Þjóðviljinn - 21.03.1991, Page 6
SFUKpNGIN
m
Hvað finnst þér
um aðgerðir
fiskverkafólks?
Ama Harðardóttir
nemi:
Mér finnst allt í lagi að fara I
aðgerðir. Því skyldi fiskverka-
fólk ekki njóta sömu fríðinda
og sjómenn? En svo má líka
spyrja af hverju fiskverkafólk
þarf þetta frekar en aðrir.
Baldur Ragnarsson
rafvirki:
Mér finnst sjálfsagt að fólk
leiti leiða til þess að ná fram
kjarabótum. Mér finnst eðli-
legt að þetta fólk sitji við
sama borð og sjómenn.
Þórhallur Helgason
vigtarmaður:
Mér finnst krafan ekki ósann-
gjörn. Það er sjálfsagt að
reyna að ná fram kröfum sín-
um.
Aðgerðirnar eru kannski ekki
löglegar, en hvað á fólk að
gera? Ég styð kröfur þessa
fólks.
Hafsteina Gunnarsdóttir
hárgreiðslukona:
Mér líst bara ágætlega á
þessar aðgerðir og styð kröf-
urnar.
Karl Jóhann Karlsson
tæknifræðingur:
Listahátíð æskunnar
á vori hreysikattarins
^ viku sumardagsins fyrsta
Iefna menntamálaráðuneyti
og Reykjavíkurborg til
listahátíðar æskunnar. Há-
tíðin var kynnt í Árbæjar-
skóla í gær, sem er troð-
fullur af listaverkum eftir nem-
endur, sem unnin voru á listsköp-
unardögum fyrir skömmu.
Fjöldi barna í grunnskólum,
dansskólum, tónlistarskólum, leik-
skólum og félagsmiðstöðvum í
Reykjavík taka þátt í listsköpun og
-flutningi vikuna 20. - 28. apríl.
Svavar Gestsson menntamálaráð-
herra sagði að líkja mætti listahá-
tíðinni við uppskeruhátíð þar sem
færi ffam sýning á affakstri vetrar-
ins.
Dagskráin er mjög fjölbreytt.
Guðrún Ágústsdóttir formaður
listahátíðamefndar æskunnar nefndi
myndlistarsýningar, sem haldnar
verða á söfnum, stofnunum og fleiri
stöðum víðs vegar um bæinn. Efnt
verður til tónleika í Islensku óper-
unni, kirkjum og Norræna húsinu. I
Ásmundarsal ætla nokkrir arkitekt-
ar að starfa með krökkum, þá _er
stefnt að listasmiðju í Listasafni Is-
lands og rithöfundar hafa uppi
áform um að halda ritsmiðju fyrir
þau böm sem gaman hafa af skrift-
um. I menningarmiðstöðinni í
Gerðubergi og á Hótel Borg verða
uppákomur alla dagana. Margt
fleira mætti upp telja, bamamessur,
kvikmyndasýningar og í lok vik-
unnar ætla börn og unglingar að
taka við sætum þingmanna og ráð-
herra á Alþingi og tala yfír hausa-
mótunum á stjórnmálamönnum
þjóðarinnar. Rokktónlistinni má
ekki gleyma. Síðasta vetrardag
verða stórtónleikar á Lækjartorgi
og ef veður og aðstæður leyfa verða
þar tónleikar á hveiju kvöldi. Einn-
ig verða tónleikar á Púlsinum.
Ætlunin er að listahátíð æsk-
unnar verði haldin annað hvert ár
eins og „fullorðinslisthátíðin", það
ár sem sú síðarnefnda er ekki.
Verða í framtíðinni einnig haldnar
listahátíðir af þessu tæi úti á landi
með svipuðu sniði og M- hátíðir.
Veggspjald var hannað í tilefni
þessarar fyrstu listahátíðar reykv-
Listrænir og hressir krakkar i Árbæjarskóla fyrir framan eltt af flölmörgum listaverkum nemenda sem prýða ganga, stofur
og saii skólans. Myndir: Jim Smart.
