Þjóðviljinn - 05.07.1991, Síða 7

Þjóðviljinn - 05.07.1991, Síða 7
Slóvenía hafnar úrslita- kostum forsætisráös Júgóslavíuher hefur í hótunum við Slóvena. Vaxandi hætta á íriðslitum í Króatíu Konur f Ljubljana, höfuöborg Slóvenfu f loftvarnabyrgi, er júgóslavneski flugherinn kastaði sprengjum að fjar- skiptastöðvum þar. Þesskonar vistarverur hafa Evrópumenn yfirleitt ekki þurft að nota frá þvf að heimsstyrjöld- inni síðari lauk. Horfur í Júgóslavíu urðu enn á ný ófriðlegri í gær eftir að forsætisráð sambandslýðveldis- ins hafði sett Slóvenum úrslita- kosti og þeir vísað þeim á bug. Óttast nú margir að bardagar hefjist á ný og í Króatíu verður ástandið sífeilt ófriðvænlegra. Forsætisráðið, þar sem full- trúar allra lýðvelda og sjálfstjóm- arsvæða Júgóslavíu eiga fulltrúa kom saman á fúnd í gær (fulltrúi Slóvena mætti ekki) og krafðist þess í fúndarlok af stjóm Slóven- íu að hún kveddi heimavamarlið lýðveldisins til stöðva þess og af- henti yfirvöldum sambandslýð- veldisins allar landamærastöðvar sínar við landamæri Austurríkis, Italíu og Ungveijalands. Skyldi þessu hafa verið lokið um hádegi á sunnudag. Ekki tók forsætisráð fram hvað það hyggðist taka til bragðs ef Slóvenar yrðu ekki við kröfúm þessum. Slóvenska stjómin hafnaði fljótlega úrslitakostum þessum á þeim forsendum að með þeim væri sjálfstæðisyfirlýsing Sló- vena frá 25. júní sniðgengin. Og Jelko Kacin, upplýsingamálaráð- herra Slóveníu, sagði er honum vom sagðir kostir sambands- stjómar: „Júgóslavía á ekki leng- ur landamæri að Austuríki og Ital- íu.“ Júgóslavneska yfirherstjóm- in, serbnesk að mestu, sakaði í gær Slóvena um að virða ekki vopnahléið og hótaði umfangs- meiri hemaðaraðgerðum en áður. Frá Króatíu fréttist að þar- lendir þjóðvarðarliðar og menn af serbneska þjóðemisminnihlutan- um þar hefðu skotið hvorir á aðra í austurhluta lýðveldisins og heíðu nokkrir fallið og særst. Þá halda króatísk stjómvöld því fram að vopnaðir sétníkar (serbneskir þjóðemissinnar sem kalla sig eftir serbneskum skæmliðum í heims- styrjöldinni síðari, sem börðust bæði gegn Þjóðveijum og með þeim gegn Tito) hafi farið inn í Króatíu í skjóli sambandshersins. Slóvenski Rauði krossinn til- kynnti í gær að 49 menn hefðu verið drepnir í bardögunum í lýð- veldinu í s.l. viku, þar af 35 af Júgóslavíuher. í gær var allt með friði og spekt í Slóveníu. Á einum stað sáust þarlendir heimavamar- liðar og liðsmenn sambandshers hjálpast að við að taka til eftir bar- daga og gefa hvorir öðrum vín að drekka. Af hálfú Evrópu- og vestur- landaríkja er nú mikill erindrekst- ur til að koma í veg fyrir ffekari hemað í Júgóslavíu og er mest gengið fram í þvi á vettvöngum Evrópubandalags og Ráðstefn- unnar um öiyggi og samvinnu í Evrópu (ROSE). EB-riki og Bandaríkin hóta að stöðva alla efnahagsaðstoð við Júgóslavíu ef her sambandsstjómar byiji bar- daga á ný og gefa sum ennffemur í skyn, yfirleitt þó með tvíræðu orðalagi, að viðurkenning á sjálf- stæði Rróatíu og Slóveníu komi til greina. Er óljóst hvort það er alvarlega meint eða fyrst og fremst sem þrýstingur á sam- bandsstjóm Júgóslavíu og her hennar, sem nú er vitað með vissu að ekki hlýðir stjóminni nema annað veifið. Grannar Júgóslavíu áhyggjufullir Austurríki vill að líkindum að Króatía og Slóvenía verði sjálfstæðar, önnur grannríki óttast að upplausn Júgóslavíu valdi þeim vandræðum og ókyrrð að er ekki ofsögum sagt af því að grannar Júgóslavíu séu á nálum út af því sem í því landi er að gerast. Ókyrrð á því svæði sem nú er Júgóslavía varð kveikjan að heimsstyrjöld- inni fyrri, en af henni hlutust sem kunnugt er miklar landa- mærabreytingar í álfunni og stofnun nýrra ríkja, þ.