Þjóðviljinn - 25.05.1991, Qupperneq 7
Sjávarútvegsmálið í for-
grunni í EES-samningnum
Njörður
í Njarðvík
í Háskólabíói
Þórhallur Vilmundarson
prófessor og forstððumaður
Órnefnastofnunar Þjóðminja-
safnsins mun flytja fyrirlestur
um nýjar niðurstöður ör-
nefnarannsókna sinna í Há-
skólabíói á þriðjudaginn kem-
ur. Nefnir Þórhallur fyrirlest-
urinn Njörður í Njarðvík, en
þar mun m.a. greint frá sum-
um þeirra örnefna sem talin
hafa verið af goðfræðilegum
toga.
Eins og kannski sumir les-
endur muna hélt Þórhallur íyrir-
lestur í Háskólabíói fyrir all-
nokkrum árum um ömefnarann-
sóknir sínar og þurftu þá ýmsir
ffá að hverfa - slík var aðsókn-
in að tölu hans. Hvort það sama
gerist nú skal ósagt látið.
Fyrirlesturinn er haldinn í
tilefni af 80 ára afmæli Háskóla
íslands. Sem fyrr segir verður
fyrirlesturinn haldinn í Há-
skóiabíói á þriðjudaginn kemur,
í sal 4 kl. 17.15. -rk
Jón Baidvin Hannibalsson ut-
anríkisráðherra sagði í sam-
tali við Þjóðviljann í gær að
ekki væru önnur stórtíðindi í
yfirlýsingu leiðtoga ríkis-
stjórna Efta en að áréttuð væri
samningsstaða Efta sem heildar
varðandi sjávarútvegsmálin. Jón
Baldvin telur þó að samnings-
samstaðan gæti breyst ef íslandi
yrði boðið sérsamkomulag byggt
á sérstöðu í sjávarútvegsmálum.
Fundurinn var haldinn í gær.
Davíð Oddsson forsætisráðherra
sat einnig fundinn fyrir hönd Is-
lands.
Jón Baldvin sagði að merkari
niðurstaða hefði fengist á utanrík-
isráðherrafundi á fimmtudag þar
sem forseti ífamkvæmdaráðs Evr-
ópubandalagsins og formaður
Efta-ráðsins staðfestu að fyrirvari
íslendinga um fjárfestingar útlend-
inga í sjávarútvegi standist þar sem
honum hafi ekki verið andmælt á
samningafúndinum í Brussel 13.
maí.
Jón Baldvin sagði að sjávarút-
vegsmálin væru nú í algerum for-
grunni og það yrði að fmna á þeim
málum lausn ef heildarlausn ætti
að finnast. Hann sagði að mörg
Efta-ríki hefðu lýst því að sjávarút-
vegsmálin væru séríslenskt mál.
En það _ mál er fyrir flest önnur
lönd en Island jaðarmál.
Jón Baldvin sagði að Efta-
löndin hefðu sameiginlega samn-
ingsstöðu nema ef til þess kæmi að
EB byði fram lausn sem byggði á
einhverri sérstakri lausn fyrir Is-
land. Hann sagði að það væri ekki
ágreiningur milli Norðmanna og
íslendinga um að báðir vildu toll-
fijálsan aðgang fyrir sjávarafurðir
á EB-markaði. Það kynni að reyna
á samstöðu Efta-rikjanna varðandi
þetta mál, sagði Jón Baldvin, ef að
niðurstaðan yrði sérstakt boð fyrir
íslendinga, á þeirri forsendu að
málið varðaði brýnustu þjóðar-
hagsmuni, en væri ekki byggða-
vandi einsog í Noregi.
Þá sagði Jón Baldvin að það
hefði vakið athygli sina að háttsett-
ir fúlltrúar EB hefðu lagt á það
mikla áherslu að nú yrði ekki aftur
snúið þar sem samningamir væru
það vel á veg komnir. Forsetinn
Jacques Santers og varaforsetinn
Henning Christophersson sögðu að
samningamir mættu ekki mistakst
þar sem að báðir aðilar hefðu sýnt,
á tiltölulega skömmum tíma, að
þeir hefðu getað leyst flest stærstu
vandamálin - ffá þeirra bæjardyr-
um séð, sagði utanríkisráðherra.
Því mættu samningarnir ekki
stranda á því sem eftir væri, það er
að segja sjávarútvegi, landbúnaði
og spumingunni um byggðasjóð,
sem utanrikisráðherra kallar hina
vanheilögu þrenningu.