ískra ungmenna og myndin sem
það prýðir er af hreysiketti. Lista-
maðurinn heitir Bragi Sveinsson og
er í 9 ára bekk í Landakotsskóla.
Hann var mættur á kynningar-
fundinn í gær ásamt ráðherra,
nefndarmönnum og Katrínu Fjeld-
sted borgarráðsmanni, að ógleymd-
um kóri Austurbæjarskóla ásamt
stjórnanda sínum Pétri Hafþóri
Jónssyni, og tók kórinn tvö
skemmtileg lög fyrir viðstadda.
Katrín Fjeldsted sagði foreldra
helst hugsa um listsköpun barna
sem myndverk, um það bæru
myndir bama á veggjum og ísskáp-
um vitni. En hugmyndaauðgi bama
eru engin takmörk sett og á listahá-
tíðinni yrði einmitt margt fleira en
myndlist í boði, sagði hún.
Nefhd um listahátíð var skipuð,
auk Guðrúnar, Karólínu Eiriksdótt-
ur, Elisabetu Þórisdóttur og Gunn-
ari Emi Jónssyni. Ritari hennar er
Hrafnhildur Gunnlaugsdóttir.
Listahátíð æskunnar verður sett
með hátíðardagskrá í Borgarleik-
húsinu laugardaginn 20. apríl. Ein-
göngu börn og unglingar koma
fram á listahátíðinn, ekki verða
kallaðir til fullorðnir til að skemmta
þeim, nú ætla þau að sýna hvað í
þeim býr.
BE
Höfundur hreysikattarins á veggspjaldi
listahátíðar æskunnar, Bragi Sveins-
son, nemandi í Landakotsskóla.
Lágt verðbólgustig hvetur fyrirtæki
til að leggja fé í rannsóknir
Nýlega rann út um-
sóknarfrestur um
styrki til Rann-
sóknasjóðs Rann-
sóknaráðs ríks-
ins. Hörður Jóns-
son, yfirverkfræðingur hjá
Rannsóknaráði, segir það at-
hyglisvert hve áhugi fyrirtækja
til að leggja fram fé til rann-
sókna- og þróunarverkefna
hefur aukist. Ástæðan er lágt
verðbólgustig sem er forsenda
þess að hægt sé að gera ein-
hverjar áætlanir fram í tím-
ann.
Alls var sótt um stuðning við
138 rannsókna- og þróunarverk-
efni og nemur heildarkostnaður
þeirra alls 765,4 miljónum króna.
Sótt er um 325,3 miljónir króna í
styrki frá Rannsóknasjóði, sem er
rúmlega þrisvar sinnum hærri
upphæð en sú sem sjóðurinn hef-
ur til ráðstöfunar í ár. Áætlað
framlag fyrirtækja til verkefn-
anna nemur um 200 miljónum
króna.
Hörður Jónsson segir að
fjöldi umsókna sé svipaður því
sem verið hefúr en umfangsmeiri
en áður og dýrari. Hann segir að
verkefhin séu upp til hópa mjög
athyglisverð og nú sé meðal ann-
ars sótt um styrki til fímm verk-
efna á sviði umhverfisiðnaðar
sem ekki hefúr verið áður.
Af einstökum atvinnuflokk-
um eru flestar umsóknir til rann-
sókna- og þróunarverkefna í fisk-
eldi eða 26, og þvínæst á sviði
fiskvinnslutækja og búnaðar, eða
23. Þar á eftir er sótt um styrki
við 17 verkefni til rannsókna- og
þróunarverkefha vegna nýrra af-
urða í fiskvinnslu.
Gert er ráð fyrir því að f byij-
un maí liggi fyrir hvaða verkefni
hljóta stuðning Rannsóknasjóðs í
ár. Hörður Jónsson segir mikil-
vægt að því verki verði lokið áð-
ur en sumarleyfi hefjast.
-grh
ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur21. mars 1991
Síða 6