Þjóðviljinn - 01.11.1990, Síða 4

Þjóðviljinn - 01.11.1990, Síða 4
ÞJ0ÐV1UINN Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis og verkalýðshreyfingar KLIPPT OG SKORIÐ Nýttloftslag Stjórnmálaályktun miðstjórnar Alþýðubandalagsins, sem birt var í Þjóðviljanum í gær, andinn í yfirgnæfandi meirihluta fundarmanna og afgreiðslur annarra mála á Akureyri um síðustu helgi eru vitnisburðir um „nýtt lofts- lag" í stjórnmálum á vinstri væng, svo haldið sé áfram þeim landfræðilegu skilgreiningum sem nú tíðkast gjarn- an um þjóðmál. Eins konar „gróðurhúsaáhrifum“ sem hinn almenni flokksmaður hefur ósjaldan kvartað yfir, með tilhlítandi sveiflum í hita og úrfelli í flokksstarfinu, er að linna. Frjótt ræktunarstarf er hafið í samvinnu ýmissa hópa og persóna sem áður deildu, og sáðkorn úr mál- efnavinnu ólíkra aðila hafa spírað laglega í stjórnmála- ályktun miðstjórnarinnar. Raunveruleikaskyn landsbyggðarmanna og „miðju- manna" mótaði umræður og starf miðstjórnarfundarins. Lagt var jákvætt mat á starf ríkisstjórnarinnar og skýrar línur dregnar upp í tilefni komandi þingkosninga. Þótt fjölmiðlar hafi gefið mikinn gaum ágreiningi og útgöngu nokkurra flokksrrianna á síðustu klukkustund miðstjórn- arfundarins, var yfirbragð hans heilsteyptara og vinnubrögð samstilltari en tíðkast hefur um langa hríð á fjöldafundum innan Alþýðubandalagsins. Með miklum meirihluta féllust fundarmenn í raun á þann boðskap, að launamálastefna og baráttuaðferðir innan BHMR undanfarið samrýmdust ekki stefnu Al- þýðubandalagsins, þegar samþykkt var að vísa frá til- lögu um andstöðu við bráðabirgðalögin frá 3.ágúst sl. Flestir viðstaddir miðstjórnarmenn í Alþýðubandalag- inu töldu sem sé ekki rétt að skilgreina hlutina þannig, að með bráðabirgðalögunum sé verið „að grafa undan frjálsum samningsrétti og gera verkalýðshreyfingunni þar með ókleift að sinna hlutverki sínu“, eins og í tillög- unni stóð. Miðstjórnin hefur því tekið skýrt undir þann skilning, að sú samstaða sem náðist með yfir 90% launamanna um stöðugleika í efnahagsmálum og undir- búning kjarabóta, hafi verið grundvallaratriði í stjórnmál- um stundarinnar. Grundvallaratriði sem réttlætti að láta minni hagsmuni víkja fyrir meiri. Alþýðubandalagið er sannarlega komið að söguleg- um vatnaskilum í starfi sínu og mikið liggur við, að stuðningsmenn hans átti sig á þeim möguleikum sem framundan eru í flokksstarfi og landsstjórn. Stefnuskráin frá 1974 hefur ekki aðeins verið afhent Þjóðskjalasafn- inu sem verkefni áhugamanna um þjóðlegan fróðleik, heldur lagði sérstök starfsháttanefnd Alþýðubandalags- ins líka fram álitsgerð og tillögur um innra starfs flokks- ins, og var nefndinni falið að starfa áfram að mótun framtíðarskipulags og starfshátta í anda breyttra tíma. Alþýðubandalagið hefur lagt fram mat sitt á stöðu þjóðmála og árangrinum í ríkisstjórn, og leggur í stjórn- málaályktuninni grunninn að málefnaáherslum í kom- andi kosningabaráttu. Ein ábendinga starfsháttanefnd- arinnar, sem góður rómur var gerður að, beinist að því að stefnuskrá Alþýðubandalagsins verði stutt plagg, ein- falt og skýrt um meginatriði, en að á hverjum tíma verði hins vegar lagðar fram kosningastefnuskrár, þar sem skilgreind séu skýr skammtímamarkmið í samræmi við stefnu flokksins. Fram kom á miðstjórnarfundinum að Alþýðubanda- lagið er stolt af þeim áföngum sem náðst hafa fyrir til- verknað þess á sviði efnahagsmála, atvinnumála og menningarmála undanfarin