Forsætisráðherrar Norðmanna
og Islendinga áttu góðan fund sam-
an, sagði Jón Baldvin og bætti við
að niðurstaðan hefði orðið að fúnd-
ur yrði í Osló þar sem sjávarút-
vegsmálið yrði rætt til botns.
A mánudag mun formaður
Efta- ráðsins og fieiri samninga-
menn fara til fiindar við fúlltrúa
ffamkvæmdastjómarinnar í Bmss-
el til að ræða sjávarútvegsmálin
sérstaklega. „Þetta verða ekki tví-
hliða viðræður, heldur viðræður
innan EES-umræðnanna,“ sagði
Jón Baldvin. Hann sagði það alveg
ljóst að það yrði ekki fundin lausn
á hinni vanheilögu þrenningu án
viðunandi lausnar á sjávarútvegs-
málunum. „Það er alveg ljóst að
sjávarútvegsmálið er aðalmálið og
það er það sem menn munu ein-
beita sér að á næstu vikum," sagði
hann. -gpm
Átakaþing hjá HSÍ
Igærkvöld hófst í Keflavík
34. ársþing Handknattleiks-
sambands íslands, en því
lýkur á sunnudag. Fjárhag-
ur sambandsins er vægast sagt
mjög erfiður því það skuldar
rúmar 40 miljónir króna og þá
er næsta víst að hart verður tek-
ist á um það hver verður næsti
formaður HSÍ.
Núverandi formaður, Jón H.
Magnússon, hefúr ákveðið að gefa
kost á sér til endurkjörs, en einnig
er vitað að margir innan hreyfmg-
arinnar hafa fúllan hug á að fá
Áma Gunnarsson fyrrverandi al-
þingismann sem næsta formann.
Það má því búast við að báðar
fylkingar muni kanna liðsstyrk
sinn í dag og í kvöld, en formaður
verður kosinn á sunnudag.
Að þessu sinni hafa borist
óvenjumargar breytingartillögur
við reglugerðir sambandsins. Með-
al þeirra má nefha tillögu FH um
breytt fyrirkomulag á keppni 1.
deildar karla, tillögu framkvæmda-
stjómar HSI um leikmannaskír-
teini, og þá hafa Fram og IBV lagt
fram tillögu þess efnis að heimilt
verði að hafa tvo erlenda rikisborg-
ara i hveiju liði í meistaraflokki
karla og kvenna.
Alls eiga 83 fúlltrúar rétt til
þingsetu með atkvæðisrétti. Að
auki eiga rétt til þingsetu með mál-
frelsi og tillögurétti sambands-
stjóm HSÍ, framkvæmdastjórar
HSÍ og ÍSÍ, allir nefndarmenn
fastaneftida HSÍ, meðlimir dóm-
stóls HSÍ og fleiri.
-grh
Ofbeit hrossa
veldur áhyggjum
að er vissulega áhyggjuefni
hversu hrossum fjölgar
jafnt og þétt hér á landi.
Samkvæmt okkar upplýs-
ingum eru nú um 73.000 hross í
landinu, sagði Sveinn Runólfs-
son landgræðslustjóri á blaða-
mannafundi þar sem hann
kynnti átak sem miðar að því að
draga úr ofbeit hrossa á landinu.
Á fúndinum kom ffam að allur
sá fjöldi hrossa sem til er hér á
landi þarfnast álíka mikils beiti-
lands og allur sauðfjárstofn lands-
manna.
Landgræðslan hefur kannað
ástand hrossahaga nú í vor í sam-
vinnu við Landssamband 'hesta-
manna og Búnaðarfélags Islands.
- Það er okkur kappsmál að
koma skipulagi á þessu mál, það er
ekki gott fyrir ímynd okkar hesta-
Kristinn
í heimsókn
Kristinn Sigmundsson er
væntanlegur í stutta heimsókn i
næstu viku og mun hann syngja
á tvennum tónleikum. Þeir fyrri
eru á sunnudaginn 26. maí, kl.
16.00 í Vestmannaeyjum en
hinir síðari í Þjóðleikhúsinu,
fimmtudaginn 30 maí, kl. 20.30
manna að við stundum gróðureyð-
ingu, sagði Kári Amórsson for-
maður Landssambands hesta-
manna. Hann sagði jafnffamt að
kominn væri tími til að skipuleggja
betur beitarmálin. Þá benti hann á
að þörf væri á að skipuleggja ferðir
hestamanna um hálendið með tilliti
til fóðuröflunar. Hann sagði að í
fyrrasumar hefði verið tekin upp
sala á heyi upp á hálendi og hefði
það gefist vel. Ólafúr Dýrmunds-
son landnýtingarráðunautur Bún-
aðarfélagsins lagði á það ríka
áherslu að þó vel voraði nú mætti
ekki sleppa hrossum i sumarhaga
of snemma. Hann sagði jafhframt
að hestamenn ættu að huga betur
að sumarhögum hrossa með
áburðagjöf og einnig að skipta
beitilöndum upp með girðing
þannig að beitargróðurinn nýtist
betur.
