Þjóðviljinn - 22.12.1990, Qupperneq 7
Castro
svartsýnn
Fidel Castro, forseti Kúbu,
sagði í fyrradag í þriggja klukku-
tíma ræðu að borgarastríð væri yf-
irvofandi í Sovétríkjunum, enda
reru Vesturlönd undir ókyrrð þar í
þeim tilgangi að sundra ríkinu og
þurrka sósíalismann út. En þótt
Sovétríkin hættu að vera til myndi
Kúba ekki láta deigan síga í baráttu
fyrir sósíalismanum, bætti Castro
við.
Hermönnum
boðið heim
Hundruð þýskra ijölskyidna
hafa boðið sovéskum hermönnum
að vera hjá sér um jólin. Láta fjöl-
skyldumar með þessu í ljós samúð
með hermönnunum, en margir
þeirra em nú daprir í bragði vegna
fjandskapar, sem algengt er að
Þjóðveijar sýni þeim, og fátæktar
sinnar miðað við Þjóðverja. Gert er
ráð fyrir að sovéskur her verði
áffam í austurhluta Þýskalands til
1994.
DauflegjólíNasaret
Þetta verða okkar dapurlegustu
jól í manna minnum, segja kaup-
menn í Nasaret, borginni þar sem
Jesús ólst upp. Vegna hættunnar á
stríði við Persaflóa er búist við
óvenju fáum jólatúristum til Nas-
aret að þessu sinni.
Sjá hvað setur
íEB-málum
Norska stjómin hefúr gefíð til
kynna að hún muni ekki taka
ákvörðun um, hvort Noregur sæki
um aðild að Evrópubandalagi eður
ei fyrr en samkomulag hafi náðst
með EB og Fríverslunarsambandi
Evrópu (EFTA) um að stofna Evr-
ópska efnahagssvæðið svokallaða,
sem gert er ráð fyrir að bæði
bandalög myndi. Gro Harlem
Bmndtland, forsætisráðherra Nor-
egs, lét að því liggja í gær að
ákvörðun sænsku stjómarinnar um
að sækja um EB-aðild myndi varla
hafa mikil áhrif á hvað Norðmenn
tækju sér fyrir hendur í því efni.
Áhyggjur af heiðri
Saddam Hussein, Iraksforseti,
er reiðubúinn til málamiðlunar í
Persaflóadeilu að því tilskildu að
heiður Iraks verði óflekkaður eftir
sem áður, sagði í gær Sid Ahmed
Ghozali, utanríkisráðherra Alsírs.
Chadli Benjedid, forseti Alsírs, er
nýkominn úr friðarumleitanaferð
til Austurlanda nær, en í þeim leið-
angri kom hann til Bagdað auk
annarra höfuðborga. Ætlar hann nú
að heimsækja nokkrar evrópskar
höfuðborgir í sama tilgangi.
HANDBRAGÐ MEISTARANS
Bakarí
Brauðbergs
Ávallt nýbökuð brauð
-heilnæm og ódýr-
Aðrir útsölustaðir:
Hagkaup-Skeifimni
-Kringlunni
-Hólagarði
Verslunin Vogar,
Kópavogi.
Brauðberg
Lóuhólar2-6simi 71539
Hraunberg 4 sími 77272
ERLENDAR FRETTIR
Gorbatsiov
Stendur hann einn?
Bölsýni er ríkjandi í ummæl-
um frjálslyndra og rót-
tækra manna í Moskvu eftir af-
sögn Eduards Shevardnadze,
utanríkisráðherra Sovétríkj-
anna. „Hver á nú að berjast fyr-
ir frelsi og iýðræði? Gorbatsjov
einn?“
Svo spurði í gær Moskvublað-
ið Rabotsjaja Tríbúna, sem er
miðjusinnað í stjómmálum.
Spumingar þessar bergmála skoð-
un, sem nú er almenn þar í borg,
að eftir afsögn Shevardnadze sé
Gorbatsjov forseti orðinn heldur
einmana í innsta hring fomstunn-
ar. Þar sé nú fyrir utan hann eng-
inn eindreginn umbótasinni.
„Þetta er sigur hægriaflanna,
sigur allra þeirra sem ekki vilja
neinar teljandi breytingar í samfé-
lagi okkar,“ sagði í gær um afsögn
Shevardnadze Aleksej Jemelj-
anov, prófessor við Moskvuhá-
skóla og þingmaður í æðstaráði.
Margir þar eystra virðast álíta
Gorbatsjov - einmana í innsta hring.
að nú sé svo komið fyrir Gorbat-
sjov að hann eigi varla annars
kost en að láta íhaldsmenn ráða
ferðinni. Fijálslyndum og róttæk-
um líst m.a. illa á að til stendur að
leggja niður forsetaráðið, sem
hefúr verið áhrifamikið, og stofna
í staðinn öryggisráð svokallað. I
því verða m.a. Dmítríj Jazov,
vamarmálaráðherra, og Vladímír
Krjútsjkov, æðsti maður KGB.
Reuter/-dþ.
Evstrasaltslönd
Herlög talin yfirvofandi
Prunskiene: harðlínumenn að ná yfirhöndinni í Kreml
Kazimiera Prunskiene, for-
sætisráðherra Litháens,
sagði í gær að harðlínumenn
væru að ná yfírhöndinni í
Kreml og gæti það Ieitt til þess
að sovéska stjórnin setti herlög í
Litháen og hinum Eystrasalts-
lýðveldunum tveimur, Eistlandi
og Lettlandi.
