Þjóðviljinn - 19.04.1991, Side 6

Þjóðviljinn - 19.04.1991, Side 6
Meginreglan gegn íhlutun á undanhaldi Önnur meginregla, um rétt til íhlutunar gegn yfirvofandi þjóðarmorðum, sækir á. Með hliðsjón af henni senda Vesturveldin hersveitir til íraska Kúrdistans Varla fer á milli mála að með því að senda hersveitir inn í íraska Kúrdistan eru Vesturveldin að hlutast til um innanríkis- mál íraks. Að hlutast ekki til um innanríkismál sjálfstæðra ríkja hefur verið meginregla í alþjóðasamskiptum (oft brotin þó) frá lokum heimsstyrjaldarinnar síðari og grunnatriði í starfsreglum Sameinuðu þjóðanna. Hinsvegar veitir Genfarsátt- málinn frá 1948 gegn þjóðar- morðum möguleika til slíkrar íhlutunar, frá sjónarhóli alþjóða- réttar séð. Sá sáttmáli var gerður er fjöldamorð nasista á gyðing- um, sígaunum, Pólverjum o.fl. voru í fersku minni. Breyting á affstööu vesturlandaríkja Ekki fer hjá því að þessar tvær meginreglur í alþjóðasamskiptum rekist á. I framkvæmd hefur það orðið þannig, að stjómvöld ein- stakra ríkja hafa komist upp með kúgun, ofsóknir og jafnvel fjölda- morð á eigin þegnum, án þess að heimssamfélagið hafi gripið inn í, og hefúr í því sambandi jafnan verið vitnað í meginregluna um að ekki megi hlutast til um innan- ríkismál. í skjóli þessarar reglu hafa stjómvöld Tyrklands, írans, íraks og Sýrlands getað neitað Kúrdum um menningarréttindi, kúgað þá og hrannmyrt. Hugsanlegt er að með því, sem nú er að gerast í íraska Kúrd- istan, sé að verða breyting á af- stöðu a.m.k. vesturlandaríkja til þessara tveggja meginreglna. Með þvi að senda her til vemdar Kúrdum inn í Norður-írak þvert K..E.W HOBBY HÁÞRÝSTIDÆLAN Á auðveldan hátt þrífur þú: Bílinn, húsið, rúðurnar, veröndina o.fl. Úrval aukahluta! Hreinlega allt til hreinlætis REKSTRARVÖRUR Reltarhafsi 2 - 110 R vik - Simar 31956-685554 gegn vilja íraksstjómar taka Bandaríkin, Bretland og Frakk- land meginregluna gegn þjóðar- morðum fram fyrir meginregluna um ekki- íhlutun. Hörmungunum var sjónvarpað Ýmislegt hefur lagst á eitt til að koma af stað þessum vísi að umskiptum. Mitterrand Frakklandsforseti og utanrfkisráðherra hans, Roland Dumas - minnt á Genfarsáttmál- ann frá 1948. í fyrsta lagi hefur athygli heimsins i fyrsta sinn beinst í stórum stíl að Kúrdum og þeirra örlögum. Hörmungamar sem yfir þá hafa gengið síðustu vikur em kannski ekki að stómm mun meiri en þær, sem þeir fengu að reyna 1988-89 og 1975, en í þetta sinn gátu vesturlandamenn dag- lega fylgst með þjáningum kúrd- neska flóttafólksins í sjónvarpinu, eins og Víetnamstríðinu, intifödu Palestínumanna og uppreisn blökkumanna Suður-Afríku áður. Það hafði ekki iítil áhrif á skoð- anamyndun. Það vakti rciði og hneykslun, sem bcindist gegn Bandaríkjastjóm, er spanað hafði sjíta og Kúrda í írak til uppreisnar og lét þó hryðjuverk Iraksstjómar á þeim afskiptalaus. Þótti þó liggja í augum uppi að cflir hrak- farir Iraks í Persaflóastríði væri Bandaríkjamönnum og banda- mönnum þeirra í lófa lagið að koma í veg fyrir að Saddam Iraks- forseti hefndi þess í héraði sem hallaðist á alþingi. í annan stað vakti hinn gífur- legi flóttamannastraumur til grannlanda íraks ótta við að hann ylli ókyrrð þar. Stjómir Tyrklands og Irans em þess hvetjandi að séð sé til þess að flóttamennimir þori að snúa heim, og þeir þora það ekki nema því aðeins að crlendir aðilar vemdi þá gegn stjómvöld- um lands þeirra. Það fer ekki á milli mála að aðgerðir Vestur- veldanna nú í Norður-Irak em framkvæmdar í samráði við tyrk- nesku stjómina. „Skylda til íhlutunar“ Frumkvæðið að þessu kom ffá helstu ríkjum Vestur- og Mið- Evrópu, Bretlandi, Frakklandi og Þýskalandi. Snemma í mánuðin- um upplýsti Roland Dumas, utan- ríkisráðherra Frakklands, að ffanska stjómin hefði í hyggju að stinga upp á að „skylda til íhlut- unar“ yrði staðfest í alþjóðarétti. Var svo að heyra á ráðherranum að franska stjómin væri í því sam- bandi ekki fráhverf því að breyt- ing yrði gerð á stofhskrá S.