Þjóðviljinn - 18.04.1991, Side 3
9
IBAG
18. apríl
er fimmtudagur.
108. dagurársins.
Sólarupprás í Reykjavík kl.
5.47 - sólarlag kl. 21.09.
Viðburðir
Þjóðhátíðardagur Zim-
babwe.
Þjóðviljinn
fyrir 50 árum
Stórkostleg loftárás á Lond-
on. Árásin stóð i sjö klukku-
tíma samfleytt og varð gífur-
legt tjón á mannslífum og
eignum. Bretar gera loftárás
á þýzkar hafnarborgír.
fyrir 25 árum
Loftárásir gerðar á úthverfi
í Hanoi. Stjórn Norður-Víet-
nams hefur borið fram mót-
mæli, en Bandaríkjamenn
segjast hafa ráðizt á flug-
skeytapalla.
Sá spaki
Munurinn á stjórnskörungi
og stjómmálamanni er sá að
stjórnskörungurinn hugsar
um framtíðina en stjómmála-
maðurinn fram að næstu
kosningum.
(Wlnston Churchill)
á mismunandi niður-
stöðum skoðanakann-
ana
Þorbjörn Broddason
dósent
Manni bregður í brún þegar
skoðanakönnunum sem við vit-
um að eru vandaðar og vel unn-
ar ber illa saman. Þá er hollt að
minnast þess að skoðanakönnun
er ekki kosning. Skoðanakönn-
un er vísbending og við fáum
ekki meira út úr henni en það.
Ef við lítum á vikmörk þá sjá-
um við að þessi mismunur á
skoðanakönnunum er kannski
ekki eins stórvægilegur og hann
virðist vera í fljótu bragði. Fólk
er blessunarlega farið að átta sig
á því - bæði fféttamenn og al-
menningur - að reiknuð vik-
mörk skipta máli. En fólk er
smám saman að verða læsara á
kannanir. Eigi að síður er þetta
furðu mikil sveifla hjá Félags-
vísindastofnun ífá því fyrir
þremur vikum síðan og gæti
auðvitað bent til þess að það
væri einhver skriður á Sjálf-
stæðisflokki og Alþýðubanda-
lagi sitt í hvora áttina. En það er
til ágætur sænskur málsháttur
sem er þannig að ekki sé skyn-
samlegt að selja skinnið fyrr en
búið sé að skjóta bjöminn og ég
held að það eigi við í þessu til-
viki. Þetta er vísbending um
einhvetja hreyfmgu en þetta em
ekki kosningaúrslit.
v. ;
NEþNEí ÞAE> ER EKKÍ
RÉTf AÐ SE6JA AE> AIXT
SÉ AÐ FARA TÍL 0ANDANS
HJA OKKUR BÆAIDUM-,
þae> ER. ALLT A© fara
TÍL- REyKjAVfKUR,,
ER RÉXTAÐ SEúJA.
/« v c rc qsaagatiæsi&ssssgry. .. v , / \ xI' c.,\v
Ty
Og fólk hættir
að spyrja.,.
▲ Guðrún Helgadóttir skrifar
Þegar Lísa í Undralandi hafði
lent í langri skógarvillu og var orðin
lúin hitti hún köttinn sem öllu réði.
Hann var með mjög langar klær og
mjög margar tennur. Lísa spurði
köttinn: Viítu gjöra svo vel að segja
mér hvaða leið ég ætti að fara héð-
an?
Hvert ertu að fara? Spurði kött-
urinn.
Það veit ég eiginlega ekki, sagði
Lísa.
Gott, sagði kötturinn og glotti.
Þá er alveg sama hvaða leið þú ferð.
Já, ég kemst þá alla vega eitt-
hvað, sagði Lísa glöð.
Ef þú gengur nógu lengi, sagði
kötturinn og beraði tennumar.
Alla öldina hafa böm heimsins
hlegið að þessum orðaskiptum. En
minnir þetta ykkur ekki á eitthvað
sem þið hafið heyrt núna rétt ný-
lega? Þetta minnir mig að minnsta
kosti á þann orðastað sem efsti
maður á lista Sjálfstæðisflokksins
hér í Reykjavík átti við kjósendur í
sjónvarpi fyrir nokkmm dögum.
