Þjóðviljinn - 21.03.1991, Qupperneq 1

Þjóðviljinn - 21.03.1991, Qupperneq 1
Flæðilínan gaf svigrúm til launa- hækkana Fiskvinnslufyrirtækið Sæ- fang hf. á Crundarfirði hefur hækkað grunnlaun fisk- vinnslufólksins um 10% og auk þess hækkaði heimalönd- unarálag sjómanna hjá út- gerðarfélaginu Guðmundi Runólfssyni hf. úr 30% í 40% fyrir þorsk og ýsu. Guð- mundur Smári Guðmunds- son, framkvæmdastjóri Sæ- fangs, segir þetta hafa verið mögulegt vegna þeirrar hag- ræðingar sem áunnist hefur með notkun flæðilínu í vinnsl- unni, auk þess sem launa- hækkun sé byggðastefna fyr- irtækisins að hluta til. Guðmundur Smári segir að þessi ákvörðun hafi að sjálf- sögðu mælst vel fyrir hjá starfs- fólkinu, sem er um 55 talsins, en vakið mismikla hrifningu hjá forráðamönnum annarra fískvinnslustöðva. Hann sagði að það væri ekki endalaust hægt að hækka laun til sjó- manna með hækkun á heima- löndunarálagi á meðan fisk- vinnslufólk fengi ekkert nema umsamdar hækkanir samkvæmt þjóðarsátt. Guðmundur Smári sagði ennfremur að launahækk- unin væri jafnffamt verðlaun til starfsmanna fyrir vel unnin störf. Hann sagði að það væru trúlega engar starfsstéttir i þjóðfélaginu sem létu bjóða sér það að vinna á nær berstrípuð- um launatöxtum eins og fisk- vinnslufólki er boðið uppá. Sér- staklega þegar haft er í huga að við vinnu við flæðilínu væru afköst starfsmanna metin tvisv- ar á dag, á fjögurra tíma ffesti. Framkvæmdastjóri Sæfangs sagði að verðmyndunarkerfi sjávarútvegsins væri hrunið, sem sæist best á því hvað fisk- verð er mismunandi eftir fyrir- tækjum og landshlutum. Þá væri jafnframt farið að hrikta í launatöxtum fiskvinnslufólks sem væri orðið langþreytt á að sjá laun sjómanna hækka á meðan það væri skilið eftir. Um tvö ár eru síðan fyrir- tækið tók flæðilínu í notkun í vinnslusalnum, en þrjú ár eru síðan fyrstu frystihúsin tóku upp flæðilínur. I Grundarfirði vinna vel flestir við störf tengd sjávarútvegi og aðeins örfáir við þjónustustörf. Launahækk- anirnar til sjómanna og fisk- vinnslukvennanna eru öðrum þærði hugsaðar til að jafna tekj- ur fólks í þorpinu en einnig ffamkvæmdar til að koma i veg fyrir brottfiutning þess vegna lágra launa. -grh Sex af þeim þingmönnum sem nú hverfa af þingi kveðjast I garði Alþingishússins: Geir Gunnarsson, Matthías Á. Mathiesen, Ragnhildur Helgadóttir, Þorvaldur Garðar Kristjánsson, Karvel Pálmason og Friðjón Þórðarson. Mynd: Kristinn. Arangursríku þingi slitið með sögulegum hrossakaupum Þegar Guðrún Helgadóttir, forseti sameinaðs þings, setti þingfund kl. 10 í gærmorgun voru 5 mál á dagskrá sem vörðuðu öll kosningar í ráð og nefndir. Eiður Guðnason, formaður þingflokks Alþýðuflokksins, kvaddi sér fyrstur hljóðs og bað um frestun á málinu til næsta þings, og sama gerði Friðrik Zophusson, varaformaður Sjálfstæðisflokksins. Greinilegt var að þessi beiðni kom mörgum þingmönnum í opna skjöldu og mótmæltu margir, ekki síst þingkonur Kvennalista, sem töldu að hér væri um „skrumskæl- ingu á lýðræðinu“ að ræða. Var þingfundi tvisvar slitið vegna þessarar þrætu á meðan