Þjóðviljinn - 24.05.1991, Side 11

Þjóðviljinn - 24.05.1991, Side 11
í samræmi við þessa hugmynd segir skáldið á öðrum stað: Margur er sá aumur erfyrir auði rœður. Illt er auði að trúa. Manni er ráðið að gefa burt þann eyri sem honum stoðar ekki, og á hinn bóginn að harma ekki fátækt sína. Öreign þína lát þér eigi gera harðan hugtrega. Minnstu þess er þig móðir ber svo að þérfylgdi ekki fé. Hver á að afla sér ljár með því móti „sem drengmanni dugir“ og varast að hafa aura sína til ónýtis, heldur skal neyta þeirra með hagspeki. Snauðum manni sem verður erfingja auðið er ráðið að setja böm sín til mennta svo að þau geti unnið fyrir sér. Enginn skyldi láta glepjast af fé eða verða sínkur á það. „Annars eign fys- ist illur að hafa.“ Aldraður maður sem ræður fyrir auði skal duga vinum sínum vel „og vera góður gjafa.“ Maður skal ekki bera illa „aura tjón“ heldur láta hitt hugga sig sem hann heldur eftir. Menn eiga hvorki að örvænta í eymd né vera ugglausir þegar efni eru nóg: Vertu eigi svo aumur að þú eigi gáir að vœnta hins vildara hlutar, né svo auðugur að þér örvœnt sé meins á margan veg. w enda segir Hugsvinnur að slíkt sé hin mesta manndýrð „fyrir mold ofan“. Að hyggnum mönnum nem þú horskleg ráð (viturleg) og lát þér í brjósti búa. Örþrifaráða verður sá aldregi sem gimist margt að muna. Fyrir augum lát þér aldrei vaxa nýtt kenna og nema þvi að holla speki lofa hyggnir menn en lasta heimskan hal. (mann) Eins og í Hávamálum, þá haldast í hendur spurdagar og leit að þekkingu: Ófróður er sá er einskis spyr er Jinnur að máli mann. örlög Svo mikla áherslu leggur Hugsvinnur á þekkingu að hann telur óhamingju geta stafað af tregðu til náms: Gálaus maður sá er eigi vill gott nema kann eigi við víti varast. Ogœfu sinni veldur hann einn saman. Engum er illt skapað. Hér er á ferðinni kenning sem gengur í berhögg við alkunnar hugmyndir um of- riki forlaga: að nomir, guð eða önnur æðri máttarvöld kveði á um æviferil manna áð- ur en hann hefst. Hugsvinnur heldur því hins vegar blákalt fram að þeir sem van- rækja nám sitt skapi sjálfum sér ógæfu. Allt um það staðhæfir hann að enginn geti forðað sér undan ákveðnum dauða: Aldurlagi sínu rœður engi maður. Nær stendur höldum Hel. Engi oftreystist, þótt hann sé eigi gamall, að hann muni lengi lifa. Skugga sinn fygg eg-tjjgi skatna jlýja mega. (menn) .* .■‘teaííKij né heldur forðast feigð. Aldurlagi sínu kvíði engi maður né um það önn ali. Dugir ei dægur þeim er dauða kvíðir. Engi feigð.ymflýr. Mikilvæg setning prýðir bæði Háva- mál og Hugsvinnsmál: Örlög sín viti engi fyrir. V ofmœlgi skaltu sjaldan trúa, þeim er með rógi rennur, þvi að málugs manns reynast margar sögur lýða kind að lygi. Orðið sögvis „málgefin" mun ekki koma fýrir annars staðar að fomu, en höf- undur Konungs skuggsjár sem þekkti Hugsvinnsmál beitir þó nafnorðinu sög- vísi. Fámálugur vera skylifyrða hver (manna) er að samkundu situr. Mannvits vant verður þeim er margt talar. Hljóður er hygginn maður. hjátrú