Þjóðviljinn - 18.04.1991, Side 11
Viðbrögðin
hafa verið
jákvæð
Ingólfur V. Gíslason er starfs-
maður G-listans í Reykiavík.
Hann var spurður út í gang Darátt-
unnar.
Kosningabaráttan fór almennt
mjög seint af stað. Bæði flokkar og
kjósendur virtust ekki komast í
kosningaham fyrr en eftir páskana.
Að mínu mati verður þetta til þess
að kosningabaráttan verður enn
frekar en áður háð í fjölmiðlunum
og þá ekki hvað síst í kynningum
flolckanna og ffambjóðendaumraeð-
um í sjónvarpi.
Síðustu aagana er farið að hitna
verulega í kolunum og mikið kapp
er hlaupið í okkar félaga. Við emm
mjög ánægð með að hafa fengið
kosningamiðstöð f Iðnó. Þar er stöð-
ugt streymi af fólki sem kemur til að
drekka kaffi og ræða pólitfk við
ffambjóðendur okkar.
-Hvemig hafa undirtektir verið
við málflutningi Alþýðubandalags-
ins?
Viðbrögðin hafa verið jákvæð.
Við höfum fyrst og fremst lagt
áherslu á jöfnun lífskjara, jafna
möguleika fólks til náms, menning-
ar og mennta. Þetta er allt hlutir
sem fólk er almennt-mjög sammála
um að séu brýn mál.
Okkur finnst að því betur og
skýrar sem okkur tekst að koma á
ffamfæri því sem gert hefur verið og
hvað stendur til að gera ef við fáum
til þess þingstyrk, því meiri byr fáum
við. Aðalatriðið er að koma verkum
okkar og stefnu á framfæri og þá er
allt f góðu gengi.
þessu kjörtímabili að við værum
enn sterkari og þessar kosningar
nú snúast meðal annars um það
hvort við getum orðið öflugri.
-Hvað er tekist á um 1 kosn-
ingunum?
Okkur hefur teþist að ná
verðbólgunni niður. I raun voru
það launamenn sem gerðu það
með lægra kaupi - ég segi ekki
lægra kaupi en peir hefðu annars
fengið því auðvitað hefði vitlaus
verðbólga farið miklu verr með
kjör fólks. Aðalatriðið í næstu
lotu er að ná kaupmættinum upp
hjá lágtekmfólki, án þess
að verðbólgan fari af stað.
Alþýðubandalagið leggur
megináherslu a þetta og
er eini flokkunnn sem
veit hvemig hægt er að ná
fram lífskjarajöfnun og
segir fólki það.
Hitt meginmál kosn-
inganna er Evrópubanda-
lagsmálið. Þrátt fyrir ótta
margra við að ræða af-
stöðu sína til þess máls
fyrir opnum tjöldum í
kosningabaráttunni verður
ekki horfl framhjá því að
úrslitabaráttan um aðild
að Evrópubandalaginu
verður háð á næstu árum.
Þessar kosningar eru
óvenju örlagaríkar. Tekist
er á unj lífskjörin og sjálf-
stæði Islands. Kosninga-
baráttan hefur leitt það
skýrt í ljós að það eru tvö
öfl sem takast á þótt þau
mælist misstór í skoðanakönnun-
um: Alþýðubandalagið og Sjálf-
stæðisflokkurinn. Reynslan hefur
líka sýnt að það er styrkur þess-
ara flokka sem hefur úrslitaáhrif
á þá stefnu sem tekin er við
landsstjómina.
Alþýðubandalagið er hið mál-
efnalega mótvægi við hægriöflin
í landinu og það er styrkur þess
eða veikleila sem skiptir sköpum,
ekki fylgi miðju- og hentistefhu-
flokkanna. Þetta bið ég alla
vinstrimenn, allt félagshyggju-
fólk, að hafa í huga. Eg skora á
Svavar Gestsson
menntamálaráðherra
skipar 1. sætið á fram-
boðslista Alþýðubanda-
lagsins í Reykjavíkur-
kjördæmi. Svavar var
spurður hvort hann væri
ánægður með árangur síðasta
kjörtímabils.
Það hefúr ekki farið fram hjá
neinum að við höfúm náð talsvert
miklum árangri á mörgum svið-
um þótt auðvitað vildi maður
alltaf sjá enn meiri árangur.
