Þjóðviljinn - 19.04.1991, Qupperneq 22
Geller tefldi bestu skákina
Virtasta skáktírriarit sem gefið
er út í heiminum, Informant er ný-
útkomið. Þetta er 5o. heftið en
tímaritið Informants hóf göngu
sína 1966 og hefur æ síðan komið
út tvisvar á ári. Það hefúr að
geyma u.þ.b. 700 skákir langflest-
ar skýrðar af teflendunum sjálfúm,
auk þess aragrúa upplýsinga svo
sem mótatöflur, skákstigalista og
margt fleira. Allt frá byrjun hefúr
staðið yfir val á bestu skák undan-
gengins heffis og einnig hefúr ver-
ið valin sú skák sem hefúr að
geyma mikilvægasta fræðilega
innleggið. Löngum hafa Garrij
Kasparov og Anatolij Karpov
koinist hátt í þessu kjöri sem er
ekki skritið þegar tekið er tillit til
þess að skákir vekja og þátttaka í
mótum vekur yfirleitt feiknarlega
athygli. Þeir eiga þó ekki bestu
skákina að þessu sinni né heldur
ffæðilega mikilvægustu skákina.
Viktor Kortsnoj var þar langefstur
á blaði fyrir nýjung sem hann kom
fram með í „broddgaltarafbrigð-
inu“ í enska leiknum í skák við
Israelsmanninn Greenfeld. Svo
einkennilega vill samt til að þessi
nýjung var löngu komin fram.
Viktor Kortsnoj ætlaði að nota
hana gegn Jóhanni Hjartarsyni í 6.
einvígisskákinni í Saint John en
fékk því ekki við komið. Ilinsveg-
ar var aðstoðarmaður hans, Dmi-
try Gurevic svo djarfur að nota
hugmyndina í fyrsta og eina
heimsmeistaramótinu i hraðskák
sem haldið var í Sa-
int John eftir áskor-
endaeinvígin.
Verðlaunin fyrir bestu skákina
komu í hlut Efim Geller fyrir skák
sína við Alexei Dreev en hún var
tefld á opna New York mótinu á
páskum í fyrra. Skákin er ffæði-
lega athyglisverð og einkar vel út-
færð hjá Efím. Dómnefndin gaf
honum 45 stig en svo skemmtilega
vildi til að Geller átti þar sjálfur
sæti og gaf skákinni af sannkall-
aðri hógværð 9 stig. Þessi stiga-
gjöf réð úrslitum því stutt var í
næstu skák, viðureign Miles og
DeFirmian sem Bandarikjamaður-
inn vann eftir giæsilega tafl-
mennsku. Hún fékk 41 stig en þar
sem Nick var ekki í dómnefndinni
verður hann að láta sér lynda 2.
sætið. Skákin fékk hæstu einkunn,
10 stig, hjá tveimur dómnefndar-
meðlimum. Sá sem þessar línur
ritar komst hærra en nokkru sinni
fyrr og lenti í 5. sæti með 37 stig
fyrir skákina við Levitt á Reykja-
víkurskákmótinu í fyrra. Skákin
fékk hæstu einkunn hjá Speelman
og 9 stig hjá Ribli og Christiansen,
Ekki komst hún á blað hjá Bent
Larsen og undrar engan. Hann hef-
ur aldrei almennilega getað sætt
sig við sambandsslit Islendinga
við Dani 1944.
Skák Geller og Dreev hefur
birst hér áður. Sjaldan er góð vísa
of oft kveðin. Skákin kemur hér
með þeim athugasemdum sem
Geller gerði við hana í Informant:
New York 1990:
Efim Geller - Alexei Dreev
Frönsk vörn
1. c4 e6
2. d4 d5
Helgi
Óiafsson
3. Rd2 a6
4. RgO c5
5. exd5 exd5
6. Be2 c4
7. 0-0 Bd6
8. b3 b5
9. a4 Bb7
(Nýjung á þeim tíma sem
skákin var tefld. Áður hafði verið
leikið 9. c3 en Geller hafði áður
unnið glæsilegan sigur með
mannsfóm og síðar drottningar-
fóm: 10. axb4! cxd2 11. Bxd2 Bb7
12. bxa6 Rxa6 13. Bxa6 Hxa6 14.
De2t De7 15. Dxa6.)
10. bxc4 bxc4
11. Bxc4!
(Staðan kveður á um þessa
djörfú mannsfóm.)
11.. . dxc4
12. Rxc4 Be7
13. Hel Dc7
14. Hbl
(Þó Geller sé manni undir er
hann ekkert að flýta sér. Hann
kemur mönnum sínum í góðar
stöður. Nú er hótunin 15. Hxb7.)
14.. . Dxc4
(Það er erfitt að finna betri
leik.)
15. Hxb7 Rc6
16. Rd2!
(Þessi fjarstæðukenndi leikur
er kannski sá fallegasti í skákinni.
