Þjóðviljinn - 22.02.1991, Blaðsíða 5
TTT^CTPTTT^ A CTTT>TilrT,,rrTT>
Jn vJÍ3 A U UjtIl Jjríi-r TvJtL JL JL JLJbv
Ríkið. BSRB/Kl
Batanum skilað
r
0,3% umfram þjóðarsátt. Olafur Ragnar Grímsson: Verið að skila viðskiptakjara-
batanum til launafólks. Ögmundur Jónasson: Grundvallaratriði sem okkur er full al-
vara að standa á. Ragna Bergmann: Varð hissa á þessu
Fjármáiaráðuneytið og
launanefndir BSRB og
Kennarasambands íslands hafa
komist að þeirri niðurstððu að
vegna bættra viðskiptakjara
eigi laun félagsmanna að hækka
um 2,8 prósent hinn 1. mars en
ekki um 2,5 prósent einsog gert
var ráð fyrir í samkomulagi um
framhald þjóðarsáttar frá því í
nóvember s.l. Viðskiptakjðrin
verða kðnnuð aftur í maí.
Ólafur Ragnar Grímsson íjár-
málaráðherra sagði, þegar hann
kynnti þessa niðurstöðu, að verið
væri að skila viðskiptakjarabatan-
um til launafólks og væri það í
anda þjóðarsáttar. „Það er stað-
festur sá skilningur að þjóðarsátt-
arsamningamir fela i sér að sam-
eiginlegur ávinningur okkar getur
nýst öllu launafólki. Ásamt þróun
verðlags síðustu mánaða felur
þessi ákvörðun nú í sér að kaup-
máttur er u.þ.b. tæpu prósenti
meiri en reiknað var með í þjóðar-
sáttarsamningunum," sagði Ólaf-
ur og bætti við að launafólk gæti
treyst því að fá sinn hluta af við-
skiptakjarabatanum. Hann sagði
að þessi 0,3 prósent væru hrein
kaupmáttaraukning.
Launanefndir ASÍ komust að
þeirri niðurstöðu íyrir stuttu að
Ólafur Ragnar Grlmsson fjármálaráðherra kynnir blaðamönnum samkomulag fjármálaráðuneytisins og launa-
nefnda BSRB og K( um að laun hækki um 2,8 prósent I stað 2,5 prósenta 1. mars.
ekki væri um marktæka aukningu
á viðskiptakjarabatanum að ræða
og sagði Ragna Bergmann, annar
varaforseti ASI, að þessi niður-
staða fjármálaráðuneytisins og
Loðnubresturinn
Nýjar tillögur
Breytingartillögur vœntanlegar við frumvarp
sjávarútvegsráðherra um ráðstafanir vegna
aflabrests í loðnuveiðum
Tveir þingmenn úr sjávarút-
vegsnefnd efri deildar, sem
mótfallnir eru frumvarpi Hall-
dórs Ásgrímssonar sjávarút-
vegsráðherra um ráðstafanir
vegna aflabrests í loðnuveiðum,
eru að vinna að breytingartil-
lögum við frumvarpið.
Skúli Alexandersson, Abl., og
Karvel Pálmason, Alfl., hyggjast
leggja til að stofnuð verði deild
innan Hagræðingarsjóðs sjávarút-
vegsins sem nefnist Viðlagasjóð-
ur loðnuútgerðarinnar. Þing-
mennimir hafa gagnrýnt að Hall-
dór hyggist nota Hagræðingar-
sjóð til að aðstoða útgerð loðnu-
skipa en ekki byggðarlög, einsog
upphaflega hugmyndin með
sjóðnum var.
Hlutverk Viðlagasjóðsins á að
vera að bæta afkomu loðnuút-
gerðar vegna aflabrests, verð-
hruns á afurðum og þess háttar
áfalla. Lagt er til að útgerðir
loðnuveiðiskipa greiði eitt pró-
sent af aflaverðmæti í sjóðinn.
Þá leggja þeir til að ríkissjóð-
ur ábyrgist lán þessa sjóðs upp á
jafhvirði 8.000 þorskígildistonna
en það er það magn sem upphaf-
lega frumvarpið gerði ráð fyrir að
úthlutað yrði úr Hagræðingar-
sjóði til loðnuskipanna. Þetta fé
verði þá notað til að lána loðnuút-
gerðunum nú vegna aflabrestsins.
