Þjóðviljinn - 27.10.1990, Qupperneq 11
MENNING
Leikfélag Akureyrar sýnir
LEIKRITIÐ UM BENNA,
GÚDDA OG MANNA eftir J6-
hann Ævar Jakobsson.
Leikstjóri: Sunna Borg.
Leikmynd: Hallmundur Krist-
insson.
Lýsing: Ingvar Björnsson.
Leikendur: Þráinn Karlsson,
Gestur Einar Jónasson, Hannes
Örn Blandon og Jón St. Krist-
jánsson.
Norður á Akureyri var líka
frumsýnt nýtt íslenskt leikrit um
helgina. Lítið og að mörgu leyti
nett frumsmíð eftir höíund sem
hefur ekki áður sent frá sér verk,
höfimd sem leitar ófeiminn til
leikhússins og biður um aðstoð
við að koma verki i sýningarhæft
form. Og þar sem leikhúsin vant-
ar alltaf bitastæð íslensk leikrit
slá þau ekki hendinni á móti sliku
boði ef einhver bógur er í verk-
inu.
Hrak
Kjaminn
Þeir norðanmenn hafa um
langan aldur notið krafta nokk-
urra listamanna sem af þraut-
seigju hafa haldið lífmu í leiklist-
arstarfsemi nyrðra. Leikfélag Ak-
ureyrar er ákaflega mikilvægur
hlekkur í leiklistarlífi þjóðarinnar.
Það hefur í gegnum árin skilað
mörgum ágætum sýningum á
svið. Þar hafa ungir leikarar og
leikstjórar hlotið mikilvæga þjálf-
un. Margir hafa þar fengið tæki-
færi til að takast á við hlutverk
sem þeim hefðu ekki hlotnast hér
syðra.
En kjami þess hóps sem er
hreyfillinn í starfsemi LA er
löngu landskunnur og fimm
þeirra eiga hlut að þessari sýn-
ingu. Sunna Borg leikstýrir nú í
þriðja sinn fyrir LA og sýnir hér
að hún er vaxandi leikstjóri. Sýn-
ingin er leikin á grátbroslegum
nótum, hún er piýðileg í hraða og
sneiðir hjá tilfinningasemi þar til
rétt í lokin. Leikmynd Hallmund-
ar er ágæt lausn á þröngu sviðinu.
Ingvar Bjömsson lýsir verkið
smekklega. Þeirra starf sýnir að
ekki þarf að kvíða sönnum at-
vinnubrag á sýningum nyrðra.
Það em hinsvegar leikaramir
Þráinn Karlsson og Gestur Einar
Jónasson sem bera sýninguna
uppi með tveim ágætlega sköpuð-
um persónum. Þráinn er Benni,
útigangsmaður kominn yfir miðj-
an aldur, skaddaður á minni til
langs og skamms tíma, þjáður af
ranghugmynd sem mótar allt hans
líf. Gestur er Manni, ungur maður
sem orðinn er utanveltu, bæði af
uppeldi og ekki síður vegna ör-
kumla eftir bílslys. Hlutverkið er
erfitt. Hann er vanki, vælugjam
og lítill í sér. Gesti tekst prýðilega
að þræða einstigi í sköpun sinni.
Honum fatast stöku sinnum i tón,
en slíkar brigður falla í skugga af
heildinni.
Tveir nýgræðingar leika svo
smærri hlutverk. Hannes Öm
Blandon er þriðja hjólið í trióinu.
Hans hlutverk er sist unnið í sýn-
ingunni, og geldur seinni hluti
verksins og lausn þess verulega
fýrir þá skuld. Hannes er áhuga-
maður, hann er mikill að burðum,
ber sig vel, heldur rómi og hefur
nær full tök á persónusköpun
sinni. Gervi hans er prýðilegt.
Hér hefúr LA bæst liðsmaður sem
getur nýst þeim vel á næstu ámm.
Þá er Jón St. Kristjánsson í litlu
hlutverki pósts sem hefði mátt
gera ögn skoplegra með meiri
natni.
Aðlokum
Leikritið um Benna, Gúdda
og Manna er ekki stórvirki. En
það er sómasamleg sýning að öllu
leyti, skopleg og grátleg í senn.
