Þjóðviljinn - 21.03.1991, Qupperneq 8
Fréttir
Þjóðleikhúsið
opnað með viðhöfn
eftir endurbætur
jóðleikhúsið verður
opnað með viðhöfn í
kvöld eftir miklar
endurbætur og að
opnunarhátíðinni lok-
inni verður Pétur
Gautur frumsýndur. Að sögn
Árna Johnsen, formanns bygg-
ingarnefndar, hafa endurbæt-
urnar á húsinu kostað um 500
miljónir króna til þessa, en það
er nær þriðjungi umfram upp-
haflega áætlun.
- Þegar ráðist var i endurbæt-
umar á húsinu var gert ráð fyrir að
þær myndu kosta um 900 miljónir
króna í heild og þá var jafnframt
ráðgert að unnið yrði samfellt að
endurbótunum þar til þeim yrði
lokið. Nú hefur verið lokið við
hluta af fyrri áfanga endurbótanna,
en það verður svo að koma í ljós
síðar hvenær verkinu verður haldið
áíram. Leikhúsið tekur nú til starfa
við þessar aðstæður, en það verður
á valdi nýs Alþingis og nýrrar rík-
II
isstjórnar að ákveða framhaldið,
segir Árni Johnsen i samtali við
Þjóðviljann.
Hann segir að ein af skýringun-
um á því hve kostnaður hefúr farið
fram úr áætlun sé sá að verkið hafi
reynst 40 prósent umfangsmeira en
búist var við. Hann bendir einnig á
reynsluna af endurbyggingu ann-
arra gamalla bygginga, Viðeyjar-
stofu, Hóladómkirkju og Bessa-
staðastofu.
- Þessar framkvæmdir fóru
verulega fram úr áætlun eins og
vill verða þegar gömul hús eru
endurbyggð, segir Ami.
Endurbótum á sal Þjóðleik-
hússins hefúr nú verið lokið og þar
em nú einar svalir í stað tveggja
áður. Ný sviðslyfta er í húsinu og
ný hljómsveitargryfja, og nú er
mögulegt að fjölga sætum um 53
fyrir framan sviðið. Ljósabúnaður
hefur verið endumýjaður og nýtt
loftræstikerfi er í húsinu. Það hefúr
þó ekki verið tengt að fullu og
Adalfuném
Aðalfundur Eignarhaldsfélagsins Iðnaðar-
bankinn hf., Reykjavík, árið 1991, verður
haldinn í Súlnasal Hótels Sögu, Reykjavík,
fimmtudaginn 4. apríl nk. og hefst kl. 17.00.
Dagskrá:
1. Aðalfundarstörf skv. ákvœðum greinar
4.06 í samþykktum félagsins.
2. Tillaga um heimild til stjórnar félagsins
til útgáfu jöfnunarhlutabréfa á árinu
1991.
Aðgöngumiðar að fundinum verða
afhentir hluthöfum eða umboðsmönnum
þeirra í íslandsbanka, Kringlunni 7, Reykja-
vík, dagana 2., 3. og 4. apríl nk. Ársreikning-
ur félagsins fyrir árið 1990, ásamt tillögum
þeim sem fyrir fundinum liggja, verða hlut-
höfum til sýnis á sama stað.
Tillögur, sem hluthafar vilja leggja fyrir
fundinn, þurfa að hafa borist stjóm félags-
ins skriflega í síðasta lagi 27. mars nk.
Reykjavík, 11. mars 1991
Stjórn Eignarhaldsfélagsins i
Iðnaðarbankinn hf.
O
Q
verður ekki um sinn. Þá hefur
Kristalsalurinn verið endumýjaður
og nú verður hægt að ganga út á
skyggnið fyrir ofan aðalinnganginn
eins og Guðjón Samúelsson ætlaði
upphaflega.
Margt er hins vegar ógert í hús-
inu og eins og áður er getið er ekki
enn vitað hvenær framkvæmdum
verður haldið áffam.