misseri. í framhaldi af því berst Alþýðubandaiagið, sem róttækur jafnaðarmanna- flokkur, sérstaklega fyrir bættri framtíð barna, og grund- vallar skýrar áherslur sínar í efnahagsmálum, menning- armálum og umhverfismálum á því að stjórnmálin snúist um það framtíðaröryggi sem þjóðin vill sameinast um að búa æskunni. Fyrir hana erum við að vinna. ÓHT A. UMYAROV Vondirmenn og siðspilltir Á dögunum birtist grein í Morgunblaðinu eftir Jóhann Guðbjarts- son smið. Hún byijaði á þessum dramatísku orðum: „Nú er illa komið fyrir okkur kommúnistunum, þar sem á einum vetri hef- ur verið frá okkur tekin hugsjónin um jafhrétti og bræðralag komm- únismans.“ Og nokkru síðar segir: „Nú eru þessar hugsjónir frá okkur teknar og heyra fortið- inni til líkt og æskan sem framhjá leið með sínar vonir og þrár, og eftir stöndum við kommúnistar og vitum ekki hvort við eigum að líta til hægri eða vinstri og þorum reyndar ekki að líta upp á nokkum mann, því nú höfúm við verið stimplaðir vondir menn og siðspilltir, sem kannski er ekki nein fúrða, miðað við þau voðaverk sem ffamin hafa verið í skjóli komm- únismans, sem var okkur öllum hugsjónum æðri.“ Ekki úr vegi að skoða þessa klausu nánar. Iðrandi syndarar? Eiga „kommúnistar“ (greinar- höfúndur hefur reyndar heimsótt DDR, Austur-Þýskaland fyrir fá- um árum í sendinefnd og líkað þá allvel að því er manni skilst) að berja sér á brjóst eins og syndari i kaþólskri messu: Mín sök, mín sök, mín mikla sök? Þvi verður ekki svarað með einu orði. Það fer reyndar eftir þvi hvemig þeir hafa hver og einn haldið á sínum hugsjónamálum. Það er enginn glæpur að trúa á betri tíð með gjörbreytingu á þjóðfélaginu. Það er heldur engin meiriháttar synd að vilja helst ekki skilja við þann æskudraum fyrr en í fúlla hnefa. Það fer svo að versna í því, þegar menn hafa í nafni sins æskudraums og tryggð- ar við hann lokað augum og eyr- um og neitað að heyra neitt mis- jafnt um „alþýðuveldin“, vegna þess að allt slíkt tal væri í þágu stéttaróvinarins. Enn verra var svo hlutskipti nokkurra þeirra manna, sem vissu svosem margt misjafnt upp á þau sömu „alþýðu- veldi“, en vildu samt kveða alla gagnrýni á þau niður, vegna þess að þeir vildu sjálfir færa sér vin- skap austur þangað í nyt, vildu halda áfram - til dæmis sínu sendinefndajukki. Við þekkjum þetta Við Þjóðviljamenn könnumst svosem ósköp vel við allar þessar manngerðir. Það er langt síðan hér í blaðinu var tekin upp „gagn- rýni frá vinstri" á hinn „raunveru- lega sósíalisma“ sem svo var kall- aður bæði í Moskvu og Washing- ton. Ekki síst gagnrýni á mann- réttindabrot hans. Og við höfum líka reynt, að þeir sem alltaf vildu kalla sig kommúnista, þeir voru okkur sárir og gramir, og margir sögðu upp blaðinu fyrir að vilja taka frá þeim það sem kallað hef- ur verið „freistingar alræðisins“. Við fengum lika að heyra það öðru hvoru (og birtum slíkar skammir náttúrlega í nafni mál- frelsis) að við værum hugleys- ingjar á flótta undan áróðri borg- aranna eða eitthvað slíkt. Það er eins og fyrri daginn: Rökum verður ekki ffarn komið nema við þá sem við rökum vilja taka. Svo einfalt er það. Syndir kristindómsins En semsagt: Margir „komm- ar“ eru miður sín og kannski helst þeir sem skástir eru, maður veit það ekki. Sumir menn eru svo liprir í stefnubreytingunum að þeir eru alltaf stórvitrir eftir á, og eru þeir ekki til frekari umræðu. Reyndar var þessi Klippari hér að tala við prest ágætan á dögunum. Presturinn sagði