Þjóðviljinn - 21.03.1991, Blaðsíða 16
AUGLÝSINGASÍMAR
ÞJÓÐVILJANS
681310 og 681331
Fiskvinnslufólk lagði niður vinnu
og íhugar stofnun grasrótarsamtaka
Starfsfólk fjölmargra frystihúsa sat heima I gær til að leggja áherslu á kröfu sína um hækkun skattleysismarka og á meðan hfmdu svunturnar á sínum krók.
Mikil þátttaka virð-
ist hafa verið í eins
dags vinnustöðvun
fiskvinnslufólks í
gær tii að leggja
áherslu á kröfuna
um hækkun skattleysismarka.
Sóiveig Vagnsdóttir, fiskvinnslu-
kona á Þingeyri, segist vera
mjög ánægð með þátttökuna og
telur vel koma til greina að
stofnuð verði grasrótarsamtök
fiskvinnslufólks til að halda
kröfum þess áfram á lofti.
Af einstökum landsvæðum var
svo til almenn vinnustöðvum í
fiskvinnsluhúsum í Vestmannaeyj-
um, Austíjörðum, Norðurlandi og
einnig nokkuð á Snæfellsnesi.
Minnst var þátttakan á Vestförðum
þar sem aðeins var vinnustöðvun í
fiskvinnsluhúsum á ísafirði og í
Bolungarvík. I öðrum sjávarplás-
sum eins og á Þingeyri var unnið
eins og ekkert væri. Athygli hefur
vakið að fiskvinnslufólk í Hnífsdal
var ekki með og var sú skýring
gefin að það hefði verið vegna
þess hve mikið af útlendingum er
þar við vinnu. Þá var ennfremur
unnið hjá Granda hf. í Reykjavík
og hjá Sjólastöðinni í Hafnarfirði.
í nokkrum fiskvinnsluhúsum lét
starfsfólkið sér nægja að senda
stuðningsyfirlýsingar við kröfúna
um hækkun skattleysismarka.
Sólveig Vagnsdóttir, ein þeirra
sem hrundu málinu af stað, sagðist
vera hæstánægð með þátttökuna
og þær undirtektir sem krafan um
lækkun skatta hefði fengið meðal
fiskvinnslufólks um land allt og
hjá stjómmálamönnum. Hún sagði
að það kæmi vel til greina að fisk-
vinnslufólkið stofnaði með sér ein-
hverskonar grasrótarsamtök til að
halda kröfúnum áfram á lofti og til
að beijast frekar fyrir bættum kjör-
um þess. Þá harmaði hún hve und-
irtektimar hefðu verið litlar á Vest-
fjörðum.
Víðast hvar hafa atvinnurek-
endur ekki skipt sér af þessari að-
gerð fiskvinnslufólks, þótt ólög-
mæt sé, nema þá helst á Vestfjörð-
um. Sérstaka athygli vakti fram-
ganga forráðamanna fiskvinnsl-
unnar á Þingeyri á dögunum þegar
þeir rem að því öllum ámm að
sannfæra starfsfólk sitt um til-
gangsleysi vinnustöðvarinnar. Þá
hafa aðilar á Þingeyri reynt að
leggja stein í götu Sólveigar
Vagnsdóttur og meðal annars var
síma hennar lokað degi áður en
hún fékk útborgað. Ennfremur
vom allar stuðningsyfirlýsingar til
hennar bomar fyrst til verkstjóra
fiskvinnslunnar áður en hún fékk
þær í sínar hendur.
Sólveig sagðist í gær ekki vita
með vissu hvort hún héldi vinnu
sinni hjá fiskvinnslufyrirtækinu á
Þingeyri þar sem hún hefði að
sjálfsögðu ekki mætt í vinnu þann
daginn. En það mun væntanlega
skýrast í dag. -grh
Listaháskóli íslands í SS-húsið
Sá merki áfangi náðist á
síöasta degi Alþingis, að
samþykkt var að kaupa
stórhýsi Sláturfélags
Suðurlands við Laugar-
nes undir starfsemi fyr-
irhugaðs Listaháskóla íslands.
Um leið standa nú yfir samning-
ar á milli Myndlista- og handíða-
skólans, Tónlistarskólans, Leik-
listarskólans, Listdansskóla
Þjóðleikhússins og fleiri mennta-
stofnana á listasviðinu um sam-
vinnu þessara stofnana undir
einum hatti Listaháskóla Islands.
Jafnframt er samstarf hins nýja
Listaháskóla við Háskóla íslands
í undirbúningi.
Stofnun Listaháskóla Islands er
merkur og langþráður áfangi sem
mun væntanlega verða allri Iist-
mennt í landinu mikil lyftistöng,
auka á skilning og samstarf á milli
listgreina og síðast en ekki síst
mun hið nýja húsnæði leysa brýn
húsnæðisvandamál, ekki síst hjá
Myndlista- og handíðaskóla Is-
Iands.
Stórhýsi Sláturfélags Suður-
lands er samtals 10 þúsund fer-
metrar að flatarmáli og hentar
mjög vel til þessarar starfsemi.
Húsið er ekki fullfrágengið að inn-
an, en búið er að einangra það og
leggja í það hita. Hluti hússins er
með 8 m lofthæð eins og það er nú,
en það gefur margvíslega mögu-
leika til innréttinga á æfingasölum
fyrir leiklist, tónlist og vinnustof-
um fytrir myndlist, skúlptúr o.s.frv.
Áformað er að ríkið leggi aðrar
húseignir af hendi upp í kaupverð
hússins, en ekki er endanlega búið
að ganga frá kaupsamningi. Svavar
Gestsson sagði í gær að húsið
myndi nýtast strax að einhverju
leyti, en ætla mætti að það tæki 3
ár að taka það allt í notkun.
-ólg.
Frá kröfufundi listnema um hús fyrir Listaháskóla fyrir ári. Mynd: Jim Smart.
Síldarvinnslan
á skrá hjá
Landsbréfum
Landsbréf munu í dag hefja
skráningu á hlutabréfum í Síld-
arvinnslunni hf. í Neskaupstað,
en Síldarvinnslan er þar með
fyrsta útgerðarfyrirtækið á
Áusturlandi og ijórða útgerðar-
fyrirtækið á landinu sem skráð
er á hlutabréfamarkaði. Hin út-
gerðarfyrirtækin eru Grandi,
UA og Skagstrendingur.
Albert Jónsson hjá Lands-
bréfum segir að sölugengi við
byijun skráningar verði 2,5.
Velta fyrirtækisins var um 2,2
miljarðar króna í fyrra og hagn-
aður 124,7 miljónir króna.
Hagnaður fyrir afskriftir og fjár-
magnskostnað nam rúmum 300
miljónum króna og veltufé ffá
rekstri 145,8 miljónum króna.
Hlutafé í árslok var 91,65
miljónir að nafnverði og mark-
aðsverðmæti þess 229 miljónir
króna miðað við sölugengi 2,5.
Fjöldi hluthafa í dag er 160 og
er Samvinnufélag útgerðar-
manna með um 50%, Bæjar-
sjóður Neskaupstaðar er með
um 10% og Sæplast með um
8%.
-Sáf