Þjóðviljinn - 24.05.1991, Side 26
Fegurðarsamkeppni
„Þroskandi og skemmtilegur
undirbúningur“
Sex forkunnafagrar meyjar keppa um titilinn Þokkadís íslands
llmur Dögg Sveinsdóttir er tvltug Verslunarskólamær
úr Garðabæ. Hún hreppti titilinn Þokkadís Reykjavíkur
fyrir skömmu. Ilmur er I sporðdrekamerkinu og aðal-
áhugamál hennar eru að fara I bíó og út að skemmta
sér á Yfir strikið á föstudögum og I Casablanca á laug-
ardögum. Ilmur kennir auk þess eróbikk tvisvar í viku
til að halda sér í góðu formi. Ilmur er 1,76 á hæð og
málin hennar eru 88-55-92. Móðir llmar er flugfreyja,
en faðir hennar heildsali.
Eva Ýr Siemsen yngri er 22 ára gömul og kemur frá
Akureyri. Hún ber titilinn Þokkadís Norðurlands. Eva er
vog og stundar nám í M.A. Hún er 1,82 á hæð og málin
hennar eru 90-62-88. Eva Ýr hefur mikinn áhuga á
börnum eins og Hófí, sem hún segir fyrirmynd sína.
Annars hefur Eva mikinn áhuga á góðum bókmenntum
og list. Eftirlætisrithöfundur hennar er Tolstojevskí, en
verk hans Glæp og refsingu er hún einmitt að lesa
núna. Þá þykir henni gaman að Vigdísi Grímsdóttur.
Evu Ýr langar að fara suður i Fóstruskólann í framtíð-
inni, eða giftast og eignast sín eigin börn.
Anna Mjöll Pálmadóttir er 14 ára gömul og býr á Mjóa-
firði. Anna Mjöll er meyja og hún segir aðaláhugamál
sitt vera „dirty dancing" eða dónalegan dans. Meyjan
frá Mjóafirði er 1,65 á hæð og málin hennar eru 120-
70-85. Anna Mjöll segist eiga fáar frlstundir, því mestur
tími hennar fara f heimalærdóm, en hún stundar nám í
8. bekk f gaggó. Draumur Önnu er að verða kvik-
myndastjarna, rætist sá draumur ekki vildi hún gjarnan
verða danskennari. Anna Mjöll var eini þátttakandinn í
sinni heimabyggð, þar sem móðir hennar er verslunar-
stjóri í Kaupfélaginu og formaður kvenfélagsins.
Undirbúningurinn hefur
verið skemmtilegur og þrosk-
andi, og andinn í hópnum er
yndislegur, sögðu þrjár stúlkn-
anna sem keppa munu um titil-
inn Þokkadís íslands þann 8.
júní næstkomandi, við blaða-
mann Nýs Helgarblaðs þegar
hann mætti á æfingu hjá stúlk-
unum á dögunum.
Keppnin verður haldin á
skemmtistaðnum Moulin Rouge,
en áður en slóra stundin rennur
upp verða stúlkumar kynntar,
þijár í senn, í kvöld og næsta
fosludagskvöld.
Það er ekki eingöngu útlitið
sem skiptir máli, sögðu þær Anna
Mjöll, Ilmur Dögg og Eva Yr,
persónuleikinn, hæfileikar og
framkoma reiknast okkur ekki
síður til tekna þegar ákveðið
verður hver hreppir titilinn. Þá
verður einnig valin Þokkalegasta
fyrirsætan og Vinsælasta þokka-
dísin.
Til mikils er að vinna því að
verðlaun verða vegleg: utanlands-
för, módelsmíðaðir eymalokkar
og snyrtivörur.
Stúlkumar sex hafa verið
önnum kafnar við líkamsrækt og
námskeið í göngulagi og fram-
komu undanfamar vikur. Þær
sögðu þetta hafa verið mjög
ánægjulegan tíma og vart kæmist
hnífurinn á milli þeirra orðið. Við
emm orðnar góðar vinkonur og
engu skiptir hver verður krýnd,
auk þess er erfitt að spá um úrslit-
in því að við emm allar svo jafh-
ar, sögðu þær. Ilmur Dögg sagðist
helst geta gagnrýnt keppnina fyrir
það að langflestir landsmenn
byggju á Reykjavíkursvæðinu, en
aðeins ein stúlka hefði komist í
úrslit þaðan. Hins vegar væri
keppnin ekki jafn hörð úti á landi.
Þá sögðust þær kæra sig kollóttar
um gagnrýniraddir. Fegurðarsam-
keppni á alveg jafnmikinn rétt á
sér og önnur keppni, sögðu þær
stöllur, við skiljum ekki hvað fólk
er að fetta fingur út í okkur.
-BE
UM HELGINA
Merkingar:
* NÝTT I VIKUNNI
! LÝKUR UM HELGINA
SÝNINGAR
Árbæjarsafn: Opið eftir sam-
komulagi fram í maí.
Ásmundarsafn við Sigtún: Sýn-
ingin „Bókmenntirnar í list Ás-
mundar Sveinssonaf. Ný við-
bygging hefur verið opnuð. Opið
10-16 alla daga.
Gallerí, Skólavörðustig 4a:
Sólveig Eggertsdóttir opnar sýn-
ingu 18. maí á lágmyndum úr
járni, gleri og vaxi. Opið alla
daga frá 14 -18. Sýningunni lýk-
ur 30. maí.
* Hafnarborg, Hafnarfirði. Sverr-
issalur: Sýning á verkum í eigu
safnsins. Kaffistofan: Listagall-
erí 12 hafnfirskra listamanna.
