Þjóðviljinn - 25.05.1991, Page 20

Þjóðviljinn - 25.05.1991, Page 20
Brotalöm í málefnum geðsjúkra egar fjármagn er af skornum skammti þarf að setja það í það sem er mikilvægast, og ég vona að Alþingi hafí skilning á þessum málaflokki og setji hann í forgangshóp næstu árin, sagði Jóhanna Sigurðardóttir, félags- málaráðherra er hún kynnti nið- urstöður starfshóps sem haft hefur það að verkefni að kanna málefni alvariega geðsjúks fólks, sem ekki er inni á sjúkrahúsum. Niðurstöður starfshópsins eru ekki fallegar og er ástandið mun svartara en ráð var fyrir gert. Alls eru það 124 einstaklingar sem eru nú í brýnni þörf fyrir úrræði í húsnæðismálum. En gert var ráð fyrir að sá hópur teldi aðeins 30- 40 manns. I lok janúar sl. skipaði félags- málaráðherra starfshóp er gera ætti tillögur um úrbætur i húsnæðis- og félagsmálum alvarlega geðsjúkra sem eru útskrifaðir af geðdeildum en búa við óviðunandi aðstæður. I þessum hópi voru m.a. fulltrúar ffá Geðhjálp, Geðvemdarfélaginu, að- standendum geðsjúkra, auk fag- fólks úr félags- og heilbrigðis- þjónustunni. Jóhanna sagði að upphaflega hafí verið áætlað að um 30-40 ein- staklingar byggju við óviðunandi aðstæður sökum geðfotlunar. - Starfshópurinn leitaði m.a. til félagsmálastofnana stærstu sveitar- félaganna, geðdeilda sjúkrahús- anna og svæðisstjóma fatlaðra eftir gögnum í málinu, sagði Jóhanna. - Þegar upplýsingasöfnuninni var lokið blasti við mun dekkri mynd en gert hafði verið ráð fyrir, sagði Jóhanna. Alls bárust nefndinni upplýs- ingar um 124 einstaklinga sem em nú í mjög brýnni þörf fyrir úrbætur í húsnæðismálum. Um er að ræða 87 karlmenn og 37 konur. Flesta, eða tæplega 100 manns, er að finna á höfuðborgarsvæðinu og aldurs- skiptingin sýnir að flestir em á aldrinum 30-40 ára. Jóhanna sagði að starfshópur- Niðurstööur starfshóps um aöstæður alvarlega geðsjúkra einstaklinga sem ekki em á sjúkrahúsum voru kynntar (félags- málaráðneytinu í gær. Frá vinstri em Bragi Guðbrandsson, aðstoðarmaður félagsmálaráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra og Margrét Margeirsdóttir, deildarstjóri í félagsmálaráðneytinu. Mynd: Jim Smart. inn hafi skilgreint möguleg úrræði á þijá vegu. - I fyrsta lagi er um að ræða sambýli fyrir þá einstaklinga sem þurfa mestan stuðning og eftirlit. A slíku sambýli þurfa að vera starfs- menn allan sólarhringinn. Niður- stöður starfshópsins er að 43 ein- staklingar þarfnist úrræðis á þenn- an veg, sagði Jóhanna. - Urræði númer tvö em sam- býli fyrir þá einstaklinga sem þurfa minni stuðning og eflirlit. Þá er ég að tala um starfsmenn frá morgni til kvölds eða í um 16 klst., sagði félagsmálaráðherra. I þriðja lagi þarf íbúðir af ýmsu tagi, þeir sem þyrftu á því að halda em tiltölulega sjálfbjarga með dag- legar athafnir, en þarfnast þó reglu- bundins stuðnings og heimaþjón- ustu, sagði Jóhanna Sigurðardóttir. Bragi Guðbrandsson aðstoðar- maður félagsmálaráðherra sagði að íslendingar hafi á áttunda áratugn- um unnið mikið fyrir hreyfihaml- aða einstaklinga, áratug seinna hafi þroskaheftir fengið athygli lands- manna og búið að þeim ofl á tíðum