Hvað varðar
mennta- og menningar-
mál þá höfúm við náð
að setja lög um öll
skólastig og flutt frum-
varp um fullorðins-
fræðslu og endur-
menntun. Við höfum
mótað stefnu sem farið
er að vinna eftir. Leik-
skólinn er orðinn hluti
af menntakerfinu.
Skóladagur yngstu
barnanna hefur þegar
verið lengdur og til-
raunir með breyttan
framhaldsskóla eru
hafnar í fjórum skól-
um.
Eftir okkur liggur
stefnumótun í íþrótta-
málum og varðandi
vísindi og tækniþróun.
Afnuminn var virðis-
aukaskattur af vísinda-
-Skipti stjórnarþátttaka Al-
þýðubandalagsins sköpum á síð-
asta kjörtímabili?
Já, við þurfúm ekki annað en
bera saman stjómina sem fór frá
1988 og skildi eftir sig algert
öngþveiti á öllum sviðum. Upp-
lausnarástand ríkti í öllu skola-
kerfinu og stöðnun í menningar-
málum, verðbólga var margfold á
við það sem nú er og raunvextir
voru allt upp í 18%. Spáð var að
innan örfarra vikna skylli á at-
vinnuleysi 15-20 þúsuna manna.
Ef við rifjum upp ástandið
Þetta eru dæmigerðir
miðju- og hentistefnu
flokkar sem eru í raun
aldrei annað en meðaltal af
umhverfí sínu
og rannsóknatækjum
og framlög til vísinda og tækni-
þróunar hafa hækkað um 24% frá
síðasta ári og munu hækka um
100% á næstu niu árum.
Virðisaukaskattur af íslensk-
um bókum var afnuminn, Þjóð-
leikhúsið var opnað, keypt var
hús fyrir lismám, skerðing náms-
lánanna var afnumin og Kvik-
myndasjóður er nú óskertur í
fyrsta sinn. Sumt af því sem við
náðum í gegn á síðustu dögum
þingsins er nú þannig að menn
nafa ekki einu sinni tekið eftir
því í öllum látunum.
verður ljóst að tilkoma Alþýðu-
bandalagsins í ríkisstjóm gerði
kleift að taka á þessum vanda.
Þetta sýnir bara að með stjómar-
þátttöku getur Alþýðubandalagið
naft góð áhrif a Framsóknar-
flokkinn og Alþýðuflokkinn.
Þetta eru annars dæmigerðir
miðju- og hentistefnuflokkar sem
eru í raun aldrei annað en meðal-
tal af umhverfi sínu. Ef íhaldið er
öflugt þá ffamkvæma þeir íhalds-
stefnu en ef við erum sterk þá
getum við haft mikil áhrif á pá.
Það hefur einna helst skort á
ykkur að nýta hveija stund fram
að kosningum til að efla Alþýðu-
bandalagio, eina vinstrifloldcinn,
eina raunvemlega mótvægið við
sókn hægriaflanna. ag
Alþýðubandalagið
er hið málefnalega
mótvægi við
hægriöflin í landinu
og það er styrkur þess
eða veikleiki
sem skiptir sköpum
Óvenju örlagaríkar kosningar
—0—
FRÁBÆR FIÐLULEIKARI
A RAUÐUM TONLEIKUM
í Háskólabíói
íkvöld 18. apríl kl. 20.00.
Rúmenski fiöluleikarinn
Eugene Sarbu
hefur hlotiö
fjölda verðlauna
fyrir leik sinn
og leikiö meö
þekktustu hljómsveitum
heims.
Hann leikur á
Stradivarius,
sem var smíöuð f
Cremona áriö 1729.
Efnisskrá :JÓ eftir Leif Þórarinsson
FiÖlukonsert eftirjean Sibelius
Sinfónía nr.2
- De fire temperamenter -
eftir Carl Nielsen
Hljómsveitarstjóri: Petri Sakari
Sinfðníuhljómsveit íslands
Háskólabíói v/Hagatorg sími 622255
IBM á Islandi er styiktaraðili Sinlónfuhljómsveitar Islands starfsárið 1990 -1991
11
ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 18. apríl 1991