Þjóðviljinn - 22.02.1991, Blaðsíða 14

Þjóðviljinn - 22.02.1991, Blaðsíða 14
„Upplýsingin á lslandi“ Ir sagnfræðinni hafa hin ýmsu tímabii íslandssögunnar feng- ið nokkuð misjafna meðferð: hafa sumum verið gerð allgóð skii eft- ir atvikum en um önnur hefur minna verið fjallað, og auk þess eru það ekki sömu þættir þjóðlífs- ins sem menn hafa iagt áherslu á að rannsaka á hinum ólíku tímum í sögu landsins. Þessi mismunur stafar vitanlega að verulegu ieyti af því hvers konar heimildir eru til um hvem tíma og hvað það er sem kemur fyrst og fremst fram í þeim, en að mér hefur þó stund- um sótt sá grunur, að sitthvað íleira búi hér undir og kunni þetta ástand að einhveiju leyti að tengj- ast þeirri sérstöku tilvistarkreppu sem íslenskir sagnfræðingar hafa lengi verið í. Það er ekki aðeins svo, að alls kyns fræðimenn aðrir, eldfjalla- fræðingar og fleiri, hafa ásæist sum þau svið sem í öðrum lönd- um eru gjaman talin tilheyra sagnfræði - og náð þar umtals- verðum árangri - heldur hafa annarleg viðhorf af margvíslegu tagi, þ.e.a.s. viðhorf sem ættuð em úr öðmm fræðigreinum eða þá úr gamalli og nýrri stjómmáia- þróun, verið ríkjandi og þrengt sér inn í sagnfræðina. Er þjóðem- isrómatík tengd bókmenntunum eitt af því, en fleiri mætti nefna. Sagnfræðingar hafa því átt erfitt með að hasla sér vöil og vinna sínum sérstöku viðhorfum og efn- istökum brautargengi, og er þessi vamarstaða þeirra - og tilraunir þeirra til að losna úr henni eða komast hjá henni - kannske mik- ilvæg ástæða fyrir verkefnavali þeirra. Tímanna tákn Hægt hefur verið að greina ýmis merki um það á síðari ámm að þetta ástand sé smám saman að breytast, og má þar telja ný rann- sóknarsvið og viðleitni til endur- skoðunar á kenningum fyrri sagn- fræðinga. Vafalaust má telja að ritgerðasafn það um „upplýsing- una á íslandi" sem kom út rétt fyrir jólin sé einnig tímanna tákn af svipuðu tagi: það fýllir upp í tilfinningalega eyðu, því þar er reynt að gefa nokkra heildarmynd af tímabili lslandssögunnar sem lítið hefur verið fjaliað um frá breiðu sjónarhomi, og jafnframt er leitast við að endurmeta fyrir- bæri sem hefur gjaman fengið heldur slæman dóm í sögunni - með réttu eða röngu, en allavega út frá forsendum sem ekki er lengur hægt að samþykkja fyrir- varalaust nú á dögum. I safninu em tíu ritgerðir eftir níu höfunda, og er þeim skipað á þann hátt, að fyrst skrifar ritstjór- inn, Ingi Sigurðsson, almennt yf- irlit yfir „upplýsinguna og áhrif hennar á íslandi", því næst em þrjár ritgerðir um áhrif upplýs- ingastefnunnar á stjómsýslu, refsilöggjöf og réttarfar og at- vinnumál. Og loks em sex rit- gerðir um kraftbirtingu stefnunn- ar á hinum ýmsu sviðum hug- mynda og menningarmála. Leiðir af hiutarins eðli að þær em kjami ritsins: á eftir almennri ritgerð um guðfræði og trúarlíf koma tvær ritgerðir um gmndvöll mennta- mála á þessum tíma, fræðslumál og útgáfustarfsemi fræðafélaga, og svo er sagt frá affakstrinum á þremur sviðum, í bókmenntum, sagnfræði og náttúruvísindum. Eins og sjá má spannar þetta yfir- lit um upplýsingatímann mjög viða yfir og em ritgerðimar tíu sérlega góður leiðarvisir yfir hin- ar ýmsu hliðar hennar, sem les- fari að vemlegu leyti eftir þessum reglum, hvemig sú mynd er sem fræðimenn draga upp af fortíðinni - hvað er með í henni og hvað ekki, og hvemig áherslumar em. Mér virðast þessar tíu ritgerð- ir sem em i safninu fylgja nokkuð rækilega þeim reglum sem nú em gildandi - og ryðja sér reyndar æ meira til rúms - í þeim ritsmíðum sem eiga að vera fræðilegar og höfundar ætlast til að séu teknar alvarlega sem slíkar. Getur glögg- ur lesandi greint efnistökin og stílbrögðin, þótt það sé kannske ekki einfalt mál að fara í saumana andinn getur notað til að þræða sig áfram. „Skúffuaðferðin“ Þetta er vitanlega mikils virði. En að svo mæltu er það samt ómaksins vert að huga nánar að því hvemig hægt er að með- höndla verkefnið í ritgerðum eins og þessum og að hve miklu leyti þær geti stuðlað að því að sagn- fræðingar nái að hasla sér völl, þannig að þeir geti jafnvel boðið eldfjallafræðingum byrginn á sínu sviði. Fræðimenn hafa gjama skilgreint nákvæmlega alls