Hátíðardagskráin í kvöld hefst
klukkan hálf átta. Þar tekur Lúðra-
sveit Reykjavíkur á móti gestum
og Þjóðleikhúskórinn syngur á
Kristalsal. Róbert Amfinnsson les
„Öll veröldin er leiksvið“ eftir
Shakespeare, Herdís Þorvaldsdótt-
ur les ljóð og Kristján Jóhannsson
syngur við undirleik Jónasar Ingi-
mundarsonar. Þá flytja þeir Svavar
Gestsson menntamálaráðherra og
Gísli Alfreðsson þjóðleikhússtjóri
ávörp. Að hátíðardagskránni lok-
inni hefst fmmsýning á Pétri Gauti
eftir Ibsen.
-gg
Listi Krata
í Reykjavík
Jón Baldvin Hannibalsson
formaður Alþýðuflokksins
skipar efsta sæti á lista
Alþýðuflokksins í Reykjavík. í
öðru sæti er Jóhanna
Sigurðardóttir varaformaður
flokksins. Össur
Skarphéðinsson er í þriðja
sæti, Magnús Jónsson í fjórða
og Valgerður Gunnarsdóttir í
fimmta.
Ragnheiður Davíðsdóttir er í
sjötta sæti, Helgi Daníelsson í
sjöunda, Lára Valgerður
Júlíusdóttir í áttunda, Steindór
Karvelsson í níunda og Margrét
Bjömsdóttir í tíunda.
BE
Verkamenn
birta lista
í gær var birtur listi Verka-
mannaflokks íslands í Reykja-
vík fyrir alþingiskosningarnar
í apríl næstkomandi.
Efstur á lista er Brynjólfur
Yngvason hlaðmaður. Annað
sætið skipar Páll Þorgríms Jóns-
son og Hreiðar Jónsson bifreiða-
stjóri það þriðja. í fjórða sæti sit-
ur Einar Halldórsson hlaðmaður,
en í því fimmta Gunnar Steinn
Þórsson iðnverkamaður. Efsta
konan á listanum er Hrönn Hall-
dórsdóttir fiskverkakona í níunda
sæti.
Verkamannaflokkurinn var
stofnaður af óánægðum Dags-
brúnarmönnum í Reykjavík fyrir
nokkmm vikum. Óánægja þeirra
beindist fyrst og fremst gegn Al-
þýðuflokknum.
BE
Sparisjóður
Kópavogs 35 ára
Sparisjóður Kópavogs átti 35
ára afmæli í gær. í tilefhi afmæl-
isins og til að auka þjónustu við
viðskiptavini verður Sparisjóður-
inn framvegis opinn frá kl. 8.30
alla virka daga.
Árni Johnsen, formaður bygaingamefndar Þjóðleikhússins: Framhald
endurbótanna er á valdi nys Alþingis og nýrrar ríkisstjómar. Mynd Jim
Smart.
Aðalfundur Eignarhaldsfélags Verslunar-
bankans hf., Reykjavík, árið 1991 verður
haldinn í Höfða, Hótel Loftleiðum, Reykjavík,
fimmtudaginn 4. apríl nk. og hefst kl. 17.00.
Dagskrá:
1. Aðalfundarstörf skv. ákvœðum greinar
3.03 í samþykktum félagsins.
2. Tillaga um heimild til stjórnar félagsins til
útgáfu jöfnunarhlutabréfa á árinu 1991.
Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir
hluthöfum eða umboðsmönnum þeirra í
íslandsbanka, Kringlunni 7, dagana 2., 3. og
4. apríl nk.
Ársreikningur félagsins fyrir árið 1990,
ásamt tillögum þeim sem fyrir fundinum
Hggja, verða hluthöfum til sýnis á sama stað.
Tillögur, sem hluthafar vilja leggja fyrir
fundinn, þurfa að hafa borist stjóm félagsins
skriflega í síðasta lagi 27. tnars nk.
Reykjavík, 12. mars 1991
Stjórn Eignarhaldsfélags ,
Verslunarbankans hf. |
ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 21. mars 1991
Síða 8