á m. Júgóslavíu. Nú telja margir að Júgóslavía sé að leysast upp og að ólgan þar kunni að breiðast út til annarra landa með ófyrir- sjáanlegum afieiðingum. En viðhorf ráðamanna grannríkja Júgóslavíu til atburöanna þar undanfarið eru með ýmsu móti. AUSTURRÍKI: Almenning- ur þar hefúr samúð með Króötum og sérstaklega Slóvenum, sem ná- komnir eru Austurrikismönnum í menningarefhum, og undir það hafa stjómvöld tekið. Með dip- lómatísku orðalagi segja þarlend- 52 fórust í umferðar- slysi 52 menn fómst í Nígeríu í fyrradag er vömbíll ók á fólksflutn- ingavagn. Er þetta að sögn versta slysið af þessu tagi hingað til þar í landi. ir embættismenn að koma verði til móts við kröfúr Króatíu og Slóveniu, að öðmm kosti megi vænta þess að þjóðemishreyfing- ar Júgóslaviu gerist „róttækari". Sé svarað að upplausn Júgóslavíu muni leiða til óstöðugleika um allan Balkanskaga, í Austur-Evr- ópu og víðar, þá svara Austurrík- ismenn á móti sem svo: Með því að ganga að vemlegu leyti að kröfúm Króata og Slóvena mun betur takast að koma i veg fyrir óstöðugleika en með því að þver- skallast við kröfum þessara þjóða. ITALIA virðist í bráðina hafa mestar áhyggjur af þvi að átökin í Júgóslavíu leiði til flóttamanna- straums þaðan yfir á ítalskt land. Gianni de Michelis, utanríkisráð- herra Ítalíu, hefur boðað til fúndar utanríkisráðherra allra þeirra ríkja, sem eiga landamæri að Júgóslavíu, á morgun. RÚMENÍA: A ráðamönnum þar má marka að þeir hafa sárar áhyggjur af því að stærsti þjóð- emisminnihlutinn þar, sá ung- verski í Transsylvaníu sem enn hefúr ekki sætt sig fyllilega við innlimun þess landshluta í Rúm- eníu í lok heimsstyijaldarinnar fyrri (Transsylvanía hafði þá heyrt undir Ungveijaland frá því á víkingaöld), muni láta hvetjast af atburðunum í Júgóslavíu til þess að krefjast endursameiningar við Ungverjaland. Ungveijar í Trans- sylvaníu em um 2,3 miljónir. Á Niculae Spiroiu, vamarmálaráð- herra Rúmeníu, mátti skilja í gær að hann væri ekki gmnlaus um að Ungverjar i Ungverjalandi myndu reyna að nota þetta tækifæri til að ná Transsylvaníu aftur. Leiðtogi helsta stjómmálaflokks Transsyl- vaníu-Ungverja þvertekur fyrir að þeir hafi neinn áhuga á að skilja við Rúmeníu, verði réttindi þeirra sem minnihluta tjyggð. TÉKKÓSLÓVAKÍA: í SIó- vakíu gætir nú þjóðemishyggju mjög og sumir fomstumanna í stjómmálum þar hafa látið í ljós ánægju með „slóvenska fordæm- ið“. BÚLGARÍA: Þarlendir ráða- menn þvertaka fyrir að þeir hafi nokkrar áhyggjur af því að ókyrrðin í Júgóslavíu breiðist út til þeirra, þrátt fyrir áhyggjur út af tyrkneska þjóðemisminnihlutan- um þar, sem telur um miljón. En Makedónar em náskyldir Búlgör- um og Búlgarar og Serbar börðust um Makedóníu í Balkanstríðun- um 1912-13 og í heimsstyijöldun- um báðum. Leysist Júgóslavía upp, er ekki ólíklegt að í Búlgaríu hæfust upp kröfur um að júgó- slavneska Makedónía yrði inn- limuð í Búlgaríu. UNGVERJALAND: Ráða- menn þar segjast engar áhyggjur hafa af