Þjóðviljinn - 24.05.1991, Page 18

Þjóðviljinn - 24.05.1991, Page 18
Judit velgir mönnum undir uggum á Mephisto - mótinu í Munchen Ekkert lát virðist ætla að verða á vinsæhium Polgar- systranna Szuzu, Judit og Sofiu. Nú sem fyrr eru allar vísbendingar í þá átt að sú yngsta, Judit Polgar, sé að stinga hinar af. Þrátt fyrir sín 14 ár hefur hún þegar tekið út mikinn skákþroska og hvað eftir annað nær hún að sigra geysiöfluga stórmeistara. Vart er það annað en tímasó- un að fara enn og aflur út í um- ræðuna um muninn á skákstyrk karla og kvenna. Að mér við- stöddum hafa menn yfirleitt skilið við slík mál án þess að komast að niðurstöðu, allir nema sjónvarpsmennimir Hall- ur Hallsson og Páll Magnússon sem kváðu upp úr með það í eina kvöldstund í Seattle, þegar einvígi Jóhanns Hjartarsonar og Karpovs stóð yfir, að af líf- ffæðilegum og flóknum sál- ffæðilegum ástæðum væri það útilokað að konur kæmust jafh langt og karlar. Útilokað! Þó hefúr manni sýnst að Polgarsystur hafi sannað áþreif- anlega hið gagnstæða; að ekkert er þvi til fyrirstöðu að konur nái sama árangri og karlar; hafi þær löngun og löngun til að helía sér út í þessa flóknu og erfiðu hugaríþrótt. Undanfarið hefúr staðið yfir í Múnchen geysisterkt mót sem tölvufyrirtækið Hegener og Glaser sem ffamleiðir Mephi- stoskáktölvumar hefur staðið fyrir og þar hafa Judit og Susza verið í eldlinunni. Keppendur sem em 12 talsins ekki af verri endanum þ.á.m. þrír sem hófú keppni í áskorendaeinvígjum í janúar sl., Gelfand, Anand og Judasin. Þátttaka þeirra Polgar systra hefúr vakið feikna at- hygli og frammistaða Juditar með verið miklum glæsibrag, sigurskákir hennar gullfallegar og greinilegt að hún hefúr þróað með sér stórhættulegan sóknar- stíl. Er þrjár umferðir voru eftir voru Lariy Christiansen og þjóðveijinn Hertneck efstir með 6 vinninga af átta mögulegum, í 3.4. sæti komu Nunn og Hiibner með 5 vinninga og í 5.7. sæti Judit Polgar. Hort og Anand með 4 1/2 v. Neðar á töflunni vom kappar á borð við Beljav- skíj og Gelfand. Ein besta skák mótsins er tvímælalaust eftirfarandi viður- eign Juditar og Indveijans Viswanatan Anand. Þetta er glæsileg skák hjá Judit litlu hvemig sem á mál er litið, vel- heppnuð byijun, mikil hug- myndaauðgi í miðtaflinu og vel útfært endatafi: SKAMephistomótið, 5. um- ferð: Judit PolgarViswanathan Anand Spænskur leikuropna af- brigðið 1. e4 e5 2. RO Rc6 3. Bb5 a6 4. Ba4 Rf6 5. 