Þjóðviljinn - 28.06.1991, Qupperneq 12
HÚSOGHE
\\m\i\
[i
Það getur komið sér illa
að spara of mikið í hönnim
Margt ber að hafa í huga þegar lagt er út I það stóra verk-
efni að byggja yfir sig þak. Ekki er nóg að byggja bara
einhverskonar hús því það þarf að skipuieggja allt vel svo
að útkoman verði sem best og að plássið nýtist vel.
Við Bergstaðastræti í Reykja-
vík eru til húsa feðgar sem reka
sameiginlega arkitektastofu.
Blaðamaður hitti þá að máli til að
ræða við þá um ýmis mál er varða
byggingu og hönnun á húsum og
hvaða ráðgjöf þeir geti gefið fólki í
því sambandi.
Hús eru mjög mismunandi hér
á landi svo og annars staðar, og fer
það eftir efnum fólks hversu stórt
og íburðarmikið hús það getur
leyft sér að byggja.
I þessu viðtali miðum við tal
okkar við meðalfjölskyldu í
Reykjavík, en þær ijölskyldur búa
oftast í fjölbýlishúsum eða í mjög
einfaidri og hentugri gerð sérbýla.
Geirharður Þorsteinsson er
arkitekt og hefúr rekið stofúna á
Bergstaðastræti 14 í um 6 ár. Hann
lærði arkitektúr í Munchen í
Þýskalandi og kom síðan hingað
heim að loknu námi og hóf hér
störf.
Sonur hans, Þorsteinn Geir-
harðsson, hefur verið í arkitekta-
námi í Áusturriki, Kanada og nú
síðast á Italiu þar sem hann var í
framhaldsnámi í iðnhönnun.
Feðgamir hafa þó nokkuð ólík-
an smekk, en þrátt fyrir það þá
r
Hvaba kröfur
gerir þú til
nvrrar
þvottavélar ?
Væntanlega þær, ab hún þvoi, skoli og vindi vel, en sé jafnframt sparneytin
á orku, vatn og sápu. A6 hún sé au&veld í notkun, hljó&lát og falleg.
Sí&ast en ekki síst, a& hún endist vel án sífelldra bilana, og a& varahluta- og
viðger&aþjónusta seljandans sé gó&.
Séu þetta kröfurnar, líttu þá nánar á ASKO hjá Fönix. ASKO stenst þær allar
og meira tii, j)ví þa& fást ekki vanda&ari né sparneytnari vélar. Og
þjonusta Fönix er fyrsta flokks, traust og lipur.
Ver&ib svíkur engan, því nú um sinn bjó&um vi& ASKO
þvottavéiarnar, bæ&i framhla&nar og topphla&nar, á sérstöku
kynningarverði:
ASK010003 framhl.
ASKO 11003 framhl.
ASKO 12003 framhl.
ASKO 20003 framhl.
ASK0 13002 topphl.
ASK016003 topphl.
1000 sn.vinding
900/1300 snún.
900/1300 snún.
600-1500 snún.
1300 sn.vinding
900/1300 snún.
KR. 71.500 (67.920 stgr.)
KR. 79.900 (75.900 stgr.)
KR. 86.900 (82.550 stgr.)
KR. 105.200 (99.940 stgr.)
KR. 62.900 (59.750 stgr.)
KR. 78.900 (74.950 stgr.)
V.
Góðir greiðsluskilmálar: 5% staðgreiðsluafsláttur (sjá að ofan) og 5% að auki séu keypt
2 stór tæki samtímis (magnafsláttur). VISA, EURO og SAMKORT raðgreiðslur til allt að
12 mán. ,án útborgunar.
ÞVOTTAVÉLAR 6 CERÐIR TAUÞURRKARAR 8 GERÐIR
UPPÞVOTTAVELAR 5 CERÐIR
iFOnix
HATUNI 6A SIMI (91) 24420
/
segjast þeir ræða talsvert saman
um hugmyndir og leita oft álits
hvor hjá öðrum.
Aðspurðir um hvemig hefð-
bundin, hagkvæm og falleg íbúð
liti út í dag svaraði Geirharður því
til, að fólk yrði að hafa hófsamar
kröfúr til að hús yrðu ódýr. Annað
hvort væri um að ræða leiguhús-
næði eða mjög ódýrt húsnæði. Hér
í Reykjavík væri það oftast fjölbýli
sem kæmi til greina fyrir hina al-
mennu fjölskyldu.
„Ég held að allar forsendur séu
fyrir því að hægt sé að gera al-
mennilegt húsnæði hér í þéttbýlinu
fyrir fólk með meðaltekjur,“ sagði
Geirharður. „En þá þarf að taka
mjög skynsamlega á öllum hliðum
til að það takist."
