Þjóðviljinn - 19.04.1991, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 19.04.1991, Blaðsíða 5
r US 1 UUAUDÍ Kli 1 1 1 K Stór dagur hjá Vestfirðingum í gær voru opnuð tilboð í gerð I jarðganga um Breiðadals- og Botnsheiði á norðanverðum Vestfjörðum. Er skemmst frá því að segja að lægsta tilboðið kom frá Istaki sf. og þremur norrænum samstarfsfyrirtækj- um þess. Það hljóðaði uppá 2.474.873.441 krónu sem er rúmlega 500 miljónum minna en gert var ráð fyrir í kostnað- aráætlun. Næstalægsta tilboðið kom frá búlgarska verktakafyrirtækinu Avtomagistrali - Hemus uppá 2.496.028.585 krónur og í þriðja sæti var Krafttak sf. með 2.502.396.482 krónur. Að loknu þessu forvali verður farið yfir lægstu tilboðin og þau skoðuð nánar, en stefnt er að því að skrifa undir verksamning að því loknu. Framkvæmdir við gerð jarðgang- anna eiga að hefjast nú í sumar og þeim á að verða lokið i árslok 1995. Jarðgöngin verða þriggja arma með gatnamótum inní fjalli og þar með opnast heilsársvegur á milli þéttbýliskjama á norðan- verðum Vestíjörðum. Heildar- lengd ganganna verður alls 8,7 kílómetrar og þar af 2 kílómetrar með tvíbreiðu þversniði en aðrir hlutar með útskotum á 160 metra bili. Steingrímur J. Sigfússon samgönguráðherra sagði það vera mjög ánægjulegt að íslenskt fyrir- tæki skyldi eiga hlut að lægsta til- boðinu. Hann sagði jafnframt að það hefði verið skynsamleg ákvörðun að flýta gerð jarðgang- anna sem kæmi m.a. fram í því að mörg tilboðanna væru lægri en gert er ráð fyrir í kostnaðaráætl- un, sem hljóðaði upp á rúma 3 Athugasemd við auglýsingu Meðal mætra kvenna sem nú sækja ffam við alþingiskosningar er Sigríður Jóhannesdóttir, annar maður á lista Alþýðubandalagsins í Reykja- neskjördæmi. Sigríði til hvatningar skrifaði undirrituð nafn sitt á lista sem henni var tjáð að yrði afhentur Sigriði persónulega. Væri listanum ætlað að undirstrika það traust sem samherjar hennar innan uppeldisstétta bæru til hennar. Slíkan stuðning var undirrit- aðri ósárt um að veita. Hitt var öllu sárar að finna trúnað brotinn og undir- strikaðan með opinberri nafnbirtingu undirritaðrar í nafhi G-listans í aug- lýsinginn dagblaða í gær. Hér skal því annars vegar áréttað að undirrituð veitti ekki heimild til nafnbirtingar og hins vegar að stuðningur við Sigríði Jóhannesdóttur hefur ekkert með það að gera hver hlýtur atkvæði undirrit- aðrar á kjördegi. Steinunn H. Lárusdóttir, skólastýra Vogum. Leiðrétting Nafnabrengl urðu í myndatexta við ljósmynd af blaðamannafundi um Norræna jafnlaunaverkefnið, sem birtist með frétt um jafnlaunaverkefn- ið í Þjóðviljanum á þriðjudag. Frá vinstri á myndinni voru Ragnhildur Benediktsdóttir formaður Jafnréttis- ráðs og formaður Verkefnisstjómar Norræna jafhlaunaverkefnisins, Elsa S. Þorkelsdóttir framkvæmdastjóri Jafnréttisráðs og fulltrúi Norrænu jafnréttisnefndarinnar í Verkefhis- stjóm, Jóhanna Sigurðardóttir félags- málaráðherra og Hildur Jónsdóttir verkefhisstjóri. Þjóðviljinn biðst vel- virðingar á þessum mistökum. Ritstj. miljarða króna. Steingrímur sagði að þessar 500 miljónir sem þama mundu sparast kæmu sér ömgg- lega vel í aðrar framkvæmdir á sviði samgöngumála. Olafúr Helgi Kjartansson forseti bæjar- stjómar ísafjarðar sagði að þetta væri stór dagur í lifi Vestfirðinga, sem nú loksins sjá fram á það að gamall draumur væri að rætast. En það var fyrst árið 1963 sem bytjað var að ræða um það af fúllri alvöru að nauðsynlegt væri að gera jarðgöng á milli Isaijarðar og Önundarfjarðar. Páll