Riddarinn virðist loka fyrir bisk-
upinn en fleira býr undir, drottn-
ingunni opnast nefhilega leið út á
borðið.)
16... Dxd4
(16. .. Dd5 er svarað með 17.
Re4 o.s.frv. og 16. .. Dxa4 ,með
17. d5! með myljandi sókn.)
17. Bb2 Dxa4
18. He4 Da2
19. Bxg7 0-0-0
20. Hb3!
(Geller gpfur upp ftamhaldið
20... Rf6 21. Hc4 Hxd2 22. Hxc6t
Kd7 23. Dxd2 Kxc6 24. Dc3t og
vinnur.)
20... Bf6
21. Dg4t Kc7
22. Df4t Kc8
23. Bxf6 Rxf6
24. Dxf6 dxc2
25. Df5t
- Dreev gafst upp því hann tap-
ar drottningunni, 25. .. Hd7 26.
He8+ eða 25. ,.Kc7 26. He7t.
Efim Geller.
Góðþátttaka
Undanrásir íslandsmótsins í
tvímenning voru spilaðar um síð-
ustu helgi. Góð þátttaka var. 96
pör mættu til leiks. Spilað var í
nýju íþróttahúsi fatlaðra. Eftirtal-
in pör áunnu sér rétt til þátltöku í
úrslitum, sem verða spiluð um
aðra helgi, í Sigtúni 9:
Ólafur Lámsson - Hermann
Lámsson 1352, Valur Sigurðsson
- Guðmundur Sveinsson 1343,
Öm Amþórsson - Guðlaugur R.
Jóhannsson 1309, Jakob Kristins-
son - Pétur Guðjónsson 1293,
Oddur Hjaltason - Eiríkur Hjalta-
son 1284, Ásmundur Pálsson -
Guðmundur Pétursson 1280, Óm-
ar Jónsson - Guðni Sigurbjama-
son 1256, Anton Haraldsson -
Stefán Ragnarsson 1241, Guðjón
Einarsson — Þórður Sigurðsson
1241, Hrólfur Hjaltason - Ásgeir
Ásbjömsson 1234, Gylfi Baldurs-
son - Sigurður B. Þorsteinsson
1231, Guðmundur Páll Amarson
- Þorlákur Jónsson 1230, Sig-
tryggur Sigurðsson - Bragi
Hauksson 1214, Runólfur Jóns-
son - Gunnar Þórðarson 1213,
Matthías Þorvaldsson - Sverrir
Ármannsson 1212, Erlingur Am-
arson - Kjartan Ingvarsson 1208,
Júlíus Snorrason - Sigurður Sig-
urjónsson 1198, Kristófer Magn-
ússon — Friðþjófur Einarsson
1196, Sigurður Vilhjálmsson -
Rúnar Magnússon
Ámason 1178, Jón Ingi Bjömsson
- Hannes R. Jónsson 1175, Vil-
hjálmur Sigurðsson - Þráinn Sig-
urðsson 1169, Páll Þór Bergsson -
Jömndur Þórðarson 1169, Isak
Öm Sigurðsson - Valgarð Blön-
dal 1166, Stefán G. Stefánsson -
Skúli Skúlason 1158. Til vara eru:
Sveinn Þorvaldsson - Bjarni
Jónsson 1153 og Rúnar Lámsson-
Guðlaugur Sveinsson 1151.
Að auki bætast í hópinn 7
svæðismeistarapör, sem em: Að-
alsteinn Jörgensen - Jón Bald-
urssson Rvk. Þórður Bjömsson -
Birgir Öm Steingrímsson Rnes.
Karl Alfreðsson - Tryggvi
Bjamason Vland. Amar Geir
Hinriksson - Einar Valur Krist-
jánSson Vfj. Steinar Jónsson -
Ólafur Jónsson Nve. Björgvin
Leifsson - Jóhann Gestsson Ney.
Pálmi Kristmannsson - Jóhann
Þorsteinsson Aust. Af Suðurlandi
komust ekki til leiks þeir Kristján
Már Gunnarsson og Vilhjálmur Þ.
Pálsson.
Eins og áður sagði tóku 96 pör
þátt í forkeppninni að þessu sinni,
sem er töluvert betri þátttaka en
síðustu 2 árin. Með svæðispörun-
um má telja að þátttakan hefði
verið yfir 100 para markið. Mesí-
ur fjöldi er þó 112 pör og þar áður
108 pör, sem tekið hafa þátt í und-
anrásum fyrir íslandsmótið í tví-
menning, síðan þátttakan
vargefin frjáls, í stjómartíð
Bjöms Theodórssonar fv.
forseta BSÍ.
Olafur
Lárusson
Og úrslitin verða að þessu
sinni spiluð í „heimahögum", í
Sigtúni 9. Verður ffóðlegt að
fylgjast með framvindu mála þar,
en til stendur að bæta veitingaað-
stöðuna og rými fyrir áhorfendur,
fyrir úrslitin.
Keppnisstjóri var Agnar Jörg-
ensson og útreikning annaðist
Kristján Hauksson.