Geirharður sagði að allt of
sjaldan gerði fólk sér grein fyrir
því, að til þess að hús kæmu sem
ódýmst út þá þyrfhi allar hliðar í
uppbyggingu þess að vera sem best
skipulagðar og úthugsaðar. „Hús
verður ekki ódýrt nema í fyrsta
lagi ef farið er mjög vel með pláss-
ið. Það verður að teikna hús þannig
að hver einasti fermeter í því nýt-
ist. Fyrir hvem auka fermeter verð-
ur fólk að borga á milli 40-60 þús-
und,“ sagði Geirharður. Hann
sagði að í öðm lagi yrði efnið sem
notað er í húsið að vera notað
skynsamlega og eins lítið notað og
hægt er að komast af með. „Menn
stundum gusa bara inn efni og
setja mikla veggi og allt mögulegt,
en vara sig ekki á því að hvert ein-
asta kíló í vegg kostar peninga.“
Hann sagði að í þriðja lagi
þyrfti hús að vera mjög einfalt í
sniðum þannig að það fari lág-
marks vinna í að koma öllu efninu
á sinn stað.
Geirharður sagði að líklega
myndi þetta hagkvæma hús, sem
um er að ræða, líta mjög einfald-
lega út. „Sennilega er það mesti
vandinn að gera ódýrt hús þannig
úr garði að það verði fallegt."
Þorsteinn var sammála foður
sínum í þessum þremur lykilatrið-
um. Hann bætti því við að þegar
upp er staðið þá sparar fólk lítinn
pening með því að spara í hönnun.
„Fólk reynir að spara sér pen-
ing með því að kaupa ódýrar teikn-
ingar, en þá em þær að sama skapi
lítið unnar." sagði Þorsteinn.
„Vegna þess hve illa unnar þessar
Þorsteinn Geirharðsson segir fólk
reyna að spara sér pening með þvl
að kaupa sér ódýrar teikningar, en
það sé I raun engin sparnaður.
Mynd: Kristinn.
ódýra teikningar em, þá gæti kom-
ið alls kyns auka kostnaður og ráð-
gjöf. Því er betra fyrir fólk að
kaupa góðar teikningar, þó svo þær
séu tvöfalt til þrefalt dýrari, og
hafa þá allt á hreinu.“
En hversu algengt er það að
húsbyggjendur leiti sér ráðgjafar
hjá arkitektum?
Geirharður sagði að það hefði
frekar aukist en hitt. „Samt vantar
tilfinnanlega einn hóp inn í dæmið.
Það em þeir sem ætla að láta hag-
kvæmni sitja í fyrirrúmi. Þeir fara
til hraðteiknara, en þeir leggja til
ódýrar teikningar sem ekki hefur
verið lögð mikil vinna í.“
Geirharður sagði að húsbyggj-
éndur gætu reiknað með að þurfa
Geirharöur Þorsteinsson á vinnustof-
unni I Bergstaðastrætinu.
að borga arkitektum um 4% af
byggingarkostnaði fyrir góðar
teikningar. Þá er það tvö og hálft
prósent fyrir hústeikninguna og eitt
og hálft prósent fyrir innréttingar
og innri gerð. Sé dæmi tekið um
tíu miljóna króna hús þá kostar
þetta alls fjögurhundruð þúsund.
Geirharður sagði að þetta gæti
virst mikill peningur, en þegar lagt
er út í húsbyggingar til að byija
með, þá eiga þessi fjárútlát eflir að
borga sig. „Það er betra að borga
meira í stað þess að sitja uppi með
gallaða vöra.“
En er eitthvað til sem heitir sér
íslenskur arkitektúr?
Geirharður sagði að þeir arki-
tektar sem væm starfandi hér á ís-
landi hefðu flestir lært erlendis og
þaðan kæmu þeir með nýjar og
ólíkar hugmyndir. En auðvitað
þyrfti að taka tillit til íslensks veð-
uífars því það spili svo mikið inn í.
„Það er t.d. notað mikið af stein-
steypu hér á landi og arkitektar
verða því að taka mið af því. Það
má segja að þetta sé íslenskur arki-
tektúr með keim af erlendum hug-
myndurn."
Geirharður sagðist nota eins
mikið af íslensku efni og hann
gæti. En hann notar aðeins þau
bestu efni sem völ er á, og ef erlent
efni er betra, þá lætur hann það
ganga fyrir þvi íslenska.
Feðgamir vildu að lokum ít-
reka að verð og gæði húss ráðast af
hagkvæmni og vandvirkni við
teikniborðið.
-KMH
ÞJÓÐVILJINN júní 1991
Síða 12
GRumnruiD 2. híd