leitað var sátta um málsmeðferð, en þegar ljóst var að engar sættir næðust í málinu og engar tilnefningar kæmu frá Alþýðufiokki og Sjálf- stæðisflokki í umrædd ráð og nefndir, tók forseti af skarið, frest- aði afgreiðslu og boðaði til hefð- bundins fundar um þinglausnir. Höfðu deilur þessar þá staðið í hálfa aðra klukkustund. í umræðunni ásakaði Hjörleif- ur Guttormsson Sjálfstæðisfiokk- inn fyrir að hafa svikið samkomu- lag við Kvennalista um skipan í ráð og nefndir fyrir áeggjan Al- þýðuflokksins, og mætti þama sjá vísinn að nýju pólitísku samstarfi þessara tveggja fiokka í framtíð- inni. Danfríður Skarphéðinsdóttir staðfesti það svo í samtali við Þjóðviljann, að Kvennalistinn og Sjálfstæðisflokkurinn hefðu verið búin að gera með sér munnlegt samkomulag kvöldið fyrir þing- lausnir, sem fól meðal annars i sér að Kvennalistinn fengi eitt sæti í stjóm Landsvirkjunar. Það hefur síðan gerst í nótt, sagði Danfríður, að Alþýðuflokkurinn og Sjálf- stæðisflokkurinn hafa ákveðið að fresta málinu með þessum hætti til að freista þess að útiloka okkur frá þessari mikilvægu stjóm. En það var að mörgu leyti sögulegt þing sem slitið var laust fyrir hádegið í gær. Ekki síst fyrir athyglisverðan árangur sem náðist í mörgum baráttumálum Alþýðu- bandalagsins. Það var ekki síst Svavar Gestsson menntamálaráðherra sem hrósaði sigri í gær, en mörg af baráttumálum hans náðust í gegn á síðustu dögum þingsins. Má þar nefna ný lög um leikskóla og grunnskóla, sem leggja grunn- inn að nýrri menntastefnu í land- inu, ný lög um listamannalaun, niðurfellingu á virðisaukaskatti á tækjum til vísindarannsókna og síðast en ekki síst samþykkti þing- ið kvöldið fyrir þinglausnir að rík- ið skyldi kaupa stórhýsi Sláturfé- lags Suðurlands undir fyrirhugað- an Listaháskóla íslands, þar sem Tónlistarskólinn, Myndlistarskól- inn, Leiklistarskólinn og fieiri menntastofnanir á sviði lista munu sameinast undir einum hatti. Svavar Gestsson hélt starfs- mönnum ráðuneytis síns smáhóf í gær í tilefhi dagsins og sagði þar að þessir áfangar væru hver fyrir sig stefnumarkandi, ekki síst leik- skólafrumvarpið, en með því væri Island fyrst Norðurlandanna til að gera leikskólann að hluta af hinu almenna menntakerfi. Við þinglausnir í gær kvaddi þingforseti Guðrún Helgadóttir sérstaklega þá þingmenn sem nú hverfa af þingi og sækjast ekki eftir endurkjöri, en þeir eru Ragn- hildur Helgadóttir, Friðjón Þórðar- son, Matthías A. Mathiesen, Geir Gunnarsson og Þorvaldur Garðar Kristjánsson. Einnig hafa þeir Skúli Alexandersson, Karvel Pálmason og Alexander Stefáns- son vikið úr baráttusætum á listum sinna fiokka. Halldór Blöndal talaði við þingslit fyrir hönd þingmanna og notaði tækifærið til að þakka þing- forseta sérstaklega fyrir réttláta fúndarstjóm og þolinmæði í garð þingmanna. Steingrímur Hermannsson sleit síðan þingi fyrir hönd hand- hafa forsetavalds í fjarveru forseta Islands, og rennur umboð Alþing- ismanna út frá og með 20. apríl næstkomandi, þegar kosið verður til þings. -ólg.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.