Lísa trúði því að hún kæmist
alla vega eitthvað, en í ljós kom að
hana hafði reyndar allan tímann ver-
ið að dreyma. Og hún vaknaði auð-
vitað á sama stað og hún sofnaði.
Ef marka má væntanleg kosn-
ingaúrslit í skoðanakönnunum virð-
ist Reykvíkingum líkt farið og Lísu.
Um árabil hafa íbúar þessa ríkasta
sveitarfélags á landinu látið bjóða
sér að einn maður hefur ráðskast
með íjármuni þeir að til að byggja
yfir sig og gesti sína minnismerki
líkt og keisarar fyrri alda. Á sama
tíma hafa bamafjölskyldur staðið
ráðalausar frammi fyrir skorti á
leikskólarými fyrir böm undir sex
ára aldri og efiirliti með yngstu
skólabömunum eftir skólatíma. í
höfuðborginni er ekkert framboð á
leiguhúsnæði fyrir unga fólkið sem
er að stofna heimili eða aldrað fólk
sem kýs að minnka við sig húsnæði.
Aldraðir sjúklingar em í hundraða-
tali einir og eftirlitslausir vegna
skorts á heimaþjónustu. Göngu- og
hjólastígar em nær óþekkt fyrirbæri.
Þessu ómanneskjulega samfélagi
hefur sá maður stjómað einn og
sjálfur sem nú er efstur á lista Sjálf-
stæðismanna í komandi kosningum
og sýnist eiga talsverða möguleika á
að verða forsætisráðherra þjóðarinn-
ar.
Og enginn virðist spyija hann
hvert hann ætli að fara. Eg held ekki
heldur að hann viti það. Eg veit hins
vegar að hann veit að hann ræður
því ekki sjálfur. Ferð hans ráða allt
aðrir. Ferð hans ráða þeir sem hafa í
skjóli hans sölsað undir sig æ meira
fé launamanna og eiga nú öll sam-
göngufyrirtæki landsmanna, helstu
stórfyrirtæki og sæti í bankaráðum
og helstu nefndum sem máli skipta.
Þessir menn hætta ekki fé i einka-
fyrirtæki. Hver gerði Davíð Odds-
son að formanni Sjálfstæðisflokks-
ins? Það var fulltrúi þessa fólks.
Bjöm Bjamason heitir sá og fylgir
honum nú inn á þing í stað ffænku
sinnar Ragnhildar Helgadóttur, sem
meðal annarra seldi borginni Nesja-
velli fyrir nokkra tugi miljóna án
þess að þurfa að fara þaðan.
Bjöm Bjamason á fleiri skyld-
menni. Meðal þeirra eru arkitekt
hitaveituævintýrsins, borgarfulltrúi
sem situr í stjóm veitustofnana, for-
stjóri Sjóvá, sem nýlega tók sæti í
stjóm eignarhaldsfélags Verslunar-
bankans sem hlut á í Islandsbanka,
stjómarmaður í stjóm Flugleiða og
Eimskipafélagsins og bæjarfulltrúi í
Garðabæ. Bjöm Bjamason og þetta
fólk er allt systkinaböm. Og þetta er
aðeins lítið sýnishom af völdum
einnar fjölskyldu, sem siðan er
tengd öðrum álíka.
Þetta fólk veit hvert það er að
fara. Og það teymir nytsama sak-
leysingja eins og hvolpa í bandi og
glottir einungis þegar spurt er hvert
ferðinni sé heitið. Og fólk hættir að
spytja og vonar að það endi að
minnsta kosti einhvers staðar og
vaknar svo til leiðinlegs vemleikans
eins og veslings Lísa.
Góðir fundarmenn. Þið sem
kjósið nú í fyrsta skipti. Hjálpið
okkur að binda endi á þessa feigðar-
för. Hinir öldmðu sem unnu fyrir
fjármagninu hörðum höndum eiga
betra skilið en að fáeinar fjölskyldur
leiki sér með það á verðbréfamörk-
uðum hér heima og erlendis. Hættið
að þræla fyrir þær. Ráðið ferðinni
sjálf og fjölgið þingmönnum Al-
þýðubandalagsins I Reykjavík svo
að igq munar.
Eigið betri svefnrof en Lísa I
Undralandi á sunnudaginn kemur.
Flutt á kosningahátíð
Alþýðubandalagsins
í Rcykjavík 16. april.
ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 18. aprll 1991
Síða 3