þjóðemisminnihlutum þar, Þjóðverjum, Serbum, Króötum, Slóvenum, Slóvökum og Rúmen- um, þar eð þeir búi dreifðir víðs- vegar um Iand. En í Vojvódínu, sjálfstjómarsvæði sem heyrir undir Serbíu, er allfjölmennur ungverskur minnihluti. Það svæði heyrði í aldaraðir undir Ungveija- land og með upplausn Júgóslavíu gæti vaknað áhugi þess fólks fyrir endursameiningu við „gamla landið“. ALBANIA: I serbncska sjálf- stjómarhéraðinu Kosovo, sem að mestu er byggt Albönum, er mik- il óánægja með serbnesku yfirráð- in. Áhugi fyrir innlimun héraðs- ins í Albaníu er að öllum líkind- um fyrir hendi bæði í Albaníu og Kosovo. GRIKKLAND: Mikill hluti utanríkisverslunar þess fer fram um Júgóslavíu og í bráðina hafa Grikkir mestar áhyggjur af tmflun þeirri á henni sem ókyrrðin í Júgóslavíu veldur. En þar að auki óttast grískir ráðamenn að ókyrrð- in breiðist út til múslíma við landamæri Búlgaríu og Tyrklands (sem em um 120.000 að tölu) og að upplausn Júgóslavíu muni leiða til þess að Albanir taki Kosovo. Hafa Grikkir frá fomu fari takmarkaðan þokka á þessum grönnum sínum og vilja ekki að þeir eflist. Hluti Makedóníu heyr- ir og undir Grikkland og óttast Grikkir nú að fyrri þrætur þeirra, Búlgara og Serba um það land kunni að verða teknar upp að nýju. Grikkjum er því áhugamál að Júgóslavia verði til áfram. Kasmíringar sleppa ísraela Kasmlrskir skæmliðar hafa lát- ið lausan Yitzhak Yair, 23 ára gaml- an ísraelskan ferðamann sem var fangi þeirra í tæpa viku. Fjórum öðrum ísraelum, sem skæmliðar rændu um leið og Yair, tókst að yf- irbuga mannræningjana og komast undan. írak leyfir stjórnarand- stöðu Þing Iraks samþykkti í gær lög, sem svo mæla fyrir að stjómarand- stöðuflokkar skuli fá að starfa í landinu. Baathflokkurinn, alráður ríkisflokkur síðan 1968, hefur þó áfram viss forréttindi lögfest, þann- ig verða aðrir flokkar „að vera stoltir af ‘ sögu landsins frá valda- töku hans 1968 og Baath fær áfram einn flokka að starfa í her og örygg- isþjónustu. Hinu nýju lög koma í framhaldi af loforðum þarlendra valdhafa um lýðræði, fram lögðum til að draga úr óánægju innanlands og frikka svip Iraks í augum Evrópu- og vest- urlandaríkja. PLO hættir andstöðu við Líbanonsher Líbanonsstjóm og Frelsissam- tök Palestínu (PLO) gerðu með sér vopnahlé í dag og mun þar með lokið fjögurra daga bardögum þeirra í grennd við Sídon i suður- hluta Libanons. Segir einn ráðherra í stjóminni að PLO hafi lofað að hætta að andæfa ferðum Líbanons- hers um þann hluta landsins og samþykkt að hann kæmi að nýju á fullum yfirráðum libanskra stjóm- valda þar. 60-70 manns féllu í bar- dögunum. Shevardnadze - úr kommúnista- flokki (miðjuhreyfingu. Shevardn- adze á leið úr kommúnista- flokki Eduard Shevardnadze, fyrrum utanrikisráðherra Sovétrikjanna, hefúr ákveðið að ganga úr sovéska kommúnistaflokknum. Er þetta haft eftir Temurazi Stepanov, tals- manni stofhunar um utanríkismál sem Shevardnadze veitir forstöðu. Lengi hefúr verið búist við að Shevardnadze yfirgæfi flokkinn, þar sem hann hefur ekki átt sjö dag- ana sæla vegna harðrar ásóknar ihaldsmanna. Hann er einn fomstu- manna nýrrar miðjuhreyfingar í stjómmálum, sem nú er að komast á kreik og nefnist Lýðræðislega umbótahreyfingin. Föstudagur 5. júlí 1991 NÝTT HELGARBLAÐ — SlÐA 7

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.