Þjóðviljinn - 05.07.1991, Síða 3
r
Listasafn Islands
íslensk list
íKöln
7. júlí næstkomandi verður
opnuð sýning á íslenskri samtíma-
list í Kölnischer Kunstverein í
Köln. Sýningin er hluti stærra verk-
efhis á vegum 63 þýskra sýningar-
sala (Kunstvereine), þar sem ætlun-
in er að sýna samtímalist frá 20
Evrópulöndum. Yfirskrift þessa
verkeíhis er: Kunst. Europa. Það er
mikill heiður fýrir ísland, að ein-
mitt hinn virti sýningarsalur Kölni-
scher Kunstverein hafi valið ís-
lenska myndlist, en sá staður hefur
á undanfomum árum verið í farar-
broddi þýskra sýningarsala. Undan-
farin ár hefur borgin Köln einnig
verið í forystuhlutverki og um leið
miðpunktur samtímalistar í Evrópu.
Val listamaima er í höndum for-
stöðumanns Kölnischers Kunstve-
rein, dr. Marianne Stockebrand. A
sýningunni verða verk eftir: Krist-
ján Guðmundsson, HreinFriðfmns-
son, Ingólf Amarsson, Önnu Guð-
jónsdóttur, Tuma Magnússon,
Finnboga Pétursson og Rögnu Ró-
bertsdóttur.
Hér er því um afar spennandi
verkefni að ræða og gæti þessi sýn-
ing haft afgerandi áhrif á kynningu
íslenskrar myndlistar í Þýskalandi.
Fyrir utan
gluggann
Reykjavík 03.07.1991
Vegna skrifa K.J. í Nýtt Helgar-
blað 28.06 1991 um ljóðabókina
Fyrir utan gluggann vil ég koma
eftirfarandi athugasemdum á ffam-
færi.
Orðrétt skrifar K.J.: „Hún er
tæplega 40 bls. að lengd og fallega
ffá gengin ef litið er ffamhjá nokkr-
um leiðum stafsetningarvillum."
Halda mætti að stafsemingar-
villur settu áberandi svip á bókina
þar eð K.J. telur ástæðu til að koma
þessari athugasemd sinni á ffam-
færi í þeim fáu línum sem hann
annars skrifar um bókarkomið.
Víst em tvær ritvillur í bókinni
og er það tveimur of mikið. Önnur
er á bls. 27 „og rauða varir“, - þar
vantar r og er það greinileg prent-
villa. Hin villan er á bls. 12 og er
reyndar öllu verri: „grætur tómann
kofa“, þama ætti að sjálfsögðu að
standa tóman kofa, sbr. reglu um an
endingu lýsingarorða og er miður
að mér hafi þama yfirsést í prófark-
arlestri. Heyrt hef ég að varla fyrir-
finnist það rit sem ekki geymi
a.m.k. eina prentvillu og þrátt fýrir
þessar tvær í ljóðabók minni finnst
mér ómaklega að mér vegið í skrif-
um blaðsins.
Auðvitað em bækur misgóðar
og verður lítið að gert, en rétt skal
vera rétt, einkum þar eð bók min
fær aðeins nokkurra línu umfjöllun
í blaðinu ásamt birtingu af bókar-
kápunniskakkri.
Með kærri kveðju og þökk fýrir
birtinguna.
Unnur Sólrún Bragadóttir
Kyn, vald,
og fegurö
Laura Valentino heldur
málverkasýningu með nafninu
„Kyn, vald, fegurð“ í Hlað-
varpanum, Vesturgötu 3, frá 5.
til 21. júlf nk.
Laura lauk M.A. námi í list-
málun ffá Kalifomíu háskólanum
í Berkeley árið 1980, og hefur
sýnt verk sín víða í Bandaríkjun-
um. Hún hefur dvalið á íslandi í
þijú ár, og stundar nám í íslensku
við Háskóla íslands. Sýningin
verður opnuð föstudagskvöld, 5.
júlí milli kl. 8.00 - 10.00. Allir
velkomnir. Galleríið er opið þri,-
fóst. kl. 12.00 - 18.00, laug. kl.
10.00 - 16.00 og sun. kl. 14.00 -
16.00.
SYNINGAR:
Árbæjarsafn: 7. júlí, Jasshátíð.
Jasssveit Tómasar R. Einars-
sonar. Fyrirlestur Eggerts Þórs
Bemharðssonar um tónlist á
stríðsámnum.
Ásmundarsafn við Sigtún:
Sýningin „Bókmenntimar í list
Ásmundar Sveinssonar". Ný við-
bygging hefur verið opnuð. Opið
10.00 -16.00 alla daga.