kyns heimildir um fyrri tíma og lýst þeim reglum sem þær byggj- ast á, en þeir hafa hins vegar minna reynt að gera grein fyrir reglum þeirrar bókmenntagreinar sem þeir stunda sjálfir, sem sé fræðilegum ritsmíðum. Það er þó nauðsynlcgt, því segja má að það á þeim í smáatriðum. Þegar á heildina er litið má samt segja, að þessi vinnubrögð komi fyrst fram í því, hvemig viðfangsefni hinna ýmsu ritgerða eru skilgreind: er eins og þar sé farið eftir einhverj- um almennum „spumingalista" og gæti ég trúað því að undir sams konar kaflafyrirsögnum væri á svipaðan hátt hægt að lýsa áhrifum upplýsingastefnunnar í nánast hvaða landi sem væri. Rammi af þessu tagi, sem stund- um hefur verið kallaður „skúffú- aðferð“ því hvert svið er kirfilega geymt í sinni skúffú, er vafalaust nauðsynlegur þegar margir höf- undar eiga hlut að máli og skrifar hver um sitt sérsvið, en hann er ákaflega óþjáll, því ekki er hægt að ganga út frá því fýrirfram að þessi svið sem þama eru sett upp hlið við hlið séu í raun og vem hliðstæð: að áhrif upplýsinga- "Drjúgur áfangi, en stór hluti af starfinu er óunninn enn," segir Einar Már Jónsson um ritgerðasafn um upplýsinguna, sem gefíð er út af Inga Sigurðssyni stefnunnar t.d. á atvinnuvegi og guðffæði séu þannig sambærileg eða eðlislík að umfjöllun um þetta tvennt geti orðið hluti af ein- hverri heildarmynd. Það er heldur ekki hægt að tryggja að með slíkri efnisskipan verði ekki eitthvað útundan sem tilheyrir ekki neinu ákveðnu sviði og fellur því ekki undir einhvem almennan „spum- ingalista“ en skiptir þó máli fýrir viðtökur upplýsingastefnunnar á íslandi: þeirri spumingu er sem sé látið ósvarað hvort ekki hefði ver- ið hægt að greina efnið á annan hátt og draga fram aðrar línur sem skiptu kannske jafn miklu máli eða meira. Flæðilegt hringsól í hinum einstöku ritgerðum koma þessi ffæðilegu vinnubrögð m.a. fram á þann hátt, að allar skilgreiningar em á sínum stað, jafnvel þótt þær gætu virst óþarfi og hafi gjaman í for með sér þunglamalegar endurtekningar, gjaman er tekið rækilega fram í byrjun ritgerðar um hvað verði fjallað og í hvaða röð og fram- vinda efnisins er undirstrikuð vendilega, eins og vera myndi í sinfóníu ef pákuhögg kæmi í hvert skipti sem nýtt stef hefst eða úrvinnsla (t.d. „þessi þáttur verð- ur ekki rakinn lengra hér, en í þess stað tekið til við að gera grein fýrir áhrifum upplýsingar- innar á...“ eða „nú skal fjallað um það svið fýrir svið, að hvaða marki einkenna upplýsingasagn- fræði gætti í islenskri sagnaritun fram á fjórða tug 19. aldar“). Svo ber víða á tilhneigingu til að fara á einhvem kerfisbundinn hátt yfir allt rannsóknarsvið viðkomandi ritgerðar, eins og enn sé fýlgt ein- hverjum spumingalista, og drepa þá jafnt á atriði sem skipta máli og önnur sem em harla lítilvæg eða í litlum tengslum við aðalefh- ið. Efnistök af þessu tagi em við- sjárverð, því ef ekki er að gáð leiða þau út í höggormsvinnu- brögðin sem menn kannast við: í fúllkomnu yfirlitsriti um ísland verður að vera kafli um höggorm- ana á landinu þótt í honum séu aðeins sex orð („there are no snakes in Iceland"). í ritgerða- safninu kemur aðferðin gjaman fram á þann hátt að fýrst er dregin upp einfold mynd af hugmyndum erlendra upplýsingamanna um ákveðið efni eða gerðir þeirra á ákveðnu sviði og svo er farið yfir sama svið á Islandi, í tímaröð eða einhverri rökréttri röð, og leitað að því hvort einhver áhrif upplýs- ingarinnar komi þar fram eða ekki. Tilhneigingin til að taka alla þætti með getur stöku sinnum leitt út í undarlegt en marklítið fræðilegt hringsól: „Þegar leitað er skýringa á áhrifum upplýsingarinnar á ís- landi, ráðst efnistök höfúnda tölu- vert af því, hvort þeir álíta það meira frávik frá því, sem eðlilegt má telja, að áhrif upplýsingarinn- ar hafi verið mikil eða lítil. Er það undmnarefni, að upplýsingin skuli yfirleitt hafa hafí nokkur áhrif á Istandi, eða sætir það furðu, að hún skyldi ekki fá meiri útbreiðslu? Þannig mætti reifa þetta mál með tvennu móti. Hér \* 14 SÍÐA — NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 22. febrúar 1991

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.