vel. - Nú er kominn tími geðheftra einstaklinga, sagði Bragi. - Það er almennt viðurkennt að þessi hópur hefúr setið eftir í umQöllun og að- gerðum gagnvart fötluðu fólki. - Maður horfir á, að nú þegar sameining ríkis og sveitarfélaga hefúr verið komið á, þá taki það af öll tvímæli um að geðsjúkt fólk geti gengið inn í þá þjónustu sem kerfi fatlaðra einstaklinga býður uppá, sagði Bragi. -sþ Ríkisstjómin kemur aftan aö húsbyggjendum S harðorðri ályktun bæjarráðs Njarðvíkur um hækkun vaxta og Isíhækkandi aflöll á húsbréfum kemur fram að með lauslegri áætlun megi gera ráð fyrir því, að húsbyggjendur í bænum þurfí að bera afioll sem geta numið allt að 63 miljónum króna vegna aðgerða eða aðgerðarleysis ríkisvaldsins. Kristján Pálsson bæjarstjóri í Njarðvík segir að húsbyggjendum hefði verið talin trú um það í upp- hafi að hér ríkti í stöðugleiki í efhahagslífmu með lækkandi verð- bólgu og því vel til fallið að ráðast í húsbyggingar. Sérstaklega þegar þess er gætt að í upphafi húsbréfa- kerfisins hefðu eðlileg afföll verið talin vera 6%-7%, en séu nú komin yfir 22,5%. Það þýðir að nánast Þau námsmannafélög sem að- ild eiga að samstarfsnefnd náms- mannahreyfinganna eru Bandalag íslenskra sérskólanema, Samband íslenskra námsmanna erlendis og Stúdentaráð Háskóla Islands. Þessi samtök eiga og hvert sinn fúlltrúa í stjóm Lánasjóðs íslenskra náms- manna. Á fundi sem samstarfsnefndin hélt sl. fimmtudag var svohljóð- andi ályktun samþykkt: „Fundur haldinn í Samstarfsnefnd náms- mannahreyfinganna 23. maí 1991 fjórða hver króna í húsbréfunum gufar upp. Bæjarstjórinn segir, að að öllu óbreyttu séu miklar líkur á því að húsbyggjendur muni fara illa út úr húsbréfakerfinu með ófyrirsjáan- legum afleiðingum fyrir hina fjöl- mörgu einstaklinga sem í hlut eiga. Bæjarráð Njarðvíkur vill benda á að í bænum er mikið um nýbygg- ingar sem eru á ýmsum byggingar- mótmælir harðlega fyrirhuguðum skerðingum námslána á næsta skólaári og lýsir furðu á því að fyr- irhugað sé að skerða námslán um eða yfir 20% á meðan aðrir þegnar landsins vænta aukins kaupmáttar. Þetta mun valda því að hluti náms- manna verður að hverfa frá námi eða hætta við fyrirhugað nám. Það er með öllu óþolandi að náms- menn, margir með íjölskyldur á ffamfæri, sem hafið hafa nokkurra ára nám hérlendis eða erlendis, skuli búa við slíkt óöryggi sem stigum og óhjákvæmilegt að eig- endur þeirra, sem ekki eiga annarra kosta völ en að fjármagna þær með húsbréfum, muni lenda í miklum hremmingum ef fram fer sem horf- ir. Að mati bæjarráðs er hér um ótrúlega eignaupptöku að ræða hjá fólki sem er að koma sér þaki yfir höfuðið. Því beinir bæjarráðið því til ríkisstjómarinnar að tafarlaust verði fundin lausn á þessu máli og þeim sem þegar hafa þurft að bera afföll af húsbréfum umfram 6%- 7%, verði bættur skaðinn í gegnum skattakerfið eða á einhvem annan skilvirkan hátt. Þá mótmælir Starfsmannafélag raun ber vitni; að lífsviðurværi þeirra sé skert um tugi prósenta fyrirvaralaust án þess að þeir hafi mögulcika á að bæta sér það upp á annan hátt. Því munu margir þurfa að leita á náðir foreldra