Þjóðviljinn - 19.04.1991, Side 20

Þjóðviljinn - 19.04.1991, Side 20
Kosningar - pólitík - kosningar Hæ Krakkar! Hafið þið komist hjá að heyra að það eru kosningar 20. apríl? Það þýðir að þjóðin á að kjósa 63 þingmenn til að setja okkur lög næstu fjögur árin. Og þeir eiga að ákveða, hvernig skattpeningun- um er skipt á milli fólksins í land- inu. Skattar eru nefnilega pening- ar, sem fara í að borga það sem er dýrt, en allir verða einhvem tíma að nota. Þeir fara í skóla og námsbækur, götur og gangstéttir, sjúkrahús, vegi, flugvelli og margt, margt, margt fleira. Kannski hafið þið lítinn áhuga á pólitík, en pólitíkin hefur samt mikil áhrif á líf ykkar. Það voru t.d. stjórnmálamenn, sem ákváðu það fyrir mörgum áratugum að það skyldi vera skólaskylda á Is- landi. Fyrst var hún bara nokkur ár, en alveg nýlega voru sam- þykkt ný lög um grunnskóla, þar sem ákveðiö er að nú skuli skóla- skylda vara i 10 ár. Tilgangurinn er að þið hljótið meiri og betri menntun. I fátækum löndum eru meira en 100 miljón börn, sem ekki ganga í neinn skóla og fá ekki að læra að lesa. Og þótt þau læri að bjarga sér í lífinu á annan hátt, þá eru þau flest dæmd til fátæktar og fáfræði alla ævi. (slensk börn eiga ekki að vera fáfróð böm. Og þótt þau fái ekki að kjósa, þá vita sum samt sem áður töluvert um stjórnmál og stjórnmálabaráttu. Sum eiga líka foreldra, sem eru frambjóðendur og stjórnmálamenn, eða afa og ömmur, og nokkur fá að fara á kosningafundi. Það fékk a.m.k. hún Iris Lilja Ragnarsdóttir 9 ára stelpa í Kópavogi, sem sendi Hænsnaprikinu þessa ágætu mynd frá fundi Alþýðubandlags- ins. _ u ■ Kveðja Ég var á fundinum 4. april f Félagsheimili Kópavogs og var að hlusta á hann ÓLA og það var mjög gaman. Iris Lilja Ragnarsdóttir 9 ára. _ - — f'j i í J ^0» »> tiíyj ý&ttf ^ ~þvA'r hvirt.'r í.- •Ok.ra h t'c r'u O ~j « v | < i . Dans í d-moll Dansaðu á gegnsæju skýi úr silki fljúgðu til fegurri heima æ strákar æ stelpur jarðarbörn sem hrærum ergelsinu saman við súkkulaðibrúnan hversdaginn og mökum okkur öll út Maja: Ég finn að það er vor I lofti. Berglind Gunnarsdóttir Símasambandið - Eyja, hæ, þetta er Óli Helgi. - Sæll vinur. - Eyja.til hvers eru þessarkosn- ingar sem allir eru að tala um? - Kosningar eru til þess að kjósa fólkið sem á að stjórna þjóðfélaginu. - Af hverju þarf endilega að stjórna því? - Ja, þegar stórt er spurt, verður oft lítið um svör. Það er nú eitt það mikilvægasta sem þarf að gera í hverju þjóðfélagi, það er að stjórna því. - Af hverju er það svona mikil- vægt? Af hverju mega ekki bara allir gera eins og þeir vilja? - Af því það gengur ekki upp. Ef allir bara gera eins og þeir vilja, þá er svo mikil hætta á því, að allir rekist á og allt fari í hnút. Hugsaðu þér, hvernig færi, ef allir bílar keyrðu bara eins og þeir vildu, og ekki væru til neinar umferðarreglur. Hvað held- urðu að gerðist þá? - Slys. - Einmitt. Það yrðu stöðug slys. Umferðarreglur eru alveg bráðnauð- synlegar, ef fólk vill komast lifandi heim til sín. Sama gildir um þjóðfé- lagið. Það er lífsnauðsyn að hafa reglur í þjóðfélaginu, svo við slösum ekki hvert annað og drepum í stöðug- um árekstrum. Og við kjósum stjórn- málamenn á þing til þess að búa til þessar umferðarreglur, sem við köll- um LÖG. - En af hverju eru allir svona æst- ir? Af hverju eru allir að rífast út af þessu? - Af því að allir geta ekki verið sammála um, hvernig lögin eiga að vera. - Af hverju ekki? - Af því allir menn þurfa ekki alltaf það sama. Það er breytilegt eftir að- stæðum. Sjómenn hugsa um annað en bændur. Konur hugsa um annað en karlar. Og börn þurfa annað en fullorðnir. Samt þurfa allir menn húsaskjól, mat og föt á kroppinn. En börn þurfa þar að auki góða skóla. Fullorðnir eru búnir að vera í skóla og farnir að hugsa meira um vinnuna sína og hvað þeir fá í kaup og borga í skatta og svoleiðis. Og kannski eru þeir alveg búnir að gleyma því, hvernig þá langaði til að lífið væri, þegar þeir voru börn. - En af hverju fá þá börn ekki að kjósa? - Af því lögin segja að maður verði að skilja þjóðfélagið til þess að geta kosiö. Maður verður að hafa lært um það. Maður verður að vera orðinn 18 ára. - Skilur maður þá þjóðfélagið? - Það er ætlast til þess. En ég skal samt hvísla því að þér hér í sím- ann, að það er nú stundum alveg á mörkunum að maður geri það. Líka þótt maður sé bæði tvisvar og þrisvar sinnum 18 ára. - Og ætlarðu samt að kjósa? - Já, já. Ég ætla samt að kjósa. - Hvað ætlarðu að kjósa? - Það segi ég ekki. Það er nefni- lega ein mikilvægasta reglan í lýð- ræðislegum kosningum eins og hjá okkur, að þær eru leynilegar. Maður þarf engum að segja, hvað maður kýs. Það er leyndó. 20 SÍÐA— NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 19. apríl 1991

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.