0-0 Rxe4 6. d4 b5 7. Bb3 d5 8. dxe5 Be6 9. c3 Be7 10. Rbd2 Dd7 11. Bc2 Rxd2 12. Dxd2 Bg4 13. Df4BxO 14. Bf5! Dd8 15. DxO! (Hvitur gerir sér enga grillur út af einu peði. Framhaldið leið- ir líka í ljós að hvítur fær góðar bætur fyrir það.) 15. .. Rxe5 16. De2 Dd6 (Eðlilegra er 16. .. Rg6 en 17. a4! veldur svörtum talsverð- um erfiðleikum.) 17. Hel Rc6 18. Bg5Kf8 19. Be3 (Hvitur hefur náð að hindra stutta hrókun sem þýðir að svartur á við liðsskipunarerfið- leika að etja t.d. 19. .. h5 20. Hadl g6 21. Be4 o.s.frv.) 19. .. g6 20. Bh6+ Kg8 21. Dg4 Df6 22. Bc2 Bf8 (Athugið að 22. .. Dh5 strandar á 23. Dd7.) 23. Bg5 Dd6 24. Bf4 Dd8 25. Hadl Ra5 26. h4! (Taflmennska Juditar er ■* J&kf ? Helgi Ólafsson hrein og bein. Hún hefúr komið öllum þungu fallstykkjunum í á- kjósanlegar stöður og þessi sendiboði á hlaupi upp hlínuna boðar ekki gott fyrir Anand sem engu lagi hefur komið á vamir sínar.) 26. .. c6 27. h5 Rc4 28. b3 Rd6 29. hxg6 hxg6 (STÖÐUMYND) a b c d e f g h 30. Bxg6! (Það hlaut eitthvað að bresta í stöðu Indveijans.) 30. .. fxg6 31. He6! (Karmski hefur Anand að- eins búist við 31. Dxg6+ Bg7 32. því hvitur er er nauðbeygður í drottningaruppskipti: 32..Bxd6 strandar á 32... Hh6! o.s.frv. Nú getur svartur ekki forðað riddar- anum t.d. 31. ._Rf5 32. Hxg6+ Rg7 32. De6+ Kh7 33. Hh6 mát.) ,, 31. .. Ilh7 (Ánand teflir vömina af út- 'sjönarsemi. Hann leggur hér gildru fyrir andstæðinginn: 32. Hxg6+ Hg7 33. Bxd6?? Dxd6! og vinnur.) 32. Bxd6 Bg7 (Ekki 32. .. Bxd6 33. Hxg6+ Kh8 34. Dd4+. Afbrigðin vitna um sundurgreiningarhæfileika Juditar.) 33. Hdel Hh6 34. g3 Dd7 35. Bf4 g5 36. Bxg5 Hg6 37. Df5 Hxe6 38. Dxe6+ Dxe6 39. Hxe6 Hc8 40. Bd2 (Það kann að vera að hvítur hafi getað teflt eitthvað ná- kvæmar í allra síðustu leikjum, 34. Bf4 var sterkara en 34. g3. Uppskeran, eitt lítið peð dugar. Svartur á afar litla möguleika á að bjarga þessari stöðu og úr- vinnslan bendir til þess að Polgarsystur slái ekki slöku við endataflsrannsóknir.) Judit Polgar hefur lagt andstæð- inga slna á Mephisto - mót- inu 1 Múncben með miklum glæsi- brag. 40... Kf7 41. Hel c5 42. Kfl c4 4T. bxc4 Hxc4 44. Hcl Ke6 45. Ke2 d4 46. cxd4 Bxd4 47. Be3 Bb2 48. Hxc4 bxc4 49. Kd2 Bg7 50. Kc2 Kd5 51. OBf6 52. Bh6 Be5 53. g4 Bd4 54. Bd2 Bb6 55. Bcl Ba5 56. a4 Ke5 57. Bg5 Kd5 58. Bd2 Bc7 59. Bc3 Bf4 60. Bf6 Bg3 61. g5 Bh4 62. Bd8 Bf2 63. g6 Bd4 64. Ba5 Ke6 65. Bc3 - og Anand gafst upp. Fram- haldið gæti orðið 65. .. Be3 66. Be5! og síðan stormar hvítur ffam með peðið. «l|i K.EW HOBBY HÁÞRÝSTIDÆLAN Á auðveldan hátt þrífur þú: Bílinn, húsið, rúðurnar, veröndina o.fl. Úrval aukahluta! Hreinlego allt til hreinlætis REKSTRARVÖRUR Rellarnalsi 2 - 110 R vik -Simar 31956-685554

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.