Café Milanó, Faxafeni 12: Alda
Ármanna Sveinsdóttir opnar
sýningu á vatnslitamyndum
laugardaginn 6. júlí. Opið virka
daga 9.00 -19.00 og sunnudaga
13.00- 18.00.
FÍM-salurinn: Sumarupphengi
stendur yfir i FlM-salnum til 21.
júlí.
Hafnarborg, Hafnarfirði:
Myndlistarsýning fjölmargra
listamanna í tengslum við Lista-
hátíð.
Hótel Lind, Rauöarárstíg 18:
Helga Magnúsdóttir sýnir mál-
verk frá kl. 11.00 - 23.00 alla
daga vikunnar.
Kjarvalsstaðir: Sýningin Ragn-
ar I Smára, - myndir úr gjöf
Ragnars til ASl. Sýningin stend-
urtil 14. júlí.
Sýning á verkum eftir Christo í
vestursal. Sýningin opnar 8.júní
og stendur til 14. júlí. Kjarvals-
staðir eru opnir daglega frá kl.
11.00- 18.00.
Listamannaskálinn, Hafnar-
stræti 4, 2.h: Listamaðurinn
Bjömholt sýnir 8 myndir í olíu og
acryl. Opið daglega kl. 10.00 -
18.00, laugardaga kl. 9.30 -
14.00
Listasafn ASÍ: Laugardag 29.
júní kl. 15.30, opnuð sýningin:
Ungir listamenn. Sýning í minn-
ingu Ragnars i Smára.
Listasafn Einars Jónssonar:
Opið alla daga nema mánudaga
kl. 13.30 - 16.00, Höggmynda-
garðurinn opinn alla daga 11.00
-16.00.
Listasafn Sigurjóns Ólafsson-
ar: Yfirlitssýning á andlitsmynd-
um Sigurjóns frá árunum 1927 -
1980. Opið um helgar 14.00 -
18.00 og á kvöldin kl. 20.00 -
22.00, virka daga, nema föstu-
daga.
Menningarstofnun Bandaríkj-
anna: Myndlistarsýning Guð-
jóns Bjarnasonar. Þar verður op-
ið daglega frá 11.30-17.45
Minjasafnið á Akureyri, Aðal-
stræti 58 og í Laxdaishúsi,
Hafnarstræti 11: Opið daglega
kl. 11.00 - 17.00. Sýning á
mannamyndum Hallgríms Ein-
arssonar, Ijósmyndara. Laxdals-
hús, Hafnarstræti 11, er opið
daglega kl. 11.00 - 17.00. Þar
stendur yfir sýningin: „Öeljord
handelssted, brot úr sögu versl-
unar á Akureyri." Sunnudag-
skaffi.
Norræna húsið: Sumarsýning
Norræna hússins. Málverk eftir
Þorvald Skúlason. Sýning á
finnskri gullsmíði stendur yfir.
Nýiistasafnið.Vatnsstíg
3b.:Sveinn Þorgeirsson og
Daníel Magnússon. Sýningin er
opin daglega frá kl. 14.00 -
18.00 virka daga og helgar frá
kl. 12.00 -18.00. Henni lýkur 14.
júlí.
Póst og símaminjasafnið,
Austurgötu 11 Hafnarfirði: Op-
ið á sunnud. og þriðjud. 15.00 -
18.00.
Sjóminjasafn fslands, Vestur-
götu 8 Hafnarfirði: Opið alla
daga nema mánudaga kl. 14.00
-18.00. Þar stendur yfir sýning-
in: „Skipstjórnarfræðsla á fs-
landi, Stýrimannaskólinn í
Reykjavík 100 ára“
Slunkaríki: Frans Jakobi frá
Danmörku og Anders Kruger frá
Svíþjóð sýna skúlptúr. Sýningin
opnar laugardaginn 22. júní og
stendurtil 7. júlí.
Stofnun Árna Magnússonar:
Handritasýning i Árnagarði við
Suðurgötu alla virka daga i sum-
ar fram til 1. september, kl.
14.00-16.00
Torfan, Amtmannsstíg 1:
Gígja Baldursdóttir hengir upp
myndir 6. júlí. Myndirnar eru til
sölu.
Veitingahúsið í Munaðarnesi:
Þorlákur Kristinsson, Tolli, sýnir
myndverk i allt sumar frá kl.
18.00 á fimmtud., föstud., laug-
ard., og sunnud.
Þjóðminjasafnið: Sýningin
Stóraborg Fornleifarannsókn
1978 - 1990, opnuð laugardag-
inn 6. júlí kl. 14.00. Sýningin
verður opin fram í nóvember.
