Þjóðviljinn - 19.04.1991, Page 12
■ r
t*%sæ$/ /p,«*<*$/JLsjP'*
œw
Ungir og aldnir á bingókvöldi í Glæsibæ. Gestunum var illa við mynda-
femiöinn, og var hann að lokum rekinn á dyr. Meirihluti bingóspilara fer
dft I viku, enda boðið upp á bingó hvert einasta kvöld ( Reykjavlk.
Nikulás 38, Ingi 19, Bjarni 6. Bingó! Og það er bingó á
Bjarna 6. Þykkur reykjarmökkur liggur yfir salnum, þögn rík-
ir þrátt fyrir að hátt í 300 spilarar séu þar saman komnir.
Fremst í salnum, upp við svið, situr stúlka við tölvu og syngur
tölurnar. Við erum stödd í Vinabæ þar sem menn eru saman
komnir til að spila bingó.
Stemmningin er sérkennileg,
blaðamaður Nýs Helgarblaðs
laumast feimnislega inn í salinn
þar sem öll borð eru setin og bið-
ur eina af fjölmörgu bingómiða-
sölustúlkunum um aðstoð. Þetta
er enginn vandi, segir hún. Fyrst
er spilað um eina línu, hom og lít-
inn kross, svo um tvær, þá þrjár,
síðan fjórar og að lokum fimm.
Ég kinka kolli skilningsvana og
fæ leyfi til að tylla mér niður hjá
eldra pari sem situr með þijú kort
hvort við eitt reykingaborðið. Ég
viðurkenni fákunnáttu mína og
þau reynast mér hjálpleg. Tölum-
ar eru lesnar upp og ég dreg hring
utan um þær tölur sem ég finn á
spjaldinu. Þótt sessunautur minn
sé með þrjú spjöld er hún fijótari
en ég að finna tölumar og bendir
mér á þær sem ég finn ekki á
mínu eina.
Spennan magnast
Brátt á ég bara eina tölu eftir í
bingó. Hjartað slær hraðar og ég
fæ sting í magann, én ekki við til-
hugsunina um vænan vinning,
heldur af ótta við að þurfa að kalla
bingó yfir fúllan sal af ókunnugu
fólki. Sem betur fer er einhver í
salnum heppnari en ég. „Og það
er bingó á Gunnar 51,“ segir
Heppnin
ermeömér
í kvöld
Bílakraðak er fyrir utan
Templarahöllina, Vinabæ og
Glæsibæ þau kvöld sem nokkur hundruð
manns koma saman og freista gæfunnar í
Bingói
hafi kynnst bingóinu þegar hún
fór ung með móður sinni og
frænku einu sinni. Enda er al-
gengt að sjá eldri og yngri konur
sitja saman við bingóborðin í
Vinabæ, kannski mæðgur. Unga
konan sem ég rabba við segist
ekki fara eins oft núorðið, hún er
komin með böm og bum. Henni
þykir fólk almennt hafa of nei-
kvæða mynd af bingóspilurum. -
Við sem stundum þetta lítum á
þetta eins og hobbý sem er ekkert
verra en hvað annað. Sumir glápa
á sjónvarp öll kvöld, aðrir hanga á
knæpum fram eftir nóttu. Alls
staðar er hægt að finna einhveija
sýki ef menn kæra sig um.
Þeir sem þekkja til bingóspil-
ara segja að margir séu forfallnir
og fari hvert einasta kvöld. Auð-
veldlega er hægt að eyða allt upp
30 þúsund krónum á viku. Kona
sem stundum spilar segir mér að
fastagestir fái oft Iánað fyrir
spjöldum. Stundum kemur fýrir
að sá sem er illa settur lætur
sessunaut sinn kalla bingó svo að
vinningurinn fari ekki upp í
skuldina.
Eftir áttundu umferð eykst
spennan í Vinabæ til muna, kom-
ið er að pottinum og nú taka menn
fram grænu spjöldin. Happatalan í
kvöld er Bjarni 6. Kalli einhver
bingó á hana, og hafi jafhframt
tvær línur eða fleiri, fer sá bingó-
ari rúmum 200 þúsund krónum
ríkari heim. Nú er það vonin um
peningana sem hnýtir á mér mag-
ann. Eg leita að Bjama 6 og byija
að draga hringi í kringum tölum-
ar. Þegar happatalan kemur upp
stúlkan í míkrafóninn þegar hjá-
róma rödd heyrist aftan úr sal.
Aðstoðarstúlkumar í bleiklituð-
um íþróttagöllum em snöggar að
borði þess heppna og kalla upp
númerið á spjaldinu. Númerið er
slegið inn í tölvuna og birtist á
stóm tjaldi ofan við sviðið. Þá
birtist mynd af spjaldinu og geng-
ið er úr skugga um að bingó hafi
það verið. „Og það var rétt. Nú
spilum við tvær raðir og krossinn
fellur úr gildi.“ Afram em tölum-
ar lesnar þar til einhver fær fimm
línur og 25 þúsund krónur í vas-
ann. Þegar umferðinni lýkur er
þögnin rofin af pappírsskráfi,
spjalli og kveikjarasmellum.
Menn veifa peningaseðlum og
bingóvinningamiðum til að vekja
athygli stúlknanna á því að þá
vanti fleiri spjöld, sumir þjóta
fram og kaupa kaffi og kók. Flest-
ir eiga bunka af spjöldum á borð-
inu hjá sér og líma nokkur þeirra
saman miili umferða. Ný stúlka
sest við tölvuna og sjöunda um-
ferð hefst.