Sigur- jónsson forstjóri Istaks sf. sagðist að vonum vera ánægður þessa niðurstöðu í forvalinu. Hann sagði að vonandi kæmi margra ára reynsla hans við gerð jarð- gangna, meðal annars i Færeyj- um, að góðu gagni fyrir vestan. Hann sagði að það yrði notast við vélar og tæki heimamanna eins og unnt væri, en auðvitað yrði að flytja vestur sérhæfðar vinnuvélar við sjálfa jarðgangagerðina. -grh Steingrlmur J. Sigfússon samgönguráðherra og yfirmenn Vegagerðar rlksins við opnun tilboða I gerð jarð- ganga um Breiðadals- og Botnheiði á norðanverðum Vestfjörðum. Mynd: Jim Smart • A-f lokkarnir vinna á Skoðanakönnun sem DV birti í gær staðfestir þá sveiflu, sem könnun Félagsvís- indastofnunar sýndi fyrr í vik- unni. Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi miðað við síðustu kannanir en A-flokkarnir vinna á. Þá dalar fylgi Framsóknar- flokks lítillega og Kvennalistinn vinnur á. Ef litið er eingöngu á þá sem afstöðu tóku í könnuninni fengi Alþýðuflokkurinn 14 prósent en hafði 11,1 í síðustu könnun DV, sem var tekin i lok mars. Fram- sóknarflokkurinn fengi nú 19 pró- Skeljungur hf. hefur sagt upp öllum starfsmönnum sínum á Reykjavíkurflugvelli nema stöðvarstjóranum. Um er að ræða sex menn og er meðal vinnualdur þeirra 19 ár. Einn mannanna hefur unnið hjá fyr- irtækinu í 44 ár. Kristinn Bjömsson forstjóri Skeljungs sagði ástæðuna vera þá að Flugleiðir væru nú í fyrsta sinn að bjóða út eldsneytisþarfir sínar á flugvellinum sem Skeljungur hefúr hafl með höndum allar göt- sent en hafði 20,2 prósent. Sjálf- stæðisflokkurinn fengi 45,1 pró- sent en hafði 51,8 prósent. Al- þýðubandalagið fengi 11,3 pró- sent en hafði 9,1 prósent. Kvennalistinn fengi 8 prósent en hafði 6,6 prósent. Þjóðrflokkur- inn, Flokkur mannsins er eini smáflokkurinn sem kemst yfir 1 prósent í könnuninni, fengi sam- kvæmt henni 1,3 prósent. DV birtir cinnig niðurstöðu í Reykjavík og Reykjanesi en tekur ftam að úrtakið nægi ekki til að þær niðurstöður séu fyllilega marktækar. I Reykjavík fengi Al- ur síðan 1938. Hann sagði að Skeljungur myndi bjóða í þetta verk sem aðrir. „Það liggur ljóst fyrir að við munum leggja niður starfsemi okkar á vellinum fáum við ekki samninginn. Við þurfum á þessu fólki að halda í dag vegna þess að við höfúm samninginn. Ef að við missum hann þá má segja að lið- lega 80 prósent af starfsemi fé- lagsins á Reykjavíkurflugvelli fari til einhvers annars og þá mun- um við ekki hafa störf fyrir þetta þýðuflokkurinn 14,2 prósent, Framsókn 8,2 prósent, Sjálfstæð- isflokkur 56,2 prósent, Alþýðu- bandalag 9 prósent og Kvennalisti 11,6 prósent. I Reykjanesi fengi Alþýðuflokkurinn 16,9 prósent, Framsókn 15,3 prósent, Sjálf- stæðisflokkurinn 49,2 prósent, Alþýðubandalag 7,4 prósent og Kvennalisti 6,3 prósent. Úrtakið var 1200 manns, jafnt skipt milli kynja og höfúðborgar og landsbyggðar. Óákveðnir 29,3 prósent og 7,4 prósent neituðu að svara. fólk,“ sagði Kristinn. Hann sagði að um skilyrtar uppsagnir væri að ræða og þannig yrðu öllum boðið starf ef Skelj- ungur fær samninginn. Ekki er um að ræða að menn- imir fái starf annarsstaðar hjá fyr- irtækinu og sagði Kristinn að ef til þess kæmi að starfsemi félags- ins drægist saman vegna missi samningsins þá væm þessar upp- sagnir ein af afleiðingunum. „Því miðursagði Kristinn. -gpm Kúrdar fá teppi og lopapeysur Rauði Kross íslands ráðgerir að senda 25.000 teppi, 7.000 lopapeysur og eitthvað af ullar- nærfatnaðj til flóttamannabúða Kúrda í íran og Týrklandi