Kazimiera var stundum gráti
nær er hún ræddi við fréttamenn í
Tókió, þar sem hún var í gær
stödd í óopinberri heimsókn. Um-
mæli hennar og fleiri forustu-
manna í Eystrasaltslýðveldunum
benda til þess að þar hafí mönnuiú
bmgðið illa í brún við afsögn
Eduards Shevardnadze, utanríkis-
ráðherra Sovétríkjanna, í fyrra-
dag, og búist nú við hinu versta af
sovéskum valdhöíúm.
Undanfarið hafa nokkrir
áhrifamiklir frjálslyndir stjóm-
málamenn vikið úr innsta hring
sovésku forustunnar, þeirra helst-
ir Shevardnadze og Aleksandr
Jakovlev, sem kallaður hefur ver-
ið arkitekt perestrojku. Að sama
skapi hafa áhrif íhaldsmanna þar
Prunskiene - ótti og spenna (
Eystrasaltslöndum eftir afsögn
Shevardnadze.
færst í aukana. íhaldsmenn, en
meðal þeirra em herforingjar
áhrifamiklir, hafa sjálfstjómar- og
sjálfstæðisviðleitni ýmissa lýð-
velda á homum sér öllu öðm
fremur. I þeirri viðleitni em
Eystrasaltslýðveldin í fomstu.
Herforingjar ýmsir og aðrir
íhaldsmenn, þeirra á meðal Jazov
vamarmálaráðherra og Krjút-
sjkov, æðsti maður KGB, hafa
undanfarið haft í hótunum við
„skilnaðarsinna“ og undir það tók
Gorbatsjov Sovétríkjaforseti á
miðvikudag.
Stjómir Eystrasaltslýðveld-
anna em famar að gera ráðstafan-
ir til undirbúnings því að herlög
verði sett í löndum þeirra og völd-
in tekín af stjómum þeirra og færð
í hendur sovéska forsetaembætt-
isins. Lettar og Litháar gmna sov-
éska herinn í löndum sínum um
ögranir, í þeim tilgangi að fá át-
yllu til að gera ráðstafanir „til að
koma á reglu.“ Sprengingar hafa
orðið á ýmsum stöðum í Lettlandi
síðustu daga, sem þarlandsmenn
gmna sovéska herinn um að vera
valdan að, og í hafnarborginni
Klajpeda (áður Memel) í Litháen
hefúr sovéski herinn hert eftirlit
við höfnina með óbreyttum borg-
urum. Segja talsmenn hersins það
gert af tilefni barsmíða sem her-
menn hafi sætt. Lögregla í Klajp-
eda segist ekkert hafa af slíkum
slagsmálum frétt. Reuter/-dþ.
Sovéskir hermenn
Þjóðernishatur brýst fram
Rúmlega 20 sovéskir her-
menn særðust og slösuðust
er til illinda kom á milli þeirra á
miðvikudag í bænum Tsjop, í
Úkraínu skammt frá landa-
mærum Ungverjalands. Er svo
að heyra á fréttum að menn hafí
skipst þar í lið eftir þjóðernum.
Að sögn hinnar óháðu sov-
ésku fréttastofu Interfax áttust
menn fyrst við með hnúum og
hnefum en gripu síðan til skot-
vopna. Tassfréttastofan segir að
hermenn þeir, sem tóku þátt í il-
lindunum, séu Armenar, Aserar,
Usbekar, Tjekkenar og Túrkmen-
ar. Ekki kemur fram í fréttum af
þessu hvert tilefnið hafi verið.
Ospektimar virðast hafa að
einhveiju leyti snúist upp í uppþot
gegn liðsforingjum og hemum
sem slíkum, því að ráðist var á
vopnabúr og varðskýli. Herfor-
ingjar, sem komu á vettvang og
reyndu að stilla til friðar, urðu
einnig fyrir árásum. Varðmenn,
sem reyndu að stöðva óeirðimar,
skutu í fætur mönnum.
Um 100 hermenn tóku þátt í
óeirðunum, að sögn Interfax, og
yfir 90 notuðu tækifærið, meðan
allt var í uppnámi, til að strjúka.
Um 40 þeirra náðust fljótt.
Undanfarið hafa borist fregnir
af vaxandi spennu í sovéska hem-
um milli liðsmanna af ýmsum
þjóðum, auk þess sem hermenn af
minni þjóðum kvarta um hrotta-
skap og móðganir af hálfú yfir-
manna. Reuter/-dþ.
Kosið um sjálfstæði
Þjóðaratkvæðagreiðsla fer
fram i Slóveníu á morgun og
verður kosið um það, hvort lýð-
veldið eigi að verða „sjálfstætt og
fúllvalda ríki“ eður ei. Forsætis-
ráð Júgóslavíu mótmælir at-
kvæðagreiðslunni harðlega og
segir hana jafngilda úrsögn Sló-
veníu úr júgóslavneska sam-
bandsríkinu.
Fallinna minnst
Tugþúsundir Rúmena minnt-
ust á fjöldafúndum í gær landa
sinna, sem létu lifið fyrir ári er
Ceausescu einræðisherra var
steypt af stóli. Talið er að yfir eitt
þúsund manns hafi verið drepnir í
þeim átökum.
Samkvæmt fyrstu fréttum af
þeim höfðu miklu fleiri verið
drepnir.
Laugardagur 22. desember 1990 ÞJÓÐVILJINN — SlÐA 7
TILVALIN
JÓLAGJÖF
Handunnar rauðviðar-
klukkur frá Kalifomíu.
Margar gerðir.
Verð kr. 5.500 til 10.500
Mjög sérstök sófaborð úr
eikarrót og rauðviðarrót.
Gler- eða viðarplötur.
Vallnísgip
Ármúla 8, símar 8-22-75 og 68-53-75
’i______________________