Þjóðviljinn - 22.02.1991, Blaðsíða 18

Þjóðviljinn - 22.02.1991, Blaðsíða 18
íslendingar sigursælir á NM í skólaskák íslensku piltarnir sem tóku þátt í Norðurlandamótinu í skólaskák sem fram fór í Þórs- höfn í Færeyjum um síðustu helgi voru sigursælir að vanda. Teflt var í fimm aldursflokkum og áttu Islendingar sigurvegara í þrem þeirra. Er vinningar allra keppenda voru lagðir saman voru íslendingar einnig langefstir, hlutu 39 1/2 v. af 60 mögulegum, Norðmenn komu næstir með 33 vinninga, Danir urðu í 3. sæti með 32 1/2 vinn- ing, Svíar fjórðu með 31 vinn- ing, Finnar fimmtu með 30 vinninga og lestina ráku gest- gjafarnir Færeyingar með 13 1/2 vinning, en þeir stilltu í fyrsta sinn upp keppendum í öllum aldursflokkum. Hver þátttökuþjóð átti tvo fulltrúa í þeim fimm aldursflokk- unum, þannig að 12 skákmenn tefldu í hveijum flokki, en tefldar voru sex umferðir eftir Monrad- kerft. I flokki keppenda 10 ára og yngri sigraði Jón V. Gunnarsson, hlaut 5 1/2 vinning, en Bergsteinn Einarsson varð í 4. sæti með 3 1/2 vinning. 1 ílokki 11-12 ára sigraði Amar Gunnarsson með 4 1/2 vinning, en Matthías Kjeld varð í 4. sæti með 4 vinninga. I flokki 13-14 ára varð Helgi Áss Grétarsson hlutskarpastur með 5 1/2 vinning. Magnús Öm Úlfarsson varð í 2. sæti með 4 1/2 vinning. I flokki 15-16 ára varð Ragn- ar Fjalar Sævarsson í 7. sæti með 3 vinninga og Þorleifur Karlsson hlaut einnig 3 vinninga og varð í 8. sæti. Stig vom látin skera úr um röð ef keppendur vom jafnir að vinningum. I þessum flokki sigraði Daninn Steffen Holst með 5 vinninga. í flokki 17-20 ára varð Magn- ús Pálmi Ömólfsson í 4. sæti með 3 1/2 vinning, en Sigurður Daði Sigfússon varð í 7. sæti, hlaut 3 vinninga. Daninn Allan Holst varð efstur með 5 vinninga. Fararstjórar vom þeir Ólafur H. Ólafsson og Ríkharður Sveinsson. Að sögn Rikharðs var aðbúnaður góður, en teflt var í Norræna húsinu í Þórshöfn. Af frammistöðu íslensku pilt- anna má ráða að engu þarf að kvíða um ffamtíð skáklistarinnar hér á landi. Þeir hafa allir fengið góða þjálfún hjá Taflfélagi Reykjavíkur. Héðinn Steingríms- son tók þá stefhu að vera ekki 0-0 eðalO. .. Rh5.) 11. Bg3 Bb4 12. 0-0 g4 13. Rd2 Rd4 14. Ddl Rxe2+ 15. Dxe2 Bxc3 16. bxc3 h5 (Eftir 16. .. Dxc3 17. e5 Rh5 kemst þá ekki hjá liðstapi, og sig- ur Sax í þessari skák hefði gert aðstöðu Kortsnojs í einvíginu af- ar ertiða. Ungverjinn valdi hins- vegar að leika 19. .. Dfxa4 og skákinni lauk með jafntefli stuttu síðar. Eftir jafntefli í áttundu skák- Islensku sigurvegararnir á Norðuriandamótinu ( skák sem lauk I Þórshöfn um siðustu helgi: Arnar Gunnars- son, Jón V. Gunnarsson og Helgi Áss Grétarsson. með i flokki 15-16 ára pilta þar sem hann hefði ömgglega unnið sigur. Svona mót bæta nefnilega litlu við þekkingu þeirra sem þeg- ar hafa tekið út nokkum skák- þroska. Þannig var Helgi Áss Græétarsson í algerum sérflokki í sínum riðli og vann andstæðinga sína næsta auðveldlega. Lítum á eitt dæmið þar um: Helgi Áss Grétarsson - Morten Johansen Nimzoindversk vörn 1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rc3 Bb4 4. Dc2 c5 5. dxc5 Bxc5 6. RG Rc6 7. Bg5 Be7 8. e4 h6 9. Bh4 Da5 10. Be2 g5? (Svartur leggur allt of mikið á stöðuna. Sjálfsagt var 10... 19. Re4 Rxg3 20. fxg3! er svartur glataður, því 21. .. Dxe5 strandar á 21. Rf6+ og vinnur.) 17. e5h4 18. Bf4 Rh5 19. Dxg4 Rxf4 20. Dxf4 Hh5 FANGELSISMÁLASTOFNUN RÍKISINS auglýsir eftir starfskrafti til að annast félagsiega þjónustu við fanga og sjá um eftirlit með þeim, sem dæmdir eru skilorðsbundið, fá skilorðsbundna reynslulausn, náðun eða frestun afplánunar. Æskilegt er að viðkomandi hafi félagsráðgjafamenntun eða sambærilega menntun. Nán- ari upplýsingar eru veittar í síma 623343. Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf, sendist Fangelsismálastofnun ríkisins, Borgartúni 7, 150 Reykjavík, eigi síðar en 1. mars nk. Fangelsismálastofnun ríkisins, 12. febrúar 1991 íbúð óskast Starfsmaður á Þjóðviljanum óskar eftir tveggja til þriggja herbergja íbúð til leigu á Reykjavíkursvæðinu. - Óskar einnig eftir meðleigjanda. Upplýsingar ( síma 681333 á skrifstofutíma. 21. Re4! (Snaggaralegur leikur. 21. Hfel er einnig gott. Nú strandar 21. .. Dxe5 á 22. Rf6+ Ke7 23. Rxh5 og vinnur skiptamun með myljandi stöðu.) 21. .. Hxe5 22. Rd6+ Ke7 23. Hadl f6 24. Dh6 Hh5 25. Dg7+ Kd8 26. Rxc8 - og svartur gafst upp. Enn sterkara var 26. Rxb7+! en þessi dugar einnig. Heilladísirnar á bandi Kortsnojs Kortsnoj - Sax Þessi staða kom upp í sjöundu einvígisskák Viktors Kortsnojs og Guyla Sax í einvígi þeirra í Wijk aan Zee. Sax átti kappnógan tíma og það þarf ekki mjög öflug- an skákmann til að finna vinn- ingsleikinn 19. .. Df5! Hvítur inni vann Kortsnoj hálfgerðan heppnissigur í níundu skákinni sem tefld var með öðru tímafyrir- komulagi, 45 mínútur á 60 leiki. Þeirri tíundu lauk með jafntefli, og Kortsnoj sem verður sextugur á þessu ári heldur áfram. Hann tefldi af mikilli hugmyndauðgi í Wijk aan Zee og aldrei þessu vant komu ekki upp nein vandamál í sambandi við þátttöku hans. Sax hafði hinsvegar allt á homum sér, og kann það að hafa komið hon- um í koll. Á morgun ræðst það hver verður andstæðingur Kortsnojs í næstu hrinu heimsmeistara- keppninnar. Fyrirkomulag drátt- arins sem fer fram í Linares er með þeim hætti að keppendum er skipt í tvo styrkleikaflokka, í efri flokknum em Karpov, Gelfand, Ivantsjúk og Timman. Frágengið er að enginn þeirra teflir innbyrð- is, heldur við einhvem þeirra sem skipa neðri flokkinn: Short, An- and, Jusupov eða Kortsnoj. Taflmennskan í einvígjunum sjö var heldur lakari en búast hefði mátt við, og er dæmið hér að ofan ein sönnun þess. Kannski tefldi Jonathan Speelman bestu skákina þegar hann lagði Short í þriðju viðureign þeirra: Jonathan Speelman - Nigel Short Grúnfelds-vörn 1. d4 Rf6 2. c4 g6 3. Rc3 d5 4. cxd5 Rxd5 5. e4 Rxc3 6. bxc3 Bg7 7. Be3 c5 8. Dd2 (Eftir einvigi Karpovs og Ka- sparovs hefur þetta afbrigði, sem tröllreið skákteóríunni fyrir meira en 10 ámm, aftur komist í tísku.) 8... Da5 9. Hcl cxd4 10. cxd4 Dxd2+ 11. Kxd2 0-0 12. Rf3 Rc6 SKAK 13. Bb5 f5 14. exf5 Bxf5 15. Ke2 (Seirawan hirti peðið þegar við mættumst í Wijk aan Zee, en þær bætur sem svartur fær eftir 15. Bxc6 bxc6 16. Hxc6 FIb8 verða að teljast fúllnægjandi.) 15.. . Hac8 16. Hhdl Rb4 17. Bc4+ Kh8 18. Bb3 Bc2? (Vafasöm ákvörðun.) 19. Bxc2 Rxc2 20. Kd2 Rxe3 21. fxe3 Kg8 22. Kd3 Bf6 23. Ke4 Kf7 24. Re5+ Ke6 25. Rd3 Kd6 26. a4 b6 27. a5! (Þrátt fyrir mikil uppskipti er staða svarts afar erfíð. Riddarinn er mun sterkari en biskupinn i þessari stöðu.) 27.. . Hxcl 28. Hxcl Hb8 29. axb6 axb6 30. Rb4 e6 31. Hc6+ Kd7 32. d5! (Notfærir sér valdleysi bisk- upsins á f6.) 32... He8 33. Hxb6 exd5+ 34. Kd3! Be5 35. h3 Bc7 36. Hf6 He5 37. Hf7+ Kd6 38. Hxh7 Bb6 39. Rc2 He6 40. Hf7 Ke5 41. Rd4 Hf6 42. RD+ Ke6 43. Hg7 Bd8 44. Ke2 - og Short gafst upp. Hann á enga vöm við hótuninni 45. g4 og 46. g5. Sterkasta skák- mót allra tíma að hefjast í Linares Sterkasta skákmót allra tíma hefst í Linares á Spáni i dag. 14 stórmeistarar taka þátt í þessu móti sem verið hefúr árlegur við- burður allt frá 1981. Mótið skart- ar Kasparov og Karpov, en aðrir keppendur em: Gelfand, Ivant- sjúk, Ehlvest, Gurevic, Beljavskí, Salov, Jusupov, Kamsky, Anand, Timman, Ljubojevic og Speel- man. Meðalstig keppenda em 2658 og verður mótið í 17. styrkleika- flokki FIDE. Sá sem þessar línur ritar mun að sjálfsögðu fylgjast með þessari keppni og birtist fyrsta greinin um það næstkom- andi þriðjudag. Heigi Ólafsson 18 SÍÐA — NYTT HELGARBLAÐ Föstudagur 22. febrúar 1991

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.