Það sýnir líka að í leikhúsum
okkar er viðleitni til að skoða
undir yfirborð hlutanna, kanna þá
kima sem geyma breyskleika
sálnanna og þess samfélags sem
mennimir hafa skapað sjálfúm sér
og meðbræðrum sínum. pbb
Víst er það að LA hefur haft
nokkuð úr þeim viðskiptum.
Leikritið er gallað, einkum þegar
líður á og uppgjör persónanna
hefst, en höfúndurinn á auðvelt
með að koma saman samræðum,
honum tekst að búa til trúverðug-
ar persónur. Viðskipti þeirra em
lifandi og sýningin andar af ríkri
og djúpri samúð, glitrar af elsku-
legum húmor og snertir mann.
Persónur leiksins em úrhrök
mannlegs samfélags. Karlmenn
sem hafa hver á sinn hátt orðið ut-
anveltu í þjóðfélaginu vegna
slysa. Örkumlamenn sem eiga
ekki i neitt hús að venda, vilja Iifa
en em dauðir menn. Á táknrænan
hátt hafa þeir lifibrauð sitt af því
að gæta öskuhauga.
Tími verksins er skammur,
þrír þættir rekja sögu þeirra tvo
sólarhringa með tveggja mánaða
bili. Sagan er að vísu í meðfömm
höfundar og leikstjóra klofin milli
tveggja tíma því margt í textanum
vitnar til liðins tíma, þótt önnur
merki hans hafi orðið til þess að
hann er settur niður í nútímann.
Sem er miður góð ráðstöfun þótt
hún þjóni tilgangi sýningarinnar
að segja okkur að slík örlög þekk-
ist á okkar dögum. Rónar nútím-
ans drekka ekki landa. Þeir keyra
sig áffarn á öðmm tegundum
drykkjar og pillum af öllum gerð-
um. Þeir em á opinbem framfæri
og em í samfelldu eftirliti opin-
berra aðila. Landinn og ýmislegt
annað i örlögum þeirra vísar á lið-
inn tíma.
Þjóðleikhúsið sýnir í skólum:
NÆTURGALINN eftir ævin-
týri H. C. Andersen.
Leikgerð: Leikhópurinn.
Tónlist: Lárus Grímsson.
Leikendur: Þórhallur Sigurðs-
son, Kristbjörg Kjeld, Margrét
Guðmundsdóttir, Jón S. Gunn-
arsson, Helga Jónsdóttir.
Flautuleikari: Kristín Arna
Einarsdóttir.
Það er vel til fúndið að senda
leikara Þjóðleikhússins út um bæ-
inn, í skóla og á vinnustaði nú
þegar þeir hafa verið sviptir
starfsvettvangi um nokkra hríð.
Það er til marks um sjálfsbjargar-
viðleitni og bregður ljósi á þá
staðreynd að fleira er matur en
feitt ket. Leikarar þjóðleikhúss
hvers lands ættu sannarlega alltaf
að vera á ferðinni um samfélagið
með sýningar fyrir alla aldurs-
hópa, ekki bara vera njörvaðir við
hátimbraðar hallir hins borgara-
lega leikhúss.
Saga um fugl og vald
Ég er ekki eins viss um erindi
þeirra með ævintýrið um nætur-
galann til ungra áhorfenda í skól-
um landsins. Sagan er hugljúf,
hún gefúr tækifæri til leikrænna
bragða, en kjami hennar um ein-
semd valdsins, hungur hins metta,
hinn eina sanna tón andstætt til-
búinni tónlist vélarinnar, öll þessi
elnisatriði sögunnar em býsna
fjarlæg ungum hugum, því þau
eiga sér grunn í hugmyndum
þroskaðs manns. Og því miður
tekst leikumm Þjóðleikhússins í
leikbúningi sínum ekki að raun-
gera þessar hugmyndir með þeim
hætti að bömin nemi þau og skilji.
Leikgerðin er hvorki nógu róttæk
né djörf til að nema þessa kjama
og klæða þá átökum svo skiljist.