Þá leggja þeir einnig til að
aflaheimildum Hagræðingarsjóðs
verði varið til eflingar fískvinnslu
í byggðarlögum sem standi höll-
um fæti.
-gpm
launanefhda BSRB og KI hefði
komið sér á óvart. Hinsvegar fær
launafólk í ASÍ sömu hækkun
vegna ákvæða í þjóðarsáttar-;
samningunum, enda mun ASI
skrifa VSI bréf strax í dag þar sem
farið verður fram á sömu hækkun.
Sama gildir um önnur samtök
launafólks.
Ögmundur Jónasson, formað-
ur BSRB, sagði að þessi niður-
staða væri vegna breytinga sem
gerðir voru á kjarasamningum í
nóvember, þegar þeir voru fram-
lengdir, þar sem kveðið var á um
að viðskiptakjarabati umfram for-
sendur samninga yrði látinn renna
til launafólks. Hann benti á að
þetta væri að skila sér núna. Að-
spurður hvort 0,3 prósent breyttu
miklu í launaumslögum fólks
sagði hann að það tæki því alltaf
að standa á grundvallaratriðum
sem þessum og að BSRB hefði
verið full alvara með þeim breyt-
ingum sem gerðar voru á kjara-
samningum í haust.
Ólafur Ragnar benti á að
menn væru ekki vanir að hugsa í
lágum tölum hér á landi. Miðað
við síðustu mælingu á lánskjara-
vísitölunni er árshraði verðbólg-
unnar um þessar mundir 2,4 pró-
sent. Hann sagði að ef verðbólgan
væri 30 prósent þá jafngilti þessi
0,3 prósenta hækkun fjögurra pró-
senta hækkun og öll hækkunin
jafngilti þá 35 prósenta kaup-
hækkun.
Samkvæmt heimildum Þjóð-
viljans mun VSÍ haf gert hvað það
gat til að reyna að stöðva þetta
samkomulag, sérstaklega þar sem
launaneiiidir ASÍ höfðu komist að
þeirri niðurstöðu að ekki væri
marktæk aukning á viðskiptakjar-
abatanum.
-gpm
Smábátar
Kvótinn
í vikunni
I þessari viku mun sjávarút-
vegsráðuneytið senda veiðileyfi
til rúmlega tvö þúsund eigenda
smábáta minni en tíu tonna, sem
hafa gilt haffærnisskirteini.
Ráðuneytið mun þó ekki birta
niðurstöður um kvótaúthlutun til
einstakra báta fyrr en sérstök
skýrsla hefur verið lögð fram um
málið á Alþingi. Upphaflega stóð
til að veiðileyfin yrðu send út til
viðkomandi í lok síðasta mánaðar,
en kæruffestur vegna tilraunaút-
hlutunarinnar fyrr í vetur var til 14.
desember síðastliðins. Að mati
ráðuneytisins er ástæðan fyrir þess-
ari töf sá mikli fjöldi athugasemda
sem eigendur þessara báta gerðu
við tilraunaúthlutunina. Eigendur
þeirra báta sem ekki fá send veiði-
leyfi nú þurfa að leggja fram gilt
haffæmisskírteini áður en leyfi
verður gefið út.
__________________=SE5
Menningarverðlaun DV
Fríðafær
aftur
verðlaun
Menningarverðlaun DV voru
veitt í gær og fékk Fríða Á. Sig-
urðardóttir verðlaun í bók-
menntum fyrir skáldsögu sína
„Meðan nóttin líður“. Einsog
kunnugt er hlaut Fríða einnig
bókmenntaverðlaun Félags ís-
lenskra bókaútgefenda.
Aðrir verðlaunahafar menning-
arverðlauna DV í ár eru Kristinn E.