og ættingja sem margir em ekki aflögufærir og stríða aðgerðir sem þessar gegn megintilgangi laga um námslán, sem er að tryggja jafnrétti til náms óháð efnahag," segir m.a. í ályktun samstarfshópsins. Samstarfshópurinn bendir einnig á að þann 600 miljón króna fjárhagsvanda sem LIN stendur frammi fyrir á þessu ári megi að mestu leyti skýra á þrjá vegu. I fyrsta lagi ákvörðun AÍþingis um að flytja 200 miljónir frá LÍN yfir í ríkisstofnana harðlega þeirri vaxta- hækkun sem ríkisstjómin hefur ákveðið, en þó sérstaklega aftur- virkum vaxtahækkunum á lánum Byggingasjóðs ríkisins frá árinu 1984. SFR telur það algjört sið- leysi að koma þannig aftan að hús- eigendum, sem gert hafa greiðslu- áætlanir út frá öðrum forsendum. Að mati Starfsmannafélagsins fyr- irgera stjómvöld trausti almenn- ings sem á þann hátt virða ekki leikreglur. I ályktun SFR segir að nógu erfitt sé fyrir launamenn að festa kaup á húsnæði þó þeir séu ekki beint tengdir sveiflum á Qár- magnsmarkaði. -grh húsnæðiskerfið. I öðru lagi afborg- anir vaxta og lántökugjalda uppá 200 miljónir, vegna lána sem tekin vom og ekki var gert ráð fyrir í fjárlögum. í þriðja lagi er fjölgun námsmanna sem var meiri en ráð var fyrir gert. I lok ályktunarinnar segir síð- an, „Fundurinn harmar þá breyt- ingu á vinnubrögðum sem orðið hafa við ráðherraskipti í mennta- málaráðneytinu, en þessar fyrir- huguðu breytingar sáu námsmenn fyrst í fjölmiðlum og ekki hefur enn verið haldinn fundur í stjóm Lánasjóðsins þó þrjár vikur séu liðnar síðan núverandi ríkisstjóm tók við og því ekkert samráð verið haft við námsmenn.“ -sþ Stjómar' þátttakan Krötum dýr Samkvæmt skoðana- könnun, sem DV birti í gær á fylgi stjórnmálaflokkanna, vekur stjórnaþátttaka Al- þýðuflokksins litia hrifningu hjá mörgum fylgismanni flokksins. Alþýðuflokkurinn nýtur nú stuðnings tæplega 10 prósenta fylgis, í stað 15,5 prósenta sem flokkur- inn hlaut í síðustu kosning- um og er þá eingöngu miðað við þá sem tóku afstöðu, eða rúma 70 af hundraði þeirra 600 manna sem úrtakið náði til. Alþýðubandalagið bætir mestu fylgi við sig frá kosn- ingum samkvæmt könnuninni, eða fer úr 14,4 af hundraði í 18,6. Þá virðist Framsóknar- flokkurinn einnig hafa bætt við sig nokkru fylgi, eða úr 18,9% í 21,9%. Fylgisaukning Sjálfstæðisflokks og Kvenna- lista er allnokkm minni sam- kvæmt könnuninni. Væri þingsætum skipt nið- ur á flokkana samkvæmt þess- um niðurstöðum væri ríkis- stjómin með eins nauman meirihluta og hægt er til að halda velli, eða 32 þingsæti af 63. Alþýðuflokkurinn væri með 6 þingmenn í stað 10 og Sjálfstæðisflokkur með sömu þingmannatölu og nú eða 26 þingmenn. Alþýðubandalagið fengi samkvæmt könnuninni 12 þingmenn í stað 9, Framsókn- arflokkur 14 í stað 13 nú og Kvennalisti væri með 5 þing- menn sem fyrr. -rk Námsmenn gagnrýna vinnu- brögð nýs menntamálaráðherra Samstarfsnefnd námsmannahreyfínganna hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna fyrirhugaðrar kjaraskerðingar sem náms- menn standa frammi fyrir vegna aðgerða ríkisstjórnar Dav- íðs Oddssonar.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.