Aftur hefur hópurinn búið til
stutt rammaatriði umhverfis æv-
intýrið um íjölskyldu sem situr
stjörf framan við kassann og kann
sér ekki hóf í glápinu, þekkir aug-
lýsingamar utanað og þekkir ekki
annað líf en hæga setu við sjón-
varp. Þar var leikhópurinn meira á
heimaslóðum, enda tóku áhorf-
endur þá við sér og þekktu sitt
heimafólk. pbb
Engan skatt á íslenska
tónlist
íslenski tónlistardagurinn er í
dag, og er hann helgaður því mikil-
væga baráttumáli íslenskra tónlist-
armanna að fá að sitja við sama
borð og aðrir listamenn í landinu.
Þeir krefjast því afnáms virðisauka-
skatts af íslenskum hljómplötum og
tónleikum.
Innlend hljómplötuútgáfa hefúr
undanfarin ár verið rekin með halla,
auk þess sem tónleikahald er kostn-
aðarsamt og áhættusamt á tímum
harðnandi samkeppni i skemmtana-
lífi íslendinga.
Lögum samkvæmt eru tónleikar
undanskildir skatti, en í raun gildir
það einungis um klassíska tónleika.
I dag verður íslenskri tónlist
gert hátt undir höfði, bæði á öldum
Ijósvakans og á hinum ýmsu tón-
listarstöðum og klúbbum víða um
land. Á tónlistarbamum Púlsinum
verður fyrirmönnum þjóðarinnar
afhent ný útgáfa á verkum hins ást-
sæla tónskálds Sigfúsar Halldórs-
sonar. Er þar um að ræða bók sem
inniheldur hljómplötu, en menn
standa nú andspænis þeim vanda að
selja skattfijálsa bók sem inniheld-
ur skattskylda hljómplötu.
Skagaleikflokkurinn
í kvöld kl. 20:30 frumsýnir
Skagaleikflokkurinn á Akranesi
leikritið 19. júní eflir þær systur
Kristínu og Iðunni Steinsdætur.
Leikstjóri er Oktavía Stefáns-
dóttir, en hún sá einnig um sviðs-
mynd og búninga. Lýsing er í hönd-
um Hlyns Eggertssonar. Tíu leik-
endur fara með hlutverk í verkinu.
Aðalhlutverkið leikur Hallbera Jó-
hannesdóttir.
Leikritið 19. júni er 27. verk-
efni leikflokksins á Skaganum. Æf-
ingar hafa staðið yfir í sjö vikur.
Verkið er sett upp í Bíóhöllinni
á Akranesi, og eru næstu sýningar á
mánudag, þriðjudag og miðviku-
dag.
Norrænir barokkdagar
Dagana 25.-29. október hafa
Listvinafélag Hallgrímskirkju og
Norræna húsið haft samvinnu um
dagskrá sem fjallar um barokktíma-
bilið á Norðurlöndum.
Á morgun kl. 16 verður fyrir-
lestur í Norræna húsinu um mynd-
list og byggingarlist í Svíþjóð á bar-
okktímanum, sem Allan Ellenius
listfræðingur og prófessor við Upp-
salaháskóla flytur. Norrænu bar-
okkdögunum lýkur á mánudag með
dagskrá i Hallgrímskirkju kl. 20:30.
Sr. Sigurður Guðjónsson talar um
danska sálmaskáldið Thomas
Kingo. Guðrún Ásmundsdóttir
leikkona les upp, og Mótettukórinn
syngur.
List Inua
Andleg veröld eskimóa í Al-
aska er yfirskrifl sýningar sem í dag
verður opnuð á Kjarvalsstöðum.
Sýningin er hingað komin frá
Smithsonian-safninu í Washington.
Dr. Fitzhugh heldur á morgun fyrir-
lestur í tengslum við sýninguna.
Hann er forstöðumaður mannfræði-
deildar Smithsoniansafnsins.
Á sýningunni er fjöldi fagur-
lega skreyttra muna, en flestum
þeirra safúaði Edward W. Nelson
(1855- 1934). Hann ferðaðist mikið
um í suðvesturhluta Alaska og
hreifst mjög af menningu þeirra
sem þar bjuggu.
Inua - Andleg veröld eskimóa
er opin daglega milli kl. 11 og 18.
Skólavörur úr
endurunnum
pappír
Lauaardaaur 27. október 1990 ÞJÓÐVILJINN — SlÐA 11