Hrafnsson myndlistarmaður, Guð-
ný Guðmundsdóttir fiðluleikari,
konsertmeistari Sinfóníuhljóm-
sveitarinnar, Hrafhhildur Hagalín
Guðmundsdóttir leikritahöfundur,
Láras Ymir Oskarsson kvikmynda-
leikstjóri, Guðmundur Jónsson
arkitekt og Guðrún Gunnarsdóttir
vefari og myndlistarkona. Verð-
launin voru afhent í hádegisverðar-
boði á Hótel Holti í gær.
-Sáf
Bœkur
Bókamarkaður í 30
Z gær hófst bókamarkaður Fé-
| lags íslenskra bókaútgefenda
í Kringlunni.
Fjölmargir bókamarkaðir hafa
verið haldnir ffá áramótum en
þetta er „hinn eini sanni“, eins og
bókaútgefendur kalla hann, og
var hann fyrst haldinn í Lista-
mannaskálanum árið 1961.
Á markaðinum geta aflögu-
færir menn gert ágætiskaup á nýj-
um og gömlum bókum. Ódýrasta
bókin kostar 35 krónur; ekki
fylgdi þó sögunni hvaða merkisrit
það er. Meðalverð bóka mun vera
240 krónur, þá er einnig boðið
upp á bókapakka af ýmsum
stærðum og gerðum. BE
Föstudagur 22. febrúar 1991 NÝTT HELGARBLAÐ — SÍÐA 5
Réttargeðdeild
Taki til starfa hið fyrsta
Guðmundur Bjarnason: Legg áherslu á að deildin taki til starfa hið
jyrsta og fullvissa menn um að ekki þurfi að biða í heilt ár
Komið verður á fót réttargeð-
deild er getur hýst 8-10 geð-
sjúka afbrotamenn innan
skamms og fljótlega verður
gengið frá ráðningu yfírlæknis
á deildinni. Þetta kom fram hjá
Guðmundi Bjarnasyni heil-
brigðisráðherra við utandag-
skrárumræður í Sameinuðu
þingi í gær um málefni geð-
sjúkra sem Guðrún Helgadóttir,
Abl., bað um.
Guðmundur sagði að mál geð-
sjúkra afbrotamanna hefðu að
undanfomu tekið stakkaskiptum
og að skriður hefði komist á mál-
ið, en hann tók fram að málið
fram að þessu væri ekki til sóma.
Málefhi geðsjúkra afbrota-
manna hafa lent í togstreitu milli
heilbrigðisráðuneytis og dóms-
málaráðuneytis sem hvorugt hefur
viljað bera ábyrgð á þessum mál-
um. En nú hafa ráðuneytin komið
sér saman og var skilað áfanga-
skýrslu starfshóps í desember s.l.
Eftir það var aflað fjármagns á
fjárlögum og heimildar til að
kaupa hús undir starfsemina, og
fljótlega verður ráðinn yfirlæknir
sem er réttargeðlæknir.
Guðmundur sagði að hlutverk
réttargeðdeildarinnar ætti að vera
þríþætt, þ.e. að vista þá sem
dæmdir eru ósakhæfir, í öðru lagi
að annast geðlæknisþjónustu í
fangelsum landsins og í þriðja lagi
að framkvæma rannsóknir á þeim
sem hefur verið gert að sæta geð-
rannsókn.
Guðrún sagði að vissulega
væri gleðilegt að lausn geðsjúkra
afbrotamanna væri í sjónmáli, en
hún gagnrýndi að enn væri verið
að senda menn til vistunar í Sví-
þjóð. í máli ráðherra kom ffam að
tveir Islendingar væru vistaðir á
réttargeðdeild í Svíþjóð og að
einn væri á leið þangað, en hann
vonaðist til að sá yrði sá síðasti.
Oli Þ. Guðbjartsson dóms-
málaráðherra sagði að náðst hefði
samkomulag tveggja ráðuneyta í
þessu máli sem tryggði framgang
málsins á næstu dögum. Hann
benti þó á, að um stærri hóp væri
að ræða sem ætti i vandræðum.
Og bentu þeir þingmenn sem til
máls tóku einnig á þetta, t.d. hóp
fólks sem samfélaginu stæði ekki
ógn af, en ætti hvergi heima í
kerfinu. Guðmundur benti á að
hugsanlega hefði félagsþjónusta í
landinu ekki tekið við þessu fólki
sem skyldi.
-gpm