Þjóðviljinn - 22.02.1991, Blaðsíða 8
Njrr
þJÓÐVILIINN
Útgefandi: Útgáfufélagið Bjarki h.f Framkvasmdastjóri: Hallur Páll Jónsaon Ritatjórar: Árni Bergmann, Ólafur H. Torfason, Helgi Guðmundsaon Umsjónarmaður Helgarblads: Ragnar Kartsson Afgrelð Auglysi Simfax: Verð:1E Setnlng íla: w 68 13 ngadeild:» 68 19 35 >0 krónur 1 la og umbrot: 68 13 10 - 68 13 31 jsasölu Prentsmiðja Pjóðvíljans hf.
Fréttastjórl: SígurðurÁ. Friðþjófsson Auglýsingasfjóri: Steinar Haröarson Prontun Aósetui : Oddi hf. •: Síöumúla 2 7, 108 Reykjavfk
Málgagn sósíalisma, verkalýðshreyfingar og þjóðfrelsis
Kaupmáttaraukning
Þegar sú staðreynd er nú Ijós orðin, að
kaupmáttur í landinu verður tæpu 1%
meiri en gert var ráð fyrir í síðustu samn-
ingum, rifjast það óhjákvæmilega upp,
hve mikil breyting hefur orðið á hugarfari
fólks gagnvart prósentutölum vinnumark-
aðarins miðað við það sem hér hefur
lengstum tíðkast. Það segir sína sögu, að
4-5% launahækkun í 30% verðbólgu jafn-
gildir því, í því þjóðfélagi stöðugleikans
sem Islendingar búa í núna, að laun
hækki um 0,3%.
Menn muna enn vel þá óreglutíma víxl-
hækkana kaupgjalds og verðlags, sem
ollu því að launamenn á íslandi gátu
sjaldnast verið óhultir stundinni lengur um
nokkurn raunverulegan kaupmátt, þrátt
fyrir margra prósenta kauphækkanir í
samningum. Óstöðugleiki íslensks efna-
hagslífs gerði mönnum bæði erfitt um
raunsætt mat á hagrænum stærðum líð-
andi stundar sem og að gera raunhæfar
áaetlanir.
í þeirri þjóðfélagslegu tilraun, sem
langstærstur hluti launamanna í landinu
féllst á að taka þátt í fyrir rúmu ári með
samþykkt febrúarsamninganna, var ekki
gert ráð fyrir miklum kjarabótum á samn-
ingstímanum, heldur horfst í augu við ytri
skilyrði þjóðarbúsins og þess freistað
sameiginlega að treysta stöðugleika, með
framtíðarsókn í huga. Sumir telja sig nú
hins vegar hafa efni á því að gera lítið úr
þeim árangri og þeirri viðspyrnu sem
fengist hefur í efnahagslífinu, og ganga
jafnvel svo langt að telja samstöðuna
sem felst í orðinu „þjóðarsátt“ ættaða úr
félagshugmyndum fasista. Öllum ætti þó
að vera Ijóst, að um tímabundnar aðgerð-
ir er að ræða, beiska lækningu.
Nú hefur komið á daginn, að mati fjár-
málaráðuneytis og launanefnda BSRB og
KÍ, að viðskiptakjarabatinn hefur verið
umfram þær forsendur sem gert var ráð
fyrir í febrúarsamningunum.
í gær náðu þessir aðilar samkomulagi
um það hvernig skila eigi áhrifunum af
viðskiptakjarabatanum inn á launamark-
aðinn. Sé þróun verðlags undanfarna
mánuði metin inn í myndina, kemur í Ijós
að kaupmáttaraukningin verður nú um
1%. Þótt 0,3% kauphækkun hefði varla
þótt mikið fréttaefni innan verkalýðshreyf-
ingar á tímum óðaverðbólgunnar, skiptir
hún máli þegar árshraði verðbólgu er
2,4% eins og um þessar mundir.
Þótt aðstæður til mikilla almennra
kjarabóta næstu misseri séu enn ekki
Ijósar, er mikið verk að vinna á leiðinni til
meiri jafnaðar og almennari velferðar, þar
sem minnstu bræðrunum og systrunum
er ekki gleymt. Hrá meðaltöl eru ekki sá
mælikvarði sem unnt er að fara eftir. Ýms-
um hefur orðið tíðrætt um grundvallarat-
riði í stjórnmálum og á vinnumarkaði og
talið efni til að gagnrýna ráðherra og
stjórnvöld fyrir hentistefnu af ýmsu tagi.
Ögmundur Jónasson lagði réttilega
áherslu á það, að hlutdeild launamanna í
bættum viðskiptakjörum, þótt ekki næmi
hárri prósentutölu að þessu sinni, væri
þess háttar grundvallaratriði sem öllu
skipti að menn berðust fyrir. Samkomulag
fjármálaráðherra við launamenn í gærdag
er sýnishom af þeim áföngum sem náðst
geta við slík skilyrði.
ÓHT
ÞID SVNÍB YKKUR B\CÁB >\Ð
A HÆTTIX AEiVERíAÝEÍDDAR.TEKNA^
.„ÖÖ 5RÆDDAR \ JVfcjÖU/FKYSTAR
. UFAND\ EEA HRO(SN\\N KKAMÍN ÚR
VKKVRl t^A EK NU SKA^A AD
Horskínum AD BRAÐ.;
c?
o
o
8 SÍÐA — NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 22. febrúar 1991