og hindurvitni Þegar ég var ungur þótti ekki heilla- vænlegt að hefja túnslátt á mánudegi, og raunar var sá vikudagur talinn viðsjárverð- ur að öðru leyti: „Mánudagur til mæðu,“ sögðu menn og frestuðu brýnni sýslu til þriðjudags. Slík hindurvimi em næsta fom og þrifast raunar enn með ýmsum þjóðum; á Bretlandi gerir fólk sér angur af þeim fostudögum sem ber upp á hinn þrettánda dag mánaðar. Hugsvinni hefði vafalaust fundist lítið til um slíka hjátrú. Dagráðs leita þarf eigi til dugnaðar sá er vill heilindi hafa. Stundir ei ráða þótt komi strið um her. Allar eru tiðir trúar. Forfeður okkar fyrr á öldum kynntust svipaðri hugmynd úr öðm riti að sunnan, og var það þó af kristnum rótum mnnið: „Menn skulu ekki dagráðs leita að sýslu sinni eða heimanforum sínum, fyrir því að guð skóp daga alla góða; sjöeru dagar í hverri viku. En.góður maður og skynsam- ur skal hefja sýslu sína eða för sína frá þeim degi er honum Hst sér haglegastur og veður er gott.“ Hugsvinnúr leggur ekki trúnað á drauma, enda bendir hann á að í draumum birtist óskir manna og uggur: Draumum sinum skulu ei dróttir trúa; (menn) tœla þeirýta oft. Sofandi manni þykir það er sjálfur meðan vakir œskir sér eða óast. (óttast) Eins og getið var hér að framan, þá vottar enn fyrir heiðnum atriðum hjá Hugsvinni gamla, t.a.m. í næstu erindum: Blót né fómir þarf ei til batnaðar að hafa fyrir afgerðir ýta. Heimskur er sá er œtlar sér til hjálpar þótt hann sœfi smala. (svœfa, fóma) Hjarðir sæfa þarf eigi til hylli guðs. Beit þú yxn fyrir arður. (plóg) Reykelsis ilm þann er kemur af réttum siðum það vill hann fyrir tafh taka. (fóm) nám og kennsla Mikilvægt atriði í mannúðarstefnu fýrri alda var óhvikur áhugi á öfíu námi og menntum, og raunar er hann enn rammur þáttur í þjóðlífi okkar. íslenskir skólar gætu þegið kjörorð úr Hugsvinnsmálum: Um miðja tólftu öld vitnar staffræð- ingurinn fomi í latneska fýrirmynd Hugs- vinnsmála og lætur þá fljóta með svofellda þýðingu: ,Jiirð eigi þú að þræta við mál- rófsmenn. Málróf er gefið mörgum en spekin fám.“ Hugsvinnur orðar þetta á svipaða lund: Hér eins og víðar í kvæðinu lýtur orð- ið guð að heiðnum goðum. VI Æðri sýslu máttu eigi hafa en kenna nýtt og nema. (Þess skal getið innan sviga að orðið nýtt mun vera hvorugkynið af nýtur „þarf- ur“, en ekki af nýr, þótt svo kunni að virð- ast í fljótu bragði). „Bækur og rúnar nem þú blíðlega," segir hið foma skáld sem gleymir aldrei kurteisu athæfi og hvetur meim til að lesa rit eftir þá spöku menn sem kenndu fróðleik forðum: Gott skal kenna sá er vill grandvar vera og kosta nýtt að nema. Mörgum dugir sér af mannviti kennir gott gumum. (mönnum) Hirð þú eigi að senna þó þú satt vitir við hvassorðan hal. Málskálp mikið er mörgum gefið. Fár er að hyggju horskur. Bergmál frá þessu koma fram í Grettlu („Meir er mörgum málskálp lagið en hyggjandi", í vísu sem er eignuð Önundi tréfót) og Bjamar sögu Hítdælakappa („þið eruð menn grunnsæir og meir gefið málróf en vitsmunir“). Simálugs orð þykja snotrum hal vindi lík vera. Sögvisum manni vinátta Sérstök áhersla er lögð á vinaval: Trúnaðarmanns leita þú trúlega, ef þú vilt góðan vin geta. Að fésœlu kjós eigi fulltrúa, heldur að sönnum siðum. Hugsvinni þykir gott að eiga vini víða, og með því að vera væginn ffernur en hefnisamur „máttu þér gera vísa fjendur að vinum.