Þjóðviljinn - 19.04.1991, Qupperneq 8

Þjóðviljinn - 19.04.1991, Qupperneq 8
NÝTT IMÚÐVIUINN Útgefandi: Útgáfufélagið Bjarki h.f Afgrelósla: 6813 33 Framkvæmdastjóri: Hallur PáB Jónsson Rltstjórar Ámi Bergmann, Ótafur H. Torfason, Auglýsingadeiíd:» 68 13 Simfax: 68 19 35 10-68 13 31 ; Helgi Guðmundsson Verð: 150 krónur (lausasöl u Umsjónarmaður Helgarblaðs: Ragrtar Katisson Fréttasyóri: Slgurður Á. Friðþjófsson Setning og umbrot: Prent1 Prentun: Oddi hf. smiðja Þjóöviljans hf. Auglýsingastjóri: Steinar Haröarson Aðsetun Slðumúia37,10£ Reykjavík Málgagn sósíalisma, verkalýðshreyfingar og þjóðfrelsis Jafnar fylkingar Niðurstöður skoðanakönnunar Félagsvís- indastofnunar um fylgi stjórnmálaflokkanna komu talsvert á óvart en samkvæmt þeim verður fylgisaukning Sjálfstæðisflokksins minni en hingað til hefur verið reiknað með og Alþýðubandalagið hefur styrkt stöðu sína frá síðustu könnun. Dagblaðið birti síðan könnun í gær sem sýnir í grófum dráttum sömu breyt- ingar á afstöðu kjósenda frá síðustu könnun blaðsins. Morgunblaðið og Davíð Oddsson, formað- ur Sjálfstæðisflokksins, hafa skiljanlega áhyggjur af því sem kannanimar gefa til kynna. í leiðurum blaðsins er nú gripið til gamalkunnugs texta sem minnir óneitanlega talsvert á blómatíma kalda stríðs og rússa- grýlu og hinn nýkjörni formaður segir fundar- mönnum í Kópavogi að hætta sé á nýrri vinstri stjórn ef stuðningsmenn hans herði ekki róðurinn. Það er rétt sem formaður Sjálfstæðis- flokksins segir: það sem hann kallar hættu virðist nú raunverulegur möguleiki. ( könnun Félagsvísindastofnunar fær stjórnarandstað- ari, Sjálfstæðisflokkur og Kvennalisti, saman- lagt um helming atkvæða, stjórnarflokkarnir lítið eitt minna og smáflokkarnir samanlagt innan við 3%. Af þessu má sjá að tækifærið sem Sjálfstæðisflokkurinn taldi sér fært upp í hendurnar með formannsskiptunum er fjarri því að vera tryggt. Sá möguleiki blasir við að ríkisstjórnin haldi velli. Með öllum fyrirvörum sem nauðsynlegir eru við mat á skoöanakönnunum virðist fylgi Alþýðubandalagsins nú fara jafnt og þétt vax- andi. Hið mikla starf sem flokkurinn hefur unnið í ríkisstjórninni og kraftmikil kosninga- barátta er vonandi að skila þeim árangri að flokkurinn haldi að minnsta kosti hlut sínum miðað við síðustu kosningar, þvert á allar spár til þessa. Enda þótt þetta bendi til verulegra um- skipta er langt frá því að þessi árangur liggi fyrir, skoðanakannanireru annað en kosning- arnar sjálfar. Á hinn bóginn benda niöurstöö- urnar til þess að það velti á fylgi Alþýðu- bandalagsins hvort mögulegt verði að mynda nýja vinstri stjórn eftir kosningarnar því sam- kvæmt þeim er Alþýðubandalagið, eitt stjórn- arflokka, líklegt til að bæta við sig fylgi. Að slepptum Borgaraflokki og Stefáni Valgeirs- syni, höfðu stjórnarflokkarnir 31 þingsæti af 63. Stefán Valgeirsson er ekki lengur í fram- boði, fylgi Frjálslyndra (Borgaraflokksins) mælist innan við 1%. Þeir koma því ekki til álita við næstu stjórnarmyndun. Þetta þýðir að stjórnarflokkana vantar aðeins eitt þing- sæti til að geta haldið stjórnarsamstarfinu áfram. Það er nákvæmlega þetta sem Davíð Oddsson óttast, því hann sér að ef niðurstaða kosninganna yrði í samræmi við skoðana- könnun Félagsvísindastofnunar ætti Alþýðu- bandalagið möguleika á 10 þingmönnum og þar með væri vinstri meirihluti á þinginu. Margt bendir til að kosningabaráttan hafi snúist Alþýðubandalaginu í hag, stærri hluti kjósenda sé að átta sig á þeim mikla hlut sem flokkurinn á að árangri ríkisstjórnarinnar. Því fer þó fjarri að nokkuð sé víst í þeim efnum, því könnun Félagsvísindastofnunar bendir líka til þess að stór hópur kjósenda geri ekki upp hug sinn fyrr en á síðustu stundu. Kosn- ingavinna daginn fyrir og á kjördaginn sjálfan getur því skipt sköpum, þingmannatalan get- ur oltið á fáeinum atkvæðum, og um leið er ástæða til að minna á að skoðanakannanir Sjónvarpsins í hverju kjördæmi fyrir sig, sem eru að sönnu orðnar allgamlar, sýndu að flokkurinn þyrfti á öllu að halda til að halda þeim þingsætum sem hann hefur haft. Því sýna skoðanakannanirnar að það er til mikils að vinna fyrir allt vinstra fólk í landinu. Þær sýna í senn mikilvægi þess að liðsmenn Alþýðubandalagsins liggi ekki á liði sínu á lokaspretti kosningabaráttunnar og þá mögu- leika á árangri sem flokkurinn á. hágé. 0-ALIT 8 SlÐA — NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 19. apríl 1991 Ö AGtö —• GAJ8HAOJ3H 'Ct'A ínq& .íir

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.