Þátttaka í happdrætti Bridge-
sambandsins til styrktar landslið-
um okkar í ár, hefur verið góð.
Dregið verður 26. apríl, í úrlitum
lslandsmótsins í tvímenning. Enn
em nokkrir óseldir miðar á skrif-
ostfu BSI. Er skorað á þá sem enn
hafa ekki tryggt sér miða að gera
það hið fyrsta. Málefnið er gott.
Af þeim 32 pömm sem spila
til úrslita um Islandsbikarinn í tví-
menning koma 17 pör frá Bridge-
félagi Reykjavíkur, 3 pör frá Ak-
ureyri, 3 pör úr Kópavogi, 2 pör
frá Selfossi, 1 frá Þorlákshöfn, 1
frá Húsavík, 1 frá Akranesi, 1 frá
ísafirði, 1 frá Siglufirði, 1 frá Eg-
ilsstöðum og 1 frá Hafnarfirði.
Hlutfall bridgefélagspara fer
því heldur minnkandi ár frá ári,
sem þýðir á móti (venjulega) að
styrkur viðkomandi móts er minni
en ella. Pör sem ekki „náðu“ í
gegum síuna að þessu sinni en
hafa fyllilega styrk, em t.d.: Bjöm
Eysteinsson-Guðmundur Her-
mannsson, Magnús Ólafsson-Jón
Þorvarðarson, Páll Valdimarsson-
Ragnar Magnússon, Ásgrímur
Sigurbjömsson-Jón Sigurbjörns-
son, Hjalti Elíasson-Páll Hjalta-
son, Hjördís Eyþórsdóttir-Svavar
Bjömsson.
Á móti kemur að nokkrir
þeirra sem áunnu sér rétt að þessu
sinni em algerir nýgræðingar í úr-
slitakeppni íslandsmóta. Má þar
nena Stefán Stefánsson og Skúla
Skúlason frá Akureyri og Erling
Amarson og Kjartan Ingvarsson
úr Þorlákshöfn. Ut af fyrir sig
gleðileg framþróun, eða hver
sagði að menn væm áskrifendur
að úrslitum?
Hjá Skagfirðingum í Reykja-
vík stendur nú yfir eins kvölds
tvímenningskeppni. Sigurvegarar
siðasta þriðjudagskvöld urðu
Helgi Hermannsson og Kjartan
Jóhannsson.
Trúlega var þessi hendi mesta
„ófreskjan" í undanrásunum um
síðustu helgi.
4: 7543
44: K5
♦: K973
*: K105
4: 1092 4:ÁKDG86
«4: G83 44: 9
♦ : ÁD ♦: 8
*: DG976 ♦: Á8432
4:--
44: ÁD107642
♦ : G106542
*:--
Eins og gefúr að skilja, vom
margar útgáfur í gangi af niður-
stöðutölum spilsins. Nokkur pör
sóttu spilið alla leið upp í 6 hjörtu,
sem A/V „leyfðu“ sér að dobla.
Enginn þeirra fann hins vegar
tígulútspilið og unnust því alls
staðar 6 hjörtu. Og aðrir „stálu“
samningnum í 5 spöðum, sem
Norður „leyfði" sér að dobla.
Hjördís Eyþórsdóttir náði slíkum
samning. Bræðumir Lámssynir
fengu hins vegar að spila 4 spaða,
sem enginn hafði neitt við að at-
huga. Rúnar Lámsson og Guð-
laugur Sveinsson renndu sér í 6
hjörtu, yfir 5 spoöðum, sem þeim
„fannsl líklegt" að stæði. Fómin
sú bogaði sig heldur betur.
Og svo er einhver að kvarta
yfir tölvugjöfum í bridge? Þessi
hönd var handgefin, eins og aðrar
í undanrásunum.
Þó er ástæða til að vara BSI
við „villtri" tölvugjöf í úrslitum
íslandsmótsins í tvímenning. Með
þeirri tegundinni mætti eins nefna
úrslitin, Islandsmót í atspili. Villt-
ar og „óagaðar" tölvugjafir eiga
ekkert erindi inn í úrlitakeppni í
Islandsmóti. Þær hendur sem spil-
ast þar, eins og í öðmm handgefh-
um mótum, eiga einungis að end-
urspegla þann fjölda spila (í þessu
tilviki 124 spil) sem tölfræðin
segir að geti komið upp með þeim
skiptingum sem telja má líkleg-
astar til að koma upp, með tilliti
til fjölda spila.
Og þar er víða pottur brotinn
hér á landi. Alltof oft mega ís-
lenskir úrvalsspilarar búa við þá
vanþróuðu tækni, að glíma við
leiðindaspil allt mótið j gegn.
Dæmi um slíkt er síðasta Islands-
mót í sveitakeppni. Tölvugjöfin í
því móti var hneyksli. Lagt er til
að skipt verði um viðskiptaðila
um kaup á gjöfum.
22 SlÐA — NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 19. apríl 1991