Opið 18. maí - 9. júní.
Kjarvalsstaðir: Yfirlitssýning á
verkum Yoko Ono í vestursal.
Sýning á verkum fluxus lista-
manna í austursal. Dagl. 10-20
til 2. júní.
Listasafn Einars Jónssonar: lau
og sun 13.30 - 16.00, garðurinn
alla daga 11-17.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar:
Andlitsmyndir 1927-1980. Um
helgar 14 -17 og þrið.kvöld 20 -
22.
Minjasafnið á Akureyri, Aðal-
stræti 58: Opið sunnudaga 14 -
16.
Norræna húsið: Sýning á verk-
um norska myndlistarmannsins
Sverre Wyller. Opið daglega 16 -
19 til 26. maí.
Margrethe Agger sýnir textíiverk
í andyri Norræna hússins. Opið
daglega til 2. júní.
Póst og símaminjasafnið, Aust-
urgötu 11 Hafnarfirði: Ópið á
sunnud. og þriðjud. 15-18.
Sjóminjasafn (slands, Vestur-
götu 8 Hafnarfirði lokað vegna
viðgerða.
* Slunkaríki, (safirði: Guðjón
Bjarnason opnar sýningu í
Slunkaríki þann 18. maí og
stendur hún til 9. júní.
Þjóðminjasafniö: Opið alla daga
nema mánud. 11 -16.
'Laugardaginn 18. maí kl. 16.00
verður opnuð sýning á málverk-
um eftir þýsku listakonuna Ulrike
Arnold í Listasafni AS( að
Grensásvegi 16A. Sýningin
verður opin daglega frá kl. 14.00
-19.00 þangað til 2. júní.
Laugardaginn 18. maí opna
Svisslendingarnir lan Anull og
Christoph Rutimann samsýn-
ingu í sölum Nýlistasafns. Sýn-
ingunni lýkur 2. júní. Nýlistasafn-
ið er opið alla daga frá kl. 14.00
-18.00.
‘Ingvar Þorvaldsson opnar sýn-
ingu á vatnslita- og olíumálverk-
um í Safnaðarheimili Árbæjar-
kirkju við Rofabæ, laugardaginn
18. maí, kl. 16.00. Sýningunni
lýkur 26. maí. Opið virka
daga:16.00 - 19.00, lokað
fimmtud.23. maí, opiöfrá 14.00-
19.00 um heigar.
‘Kristinn Morthens opnar mál-
verkasýningu í Safnahúsinu Sel-
fossi, laugardaginn 18. maí. Op-
ið alla daga kl. 14.00 - 21.00,
vikuna 18.-26. maí.
Kolbrún Björgólfsdóttir (Kogga)
opnarsýningu í Listasalnum Ný-
höfn, Hafnarstræti 18. laugar-
daginn 18. maí, kl. 14.00 -
16.00. Sýningunni lýkur 5. júní.
Opið virka daga kl. 10.00 -18.00
en 14.00 -18.00 um helgar. Lok-
að á mánudögum.
Klausturhólar - Listhús: Opnuð
sölusýning 25. maí kl. 14.00 -
18.00
F.f.M.- salurinn, 25. maí kl.
14.00, opnuð sýning á verkum
sænska listamannsins Ingvar
Staffan.
Gallerí Sævars Karls, Banka-
stræti 9: Erlingur Páll Ingvars-
son heldur sýningu 24. maí - 30.
júní.
TÓNLiST
Hallgrímskirkja: föstud.kl.20.00,
Oratorian Páll postuli eftir Mend-
elsohn.
Hallgrímskirkja:sunnud. kl.
17.00, Barnakórar.
Áskirkja: mánud. 27. maí
kl.20.00 Reykjavíkurkvartettinn
heldur tónleika.
(slenska óperan: sunnud.26.
mai kl. 20.00 heldur Krisztyna
Cortes píanótónleika og flytur
verk eftir Bach.Mozart.Debussy
og Chopin.
(slenska óperan: laugardaginn
25.maí. Tónleikar, Sigrún Eð-
valdsdóttir.fiðla, Selma Guð-
mundsdóttir, píanó.
(slenska óperan: sunnud.26.
maí, kl. 15.00. Lokatónleikar
Söngskólans í Reykjavík.
LEIKHUS
Leiksmiðja Reykjavíkur, Kram-
húsinu við Bergstaðastræti:
laugardaginn 25. maí kl.21.00
og sunnud.kl. 16.00 og 21.00.
Aukasýningar á Þjófur fyrsta til-
raun, byggt á Jean Genet.
HITT OG ÞETTA
Dómkirkjan: mánudag 27. ma(,
kl.17.00. Undir sumarsól, Ijóða-
dagskrá.
Seltjarnarneskirkja: mánud. 27
maí Kristnihald undir Jökli, leik-
lestur
Hana nú: vikuleg laugardags-
ganga. Lagt af stað frá Fann-
borg 4 kl. 10.
Ferðafélag fslands: Göngudag-
ur, sunnudaginn 26. maí, kl.
13.00
Útivist 25,- 26.mai, Básar og
Goðaland, brottför kl.8.00, laug-
ardag, sunnudagur, 26 maí, kl.
10.30, Heklugangan,5.áfangi.
(þróttafélag fatlaðra í Reykjavík:
Áðalfundur verður haldinn
fimmtud. 30. maí kl 20.00 I Há-
túni 14.
Starfsþjálfun fatlaðra, Hátúni
10a: 22. maí - 2. júní. Sálartréð,
sýning á myndverkum nem-
enda.
26 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 24. maí 1991