Þjóðviljinn - 21.03.1991, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 21.03.1991, Blaðsíða 5
Allt íraska Kúrdistan á valdi Kúrda Hörðum bardögum í Kirkuk er nú lokið og þar með hefur allt (íraska) Kúrdist- an verið frelsað," til- kynnti í gær tals- maður Kúrdneska lýðræðis- flokksins í Damaskus, höfuðborg Sýriands. Ekki hafa fréttir af þessum mikla sigri Kúrda borist frá öðrum aðilum, en talsmenn Bandaríkjahers hafa undan- farna daga sagt að Kúrdum veitti betur í bardögum við íraska stjórnarherinn. Samkvæmt fréttunum frá Kúrdum er þetta líklega mesti sig- ur þeirra í öllum þeirra uppreisnum gegn íraksstjóm hingað til. Þær em orðnar margar, því að Kúrdar hafa aldrei ífá því að íraska ríkið var stofiiað sætt sig við að heyra undir það. Á sjöunda áratugnum og framan af þeim áttunda höfðu kúrdneskir uppreisnarmenn lengst af á valdi sínu mestan hluta fjall- lendisins í Norðaustur-írak, en Kirkuk hafa þeir aldrei unnið fyrr en nú. Ur lindum við þá borg kom þriðjungur allrar olíuframleiðslu Iraks áður en Öryggisráð Samein- uðu þjóðanna setti á það viðskipta- bann. Talsmaður Föðurlandsvina- sambandsins, annarra kúrdneskra uppreisnarsamtaka, sagði að upp- reisnarmenn hefðu náð í Kirkuk talsverðu af vopnum, öðrum her- búnaði og nokkrum herþyrlum. Meðal annarra staða í borginni heíðu þeir tekið á vald sitt aðal- stöðvar írösku leyniþjónustunnar þar og aðalstöðvar Baath-flokks- ins, rikisflokks íraks, fyrir Kirkuk og nágrenni. Þeir sem verið hefðu í stöðvum þessum hefðu annaðhvort gefist upp eða verið drepnir. Talsmaður Kúrdneska lýðræð- isflokksins í Damaskus sagði að einu írösku hermennimir í Kirkuk, sem ekki hefðu enn gefist upp, væm í aðalstöðvum fyrstu stór- deildar íraska Iandhersins þar, en stöðvamar væm umkringdar og væri búist við að hermennimir þar myndu fljótlega hætta að veijast. Hundar leggjast á l£k Flóttamenn frá Basra, sem leitað hafa hælis hjá bandarískum hermönn- um í stöðvum þar ekki alllangt sunnar, segja ófagrar sögur af fram- ferði íraska hersins í borginni, sera hann hefur nú að mestu náð úr höndum uppreisnarmanna. „Á hverjum degi koma liðsmenn lýðveldisvarðliðsins með nafna- lista, taka fasta og skjóta þetta 15-20 menn og láta fjölskyldur þeirra horfa á þegar þeir eru drepnir,“ sagði í gær íraskur kennari, sem flúði frá borginni á þriðjudag. „Ég sá mörg lik á götunum og hundar vom að éta þau. Aðstand- endur þora ekki fyrir lýðveldi- svarðliðinu að færa líkin til greftr- unar,“ sagði kennarinn ennfremur. Verkfræðingur sem starfað haföi hjá íraska oliumálaráðuneyt- inu sagðist hafa séð hermenn taka af lífi þijár hjúkrunarkonur við al- Tahrirsjúkrahúsið í Basra eftir að fundist höfðu hjá þeim vopn, sem þær höfðu falið fyrir uppreisnar- menn. Flóttamennimir sögðu að upp- reisnarmenn á vegum sjítasamtaka héldu enn hverfum á bökkum fljótsins Sjatt al-Arab. Þaðan fæm þeir á smábátum til Khorramshahr, borgar i íran hinummegin fljótsins ekki mjög langt frá, og sæktu sér vopn. Áuk þess hefðu þeir talsvert af vopnum sem þeir náðu á lög- reglustöðvum og í aðalstöðvum hersins í Basra skömmu eftir að uppreisnin hófst. Basra er mest borga í Suður-ír- ak og stærst borga landsins næst Bagdað. Aðrir flóttamenn, komnir lengra norðan að, segja að upp- reisnarmenn haldi enn borgunum Samawa og Diwaniya og að nokkm helgu borgunum Najaf og Karbala. Kúvætsk kona, sem var fyrir þremur dögum í síðastnefndu borginni, sagði að