Þjóðviljinn - 22.02.1991, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 22.02.1991, Blaðsíða 10
; ! : ' í > . ’ i Þeir eru ekki beint árennilegir ruðningsstrákamir í Stjörnunni þar sem þeir hvessa augun hver á annan og bíða eftir að leikurinn heflist. Myndir: Kristinn. Ruðnineur í Garðabæ Átök, læti og stimpingar Ungir strákar á kafí í Ameríska fótboltanum á höfuðborgarsvæðinu. Vel varðir í rándýrum búningum sem kosta 30 þúsund krónur vegna hárra tolla „Þessi íþrótt höfðar fyrst og fremst til stráka. Það er mikið um átök ýmis konar, slagsmál, læti og stimpingar, en þó er ekki mikið um meiðsli þar sem strákarnir eru vel varðir," segir Daði Guðmundsson forvígis- maður að iðkun þessarar karla- íþróttar í Garðabænum. A síðustu árum hefur iðkun hins svokallaða Ruðnings, sem er íslenska heitið yfir Ameríska fót- boltann, rutt sér til rúms hér á landi, en þó einkum á höfuðborg- arsvæðinu. Til þessa eru það að- eins þijú lið sem æfa og keppa innbyrðis í íþróttinni; Stjaman i Garðabæ, Breiðablik í Kópavogi og Fjölnir í Grafarvogi. Ruðningsdeildin innan Stjömunnar var stofnuð um mitt síðasta sumar, en var þó búin að starfa áður í eitt ár. Ástæða þess að ungir Garðbæingar fóra að gefa raðningnum gaum vora sýn- ingar frá leikjum í bandarísku deildinni á Stöð 2, auk þess sem Daði fékk „delluna" þegar hann var skipinemi í Utha-fylki í Bandaríkjunum hér um árið. Rándýrir búningar Eins og sjá má á myndunum íklæðast strákamir mikilfengleg- um búningum. Á höfði bera þeir hjálm með hlífðargrind til að verja andlitið, axlarbrynju og margskonar hlífar svo sem hliðar- , hné- og lærhlífar. Því til viðbótar nota sumir rifjahlíf til vemdar brjóstkassanum og hitahlíf á höndum. Svona alhliða búingur kostar allt að 30 þúsund krónur, en Daði fullyrðir að allt að helm- ingur af verðinu sé vegna hárra tolla. í hveiju liði era ellefu menn, og þegar flautað er til leiks reynir sóknin að koma boltanum í mark andstæðingsins. Það lið sem er með boltann fær fjórar tilraunir fyrir hverja tíu metra að marki andstæðingisins, og ef það tekst ekki fær vömin boltann. Ef liðinu tekst hinsvegar að komast þessa tíu metra fá þeir endurtekningu til að komast sem næst marki and- stæðingsins. En að sjálfsögðu stefnir hvert lið að því að skora mark í fyrstu tilraun. Stigagjöfin er þannig að sex stig eru gefin fyr- ir snertimark og eitt aukastig ef liðið nær að sparka boltanum á milli markstanganna og fær því sjö stig. Snertimark fæst þegar liðsmaður nær að hlaupa með boltann á endasvæði andstæð- ingsins. Galdurinn við að ná ár- angri er að viðkomandi lið hafi sterka línumenn, sprettharða hlaupra og útheija, en síðast en ekki síst útsjónarsaman stjóm- anda. í raðningsliði Stjömunnar era Sóknin gengur ekki alltaf upp eins og I þessu tilfelli þegar mótherjamir ná að stöðva andstæðinginn sem missir boltann fyrir vikið. strákamir á aldrinum sautján til tuttugu og fjögurra ára gamlir. Til þessa hafa þeir aðeins einu sinni spilað alvöraleik og það var á Íþróttahátíð ÍSÍ í fyrrasumar og þá dæmdu bandarískir dómarar frá herstöðinni á Miðnesheiði. Engu að síður er hugur í strákun- um sem stefna að því að leika fleiri alvöraleiki í sumar og fá þá jafnvel einhver fyrirtæki til að styðja sig. Erlendis er mikill áhugi á þessari íþrótt og þá ekki aðeins í Bandaríkjunum, heldur og einnig í Evrópu. Athygli vakti að allar fyrirskipanir sem gefnar vora á æfingu hjá ruðningsliði Stjöm- unnar vora á ensku. -grh Hefann, og slðan er sprett úr spori I átt að marki andstæðingsins. 10.SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 22. febrúar 1991

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.