þ., með það fyrir augum að það yrði skýlaus skylda þessara samtaka, sem flest ríki heims eiga aðild að, að hlutast til um innanríkismál í löndum, þar sem þjóðarmorð væri yfirvofandi. Vesturveldin og þau ríki, sem með þeim standa að aðgerðum til að tryggja öryggi Kúrda í írak, gera sennilega ráð fyrir að íraks- her sé enn svo hræddur við þá að- ila, sem léku hann harðast í Persa- flóastríði, að hann muni ekki þora að aðhafast neitt gegn þeim. Hve langt Vesturveldin hyggjast ganga í þessum aðgerðum sínum er ekki ljóst og sennilegast er að þau hafi ekki glögga hugmynd um það sjálf. Ljóst er að það eitt að lina sárustu neyð flóttafólksins er aðeins stundarlausn. Viðhlít- andi ffambúðarlausn væri að tryggja Kúrdum víðtæka sjálf- stjóm, sem stórveldin og S.þ. ábyrgðust, ásamt rétti til nægilegs vopnabúnaðar til að tryggja ör- yggi sitt fyrir valdhöfum Iraks. Lrtil lausn aö losna viö Saddam Af ummælum talsmanna Kúrda sjálfra má marka að þeir líta á þetta sem lágmark til að fólki þeirra verði tryggt öryggi til frambúðar og saga þess um það bil sjö áratuga gamla ríkis íraks bendir til hins sama. Einn af meg- inþáttum þeirrar sögu hefur verið að þjóðir þær tvær, sem ríki þetta byggja, semískir arabar og ír- anskir Kúrdar, hafa aldrei unað sér saman. Kúrdar hafa aldrei sætt sig við arabísk yfirráð en hafa til málamiðlunar boðist til að láta sér lynda sjálfstjóm. Hún hefur hins- vegar ekki legið á lausu hjá vald- höfum í Bagdað, og Saddam er í stómm dráttum ekki öðruvísi en fyrirrennarar hans í því efni. Það er því hæpið að Kúrdar telji það neinn meginávinning fyrir sig að honum sé vikið frá völdurn, eins og nú virðist liggja í loftinu á ný, ef aðrar og meiri breytingar fylgja ekki. Vera má að það, sem undan- farið hefur verið að gerast í Aust- ur- Evrópu og Sovétríkjunum, hafi orðið fordæmi að því, sem nú er ef til vill að byrja að gerast i ír- ak. Júgóslavía virðist komin á fremsta hlunn með að liðast sund- ur í frumparta sína og margt bendir til að eins fari með Sovét- ríkin. A hinn bóginn má ætla að valdhafar sumra ríkja Asíu og flestra Afríkuríkja fylgist með skelfingu með ummælum manna 6 SÍÐA — NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 19. apríl 1991 Kúrdneskir flóttamenn við Irönsku landamærin - spuming vaknar um siðferðilegan tilverurétt rlkja, sem ekki virðist vera hægt að halda sam- an nema með gegndariausum hryðjuverkum á íbúum þeirra. Eþíópíu og Eritreu, Búrma og Karena og mörg fleiri dæmi mætti tína til. Fleiri innrásir? Það mætti sem sé búast við heilmiklu raski á landabréfinu af heiminum, ef meginreglumar um óbreytta ríkjaskipan og landa- mæri og gegn íhlutun í innanrík- ismál lækkuðu í gildi. Sú breyting fæli vitaskuld auk annars í sér hættu. Þrátt fyrir þessar reglur hafa margar innrásir verið gerðar á síðustu áratugum og yfirleitt ekki í mannúðlegum tilgangi. Hætt er við að umrædd viðhorfa- breyting örvaði til slíkra athafha. Á hinn bóginn, ef fjármunum þeim gifúrlega miklum, sem var- ið er til að halda uppi heijum og lögreglustofnunum til að halda saman ýmsum þriðjaheimsríkjum þvert gegn vilja íbúa þeirra yrði í staðinn varið til að efia landbún- að, skólakerfi o.s.ffv. ætti það að opna möguleika til að betra lífs fýrir íjölmarga í þeim löndum. Stuðningsmenn G-listans athugið! Samkvæmt nýjum kosningareglum er "kjósendum skylt að gera grein fyrir sér með því að framvísa nafnskírteini eða á annan fullnægjandi hátt". Munið því að taka með persónuskilríki á kjörstað! G.listinn í Reykjavík eins og Dumasar hins franska og því, sem er að gerast í Júgóslavíu og Irak. Rikin í þeim heimshlut- um eru mörg hver óskapnaðir, sem varla neitt heldur saman nema hervald. Ef ekki væri her- vald hins íslamska Norður- Sú- dans væri hið kristna og heiðna Suður-Súdan íyrir löngu búið að slíta sig írá því. Sama gildir um Kúrdneskur skæruliði (kona) við illa leikna mynd af Saddam - hæpið er að mikiö breytist við það eitt að hann hverfi af sjónarsvið- inu.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.