Menntamálaráðuneytið: Sýn-
ing á myndasögum 30.5 - 30.7.,
opið á virkum dögum kl. 8.00 -
16.00
Mokka: Sýning á litlum vatns-
litamyndum eftir Helga Jónsson.
Stendur í tvær vikur.
Gallerí Kot, í Borgarkringl-
unni: Leifur Breiðfjörð sýnir
steinda glugga, olíumálverk og
pastelmyndir laugardaginn 22.
júní. Sýningunni lýkur 13. júlí.
Gallerí Borg Pósthússtræti:
Sumarsýning á verkum gömlu
meistaranna. Öll verkin eru til
sölu. Opiö frá kl. 14.00 - 18.00,
lokað um helgar.
TÓNLIST
Listasafn Sigurjóns Ólafsson-
ar: Signý Sæmundsdóttir og
Björk Jónsdóttir flytja fjölbreytta
efnisskrá við undirleik David
Tutt, píanóleikara þriðjudaginn,
9.júlí kl.20.30
Laxdalshús, Akureyri: Helgi
og hljóðfæraleikaramir halda
tónleika í bakgarði Laxdalshúss.
Þjóðdansahópur frá Dalvik sýnir
þjóðdansa.
Skálholtskirkja: Laugardagur
6. júlí: kl. 13.00 J. Wentz flautu-
leikari fjallar um lífssýn barokk-
tónskálda. Kl. 15.00: Einleiks-
verk mm.a. eftir Biber, Quantz
og Telemann. Kl. 17.00 Verk eft-
ir Graf og Mozart. Sunnudagur
7. júlí: Kl. 15.00 Úrval úr tón-
ieikaskrám laugardagsins. Kl.
17.00: Messa.
HITT OG ÞETTA
Útivist: Helgarferðir 5-7. júlí.
Básar á Goðalandi. Út frá Bás-
um eru skipulagðar gönguferðir.
Fimmvörðuháls - Básar: Farið
inn á Bása á föstudgagskvöldi
og gist þar.
Hindisvík - Hvítserkur - Borgar-
virki. Farið kringum Vatnsnes
með viðkomu á Breiðabólsstað
og Borgarvirki.
Sumarieyfisferðir 15 - 31. júlí:
19.- 24: Eyðifirðir Austfjarða
28.- 1/8: Sóleyjahöfðavað -
Þjórsárdalur.
Laugardagur, 6. júlí: Kl. 08.00.
Bláfell á Kili. Gengið verður frá
Bláfellshálsi.
Sunnudagur, 7. júlí, kl.09.00:
Heklugangan. Gullfoss - Brúar-
hlöð - Haukholt. Kl. 13.00:
Draugahlíðar - Jósefsdalur.
Gengið frá Litlu Kaffistofunni.
Tjaldsvæðið í Básum: Vegna
mikillar aðsóknar núna um helg-
ina verða allir sem ætla sér að
tjalda í Básum og á Goðalandi
að fá leyfi á skrifstofu Útivistar.
Félag eldri borgara: Göngu-
Hrólfar! brottför kl. 10.00 laugar-
dag frá Risinu, Hverfisgötu 105.
Skoðunarferð í Skorradal 20.
júlí. Upplýsingar á skrifstofunni í
síma: 28812
Norræna húsið: Laugardag 6.
júlí: Einar Benediktsson skáld.
Málþing um verk hans. Umsjón:
Félag áhugamanna um bók-
menntir.
Hananú: Vikuleg laugardags-
ganga á morgun. Lagt af stað frá
Fannborg 4 kl. 10.00
Ferðafélag islands: Föstudag-
ur 5.júlí, kl.20.00: Farið í Þórs-
mörk, Landmannalaugar, að
Hagavatni, um Hlöðuvelli að
Geysi.
Sunnudagsferðir 7. júlí, kl: 8.00 í
Þórsmörk. Sunnudag kl. 9.00:
Ganga um Brúárskörð. Sunnu-
dag kl. 13.00: Skemmtiganga
um Hrauntúsgötu á Þingvöllum.
Brottför í ferðimar er frá BSÍ,
austanmegin. Miðvikudagskvöld
10.júlí kl. 20.00: Kvöldferð í En-
gey.
FLJUGÐU A VIT ÆVINTYRANNA
FLJÓTT, FLJÓTT
FERÐASKRIFSTOFA
Sími 652266
TIL AMSTERDAM EÐA LUXEMBURGAR
verðdæmi: Amsterdam 1 vika pr. mann 18.550*
Luxemburg 19.250*
* miðað við 2 fullorðna og 2 börn 2-11 ára i bíl í D-flokki.
hbiNGDU oG
fj "l 1 'A JA'-,
< /‘
'a'J*í'j. á