Ólafúr sagði það ljóst vera að
hrossum Qölgaði of mikið hér á
landi. Eina ráðið til að fækka þeim
sagði hann vera, að menn yrðu að
setja á færri folöld. I dag er áætlað
að á bilinu sex til tíu þúsund folöld
séu sett á, á ári hveiju.
Sveinn Runólfsson benti á að
þessi mikla fjölgun hesta væri
langt umffam þörf og að þessi of-
framleiðsla væri öll geymd á landi.
Hann sagði að markaður væri fyrir
hrossakjöt, en sláturhúsin veigruðu
sér við að geyma hrossakjöt í
frystigeymslum. -sg
Þorgeir Elfasson, deildarstjóri sölumanna hjá Jötni hf afhenti formanni Slysavamafélags Islands, Orlygi Hálfdánarsyni,
öryggishlíf sem Jötunn hf mun annast sölu á. Mynd: Jim Smart.
Átak í vömum
gegn vinnuslysum
Á hverju ári verða eitt til tvö
alvarieg slys í landbúnaði sem
leiða til dauða eða varanlegrar
örorku. Mörg þessara slysa má
rekja til þess að ekki hefur verið
gengið frá útbúnaði vinnuvéla
með fullnægjandi hætti.
Fyrirtækið Jötunn hf. stendur
nú fyrir átaki í slysavömum, í sam-
ráði við Slysavamafélag Islands,
Vinnueftirlit ríkisins, Vátrygginga-
félag Islands og Bændasamtökin.
Átakið beinist að aukinni notk-
un öryggishlífa á vinnuvéladrif-
sköflum við iandbúnaðarstörf.
Skylt er að hafa öryggishlífar á
öllum drifsköftum sem tengja
vinnuvélar við dráttarvélar, en víð-
ast hvar er ekki farið eftir þessum
reglum.
Jötunn hf hefur gert samkomu-
lag við hollenska fyTÍrtækið Agri-
trans um innkaup á öryggishlífum
lyrir allar gerðir drifskafta á mjög
hagkvæmu verði. Agritrans, sem
sérhæfir sig í ffamleiðslu á vinnu-
véladrifsköftum og öllum varahlut-
um í þau, leggur þessu máli lið
með verulegum tímabundnum af-
slætti af öryggishlífum.
Jötunn hf lækkar einnig mark-
aðsverðið, þannig að alls er um að
ræða 40-50% lækkun ffá markaðs-
verði. Jötunn hf mun annast sölu
Stéttarsamband bænda hef-
ur sent forsætisráðherra
ítrekun á afstöðu sinni
varðandi þá fyrirvara sem
setja þarf af hálfu íslendinga í
samningaviðræðum um fyrir-
hugað Evrópskt efnahagssvæði.
Stéttarsambandið leggur
áherslu á að tryggt verði að erlend-
ir aðilar nái ekki eignarhaldi á auð-
lindum landsins, hvort heldur um
er að ræða á fiskimiðum,- bújörð-
um eða orkulindum.
Stéttarsambandið ítrekar þá af-
stöðu sína að strangt eftirlit verði
haft með þekkingu og hæfni þeirra
sjálfstæðu erlendu aðila sem hér fá
að starfa.
og dreifingu á öryggishlífunum og
ákveðinn hluti andvirðis seldra ör-
yggishlífa mun renna til Slysa-
vamafélags Islands. -KMH.
Jafnframt er þess krafist að
stjómvöld falli ekki í neinu frá eða
slaki á gildandi reglum um bann
við innflutningi á hráu kjöti og lif-
andi dýmm og ekki verði gerðar
minni la-öfúr til innfluttrar matvöm
en innlendrar framleiðslu, s.s.
varðandi aðbúnað á framleiðslust-
igi og notkun lyfja og eiturefna.
Þá er þess krafist að tryggt
verði með töku jöfnunargjalda að
samkeppni við innflutning verði
fyrst og ffemst á gmndvelli gæða.
Skorar Stéttarsambandið á
stjómvöld að hvika ekki í neinu frá
þessum fyrirvömm á lokastigi
samningaviðræðna um Evrópskt
efnahagssvæði. —rk
Bændur ítreka
fyrirvara um ESS
Slöa 7
ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 25. maí 1991