á þriðjudag eða miðvikudag í næstu viku. Þetta er hluti af 70 miljón króna aðstoð sem ríkistjómin sam- þykkti að veita Kúrdum á þriðju- dag. Hannes Hauksson fram- kvæmdastjóri RKÍ sagði að búið væri að tilkynna um þessa aðstoð Islendina og að nú væri verið á fúllu við að framleiða þessar vörur. Stærstir em Alafoss sem munu ffamleiða um 18.000 værðarvoðir. Sigurður Einarsson fram- leiðslustjóri vefdeildar Álafoss sagði að unnið væri öll kvöld auk þess sem unnið yrði nú um helg- ina. Hann sagði að send yrðu teppi sem lfamleidd hafa verið hjá fyrir- tækinu uppá síðakastið. Hannes sagði að auk Álfoss væm prjónastofúr vlða um land að vinna að þessu verkefni. Af tepp- um fara 15.000 til íran en 10.000 til Tyrklands. Ekki verða send matvæli en beðið hefúr verið um fé til kaupa á matvælum á stöðunum sjálfiim. Fólkið er íslamstrúar og borðar ekki hvað sem er. gpm -Sáf Öllum var sagt upp Pólitískum mannaráðningum mótmælt Starfsmannafélag Byggða- stofnunar og Fram- kvæmdasjóðs íslands mótmælir harðlega að pólitísk en ekki fag- leg sjónarmið ráði stöðuveiting- um við opinberar fjármála- stofnanir. Félagið samþykkti mótmælin á miðvikudag eftir að uppvíst varð að Guðmundur Malmquist, forstjóri Byggða- stofnunar, hafði sagt öðrum umsækjendum að hann hygðist mæla með því við stjórn stofn- unarinnar að Gunnar Hilmars- son yrði ráðinn deildarstjóri hlutafjárdeildar. Emil Bóasson, formaður starfsmannafélagsins, sagði að líta mætti á samþykktina sem að- vörun til stjómarinnar. í gær sendi Guðmundur frá sér fréttatilkynn- ingu þar sem fram kom að ekki er búið að ráða í stöðuna þar sem stjóm Byggðastofnunar þarf að staðfesta ráðninguna. „Nú hefur stjómin tækifæri til að hugsa sitt ráð,“ sagði Emil. Þá birtist í Pressunni í gær frétt þess efnis að talið væri að Guðmundur G. Þórarinsson yrði ráðinn aðstoðarforstjóri Fram- kvæmdasjóðs íslands. Haft er eft- ir Emil að honum hafi verið sagt að búið væri að ákveða að ráða Guðmund, sem ekki hafi starfs- reynslu, hvorki sem bankamaður né frá stofnuninni. Emil staðfesti í samtali við Þjóðviljann að þetta væri rétt. Sem kunnugt er hætti Guðmundur stjómmálaafskiptum í vor eftir að hafa lent í öðm sæti í skoðanakönnun Framsóknarfé- lagsins í Reykjavík um röðun á lista fyrir kosningamar. Stofnan- imar heyra báðar undir forsætis- ráðuneytið. Starfsmannafélagið bendir á í samþykkt sinni að með pólitísk- um mannaráðningum sé verið að sniðganga hæfa umsækjendur og bijóta ákvæði kjarasamninga en samkvæmt þeim á banka- fólk, og þar með starfsmenn Byggðastofnunar, að sitja fyrir við ráðningu í nýjar stöður. Félag- ið telur einnig óþarft að ráða í þessa stöðu þar sem engin þörf sé á henni og óljóst sé og ófrágengið hver starfsvettvangurinn verði. Mun ráðning Gunnars tengjast samkomulagi sem gert var við Stefán Valgeirsson, SJF, um stuðning við ríkisstjómina. Bend- ir félagið á að með þessu hafi ver- ið valinn einstaklingur með enga starfsreynslu innan Byggðastofn- unar. Emil sagði blóðugast í þessu sambandi að ekki væri um neitt starf að ræða, bara góð kjör. Þá gagnrýnir starfsmannafé- lagið að umsóknarffestur um aug- lýsingu vegna aðstoðarforstjóra- stöðunnar sé tvær vikur en eigi að vera fjórar. Félagið óttast að ófag- leg vinnubrögð verði viðhöfð þar eð í fyrra hafi starfið verið auglýst en enginn ráðinn en meðal um- sækjenda vom starfsmenn Fram- kvæmdasjóðs. -gpm Föstudagur 19. apríl 1991 NÝTT HELGARBLAÐ — SÍÐA 5

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.