagðist eiga von á að línur yrðu lagðar fyrir undir- búning og upphaf kosningastarfs- ins. „Það er af nógu að taka hvað verkefhi snertir," sagði Steing- rimur J. Sigfússon -hmp einhver furðuleg gildi. í ályktun sem Skólafélag MS samþykkti segir: „Við teljum þessi úrslit sýna og sanna að þessi keppni er núorðið mælsku- og rökræðulist með öllu óviðkom- andi. Önnur og annarlegri sjónar- mið virðast hafa ráðið úrslitum við þennan dóm.“ Elsa Valsdóttir oddadómari segir að MS geti ekki sagt sig úr keppninni, þar sem liðið sé þegar fallið úr henni. Þessu mótmælir Guðrún Sóley Gunnarsdóttir sem sæti á í framkvæmdastjóm MOR- FÍS. Hún segir að MS hafi ekki sagt sig úr keppninni sem slíkri, heldur alfarið úr MORFÍS. Hvað varðar ásakanir MS á MORFÍS segir Guðrún Sóley að sér finnist persónulega þróunin hafa verið sú, að stælar og leiksýningar hafi orðið ofan á í keppninni. „Ég veit ekki hvort það hefiir verið til góðs eða ills. Lið nota mismunandi stíl og það er enginn stíll verri en ann- ar. En það er spuming hvort það þyrfti ekki að stokka MORFÍS upp. Mér finnst að það þurfi að gera það. En mér finnst þessar að- gerðir MS heldur harkalegar," segir Guðrún Sóley. ns. Laugardagur 27. október 1990 ÞJÓÐVILJINN — SlÐA 3 HF.LGARRUNTURINN MYNDLISTARRÚNTURINN er alltaf langur og fjölbreyttur. í dag eru opnaðar eins og alla laugardaga þónokkrar sýningar. I Nýlistasafn- inu tvær sýningar: Björg Örvar og Ánna Líndal sýna báðar málverk á sýningum sínum í sölum safnsins. Á Kjarvalsstöðum em einnig opnað- ar tvær sýningar. I vestursal sýnir Brynhildur Þorgeirsdóttir skúlptúra, en í austursalnum geta gestir kynnst þjóðlegum munum eskimóa í Al- aska. í Ásmundarsal opnar Guðrún Marinósdóttir sína fyrstu einkasýn- ingu á verkum unnum með blandaðri tækni. Sjöfh Haraldsdóttir opnaði síðdegis á fimmtudag sýningu í Gallerí Borg á gler- og olíumyndum. Ymsar gerðir af tekötlum em til sýnis í Gallerí List við Skipholtið ffá og með deginum í dag. Þá hannaði Olöf Erla Bjamadóttir. DAGAR LEIKBRÚÐUNNAR í Gerðubergi hófust um síðustu helgi. í dag og á morgun kl. 15 verður Sögusvuntan með sýningar á Prinsess- unni i Skýjaborgum eflir Hallveigu Thorlacius. Óvenjumikið framboð er þessa helgi af skemmtilegu bama- og fjölskylduefni. Fyrir utan leik- brúðuhátíðina em tvö bamaleikrit I gangi. Bæði em þau eftir hinn sívin- sæla bamabókarhöfund Astrid Lindgren. Gamanleikhúsið sýnir Línu langsokk í Iðnó, og Leikfélag Mosfellsbæjar sýnir ævintýrið Elsku Míó minn. Að auki má benda á að íslenski dansflokkurinn efnir til aukasýn- ingar á Pétri og úlfinum á morgun í húsnæði Islensku ópemnnar. Tvær ffumsýningar vom í leikhúsunum í gærkvöldi. Önnur á nýjum íslensk- um söngleik eftir Valgeir Skagfjörð hjá Leikfélagi Kópavogs. Nefhist hann Skítt með’a og er önnur sýning annað kvöld. Hin hjá Nemenda- leikhúsinu á miklu drama eflir Buechner, sem gerist í ffönsku bylting- unni. Dauði Dantons nefnist verkið og er önnur sýning á því einnig.á sunnudagskvöld. SOVÉSKIR DAGAR standa yfir hjá MÍR. Félagið hefur fengið hing- að til lands góða gesti ffá Túrkmenistan. Er þar kominn þjóðlaga- og dansflokkurinn Súmbar. Flokkur þessi kemur ffá fjallahéraðinu Kara- Kalinsk, og mun hann sýna í félagsheimilinu Gunnarshólma i Austur- Landeyjum á morgun kl. 14. Einnig stendur yfir sýning á ljósmyndum og þjóðlegum munum ffá Túrkmenistan í sýningarsalnum við Vatnsveg í Keflavík.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.