Blaðamaður tekur sér hlé
þessa umferð til að virða fólkið í
salnum betur fyrir sér. Flestir eiga
ömmur og langömmur sem fóru á
bingó í gamla daga. Þá voru ekki
peningar í verðlaun heldur alls
kyns nytjahlutir, og því fengu byr
María, starfsstúlka I bingói Knatt-
spymufélags Þróttar, les bingótöl-
ur þlðum rómi I Glæsibæ. Myndir:
Kristinn.
undir báða vængi sögur af bingó-
kerlingum á elliheimilum sem
vart gátu lengur sofið á beddun-
um sínum vegna mínútugrilla,
hárblásara og fótanuddstækja
undir þeim. Þetta er bingó af allt
öðru tæi. Þótt vart verði menn
miljónamæringar af því að spila
eru peningar í húfi. En meira
rennur úr vösum spilara en í þá.
Nútímabingóspilarar eru á öllum
aldri, þótt konur sem komnar eru
af léttasta skeiði séu einna Qöl-
mennastar. Á einu borði sitja Qór-
ar ungar og huggulega konur, og á
öðru vel klæddur maður með
pípu. Nokkrir ungir karlmenn eru
í salnum en fiest eru kvennaborð-
in.
Ekki verra
en sjónvarpsgtáp
Ég hitti unga bingókonu á
kaffihúsi. Hún segir mér að hún
Llmtúban, sígarettumar, kaffi,
rauðurtússari, að ógleymdum
bingóspjöldunum, eru ómissandi
á hvert bingóborð. Að sögn Þrótt-
ara eru langflestir bingóspilarar
reykingafólk. Menn eiga sér sln
sæti og þekkja starfsstúlkumar
með nafni.
fer óánægjukliður um saliim; eng-
inn sagði bingó og potturinn
geymist þar til næst. Þá verður
hann tíu þúsund krónum feitari.
Þeir sem spila bingó þvertaka
fyrir að vera bingóflklar, þótt allir
þekki þeir einhveija slíka. Engin
heildarkönnun hefur verið gerð á
íslandi í fiklamálum; allir vita þó
að þjóðin er happdrættis- og lottó-
sjúk. Þegar velta stóru happdrætt-
anna er borin saman við bingóin -
stærstir í bransanum eru Templar-
ar - er velta þeirra síðamefndu lít-
il; nokkrir tugir miljóna á ári.
Happdrættin velta hinsvegar
hundmðum miljóna. En það er
ljóst að geysilegir hagsmunir eru í
húfi.
Ellilífeyrinn
í spilakassann
Að sjálfsögðu em ekki allir
sem spila með í lottóinu flklar, og
margir fara á bingó til að sýna sig
og sjá aðra. Nokkrir taka líka í
spil áður en byijað er á fyrstu um-
ferð. Þvi er hins vegar ekki að
neita að margir ráða ekki við sig
og fara hvert einasta kvöld án
þess að eiga fyrir því.
En allra ötulustu „fjárhættu-
spilarar“ landsins virðast vera af
eldri kynslóðinni. Það þekkja þeir
sem fara út í sjoppu á laugardög-
um (a.m.k. í Vesturbænum) að
lottókaupendur em flestir ellilíf-
eyrisþegar. Þá segir afgreiðslu-
fólk i sjoppum með spilakassa að
gamalt fólk gangi á milli sölu-
tuma í bænum og spili fyrir nokk-
ur hundmð krónur á hveijum stað.
í spilakassahöllum erlendis
standa gamlar konur í röðum dag-
inn út og inn, veiklulegar með
æðahnúta, og kasta ellilífeyrinum
í maskínumar. Auðvitað er hægt
að hugsa sem svo að þetta fólk
hafi fátt annað að gera, „fjár-
hættuspilið“ geri langdreginn
hversdagsleikann spennandi,
hjartað slái örar og blóðið renni
hraðar um aldnar æðamar. Indæla
parið sem ég sat hjá á bingóinu
sögðust fara oft, þau göntuðust
með það að þau þyrfhi að fara í
meðferð til að losna við þennan
vana. Stórstúka íslands heldur
mönnum ffá áfenginu en færirþví
bingósýkina í staðinn, eða hvað?
Unga konan sem ég rabbaði við
sagði flkla vera á fleiri stöðum en
í bingósölunum; á bömnum, í lík-
amsræktarsölunum, meðal
bridgespilara og svo mætti lengi
telja. Án þess að hafa gert á því
vísindalega könnun, ætlar blaða-
maður Nýs Helgarblaðs samt sem
áður að halda því fram að flestir
þeir sem mættir vom í Vinabæ á
dögunum hafi verið fólk sem ekki
hefur ajlt of mikið fé handa á
milli. I hita bingósins renna
hundraðkrónaseðlamir út. Hvem-
ig hefúr verkakona efni á að eyða
tugþúsundum króna á viku í
bingó? Þeir sem til þekkja segja
flesta bingóspilara fara a.m.k.
fimm sinnum í viku, í Reykjavík
er hægt að spila bingó hvert ein-
asta kvöld.
Eins og áður sagði er enginn
fíkill en allir þekkja fikla. Erfitt
reyndist að fá að mynda þessar fé-
lagssamkomur. Á einum stað var
okkur vísað frá, á öðmm fengum
við leyfi til að mynda en vegna
mikilla mótmæla gesta var
myndasmiðnum vísað á dyr. Er
eitthvað að fela? Ein kona kvaðst
hrædd um að maðurinn sinn ræki
augun í mynd af sér í blaði; hún
hafði nefnilega sagst vera að fara í
saumaklúbb. BE
12 SÍÐA— NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 19. apríl 1991