honum frá kunn- ingja sinum einum, sem hafði áð- ur fyrr verið mjög kappsamur í byltingarhyggju, en var nú allur í rúst og kreppu og tilveran öll og sjálfur hann ömurlegri en þolað yrði. Þessi klerkur er áreiðanlega nokkuð glúrinn sálusorgari. Því hann sagði við hinn iðrandi kommúnista: Tja, hvað megym við segja, kristnir menn? Sitjum við ekki með tvö þúsund ára mistök og af- glöp á herðunum og blóðuga glæpi, sem framkvæmdir voru í nafni kristindómsins, guði til dýrðar? Og erum bara fúrðu boru- brattir enn! Gáum að þessu. Skáldskaparraunir eystra Við erum stundum að vitna til þverstæðna á breytingaskeiði því sem nú gengur yfir Austur-Evr- ópu. Ein þverstæðan er sú, að með frelsinu hnignar menning- unni, og þetta þykir mörgum dap- urlegra en tárum taki. Pólsk skáldkona, Ewa Lipska, fjallar um þetta mál í nýlegu við- tali við Information. Hún lýsir stöðu skáldsins skýrt og skil- merkilega í fáum orðum: „Nú höfúm við öngva ritskoð- un. Við getum skrifað það sem okkur hentar. En núna eigum við í erfiðleikum með forlögin. Þau veðja á það sem selst, á klám og glæpasögur. Þau græða ekki mik- ið á ljóðum. Við búum við eins- konar kapítalískt ástand. Samt vona ég enn að það verði til for- lög sem gefa út ljóð. Áður var vandinn pappírsskortur og rit- skoðun. Nú er búið að afnema rit- skoðunina og nóg er af pappír, en nú vantar peninga... Áður voru ljóð mín prentuð (af neðanjarðarforlagi) í 15 þús- und eintökum. I dag er ógjöming- ur að finna forleggjara sem þorir að prenta ljóð í slíku upplagi...Á krepputímanum var listin þýðing- armeiri en hún nú er. Á þeim tíma var hún einskonar miðstöð fyrir menningarlegan sjálfúmleika, hún var nauðsyn sem einskonar andófsform. Það gerist ekki nú um stundir.“ Þetta er vissulega snúið. Rík- isstýringin á listum og bókmennt- um bjargaði ekki þessum hnoss- um, heldur lyfti andóf listamanna og skálda gegn slíkri stýringu starfi þeirra til sjaldgæfra áhrifa og virðingar. Sem markaðslög- málin gera sig líkleg til að taka frá þeim aftur. Og nú má spyija: Er engin leið að andæfa einnig þeim svo vit sé í? ÁB. ÞJOÐVILJINN Síðumúla 37 — 108 Reykjavík Sími: 681333 Símfax: 681935 Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans. Framkvæmdastjóri: Hallur Páll Jónsson. Ritstjórar: Árni Bergmann, Helgi Guðmundsson Ólafur H. Torfason. Fréttastjóri: SigurðurÁ. Friöþjófsson. Aðrir blaðamenn: Bergdis Ellertsdóttir, Dagur Þorteifsson, Elías Mar (pr.), Garðar Guðjónsson, Guðmundur Rúnar Heiðarsson, Heimir Már Pétursson, Hildur Finnsdóttir (pr.), Jim Smart (Ijósm.), Kristinn Ingvarsson (Ijósm ), Nanna Sigurdórsdóttir, Óiafur Gísfason, Þröstur Haraldsson. Skrifstofustjóri: Sigrún Gunnarsdóttir. Skrifstofa: Guðrún Geirsdóttir, Kristín Pétursdóttir. Auglýsingastjóri: Steinar Harðarson. Auglýsingar: Sigrlður Sigurðardóttir, Svanheiður Ingimundardóttir, Unnur Ágústsdóttir. Útbreiðslu- og afgreiöslustjóri: Guðrún Gísladóttir. Afgreiðsla: Bara Sigurðardóttir, Halla Pálsdóttir, Hrefna Magnúsdóttir, Þorgerður Sigurðardóttir. Bíistjóri: Jóna Sigurdórsdóttir. Skrifstofa, afgreiösla, ritstjóm, auglýsingar: Siðumúla 37, Rvfk. Simi: 681333. Símfax: 681935. Auglýsingar: 681310, 681331. Umbrot og setning: Prentsmiðja Þjóðviljans hf. Prentun: ðddi hf. Verð f lausasölu: 100 kr. Nýtt Helgarblað: 150 kr. Áskriftarverð á mánuði: 1100 kr. 4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 1. nóvember 1990

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.