“ Menn áttu að duga vinum sín- um vel, gæta þess að engir meinbugir séu á slíkri hjálp og varast að hrósa sér fýrir bragðið, ella þá að kvarta undan lélegri hjálp af vina hendi. Ef maður orkaði ekki einsamall því sem hann hafði tekist á hendur, þá átti hann að leita til tryggs vin- ar. Eins og í Hávamálum og víðar, þá vom gjafir snar þáttur í vináttu. Efþér góðan grip gefa hollir vinir, eiga þú skalt og unna allvel. Efþér litla gjöf gefur af léttum hug vinur sá sem volaður er, þiggja þú skalt og þakklátur gerast. Astfylgir aums gjöfum. Gjafir launa skaltu við góðan hug, þær er þér veita vinir. Brýnt er fýrir ráðþega að vægja fýrir vinum sinum og einnig að gæta þess vand- lega að virða ekki ókunnan mann ffamar en vísan vin. Löngum hefur þótt skylt og skynsamlegt að rækja vináttu sem best, og þó er slíkt miklum vanda bundið. Háva- mál hvetja mann til að fara oft að finna góðan vin, „ef þú vilt af honum gott geta“, en í Hugsvinnsmálum er meiri áhersla lögð á hvemig skuli fara með vin en hvað sé hægt að hagnast af honum: Efþú vin átt þann þér vildur sé, fys þú hann gott að gera. Hins vegar kemur Hávamálum og Hugsvinnsmálum saman um að maður eigi að vera opinskár við vin sinn og segja honum til syndanna: Orða þinna þó hann kunni enga þökk, þá skaltu hann við vammi vara. Vitaskuld er skylt að vemda vin sinn, jafnvel þótt ekki sé allt með felldu í fari hans: Löstum leyna skaltu sem lengst, ef mátt, þeim erþú veist með vinum. sjálfur Jafnan þykir það ekki mii^riitridlegt hvað manni cr ráðið um nfmljll sem lýtur að öðru fólki. Ýmisgjam vertu aldregi. Sáttur ver þú við sjálfan þig, Seggja öngum verður sá samhuga ef hann er sundurþykkur við sjálfan sig. Metnað þinn þó þig menn lofi láttu eigi miklast til mjög. Hælins manns orði þarftu eigi hverju að trúa. Sjálfur kunn þú sjálfan þig. Sjálfum sér aflar sins skaða hver sem meiðir mann. Sjálfan sig skyldi seggja hver lasta eigi né lofa. Kurteisi rennur eins og rauður þráður um Hugsvinnsmál og Hávamál. Fyrr í þessu hjali var minnst á ofmælgi sem jafn- an hefur þótt ókurteisi, en Hugsvinnur tel- ur hins vegar blíðmælgi til siðgæðis. Brýnt er fýrir mönnum að vægja fýrir öðr- um og vera þolinmóður við þá; „svo gerir sá er vill hæverskan sið hafa.“ Konungs skuggsjá mun hafa þegið svofellda visku frá Hugsvinni gamla: „Það er siðgæði að gerast samþykkur öðrum mönnum og eigi einlyndur." En Hugsvinnur sjálfur orðar þetta með öðm móti: Alþýðu róm lasta þú aldregi, þann er lýðir lofa. Óngum sá hugnar er öllum vill gagnmálugur gerast. Föstudagur 24. maí 1991 - NÝTT HELGARBLAЗ SÍÐA 11

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.