þar og í Najaf væri barist allan sólarhringinn. í Karbala verjast uppreisnarmenn, umkringdir af stjómarherflokkum, í helgidómi Husseins ímams (dótt- ursonar Múhameðs spámanns), sem er orðinn illa farinn eftir skot- hríð. „Lýðveldisvarðliðið drepur niður konur og böm eins og sauð- fé,“ sagði kona þessi. „Uppreisnarmenn beija Egypt- ana alveg eins og herinn gerði,“ sagði Egypti nýkominn frá Sama- wa, þar sem hann hafði starfað við sjúkrahús. Talsmenn Bandaríkjahers sögðu í gær að ýmsum veitti betur í bardögunum milli sjíta og stjóm- arhers í Suður-írak og væm sumar borgir þar á valdi stríðsaðila til skiptis. Iraskur hermaður sem ekki átti afturkvæmt frá Kúvæt. Sumir félaga hans, sem heppnari voru, gengu í lið með uppreisnarmönnum [ Basra, aðrir eru önnum kafnir við að drepa borgarbúa niöur. Fjöldanauðganir í Kasmír Allsherjarverkfall var gert í gær í Kasmír, eina fylki Indlands þar sem múslímar em í meirihluta. Boðuðu íslömsk samtök, sem reyna að ná fylkinu undan stjóm Indveija með skæmm og hryðju- verkum, til verkfallsins og virðist þátttaka hafa verið almenn. Var þetta gert til að mótmæla meintum aðforum drukkinna indverskra her- manna í þorpi nokkru þar í fylki 23. febr. Er haft eftir þorpsbúum að þá um kvöldið hafi um 500 her- menn mðst inn í þorpið, lokað karlmennina inni i komhlöðu og nauðgað síðan konunum. Talsmað- ur mannréttindasamtaka segir fé- Iaga í samtökunum hafa rætt við 53 konur á aldrinum 18 til 80 ára, sem hafi orðið fyrir þessu ofbeldi af hálfu hermannanna. Pólverjum gefnar upp skuldir Pólverjar þurfa ekki að borga nema 30 af hundraði þess fjár, sem þeir skulda Bandaríkjamönnum, hitt hefúr Bandaríkjastjóm ákveðið að strika út, í viðurkenningarskyni fyrir það sem Pólverjar hafa gert til að verða lýðræðisþjóð og taka upp markaðskerfi í efnahagsmálum. Tilkynnti George Bush, Banda- ríkjaforseti, þetta í gær er hann tók á móti Lech Walesa, forseta Pól- lands, við Hvíta húsið. Walesa er nú í opinberri heimsókn í Banda- ríkjunum. Kúvætstjórn segir af sér Ríkisstjóm Kúvæts sagði af sér í gær en búist er við að fráfarandi forsætisráðherra, Sheikh Saad al- Sabah sem einnig er krónprins em- írsdæmisins, muni mynda nýja stjóm. Kúvæt er enn án rennandi vatns, rafmagns, strætisvagna og að mestu verslana eftir eyðilegg- ingu og rupl íraska hersins, og þykir sumum stjómin ekki hafa staðið sig vel við að bæta úr. Má vera að hún hafi sagt af sér þess- vegna. Stjómarandstæðingar vilja fá nýja stjóm með meiri breidd, í þeim tilgangi að Sabah-fjölskyld- an, sem ráðið hefur þama ríkjum frá því fyrir miðja 18. öld, verði valdaminni en verið hefur. Opinn umræðufundur um efnið HVERNIG JOFNUM VIÐ LIFSKJOR ? Fundurinn verður í Menningarmiðstöðinni í Gerðubergi laugardag 23. mars og hefst kl. 14. Þeir sem vilja koma með stutta framsögu geta skráð sig í síma 17500 eða 628274 fyrir kl. 17, föstudag. Þrír af frambjóðendum G-listans í Reykjavík opna umræðuna: Guðmundur í\ Jónsson, formaður IÐJU, félags verksmiðjufólks. Margrét Ríkarðsdóttir, formaður Félags þroskaþjálfa. Leifur Guðjónsson, forstöðumaður Verðlagseftirlits verkalýðsfélaganna. Aðrar framsögur - Frjáls umræða - Fyrirspurnir. E.t.v. verður fundinum skipt upp og einhver viðfangsefni rædd í hópum. Kaffi og öl er selt á staðnum. G-listinn í Reykjavík Síða 5 ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 21. mars 1991

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.